Upphafin andakt, en líka spenna og fjör
Tvö píanó saman hljómuðu ekki sérlega skýrt, en flest annað var skemmtilegt og verk eftir Arvo Pärt voru guðdómleg.
Gagnrýni á kvikmyndum, bókmenntum, tónlist, leikhúsverkum og fleiru.
Tvö píanó saman hljómuðu ekki sérlega skýrt, en flest annað var skemmtilegt og verk eftir Arvo Pärt voru guðdómleg.
Segja má að Sing Street sé afbragðsdæmi um hvernig skal gera klisjukennda sögu ferska, enda mynd sem geislar af mikilli hlýju, bjartsýni og ást á tónlistarsköpun þannig að það verður erfitt að standast unglinga- og nostalgíutöfra hennar.
Vel skrifuð, einföld en sterk skáldsaga sem spyr margra og áleitinna spurninga.
Þrátt fyrir slæma byrjun var þetta áhugaverð og metnaðarfull dagskrá.
Í The Mummy er frásögnin ekki bara þvæld heldur hefur leikstjórinn enga hugmynd um hvaða takmark hann hefur sett sér; hvort myndin eigi að vera spennutryllir, gamansöm hrollvekja, ævintýraleg ástarsaga eða löng stikla fyrir komandi stefnur og strauma í þessum Dark Universe myndabálki.
Einföld en áhrifarík og vel skrifuð frásögn sem á fullt erindi við samtímann.
Flutningurinn á h-moll messu Bachs var hinn skemmtilegasti.
Súr er tilhugsunin um að komið sé árið 2017 og enn þá hafi ekki verið gerð framúrskarandi ofurhetjumynd með kvenpersónu í burðarhlutverki. Eins er furðulegt að tekið hefur þetta langan tíma að fá Wonder Woman á bíótjaldið, miðað við vinsældir hennar og "legasíu“. Að vísu stendur DC-teymið sig strax betur en keppinautarnir hjá Marvel-stúdíóinu, sem getið hefur af sér heilar fimmtán bíómyndir án þess að hafa konu í lykilfókus.
Peningurinn sést allur á tjaldinu og myndin á sína spretti, en Depp og félagar endurvinna gamlar formúlur og virðast ekki sjá að bestu dagar Jacks Sparrow eru löngu liðnir.
Langdregnir tónleikar með afar misjafnri tónlist.
Með myndinni Alien: Covenant er reynt að brúa bilið á milli forverans, Prometheus, og fyrstu Alien-myndarinnar. Í henni er allt reynt til að láta hana fylgja formúlu upprunalegu myndarinnar en í senn halda áfram að stúdera sömu hugmyndir og Prometheus gerði. Alien: Covenant spilast á margan hátt út eins og tvær bíómyndir sem hefur verið klesst saman í eina; Prometheus framhaldið og Alien "endurgerðin“.
Stórfenglegir tónleikar Kammersveitar Vínar og Berlínar.
Sterk heildarmynd og næmur leikur skilar sér í angurværri sýningu.
Þýsku þungarokkshundarnir ullu engum vonbrigðum í Kórnum um helgina.
Það er erfitt að halda tölu á því hversu margar myndir hafa verið gerðar um Artúr konung, riddara Camelots eða galdrana þar í kring, alvarlegar sem yfirdrifnar, en þar bætist núna Guy Ritchie í hópinn og matreiðir goðsagnirnar með sínum brögðum, bæði til hins betra og verra.
Líflegir tónleikar með spennandi nýrri tónlist.
Framúrskarandi verk eftir Hafliða Hallgrímsson var dulúðugt og himneskt.
Harðkjarnakonur skapa ringulreið í Borgarleikhúsinu.
Íslensk kvikmyndagerð hefur margt getið af sér; spennusögur, gamanmyndir, barnamyndir, fjölskyldudrama eða þroskasögur í bílförmum, nefnið það. Þökk sé leikstjóranum Óskari Þór Axelssyni eigum við líka að minnsta kosti eina frábæra glæpamynd til á skrá. Geiramyndir eru hins vegar eitthvað sem við höfum ekki alveg náð þéttum tökum á, hvað þá hrollvekjur eða draugamyndir. En sökum slaks framboðs er öruggt að gefa Ég man þig heiðurinn af því að vera besta íslenska mynd beggja tegunda frá því að Húsið var og hét.
Fyndin sýning sem leið fyrir tæknilega vankanta.
Heillandi þroskasaga.
Stórskemmtilegir tónleikar með vel samsettri dagskrá og glæstum hljóðfæraleik.
Þegar Guardians of the Galaxy kom út fyrir þremur árum þótti Marvel-stúdíóið taka mikla áhættu með myndinni, enda könnuðust fáir við hetjurnar fyrirfram og þá var óvíst hvort almenningur myndi tengja sig við súran og ærslafullan tón hennar. Þess vegna sló það marga út af laginu hvað útkoman reyndist vera þrusuvel heppnuð og náði leikstjórinn, sérvitringurinn og atvinnunördið James Gunn að stuða heljarinnar ferskleika, gríni og slettu af sál í létta og óvenjulega geimóperu. Eðlilega er þá staðallinn fyrir framhaldsmyndina nokkuð hár.
Prýðilega er farið með sígildan efnivið. Krúttleg og hressandi mynd sem yngri hópunum ætti alls ekki að leiðast yfir.
Breski grínistinn Ricky Gervais skemmti landsmönnum í Hörpu síðasta fimmtudag og föstudag með uppistandssýningunni Humanity. Miðar á báðar sýningar seldust upp á mettíma og því er ljóst að hann á dygga aðdáendur hér á landi. Gervais hefur varla stigið feilspor á ferli sínum og þeir sem voru svo heppnir að ná miða á sýningu hans hafa eflaust haft miklar væntingar til hans. En stóðst Gervais væntingar?
Góður hljóðfæraleikur en styrkleikajafnvægið var gallað og söngurinn var afleitur.
Svo framarlega sem þú biður ekki um annað en einfaldan og yfirdrifinn hasar ættirðu að vera í fínum málum. Sem betur fer ríkir mikil meðvitund fyrir kjánaskapnum.
Við kynnumst hinni ungu og viðkunnanlegu Salóme. Hún vinnur á útvarpsstöð og býr með fyrrverandi kærasta sínum, Hrafni, sem hún heldur góðu sambandi við.
Sígaunadjass í Listasafninu var flottur.
Skondin sýning um mikilvægt málefni en listræna dirfsku skortir.