Hefur safnað 20 milljónum með dósatínslu
Áttatíu og átta ára bóndi í Rangárvallasýslu hefur safnað 20 milljónum króna á síðustu sautján árum með því að tína dósir meðfram vegum. Íþróttafélagið í sveitinni hefur fengið féð, svo börn geti stundað íþróttir endurgjaldslaust.