SGS slitu samningum
Starfsgreinasambandið fer yfir aðgerðaráætlun eftir viku en sambandið sleit viðræðum við Samtök atvinnulífsins í morgun. Niðurstaðan er vonbrigði en verkefnið er að ná samningum segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Ríkissáttasemjari boðar eftir sem áður til samningafunda á hálfs mánaðarfresti.