Ætlar að hanga í brennandi kaðli

Töframaðurinn Einar Mikael mun sjá um lokaatriði Akureyrarvöku 2013 laugardaginn 31. september. Þar ætlar hann að hanga í brennandi kaðli í 15 metra hæð og losa sig úr spennitreyju. Hér er stutt myndband þar Einar byrjar undirbúninginn fyrir atriðið en eins og gefur að skilja má ekkert klikka þegar stóri dagurinn rennur upp. Þetta atriði hefur aldrei áður verið framkvæmt í þessari útfærslu á Íslandi. Var því ákveðið að hætta við flugeldasýningu í lok Akureyrarvöku þetta árið til að leyfa því að njóta sín og loka þessari þjóðhátíð norðursins.

4846
03:47

Vinsælt í flokknum Lífið