Varpaði mynd af Svandísi á skjá og skaut á hana
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, ávarpaði stjórnendur í sjávarútvegi í gær í Hörpu á Sjávarútvegsdaginn. Hún sagði freistandi að ræða málefni líðandi stundar og nefndi sérstaklega Svandísi Svavarsdóttur, matvælaráðherra, en sagðist þess í stað ætla að ræða nýsköpun í sjávarútvegi.