Bakþankar

Bakþankar

Fréttamynd

Bakarinn á Nørregade

Ég hafði gaman af dönsku í grunnskóla. Mál og menning þjóðarinnar lagðist vel í mig, mamma hlýddi mér yfir og yfirleitt fékk ég hæstu einkunnirnar í dönsku.

Bakþankar
Fréttamynd

Kveðja af botninum

Vefsíðan Careercast hefur undanfarin ár lagst í ítarlega rannsókn á því hver séu bestu og verstu störf í hinum vestræna heimi. Á listanum eru 200 starfsstéttir og niðurstaðan byggir á fimm mælikvörðum; líkamlegum kröfum, vinnuumhverfi, álagi, launum og starfsöryggi.

Bakþankar
Fréttamynd

I approve this message

Í nýafstöðnum kosningum klæddu gamlar konur sig upp, einhverjir flögguðu, allavega einn fékk ís og enginn gerði þarfir sínar í kjörkassa. ÖSE-menn voru sáttir, herbergi var innsiglað og svo fundið út úr því hvernig ætti að komast inn í það. Formenn flokkanna tóku niðurstöðum af jafnaðargeði enda í þjálfun eftir málefnalega og skætingslitla kosningabaráttu.

Bakþankar
Fréttamynd

Ys og þys út af engu

Viðbrögðin við úrslitum kosninganna á laugardag voru flest fyrirsjáanleg. Stuðningsmenn Bjartrar framtíðar og Pírata glöddust en Samfylkingarfólk og stuðningsmenn minnstu flokkanna grétu. Fögnuður Framsóknarmanna var í líkingu við gott þorrablót í Þingeyjarsýslunum á áttunda áratugnum og þá önduðu

Bakþankar
Fréttamynd

Umburðarlyndi

Umburðarlyndi er einn af mínum helstu kostum. Ég er umburðarlyndur maður og ég geri umburðarlyndi hátt undir höfði í skoðunum mínum til lífsins.

Bakþankar
Fréttamynd

Formennirnir í lífi mínu

Nú er svo komið að í hvert sinn sem ég fer úr fötunum verður mér hugsað til Jóhönnu Sigurðardóttur, fráfarandi forsætisráðherra. Ég get útskýrt.

Bakþankar
Fréttamynd

Allir vinna, enginn tapar

Þegar ég var tiltölulega nýskriðin á þrítugsaldurinn nam ég markaðsfræði við skóla einn í Danmörku. Stuttu eftir að önnin hófst kom í ljós að áhugi minn á mörkuðum, hagkerfum og tölfræði var takmarkaður og ég var fljót að fá mig fullsadda á náminu. Tölfræðin gleymdist fyrst, hagfræðin næst en ég man enn eitt úr markaðsfræðitímanum; umfjöllun kennarans um karl- og kvenlæg lönd og markaði.

Bakþankar
Fréttamynd

Mitt Ísland og hitt Ísland

Þegar þessi pistill er skrifaður eiga kosningar til Alþingis 2013 eftir að fara fram. Þegar þú hins vegar lest þessi orð eru þær afstaðnar og ný ríkistjórn yfirvofandi.

Bakþankar
Fréttamynd

Þingvallastjórnin

Vorið 2007 tók ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar við völdum. Ég man þá ljúfu tilfinningu sem greip mig við að sjá fréttaljósmyndir af formönnum flokkanna, þeim Geir Haarde og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, sem höfðu hamast við að mynda stjórn á Þingvöllum, að kyssast undir bláum himni eins og samlynd hjón.

Bakþankar
Fréttamynd

Samið við hræfugl

Í íslenskri menningu er hrafninn heldur illa liðinn fugl. Hann er hrææta, kroppar augun úr hrútshausum, gjarnan bendlaður við sjálfan djöfulinn, feigðarboði og sálnasækir. Þetta rímar ekki við mín einu kynni af hrafninum, þar sem hann birtist mér sem skynugasta og sanngjarnasta skepna sem ég hef fyrir hitt.

Bakþankar
Fréttamynd

Heimskur maður kýs

Ég kann ekki að meta sjóræningja. Í mér býr djúpstæður frumótti við sjóræningja. Mér svelgdist á kaffinu mínu þegar ég las að í framboði væri flokkur sem kennir sig við sjóræningja. Hvað næst? Hákarlaflokkurinn? Kóngulóahreyfingin? Eða Vinstri hreyfingin grænt flugslys?

Bakþankar
Fréttamynd

Legið á línunni

Jæja, viljið þið ekki bara fara að hætta þessu stelpur mínar? Hafið þið nokkuð fleira að segja?“

Bakþankar
Fréttamynd

Líf útlendinga

Ég var einmitt að ljúka við æfingaferli sem leikstjóri hjá Þjóðleikhúsinu og núna, eftir velheppnaða frumsýningu, er ég byrjuð á íslenskunámskeiði hjá Mími símenntun. Mér finnst íslenskunám mitt hafa staðnað. Þess vegna skráði ég mig á þetta námskeið á fimmta stigi í íslensku fyrir útlendinga.

Bakþankar
Fréttamynd

Að læka skatta

Um daginn áttum við vinur minn spjall sem hefur setið í mér. Ég talaði um nauðsyn þess að lækka skatta til að auka hagvöxt og svo ætlaði ég eflaust að segja eitthvað annað mikilvægt þar að lútandi þegar hann grípur fram í fyrir mér. Hann spyr mig hvernig eigi að greiða fyrir þessar skattalækkanir þar sem hver einasta króna ríkisins sé þegar nýtt. Um leið og hann spurði áttaði ég mig á að yfirleitt þegar ég viðra þá skoðun mína að það þurfi að lækka skatta fæ ég þessa sömu spurningu frá mér skoðanaóskyldum.

Bakþankar
Fréttamynd

Megavikupitsur handa öllum!

Það eru 1.512 Íslendingar í framboði til Alþingis, fleiri en nokkru sinni. Ef öllu þessu fólki yrði komið fyrir á fótboltavelli væru 69 fótboltalið á hvorum vallarhelmingi. Þetta er rosalega margt fólk. En þótt valkostirnir hafi aldrei verið fleiri er upplifun mín að í raun hafi valkostirnir aldrei verið færri. Ástæðan er sú að flokkarnir virðast fæstir uppteknir af því sem mestu máli skiptir:

Bakþankar
Fréttamynd

Kennslustund í popúlisma

Við hvað kenna stjórnmálaflokkar sig? Til dæmis samstöðu, velferð, sjálfbærni, framfarir, réttlæti, sanngirni og lýðræði. Ég ætla ekki að kvarta yfir þessu. Verra væri ef val kjósenda stæði á milli flokka sem kenna sig við kúgun, afturför, einræði, stöðnun, óréttlæti og ósanngirni. Athugasemdir mínar lúta fremur að því að hversu tilgangslaust það er að nota svona hugtök í stjórnmálaumræðu. Telur einhver að til sé stjórnmálafólk á Íslandi sem vill í fullri einlægni reka "ósanngjarna“ stefnu?

Bakþankar
Fréttamynd

Grunur um morgunmat

Auðvitað get ég ekki fullyrt neitt, en ég held að við bræðurnir höfum bara einu sinni migið á okkur á sama tíma. Það var úr hlátri þegar mamma trúði okkur fyrir því að grunur léki á að hún væri haldin alvarlegum sjúkdómi. Áður en þú dregur þá ályktun að við bræðurnir séum skíthælar, báðir tveir, þá get ég útskýrt hvernig í þessu lá.

Bakþankar
Fréttamynd

Þér mun snúast hugur

Ég hnaut um nokkuð athyglisverða grein á netinu fyrir skömmu. Umrædd grein fjallaði um ört stækkandi hóp karla og kvenna sem kjósa barnlaust líf og viðmótinu sem það mætir í samfélaginu. Í greininni, sem birtist í ástralska dagblaðinu The Age, segir að allt bendi til þess að fjórðungur þeirra kvenna í Bretlandi sem nú er á barneignaraldri muni aldrei eignast börn.

Bakþankar
Fréttamynd

Helvítis auma Scrabble

Nú eru mörg spil ömurleg, eins og Backgammon og Popppunktur, en ekkert spil er jafn ömurlegt og þú! Af hverju ertu bara með eitt P? Það eru mörg góð íslensk orð með fleiri en eitt P eins og til dæmis PRUMP og POPP en orðið prump ætti að liggja til grundvallar í öllum orðaspilum. Það er að segja ef þau eiga að vera skemmtileg, sem þú ert augljóslega ekki.

Bakþankar
Fréttamynd

Blessaðir peningarnir

Sumir vilja meina að Ísland hafi byggst upp fyrir misskilning. Landnám hafi hafist á hlýindaskeiði og þar sem landið var gróið gat hér þrifist blómlegt mannlíf með menntastofnunum og heilbrigðisstofnunum í klaustrum og miklum samskiptum við útlönd.

Bakþankar
Fréttamynd

Ding dong nornin er dauð!

Þetta var meðal athugasemda sem fólk lét út úr sér þegar Margrét Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra Breta, lést um daginn.

Bakþankar
Fréttamynd

Mataræði og tíska

Ég var að heyra af nýjustu tískunni í mataræði. Nú er best að borða fitu og prótein. Forðast skal brauðmeti í lengstu lög og einnig allan sykur – jafnvel þó hann komi úr ávöxtum. Mjólk er nú aftur komin í tísku eftir áratugslanga eyðimerkurgöngu. Þessi tíska er áþreifanleg í matreiðsluþáttum, matreiðslubókum og almennri umræðu um mataræði og hollt líferni.

Bakþankar
Fréttamynd

Menn ofar málefnum

Kosningar eru í aðsigi og það er sem við manninn mælt að hver klisjusvolinn á fætur öðrum er byrjaður að kappjórtra gömlu tugguna um að við eigum "að fara í boltann en ekki í manninn“ – annað sé svo ómálefnalegt. Hvílíkt bull.

Bakþankar
Fréttamynd

Höfum við rétt á að eldast

Vááá segjum við við konur – þú lítur út fyrir að vera tíu árum yngri en þú ert. Við viðurkennum, dáumst að og öfundum konur sem líta út fyrir að vera yngri en þær eru. Ég heyri þetta aldrei sagt við karlmenn eða konur undir 35 ára.

Bakþankar
Fréttamynd

Kippir í kynið

Feðgar lenda í bílslysi. Faðirinn deyr en sonurinn er fluttur á spítala og í aðgerð. Þá segir læknirinn: "Ég get ekki framkvæmt aðgerðina því hann er sonur minn.“ Hvernig má svo vera?

Bakþankar
Fréttamynd

Fjármálakreppa ísuppvakninganna

Þybbinn og léttskeggjaður hermaður með vinalegt andlit hleypur óttasleginn í snjóbyl. Stórvaxinn ísuppvakningur nálgast hermanninn. Dagar hans eru taldir. Á síðustu stundu kemur risastór úlfur aðvífandi og fellir uppvakninginn.

Bakþankar
Fréttamynd

Þú hefur verið valin

Tryggvadóttir!“ Sagði einkennisklædd konan þegar hún ég rétti henni skilríkin eins og hún hafði beðið mig um. Ég játti því þótt hún hafi hálfpartinn ekki ætlast til svars. Hún hallaði sér að samstarfskonu sinni með orðunum: "Þetta er konan!“

Bakþankar
Fréttamynd

Þegar fjall segir sögu

Ég stóð varla út úr hnefa þegar þetta var. Hjartað hamaðist í brjóstinu þar sem ég stóð með eyrað fast við berghamarinn og hlustaði á niðinn frá þýskum sprengjuflugvélum sem komu fljúgandi inn fjörðinn. Svo heyrðist ýlfrið í sprengjunum þegar þær féllu – í átt að risavöxnu skipinu sem lá á firðinum. Hver á eftir annarri skullu sprengjurnar í sjóinn og köstuðu stáldrekanum til og frá þegar þær sprungu með ærandi hávaða. Geltið í

Bakþankar