Byrja að kaupa eignir
Uppkaup ríkisins á fasteignum í Grindavík hófust í dag þegar Fasteignafélagið Þórkatla gekk frá fyrstu kaupunum á íbúðarhúsnæði í bænum. Langflestir íbúar bæjarins hafa óskað eftir því að sínar eignir verði keyptar eða um þrír fjórðu.