

Dómsmál
Fréttir af málum sem rata fyrir dómstóla.

Steinar Þór mátti smala saman vitnum í Lindarhvolsmálinu
Úrskurðarnefnd lögmanna hefur komist að þeirri niðurstöðu að Steinar Þór Guðgeirsson lögmaður hafi ekki brotið gegn siðareglum lögmanna þegar hann kallaði saman hóp vitna í Lindarhvolsmálinu.

Sagðist hafa verið að sækja sígarettur en fékk dóm fyrir ölvunarakstur
Karlmaður sem hlaut nýverið dóm fyrir ölvunarakstur þvertók fyrir að hafa ekið og sagðist aðeins verið að sækja sígarettur í bílinn sinn, sem hann hafði skilið eftir kvöldið áður. Héraðsdómari taldi söguna ekki halda vatni og dæmdi manninn í fangelsi.

Grunaður um nauðgun á gangstétt
Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann fyrir nauðgun sem átti sér stað um nótt árið 2021. Málið verður til umfjöllunar í Héraðsdómi Suðurlands.

Spánverji lagði hundruð milljóna króna inn á þrjár íslenskar konur
Þrjár íslenskar konur eru sakaðar um að hafa þegið samanlagt á þriðja hundrað milljóna króna frá erlendum karlmanni og ekki gefið upp. Ein kvennanna segir að um lán hafi verið að ræða sem þegar hafi verið endurgreitt.

Deila um girðingu fyrir Hæstarétt
Hæstiréttur hefur samþykkt að taka fyrir deilu um kostnaðarþáttöku Borgarbyggðar í byggingu girðingar, sem kostaði um sjö milljónir króna.

Ákærður fyrir að nauðga konu sem hlaut lífshættulega áverka
Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás og nauðgun en málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness.

Grunaður um að brjóta á systurdóttur og elta hana þegar hún komst undan
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn barni og fíkniefnalagabrot. Það er héraðssaksóknari sem höfðar málið sem verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness.

Grímur viðurkennir mistök lögreglu
Yfirlögregluþjónn viðurkennir að mistök hafi orðið þegar lögregla fann ekki blóðugan hníf, sem er líklegt morðvopn í manndrápsmáli sem varð í Drangahrauni þann sautjánda júní. Hnífurinn fannst í gær af dóttur hins látna á heimili þeirra, þar sem morðið var framið.

Deila um leigutekjur Hreyfils fyrir Hæstarétt
Hæstiréttur hefur samþykkt beiðni þriggja félaga sem eiga lóðina Fellsmúla 24-30 í Reykjavík í sameign með Hreyfli svf. um áfryjunarleyfi. Málið snýr að deilu félaganna um leigutekjur Hreyfils vegna hluta lóðarinnar, þar sem eldsneytisstöð Orkunnar hefur staðið um árabil.

Barði mann í hausinn með bjórglasi og þarf að borga honum milljón
Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið sakfelldur fyrir stórfellda líkamsárás, með því að hafa slegið mann í höfuðið með glerglasi á skemmtistaðnum Hvíta húsinu á Selfossi í apríl í fyrra.

Kveikti í IKEA-geitinni og sér ekki eftir neinu
Kona sem kveikti í IKEA-geitinni árið 2016 segist ekki sjá eftir neinu. Við ræddum við konuna í Íslandi í dag í gær - og fórum yfir eldfima sögu jólageitarinnar í Kauptúni.

Segir ráðherra hafa beitt sig undirróðri og fautaskap
Markús Ingólfur Eiríksson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS) hefur stefnt ríkinu og Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra vegna þess sem hann kallar ranglæti og óeðlilegan þrýsting í tengslum við ólögmæta uppsögn.

Kýldi mann og lét sig hverfa
Ungur karlmaður á Akureyri hefur verið dæmdur til hálfs árs skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir fjölda brota. Hann var sakfelldur fyrir líkamsárás, akstur undir áhrifum fíkniefna og brot gegn valdstjórninni.

Dularfullur maður í læknaslopp með fulla tösku af kannabis
Erlendur karlmaður hefur hlotið fimmtán mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjaness, þar af verða tólf mánuðir skilorðsbundnir, fyrir stórfellt fíkniefnabrot.

Ákærður fyrir að káfa á starfskonu veitingahúss
Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann fyrir kynferðislega áreitni sem átti sér stað á veitingastað.

„Á ég ekki bara að kýla þig einu sinni og þá erum við kvitt?“
Héraðssaksóknari hefur ákært mann fyrir nokkur brot gegn fyrrverandi unnustu sinni á heimili hennar á Akureyri í þrjú skipti í janúar á síðasta ári.

Áflog tveggja með steypuklumpi í strætóskýli á Akranesi
Tveir menn hafa verið ákærðir fyrir að ráðast gegn hvorum öðrum við Strætóstoppustöð á Akranesi í mars í fyrra.

Í fangelsi í sextán ár: Á endanum var það ástin sem bjargaði öllu
„Ég myndi ekki segja að það væri svona mikil klíkumyndun. Að öðru leyti myndi ég svara já; þetta er bara eins og fólk sér þar,“ svarar Guðmundur Ingi Þóroddsson formaður Afstöðu, aðspurður um það hvort upplifunin af því að vera í fangelsi sé eitthvað sambærileg og við sjáum í erlendu sjónvarps- og kvikmyndaefni.

Ákærður fyrir að káfa á konu í sundi
Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann fyrir kynferðislega áreitni sem átti sér stað í sundlaug.

Grunaður um að höggva litla fingur manns með sveðju
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás gagnvart öðrum manni sem á að hafa átt sér stað á heimili hans í nóvember í fyrra.

Datt í Sundhöllinni og fær þrjár og hálfa milljón
Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem Reykjavíkurborg var dæmd skaðabótaskyld í máli konu sem lenti í slysi í sundi. Borginni er gert að greiða konunni rúmar þrjár og hálfa milljón í skaðabætur, eða sömu bóta og konan hafði krafist.

Þurfa að borga Slayer eftir allt saman
Landsréttur hefur dæmt þrjú félög, sem tóku við rekstri tónlistarhátíðarinnar Secret solstice, og einn stjórnarmann þeirra til að greiða kröfu bandarísku þungarokkssveitarinnar Slayer óskipt.

Grunaður um að reyna að drepa fyrrverandi: „Ég skal bara klára þetta núna“
Karlmaður er grunaður um tilraun til þess að verða fyrrverandi kærustu sinni að bana með því að hafa ráðist á hana og meðal annars lamið og sparkað í höfuð hennar, reynt að kyrkja hana og hent henni í læk.

Skipstjóri skaðabótaskyldur fyrir „stórfellt gáleysi“ í heimsfaraldri
Sjómanni, sem vann á skipinu Júlíusi Geirmundssyni, hafa verið dæmdar skaðabætur í Héraðsdómi Reykjavíkur vegna meðferðar sem hann varð fyrir á meðan hann var smitaður af kórónuveirunni um borð í skipinu.

Verjandi vildi fjórtán milljónir en fær ekki neitt í bili
Landsréttur hefur fellt úrskurð Héraðsdóms Suðurlands vegna kröfu lögmanns um greiðslu málsvarnarlauna vegna starfa hans í þágu manns, sem grunaður er um manndráp á Selfossi í vor, niður. Lögmaðurinn hafði krafist greiðslu tæplega fjórtán milljóna króna en héraðsdómur úrskurðaði honum rúmlega sex milljónir. Landsréttur gerði það á grundvelli þess að málinu er ekki lokið.

Dæmdur fyrir að skalla lögreglumann
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í 45 daga fangelsi fyrir að hafa skallað lögreglumann eftir að hafa verið handtekinn í október á síðasta ári.

Sveik fjármuni út úr IKEA með því að skipta út strikamerkinu
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt konu í 60 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnað og fjársvik gagnvart húsgagnavöruversluninni IKEA. Tjón verslunarinnar hljóðaði upp á rúmlega 62 þúsund krónur.

Grunaðir um að taka upp árás með röri og hömrum
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjaness sem gefur lögreglu leyfi til að rannsaka og skoða innihald síma manns sem er grunaður um fólskulega árás. Maðurinn er grunaður um að hafa ásamt öðrum frelsissvipt annan mann og beitt hann margvíslegu ofbeldi.

Orðnir vinir aftur eftir árás vegna fyrrverandi kærustu
Karlmaður hefur hlotið átta mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjaness fyrir stórfellda líkamsárás gagnvart öðrum manni, vini sínum til margra ára sem hafði byrjað með fyrrverandi kærustu árásarmannsins.

Sátu að sumbli og rifust um peninga
Maciej Jakub Talik, sem sætir ákæru fyrir að hafa orðið herbergisfélaga sínum að bana í Hafnarfirði í sumar, segir að hinn látni hafi reynt að kúga út úr honum pening og hann hafi drepið hann í sjálfsvörn.