Læknar stefna í verkfall
Félagsmenn í Læknafélagi Íslands hafa samþykkt að boða til verkfalls náist ekki samkomulag í kjaradeilu við ríkið. Atkvæðagreiðslu lauk klukkan fjögur og samþykktu 93 prósent verkfallsaðgerðir. 83 prósent félagsmanna sem samningarnir ná til tóku þátt í atkvæðagreiðslunni.