Vona að ekki komi til hamfarahlaups
Óttast er að vatnshæðin í Skaftá rísi verulega þegar hlaup úr eystri Skaftárkatli ratar niður ána á morgun. Vera kann að loka þurfi þjóðveginum við Eldhraun og bændur eru uggandi yfir langtímaafleiðingum ef til hamfarahlaups kemur.