Verratti bætist í hóp Arabíufara | Eyðslan yfir tvö hundruð milljónir Ítalinn Marco Verratti hefur náð samkomulagi við Al-Hilal í Sádi-Arabíu um að spila með liðinu í úrvalsdeildinni þar í landi á komandi vetri. Hann fer til liðsins frá Paris Saint-Germain í Frakklandi. Fótbolti 27. júlí 2023 16:30
Labbaði inn á völl með hund sem meig á samherja hans Fótboltamaður í Kólumbíu varð fyrir því að hundur sem hann fór með inn á völlinn meig á samherja hans. Fótbolti 27. júlí 2023 15:45
Útileikir Breiðabliks og KA sýndir beint á Stöð 2 Sport Næstu útileikir Breiðabliks og KA í Evrópukeppnum verða sýndir á Stöð 2 Sport. Fótbolti 27. júlí 2023 15:01
Nígería vann gestgjafana óvænt og steig stórt skref í átt að sextán liða úrslitunum Nígería gerði sér lítið fyrir og vann heimalið Ástralíu, 2-3, í B-riðli á heimsmeistaramótinu í fótbolta kvenna. Fótbolti 27. júlí 2023 12:18
FCK vill ekki valda börnum vonbrigðum: „Nei takk“ Danmerkurmeistarar FC Kaupmannahafnar hafa sent frá sér tilkynningu þar sem óskað er eftir því að stuðningsmenn beri ekki skilti þar sem beðið er um treyjur leikmanna að leik loknum. Of mörg börn fari vonsvikin heim. Fótbolti 27. júlí 2023 11:31
Frumbyggjar gagnrýna mótshaldara í Ástralíu Hópur fótboltamanna af frumbyggjaættum hefur skrifað bréf til ástralska fótboltasambandsins og Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, vegna skorts á fjárstuðningi. Slíkt eigi að tilheyra arfleifð heimsmeistaramóts kvenna sem fram fer í Ástralíu og Nýja-Sjálandi þessi dægrin. Fótbolti 27. júlí 2023 11:01
Arsenal skoraði fimm gegn Barcelona Leandro Trossard skoraði tvö mörk þegar Arsenal sigraði Barcelona í æfingaleik í Los Angeles, 5-3. Fótbolti 27. júlí 2023 10:30
Fyrsti sigur Portúgals á HM Portúgal vann í morgun sinn fyrsta sigur á heimsmeistaramóti kvenna er það lagði Víetnam að velli, 2-0. Fótbolti 27. júlí 2023 10:01
Óvissa um framtíð Jóns í starfi: „Neita að tjá mig um það“ Daði Guðmundsson, rekstrarstjóri knattspyrnudeildar Fram, neitar að tjá sig um það hvort þjálfaramál karlaliðs félagsins séu til skoðunar. Í bili hið minnsta eins og hann tjáði Vísi. Íslenski boltinn 27. júlí 2023 09:39
Þurfa að bíta á jaxlinn gegn beinskeyttum Írum í kvöld: „Þurfum að þora vera við sjálfir“ Hallgrímur Jónasson, þjálfari karlaliðs KA í fótbolta er borubrattur fyrir fyrri leik liðsins gegn írska liðinu Dundalk í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildar Evrópu í kvöld. Norðanmenn þurfti að setja í næsta gír frá einvígi sínu í fyrstu umferðinni til að eiga möguleika. Fótbolti 27. júlí 2023 09:34
Sonur Kims Kardashian hitti Ronaldo Sonur raunveruleikastjörnunnar og athafnakonunnar Kims Kardashian er eflaust í skýjunum eftir að hann fékk að hitta Cristiano Ronaldo. Fótbolti 27. júlí 2023 09:01
Bellingham skoraði þegar Real Madrid vann United Jude Bellingham skoraði sitt fyrsta mark fyrir Real Madrid þegar liðið sigraði Manchester United í æfingaleik í Houston, Texas í nótt. Lokatölur 2-0, Real Madrid í vil. Fótbolti 27. júlí 2023 08:32
Gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir KA í kvöld: „Gefur okkur gæði og ró fram á við“ Færeyski landsliðsmaðurinn Jóan Simun Edmundsson verður í leikmannahópi KA sem tekur á móti írska liðinu Dundalk í Sambandsdeild Evrópu í kvöld og gæti því spilað sinn fyrsta leik fyrir félagið. Fótbolti 27. júlí 2023 08:00
Fyrirliðinn bjargaði Bandaríkjunum Bandaríkin og Holland gerðu 1-1 jafntefli í E-riðli í fyrsta leik dagsins á HM í fótbolta kvenna. Þessi sömu lið áttust við í úrslitaleik HM fyrir fjórum árum þar sem bandaríska liðið hafði betur, 2-0. Fótbolti 27. júlí 2023 06:57
Martínez ósáttur með leikrit Lukaku Lautaro Martínez, leikmaður Internazionale á Ítalíu var ósáttur með Romelu Lukaku og reyndi að ná í hann en ekkert gekk. Sport 26. júlí 2023 23:30
Pálmi Rafn þjálfar kvennalið KR út tímabilið Pálmi Rafn Pálmason hefur tekið við þjálfun meistaraflokks kvenna í KR út tímabilið. Pálmi er íþróttastjóri félagsins og þjálfari 4. flokks karla. Sport 26. júlí 2023 22:46
Jökull Elísabetarson: Skiptir okkur engu hver staðan er Stjarnan vann í kvöld stórsigur á Fram í Bestu deildinni á Samsungvellinum 4-0 eftir að hafa leitt leikinn 1-0 í hálfleik. Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, var að vonum afar ánægður með frammistöðuna. Sport 26. júlí 2023 22:00
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Stjarnan - Fram 4-0 | Stjarnan valtaði yfir Fram Stjarnan fékk Fram í heimsókn í kvöld á Samsungvöllinn í Garðabæ í leik sem heimamenn stjórnuðu ferðinni. Lokatölur 4-0 eftir að staðan var 1-0 í hálfleik. Íslenski boltinn 26. júlí 2023 21:10
Valgeir Lunddal fékk gult spjald í markalausu jafntefli gegn Klaksvík Valgeir Lunddal Friðriksson og félagar í Häcken fóru til Færeyjar og mættu Klaksvík í fyrri viðureign liðanna í 2. umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Sport 26. júlí 2023 20:45
Isco kominn í Real Betis eftir að hafa verið án félags í sjö mánuði Isco er genginn í raðir spænska knattspyrnuliðsins Real Betis. Isco kemur á frjálsri sölu en hann hefur verið án félags frá því Sevilla rifti samningi hans undir lok síðast árs. Sport 26. júlí 2023 20:15
Mbappé neitar risatilboði Al Hilal Samkvæmt blaðamanninum, Fabrizio Romano, hefur Kylian Mbappé neitað að ræða við Sádí-arabíska félagið Al Hilal. Sport 26. júlí 2023 20:00
Sjáðu mörkin: Hákon Arnar skoraði tvö og lagði upp eitt Hákon Arnar Haraldsson heldur áfram að blómstra á undirbúningstímabilinu með sínum nýju liðsfélögum í Lille. Hákon skoraði tvö og gaf eina stoðsendingu gegn La Havre í 3-2 sigri. Sport 26. júlí 2023 19:30
Midtjylland með sigur í forkeppni Sambandsdeildarinnar Midtjylland sem spilar í dönsku úrvalsdeildinni vann 2-0 sigur gegn FC Progrès Niederkorn í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu. Sport 26. júlí 2023 18:45
United vill fá allt að fimmtíu milljónir punda fyrir McTominay Manchester United vill fá allt að fimmtíu milljónir punda fyrir Scott McTominay. Enski boltinn 26. júlí 2023 17:00
Fær að heyra það eftir atvik næturinnar: „Best fyrir hann að halda sig fjarri“ Phil Parkinson, knattspyrnustjóri Wrexham, lét Nathan Bishop, sem stóð í marki Manchester United í æfingarleik liðsins gegn Wrexham í nótt, heyra það í viðtali eftir leik og sakaði hann um glæfralega tilburði. Enski boltinn 26. júlí 2023 16:31
Þrálát meiðsli gera Arnóri erfitt fyrir í Englandi: Landsliðsverkefni í hættu Íslenski atvinnu- og landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, Arnór Sigurðsson leikmaður enska liðsins Blackburn Rovers verður frá næstu átta vikurnar vegna þrálátra meiðsla á nára. Enski boltinn 26. júlí 2023 15:45
Sú argentínska með Ronaldo tattúið hatar ekki Messi og biður um frið Argentínska knattspyrnukonan Yamila Rodriguez kom sér í fréttirnar á dögunum þegar fólk áttaði sig á því að hún var með húðflúr af andliti Cristiano Ronaldo en Lionel Messi var aftur á móti hvergi sjáanlegur. Fótbolti 26. júlí 2023 15:01
Sjáðu mörkin og mistök Antons Ara í tapi gegn FCK í Meistaradeildinni Danmerkurmeistarar FC Kaupmannahafnar gerðu í gær góða ferð á Kópavogsvöll og unnu þeir tveggja marka sigur á heimamönnum í Breiðabliki er liðin mættust í fyrri leik sínum í undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Fótbolti 26. júlí 2023 14:17
Kanada sýndi karakter í endurkomusigri gegn Írum Kanada hafði betur í loka leik dagsins á HM kvenna í fótbolta þegar að liðið mætti Írlandi í leik í B-riðli. Fótbolti 26. júlí 2023 14:01
BBC biðst afsökunar á óviðeigandi spurningu blaðamanns Breska ríkissjónvarpið, BBC, hefur beðist afsökunar á óviðeigandi spurningu blaðamanns eftir leik Marokkós og Þýskalands á HM í fótbolta kvenna. Fótbolti 26. júlí 2023 13:30