Skemmdarverk og fúkyrði á Austurvelli
Palestínskur maður sem haldið hefur til í tjaldi á Austurvelli segist hafa fengið tvær miður skemmtilegar heimsóknir í nótt og morgun. Myndbönd sýna tvo karlmenn, á sitthvorum tímanum, með ógnandi tilburði og fúkyrðaflaum í garð fólks á svæðinu.