Ræðst ekki fyrr en í upphitun hvort Sean spili í kvöld Það er ekki enn vitað hversu mikinn þátt bandaríski bakvörðurinn Sean Burton getur tekið í öðrum leik Snæfells og Hauka í átta liða úrslitum Iceland Express deildar karla í körfubolta en liðin mætast á Ásvöllum klukkan 19.15 í kvöld. Körfubolti 21. mars 2011 15:00
KR sópaði Njarðvík út í fyrsta sinn í 21 ár KR-ingar unnu 2-0 sigur á Njarðvík í einvígi liðanna í átta liða úrslitum úrslitakeppni Iceland Express deild karla en KR vann leikina tvo örugglega, með 12 stiga mun í DHL-höllinni á fimmtudaginn og með 16 stiga mun í Ljónagryfjunni í gærkvöldi. Körfubolti 21. mars 2011 14:15
Hrafn: Bekkurinn er að koma frábær inn „Þetta var bara hörkuleikur sem við þurftum að hafa mikið fyrir,“ sagði Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR, eftir sigurinn í kvöld. KR-ingar eru komnir í undanúrslit Iceland Express-deild karla eftir að hafa sópað Njarðvíkingum í sumarfrí. Leikurinn í kvöld fór 80-96 fyrir KR-inga og sigurinn í raun aldrei í hættu. Körfubolti 20. mars 2011 22:16
Páll Axel: Vorum allt of linir Páll Axel Vilbergsson var daufur á dálkinn eftir tap Grindvíkinga gegn Stjörnunni í öðrum leiknum í 8-liða úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta, 91-74. Körfubolti 20. mars 2011 22:14
Friðrik: Töpuðum fyrir miklu betra liði „Við töpuðum bara fyrir mun betra liði í kvöld,“ sagði Friðrik Ragnarsson, annar þjálfari Njarðvíkinga, eftir tapið í kvöld. Njarðvíkingar eru komnir í sumarfrí eftir að hafa tapað einvíginu gegn KR 2-0 í 8-liða úrslitum Iceland Express-deild karla. Leikurinn í kvöld fór fram í Ljónagryfjunni í Njarðvík en honum lauk með 80-96 sigri gestanna. Körfubolti 20. mars 2011 22:12
Brynjar: Þú býrð ekki til liðsheild á tveimur vikum „Þetta er virkilega góða tilfinning,“ sagði Brynjar Þór Björnsson, leikmaður KR, eftir sigurinn í kvöld. KR vann öruggan sigur gegn Njarðvík, 80-96, og sópaði þeim þar með í sumarfrí með 2-0 sigri í einvíginu. Körfubolti 20. mars 2011 22:07
Shouse: Of mikill snjór til að fara í sumarfrí "Þetta eru frábær úrslit og í hvert sinn sem maður er með bakið upp við vegg þá þarf maður á góðri frammistöðu að halda. Við vorum frábærir í kvöld. Það er alltof mikill snjór úti til að fara í sumarfrí,“ sagði Justin Shouse, leikmaður Stjörnunnar kátur eftir liðið hafði betur gegn Grindavík, 91-74 í 8-liða úrslitum úrslitakeppninnar í körfuknattleik. Körfubolti 20. mars 2011 21:28
Umfjöllun: KR sópaði Njarðvík í frí KR vann öruggan sigur á Njarðvík, 80-96, í 8-liða úrslitum Iceland Express deild karla í Ljónagryfjunni í kvöld og vann því einvígið 2-0. Gestirnir léku vel nánast allan leikinn og hleyptu Njarðvíkingum lítið í takt við leikinn. Körfubolti 20. mars 2011 21:05
Umfjöllun: Stjarnan tryggði sér oddaleik gegn Grindavík Stjarnan vann öruggan sigur á Grindavík í öðrum leik liðanna í 8-liða úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deildinni, 91-74. Varnarleikur Stjörnumanna var frábær í síðari hálfleik og áttu gestirnir úr Grindavík engin svör við leik heimamanna. Það er því ljóst að liðinu munu mætast í oddaleik í Grindavík um hvort liðið kemst áfram í undanúrslit. Körfubolti 20. mars 2011 20:57
Pétur Ingvarsson: Við mættum hingað til þess að sigra Pétur Ingvarsson þjálfari Hauka mætti með lið sitt vel undirbúið til leiks og snigilhraði var á sóknarleik liðsins. Allt samkvæmt áætlun því Haukarnir töpuðu með 42 stig mun í deildarleiknum gegn Snæfelli í vetur. "Við mættum hér til þess að vinna og ég get lofað því að við munum mæta með sama hugarfari í leikinn á Ásvöllum. Við fórum illa með þá í fyrri hluta leiksins en okkur gekk illa að skora gegn svæðisvörn þeirra. Færin komu en við nýttum þau ekki en við finnum út úr því fyrir næsta leik,“ sagði Pétur eftir 76-67 tap Hauka í Stykkishólmi í kvöld. Körfubolti 19. mars 2011 00:25
Nonni Mæju: Það var ótrúlegt andleysi í byrjun "Það var ótrúlegt andleysi í byrjun og það var eins og menn væru enn að hugsa um 42 stiga sigurinn gegn þeim í deildarkeppninni,“ sagði Jón Ólafur Jónsson leikmaður Íslandsmeistaraliðs Snæfells eftir 76-67 sigur liðsins gegn nýliðum Hauka í úrslitakeppni Iceland Express deildar karla. Jón eða "Nonni Mæju“ var langt frá því að vera sáttur við leik liðsins þrátt fyrir sigurinn. Körfubolti 19. mars 2011 00:22
Ingi Þór var ósáttur þrátt fyrir sigurinn gegn Haukum „Ég var virkilega vonsvikinn með hvernig leiðtogar liðsins voru stemmdir í leiknum. Það var greinilegt að umfjöllunin fyrir leikinn og stórsigur okkar gegn þeim í deildarkeppninni hafði áhrif á hugarfarið hjá okkur. Egill Egilsson skaut okkur inn í leikinn og við getum þakkað fyrir að hafa unnið Haukana að þessu sinni,“ sagði Ingi Þór Steinþórsson þjálfari Íslandsmeistaraliðs Snæfells eftir 76-67 sigur liðsins gegn Haukum í fyrstu umferð Iceland Express deildarinnar í körfuknattleik í kvöld. Körfubolti 18. mars 2011 22:20
Gunnar: Höfum annan leik „Við höfum annan leik hérna á fimmtudaginn til að lagfæra þetta, ég var að gæla við að klára þetta í tveimur leikjum en núna er ekkert annað í stöðunni," sagði Gunnar Sverrisson, þjálfari ÍR eftir tap ÍR gegn Keflavík í Toyota höllinni í kvöld. Körfubolti 18. mars 2011 21:41
Sveinbjörn: Ætlum að koma aftur hingað "Þetta var mjög slöpp byrjun og við vorum sjálfum okkur verstir í dag, það er alveg óhætt að segja það," sagði Sveinbörn Claessen, leikmaður ÍR eftir tap í Toyota höllinni í kvöld. Körfubolti 18. mars 2011 21:39
Hörður Axel: Mikil pressa í Keflavík „Þetta var gaman, þetta var það sem við ætluðum að gera og við unnum þennan leik" sagði Hörður Axel Vilhjálmsson, leikmaður Keflavík eftir 115-93 sigur gegn ÍR í Toyota höllinni í Keflavík í kvöld. Körfubolti 18. mars 2011 21:37
Umfjöllun: Öruggur sigur Keflavíkur í fyrsta leik Keflvíkingar unnu 22 stiga sigur á ÍR, 115-93, í fyrsta leik liðanna í einvígi þeirra í átta liða úrslitum Iceland Express deildar karla í Keflavík í kvöld. Keflvíkingar voru með góð tök á leiknum nánast allan tímann og unnu öruggan sigur. Körfubolti 18. mars 2011 20:56
Umfjöllun: Engir meistarataktar hjá Snæfelli en sigur Nýliðar Hauka komu meistaraliði Snæfells í opna skjöldu í fyrsta leiknum í 8-liða úrslitum Iceland Express deildarinnar í kvöld. Þrátt fyrir að Snæfell hafi marið 76-67 sigur var leikur þeirra langt frá því að vera sannfærandi. Aðeins léleg skotnýting Haukaliðsins varð til þess að liðið náði ekki að leggja meistarana að velli. Körfubolti 18. mars 2011 20:47
IE-deildin: Erfið titilvörn framundan hjá meistaraliði Snæfells Titilvörn Íslandsmeistaraliðs Snæfells úr Stykkishólmi hefst fyrir alvöru í kvöld þegar liðið tekur á móti nýliðum Hauka í átta liða úrslitum Iceland Express deildarinnar í körfuknattleik. Í upphitunarþætti Stöðvar 2 s.l. mánudag fóru sérfræðingarnir Benedikt Guðmundsson og Svali Björgvinsson yfir stöðuna með Guðjóni Guðmundssyni. Samantektina má sjá í myndbandinu hér fyrir ofan. Körfubolti 18. mars 2011 14:45
IE-deildin: Svali og Benedikt telja að Keflavík fari langt í úrslitakeppninni Átta liða úrslitin í Iceland Express deild karla halda áfram í kvöld og þar sem Keflavík sem endaði í þriðja sæti deildarinnar leikur gegn ÍR sem endaði í sjötta sæti. Í upphitunarþætti Stöðvar 2 sport á mánudaginn fóru sérfræðingarnir Benedikt Guðmundsson og Svali Björgvinsson yfir málin með Guðjóni Guðmundssyni íþróttafréttamanni. Körfubolti 18. mars 2011 12:15
KR-ingar fóru á flug í seinni hálfleik - myndir KR-ingar eru komnir í 1-0 í einvíginu á móti Njarðvík í átta liða úrslitum Iceland Express deild karla eftir 92-80 sigur í DHL-höllinni í gærkvöldi. Körfubolti 18. mars 2011 08:30
Teitur: Getum gert miklu betur „Það er alltaf sárt að tapa,“ sagði Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir að Grindavík vann í kvöld fyrsta leikinn í rimmu liðanna í úrslitakeppni Iceland Express-deild karla í kvöld. Körfubolti 17. mars 2011 21:34
Ólafur: Spiluðum betri vörn Ólafur Ólafsson sýndi frábæra takta í kvöld og kórónaði góðan leik þegar hann stal boltanum í blálokin og tryggði sínum mönnum í Grindavík sigur á Stjörnunni með tilþrifamikilli troðslu. Körfubolti 17. mars 2011 21:30
Helgi Jónas: Baráttan komin aftur Helgi Jónas Guðfinnsson, þjálfari Grindavíkur, var ánægður með sigur sinna manna á Stjörnunni í kvöld en þar með eru Grindvíkingar komnir í 1-0 forystu í rimmu liðanna í fyrstu umferð úrslitakeppni Iceland Express-deildar karla. Körfubolti 17. mars 2011 21:23
Umfjöllun: Naumur sigur Grindavíkur Grindavík er komið í 1-0 forystu í einvíginu gegn Stjörnunni í fyrstu umferð úrslitakeppni Iceland Express-deild karla. Grindvíkingar unnu nauman sigur á heimavelli, 90-83, eftir hörkuspennandi viðureign. Körfubolti 17. mars 2011 20:59
KR-ingar frábærir í seinni hálfleik og 1-0 yfir á móti Njarðvík Marcus Walker fór í gang í seinni hálfleik og KR-ingar unnu öruggan tólf stiga sigur, 92-80, á Njarðvík í fyrsta leik liðanna í einvígi þeirra í átta liða úrslitum Iceland Express deildar karla. KR er því 1-0 yfir en næsti leikur er í Njarðvík á sunnudagskvöldið. Körfubolti 17. mars 2011 20:47
Kara getur mögulega spilað með KR um helgina Svo gæti farið að Margrét Kara Sturludóttir muni spila með KR gegn Keflavík um helgina, þrátt fyrir að hún hafi verið dæmd í tveggja leikja bann af aga- og úrskurðarnefnd KKÍ. Körfubolti 17. mars 2011 16:41
Myndband af slagsmálum í leikjum Hauka Stjórn körfuknattleiksdeildar Hauka hefur sent frá sér yfirlýsingu og myndband af slagsmálum í leik karlaliðs Hauka og KFÍ og kjaftshöggi KR-ingsins Margrétar Köru Sturludóttir í kvennaleik KR og Hauka. Margrét Kara sló þá Maríu Lind Sigurðardóttir í andlitið. Körfubolti 17. mars 2011 12:53
IE-deildin: Ekkert grín að fyrir KR að fá Njarðvík í fyrstu umferð "Það er lífsstíll að vera ekki KR-ingur og það er alveg sama við hvern maður talar – það setja allir pressu á KR. Það er ekki hægt að bera saman Njarðvíkurliðið í dag og það sem var í haust. Þetta er bara nýtt lið,“ sagði Svali Björgvinsson í Í upphitunarþætti Stöðvar 2 sport um Iceland Express deildina í körfubolta karla sem sýndur var á mánudaginn. Körfubolti 17. mars 2011 12:15
Svali og Benedikt spá Stjörnunni sigri gegn Grindavík Úrslitakeppnin í Iceland Express deild karla í körfubolta hefst í kvöld og ein áhugaverðasta viðureignin í átta liða úrslitunum er rimma Grindavíkur og Stjörnunnar úr Garðabæ. Liðin enduðu í 4. og 5. sæti deildarkeppninnar. Í upphitunarþætti Stöðvar 2 sport sem sýndur var á mánudaginn fóru sérfræðingarnir Benedikt Guðmundsson og Svali Björgvinsson yfir stöðuna í þessari viðureign. Körfubolti 17. mars 2011 11:00
Davíð Páll fékk lengra bann en Darko Aga- og úrskurðanefnd hefur tekið fyrir slagsmálin sem urðu í leik Hauka og KFÍ í lokaumferð Iceland Express deildar karla á fimmtudaginn var. Þrír leikmenn fá leikbönn en fimm leikmenn fá aðeins áminningu. Körfubolti 15. mars 2011 15:11