Einu skrefi nær því að senda hælisleitendur til Rúanda Rishi Sunak, forsætisráðherra Bretlands, er einu skrefi nær því að tryggja flutning hælisleitenda til Rúanda, á meðan þeir bíða efnislegrar meðferðar sinna mála í Bretlandi. Frumvarp þess efnis var samþykkt í neðri deild breska þingsins í gær eftir misheppnaða tilraun samflokksmanna Sunaks til uppreisnar. Erlent 18. janúar 2024 07:41
Umsókn palestínsku drengjanna tekin til efnismeðferðar Palestínsku drengirnir og frændurnir Sameer Omran 12 ára og Yazan Kawave 14 ára hafa nú fengið það staðfest að umsókn þeirra um alþjóðlega vernd á Íslandi verður tekin til efnislegrar meðferðar. Sú meðferð getur tekið marga mánuði. Innlent 17. janúar 2024 13:10
Árið 2023 í myndum: Skjálftar á skjálfta ofan Það var titringur víða í samfélaginu árið 2023. Hatrammar kjaradeilur settu mark sitt á árið og tekist var á um hvalveiðar, útlendingamál og valdheimildir lögreglu, svo eitthvað sé nefnt. Innlent 2. janúar 2024 08:47
„Munum sitja hér þangað til við sjáum fjölskyldur okkar yfirgefa Gasa“ Hópur Palestínumanna á Íslandi sem vill sameinast fjölskyldum sínum sem enn eru á Gasa hefur reist tjöld á Austurvelli fyrir utan Alþingi. Í tilkynningu segjast þau ætla að vera þar þar til þau hafa sameinast ástvinum sínum. Innlent 27. desember 2023 13:35
Macron ver afar umdeilt útlendingafrumvarp Emmanuel Macron Frakklandsforseti var til viðtals í fréttaskýringaþætti á France 5 í gær, þar sem hann varði meðal annars umdeilt lagafrumvarp um útlendinga sem samþykkt var á þinginu í vikunni. Erlent 21. desember 2023 10:38
Flytja fólkið til Íslands frá Egyptalandi þegar það kemst frá Gasa Vinnumálastofnun hefur sent beiðni til Alþjóðlegu fólksflutningastofnunarinnar (IOM) vegna þeirra rúmlega hundrað einstaklinga sem eru á Gasa og eru komin með dvalarleyfi á Íslandi vegna fjölskyldusameiningar. Innlent 20. desember 2023 15:54
Herða reglur ESB um farand- og flóttafólk Leiðtogar Evrópusambandsins hafa komist að samkomulagi um að herða reglur varðandi farand- og flóttafólk í Evrópu. Samkomulagið, sem er til komið eftir áralangar viðræður, mun hafa mikil á það hvernig unnið er úr komu farand- og flóttafólks til heimsálfunnar. Erlent 20. desember 2023 13:01
„Mér mun ekki líða vel fyrr en þau eru komin frá Gasa“ Palestínskur faðir sem hafa fengið samþykkta fjölskyldusameiningu vill að meira sér gert til að koma fjölskyldu hans frá Gasa. Hann á fjögur börn og eiginkonu þar. Fjölskyldusameiningar frá Palestínu hafa verið í forgangi frá því í október sem þýðir að það fara fram fyrir aðra í röðinni. Innlent 18. desember 2023 14:26
Kristilegir demókratar vilja senda hælisleitendur til þriðja ríkis Kristilegi demókrataflokkurinn í Þýskalandi hyggst vinna aftur stuðning kjósenda með afdráttarlausum aðgerðum í útlendingamálum, sem munu meðal annars felast í því að senda hælisleitendur til þriðja ríkis á meðan unnið er úr umsóknum þeirra. Erlent 18. desember 2023 07:12
Sextíu talin látin eftir að bátur sökk í Miðjarðarhafi Óttast er að fleiri en sextíu hafi drukknað eftir að bátur sökk undan ströndum Líbíu. Forsvarsmenn Alþjóðafólksflutningastofnunarinnar IOM segir að þungar öldur hafi skollið á bátinn með fyrrgreindum afleiðingum. Erlent 17. desember 2023 10:51
Úllen-dúllen-doff: hverjum hjálpum við? Nú þegar Úkraínumenn hafa barist í bráðum tvö ár, fyrir sameiginlegum gildum okkar og frelsi, deila bandamenn okkar um áframhaldandi stuðning við þá. Skoðun 13. desember 2023 08:00
From Hope to Heartbreak: Sameer and Yazan's Dreams in Peril In a world filled with complexities, where borders blur and humanity stands at a crossroads, the fate of two young souls, Sameer (12) and Yazan (14), hangs in the balance. Their story is one of resilience, hope, and the pursuit of a better life, but the Icelandic Directorate of Immigration threatens to shatter their dreams by deporting them to Greece. Skoðun 10. desember 2023 11:31
Hætt að versla við Kjörís vegna tengsla við dómsmálaráðherra Signý Jóhannesdóttir, fyrrverandi varaforseti ASÍ og formaður Stéttarfélags Vesturlands, kveðst vera hætt að versla við Kjörís vegna tengsla „ísdrottningarinnar“ Guðrúnar Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra við fyrirtækið en hún er einn eigenda þess. Hún segir framkoma ráðherra gagnvart hælisleitendum vera eitthvað sem siðað fólk láti ekki bjóða sér. Innlent 8. desember 2023 10:58
Segja íslensk stjórnvöld „í kappi að botninum“ Íslensk félagasamtök og hagsmunaaðilar segja íslensk stjórnvöld vera „í kappi að botninum“ og að ef verði af fyrirhuguðum breytingum dómsmálaráðherra á lögum um útlendinga stefni íslensk stjórnvöld að því að verða „lægsti samnefnari réttinda flóttafólks á Norðurlöndum“. Innlent 6. desember 2023 06:19
Þrettán starfsmenn fylgdu um 180 Venesúelabúum heim Þrettán starfsmenn fylgdu tæpum 180 Venesúelabúum til Caracas í nóvember. Dagpeningar íslensku starfsmannanna námu 1,9 milljón króna þá fimm daga sem ferðalagið tók. Stefnt er að annarri sambærilegri ferð í janúar. Nær allur kostnaður íslenska ríkisins er endurgreiddur af Frontex. Innlent 5. desember 2023 23:00
Er Barnasáttmálinn einskis virði í augum stjórnvalda? Finnst ykkur í fullri alvöru ekkert athugavert við það að brottvísa 12 og 14 ára börnum á flótta undan ógnarstjórn aðskilnaðarríkis Ísraels sem nú fremur hrottalegt þjóðarmorð þar sem jafnvel hvítvoðungum er ekki þyrmt? Skoðun 5. desember 2023 18:00
„Það vísar enginn nauðstöddum á dyr án þess að drepa hluta af sjálfum sér“ „Um fátt er ég fullkomlega sannfærður en þetta þykist ég vita. Það vísar enginn nauðstöddum á dyr án þess að drepa hluta af sjálfum sér. Þessu verður að linna meðan enn er eitthvað eftir af okkur til þess að bjarga.“ Innlent 5. desember 2023 17:14
„Fáránlegt að mál þeirra séu að þvælast um í kerfinu“ Fyrrverandi forstöðukona Fjölmenningarseturs segir fáránlegt að stjórnkerfið hér á landi hafi synjað palestínskum drengjum í neyð um alþjóðlega vernd. Þeirra geti beðið hræðilegar aðstæður í flóttamannabúðum í Grikklandi sem hún hafi séð með eigin augum. Dómsmálaráðherra ætlar ekki að tjá sig um mál drengjanna. Innlent 5. desember 2023 12:56
Meðferð umsókna frá Palestínu ekki breyst frá upphafi október Meðferð umsókna einstaklinga frá Palestínu hefur ekki breyst hjá Útlendingastofnun frá því í upphafi október þegar átökin hófust á Gasa. Alls hefur stofnunin tekið til meðferðar 244 umsóknir á þessu ári. 128 hafa fengið vernd og 116 neitun á grundvelli Dyflinnarreglugerðar eða verndar annars staðar. Innlent 5. desember 2023 10:47
„Þetta er vond stjórnsýsla“ Mál tveggja palestínskra drengja sem vísa á úr landi var tekið fyrir á Alþingi í dag. Þingmaður Samfylkingarinnar segir að um vonda stjórnsýslu sé að ræða og að ætlun Alþingis hefði aldrei verið að vísa fylgdarlausum börnum til Grikklands. Innlent 4. desember 2023 20:30
„Fólkið hér er gott“ Tveir palestínskir drengir sem dvelja hjá íslenskum fósturfjölskyldum segja hræðilegar aðstæður bíða þeirra verði ákvörðun stjórnvalda um að vísa þeim úr landi að veruleika. Fósturforeldrar drengjanna skora á ráðmenn að sýna hugrekki og veita þeim vernd. Innlent 4. desember 2023 18:59
Formaður ÖBÍ segir mál Husseins afar sorglegt Fatlaður umsækjandi um alþjóðlega vernd yfirgaf landið í gær þar sem fjölskyldu hans, sem hann er háður vegna fötlunar sinnar, var vikið úr landi. Formaður Öryrkjabandalagsins, sem fundaði nýlega með ráðherra og hagsmunasamtökum vegna málsins, segir framkvæmd þess ömurlega. Innlent 3. desember 2023 20:01
Hussein yfirgaf Ísland ásamt fjölskyldu sinni Hælisleitandinn Hussein Hussein, sem er í hjólastól, ákvað á síðustu stundu að yfirgefa Ísland og fór með fjölskyldu sinni til Grikklands í gær. Fjölskylduvinur segir að Hussein hafi ekki getað hugsað sér að dvelja hér án fjölskyldu sinnar, sem vísað var úr landi. Aðstæður séu ömurlegar hjá þeim úti. Innlent 3. desember 2023 11:59
„Ég get ekki lifað án fjölskyldu minnar“ Hussein Hussein óttast hvað verði um hann þegar fjölskyldan hans fer til Grikklands á laugardag. Hann er í hjólastól og þarf mikla aðstoð við dagleg verk. Honum hefur ekki verið tryggð fullnægjandi aðstoð við brottför fjölskyldu sinnar sem hingað til hefur séð um alla aðstoð við hann. Innlent 29. nóvember 2023 19:57
Loka nú öllum landamærunum við Rússland Ríkisstjórn Finnlands hefur tekið þá ákvörðun að loka öllum landamærastöðvum við landamæri Rússlands til 13. desember. Eingöngu vörur munu komast yfir landamærin á einum stað. Erlent 28. nóvember 2023 16:38
Flutningi Hussein fjölskyldunnar frestað til laugardags Fjölskylda Hussein Hussein flýgur til Grikklands á laugardag. Þeim hafði áður verið tilkynnt að þau myndu fara í dag. Hussein verður einn eftir á landinu en það er samkvæmt ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu. Landsréttur á enn eftir að úrskurða í máli fjölskyldunnar. Innlent 28. nóvember 2023 14:34
Mótmæla við Útlendingvastofnun vegna brottflutnings Venesúelabúa Töluverður fjöldi fólks mótmælir nú fyrir utan skrifstofu Útlendingastofnunar í Bæjarhrauni í Hafnarfirði vegna fjöldaflutnings Venesúelabúa í vikunni. Innlent 17. nóvember 2023 11:00
Niinistö segir aukinn fjölda hælisleitenda hefndaraðgerð Rússa Sauli Niinistö, forseti Finnlands, hefur heitið því að grípa til afdráttarlausra aðgerða vegna aukins fjölda hælisleitenda sem kemur til landsins frá Rússlandi. Segir hann um að ræða hefndaraðgerðir Rússa vegna samstarfs Finna og Bandaríkjamanna. Erlent 16. nóvember 2023 09:58
Tæplega tvö hundruð Venesúelamenn yfirgáfu landið í gær Tæplega tvö hundruð Venesúelamönnum, sem synjað hafði verið um alþjóðlega vernd, fóru úr landi í gær og var flogið með beinu flugi til Venesúela. Innlent 16. nóvember 2023 08:57
Hæstiréttur segir stjórnvöldum ekki heimilt að flytja fólk til Rúanda Hæstiréttur Bretlands hefur úrskurðað að stjórnvöldum sé ekki heimilt að flytja hælisleitendur til Rúanda. Hæstiréttur staðfesti ákvörðun undirréttar, sem sagði meðal annars hættu á að fólk yrði sent þaðan til heimalands síns þar sem það sætti ofsóknum. Erlent 15. nóvember 2023 10:31