Alþingi

Alþingi

Fréttir af löggjafarþingi Íslendinga, þingmönnum og fleiri tengdum málum.

Fréttamynd

FME vissi um risavaxnar skuldbindingar en gerði ekkert

STRAX á árinu 2004 komst þáverandi starfsmaður Fjármálaeftirlitsins að þeirri niðurstöðu í samantekt hvorki Kaupþing né Landsbankinn hefðu tengt stórar áhættuskuldbindingar, þ.e lánveitingar, saman á réttan hátt, m.a að því er varðar Baug Group og tengda aðila. Þetta kemur fram í áttunda kafla skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um útlán íslensku bankanna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Lán til stjórnmálamanna: Sjö sjálfstæðismenn á topp 10

Á 10 manna lista yfir alþingismenn sem höfðu yfir 100 milljóna lán frá ársbyrjun 2005 og fram að falli bankannanna eru sjö sjálfstæðismenn. Listinn nær yfir þá þingmenn sem höfðu, ásamt maka og félögum þeirra heildarlánastöðu yfir 100 milljónum króna á tímabílinu.

Innlent
Fréttamynd

Fyrrverandi ráðherrar, forstjóri FME og seðlabankastjórar sakaðir um vanrækslu

Páll Hreinsson, formaður Rannsóknarnefndar Alþingis, segir að aðgerðir stjórnvalda hafi verið of ómarkvissar þegar harðna tók á dalnum í hagkerfinu árið 2008. Hann segir að ráðherrar hafi einblínt of mikið á ímyndavanda bankanna í stað þess að einbeita sér að því að íslenska bankakerfið hafi verið allt of stórt. Páll sagði að fyrir lægi að á fundum ríkisstjórnar Íslands hafi, allt fram að falli bankanna, lítið verið rætt um stöðu bankanna og lausafjárkreppu.

Innlent
Fréttamynd

Lán til Baugs Group jók áhættuna í bankakerfinu

Lán bankanna til Baugs Group jók kerfislæga áhættu bankakerfisins, að mati Rannsóknarnefndar Alþingis. Félagið fékk lán hjá öllum stóru bönkunum þremur auk Straums Burðaráss. Sama máli gegndi um lán til Existu, Björgólfs Thors Björgólfssonar, Björgólfs Guðmundssonar, og Ólafss Ólafssonar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Forstjóri FL-Group hótaði Kaupþingi að fara til lögreglu

Hannes Smárason, þáverandi forstjóri FL-Group, hótaði Kaupþing að fara til lögreglu eftir að fjármunir hurfu af reikningum félagsins í Kaupþingi í Lúxemborg árið 2005. Í nokkra mánuði vantaði þessar upphæðir og þær skiluðu sér ekki fyrr en eftir hótanir Hannesar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í lýsingu Ingu Jónu Þórðardóttur um setu sína í stjórn FL-Group á sínum tíma og greint er frá í Rannsóknarskýrslu Alþingis.

Innlent
Fréttamynd

Fjármálaeftirlitið notaðist við gallað álagspróf

Álagsprófið sem Fjármálaeftirlitið notaði í opinberri upplýsingagjöf var ófullkomið að mati Rannsóknarnefndar Alþingis en upplýsingagjöf FME gaf til kynna að bankarnir stæðu traustum fótum og veittu bæði markaðnum og Fjármálaeftirlitinu sjálfu falskt öryggi. Gölluð álagspróf höfðu þannig mikil áhrif á opinbera upplýsingagjöf Fjármálaeftirlitsins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Björgólfur Thor mokaði fé úr Landsbankanum viku fyrir hrun

Björgólfur Thor Björgólfsson fékk 153 milljóna evra lán hjá Landsbankanum 30. september árið 2008, um viku áður en FME tók bankann yfir. Þetta jafngilti þá tæpum 24 milljörðum króna þá. Rannsóknarnefnd Alþingis segir Seðlabankann ekki haft lagt mat á það hvort Landsbankinn ætti við lausafjár- eða eiginfjárvanda að stríða.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

FME lauk afar fáum málum með beitingu valdheimilda

Fjármálaeftirlitið lauk afar fáum málum með formlegri beitingu valdheimilda samkvæmt niðurstöðu Rannsóknarnefndar Alþingis. Í skýrslunni segir að það hafi vakið sérstaka athygli, miðað við þau alvarlegu brot sem Fjármálaeftirlitið benti sjálft á í skýrslum sínum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Stjórnvöld áttu að bregðast við 2006 - ríkisstjórn Geirs gaf í

Í ágripi um meginniðurstöður Í Rannsóknarskýrslu Alþingis kemur fram að skýringar á falli Glitnis, Kaupþings og Landsbanka sé fyrst og fremst að finna í örum vexti þeirra og þar með stærð þeirra þegar þeir féllu í október 2008. Efnahagur og útlán bankanna uxu fram úr því sem innviðir þeirra þoldu. Utanumhald og eftirlit með útlánum fylgdi ekki eftir útlánavextinum. Stóru bankarnir þrír tuttugufölduðust á sjö árum. Þegar bankakerfið var orðið allt of stórt miðað við stærð íslensks hagkerfis þurftu stjórnvöld að bregðast við.

Innlent
Fréttamynd

Bankarnir 20 földuðust að stærð á sjö árum

Vöxtur og stærð bankanna árin fyrir fall þeirra var allt of ör, sagði Sigríður Benediktsdóttir, hagfræðingur á blaðamannafundi Rannsóknarnefndar Alþingis sem hófst klukkan hálfellefu í morgun. Hún sagði að bankarnir hefðu tuttugufaldast að stærð á stærð á sjö árum.

Innlent
Fréttamynd

Veðlán bankanna hjá ECB námu 770 milljörðum

Veðlán jukust verulega hjá öllum þremur bönkunum eftir að lausafjárþurrðin ágerðist árið 2007. Haustið 2007 voru veðlán bankanna um tveir milljarðar evra, mestmegnis frá Seðlabanka Íslands. Við fall bankanna höfðu þau aukist í yfir níu milljarða evra og var þá tæplega helmingur þeirra frá Seðlabanka Evrópu (ECB) eða um 770 milljarðar kr.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Eigendur Glitnis skulduðu 170 milljarða í bankanum - Davíð fékk sjokk

Samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndar um yfirtöku Seðlabankans á Glitni þá skorti Seðlabankann yfirsýn yfir stöðu bankans. Meðal annars segir að að Davíð Oddsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, hafi fengið „sjokk þegar komið hefði í ljós að eigendur bankans skulduðu 170 milljarða en hjá Seðlabankanum hefðu menn ekki haft þær upplýsingar, segir í skýrslunni.

Innlent
Fréttamynd

Samson fékk viðkvæmar upplýsingar um Landsbankann fyrir kaupinn

Steingrímur Ari Arason sagði sig úr einkavæðingarnefnd á sínum tíma vegna þessa að viðkvæmum upplýsingum var komið til eignarhaldsfélagsins Samson sem síðar keypti Landsbankann. Samson var eignarhaldsfélag Björgólfsfeðga. Þetta kemur fram í Rannsóknarskýrslu Alþingis.

Innlent
Fréttamynd

Bankarnir voru með 300 milljarða í eigin hlutabréfum

Bankarnir voru með fjármagn bundið í eigin hlutabréfum. Hlutafé í félagi sem það fjármagnar sjálft er ekki sú vörn gegn tapi sem því er ætlað að vera. Hér er það nefnt veikt eigið fé. Hjá bönkunum þremur nam veikt eigið fé samtals um 300 milljörðum króna um mitt ár 2008. Á sama tíma var eiginfjárgrunnur bankanna samtals um 1.186 milljarðar króna. Þannig var veikt eigið fé rúmlega 25% af eiginfjárgrunni bankanna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Skýrslan gerð opinber - lesið hana hér

Skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis um aðdraganda og orsök falls íslensku bankanna árið 2008 hefur verið gerð aðgengileg. Hana má nálgast hér. Prentuð útgáfa skýrslunnar verður síðan seld í bókabúðum og kostar eintakið sex þúsund krónur. Vefútgáfan er hinsvegar öllu ítarlegri og því á þriðja þúsund blaðsíður að lengd.

Innlent
Fréttamynd

Sérsíða um skýrslu Rannsóknarnefndar

Vísir hefur sett upp sérstaka undirsíðu um Vísi í tilefni af útgáfu af skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Fréttir munu birtast þar reglulega í dag og næstu daga af gangi mála.

Innlent
Fréttamynd

Blaðamannafundurinn í Iðnó í beinni

Blaðamannafundur Rannsóknarnefndar Alþingis hófst klukkan hálfellefu. Hann er í beinni útsendingu hér á Vísi. Skýrslan var gerð aðgengileg á vef Alþingis fyrir tíu mínútum.

Innlent
Fréttamynd

Davíð: Spurði eiginkonuna hvort hann ætti að hætta

Davíð Oddsson, þáverandi Seðlabankastjóri, fór fram á að Vilhjálmur Árnason prófessor yrði úrskurðaður vanhæfur vegna spurningar um hvort hann hefði átt að víkja sem Seðlabankastjóri. Davíð spurði eiginkonu sína hins vegar hvort það væri ekki best að hann myndi segja upp störfum.

Innlent
Fréttamynd

Lögreglumenn fylgdu skýrslunni í Alþingishúsið

Skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis var flutt úr Prentsmiðjunni Odda í Alþingishúsið eldsnemma í morgun. Hún var flutt í fylgd óeinkennisklæddra lögreglumanna niður í Alþingishús þar sem starfsmenn þingsins tóku á móti henni. Henni verður dreift inn á herbergi allra þingmanna strax eftir að forseti Alþingis, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, hefur tekið við henni klukkan tíu.

Innlent
Fréttamynd

Skýrsla Rannsóknarnefndar birt í dag

Rannsóknarnefnd Alþingis um aðdraganda og orsök falls íslensku bankanna árið 2008 afhendir forseta Alþingis skýrslu sína í dag klukkan tíu í efrideildarsalnum í Alþingishúsinu. Þegar forseta Alþingis hefur verið afhent prentað eintak af skýrslu rannsóknarnefndarinnar mun þingforseti opna fyrir aðgang að skýrslunni á vef Alþingis klukkan 20 mínútur yfir tíu. Prentaða útgáfan verður síðan til sölu í bókaverslunum en hún er um 2000 síður að lengd. Vefútgáfan er hinsvegar öllu ítarlegri og því á þriðja þúsund blaðsíður að lengd.

Innlent
Fréttamynd

Fólk fái tóm til að horfa á fundinn

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis marka kaflaskil í erfiðu uppgjöri sem staðið hefur á annað ár. Skýrslan verður afhent Alþingi klukkan 10 fyrir hádegi í dag.

Innlent
Fréttamynd

Hefði átt að yfirheyra opinberlega

Óskiljanlegt er að rannsóknarnefnd Alþingis hafi ekki starfað fyrir opnum tjöldum við gerð skýrslu sinnar, sem kemur út í dag. Þetta er mat Árna Páls Árnasonar félagsmálaráðherra. „Þessi óþreyja og spenna sem er í samfélaginu núna hefði alls ekki þurft að vera, ef þetta hefði bara verið gert opinbert jafnóðum,“ segir Árni.

Innlent
Fréttamynd

Rannsaka frekar ef þarf

Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis verður afhent Alþingi í dag klukkan 10. Hálftíma síðar heldur nefndin blaðamannafund í Iðnó, fer yfir efni skýrslunnar og svarar spurningum blaðamanna. Engum dylst mikilvægi vinnunnar.

Innlent