Woods sigraði í bráðabana Tiger Woods vann sjöunda golfmót sitt á árinu í nótt þegar hann tryggði sér sigur í bráðabana á Dunlop Phoenix mótinu í golfi sem fram fór í Japan. Woods og heimamaðurinn Kaname Yokoo voru efstir og jafnir á 8 höggum undir pari eftir lokahringinn, en Woods tryggði sér sigurinn með öruggu golfi í bráðabananum eftir að hafa verið klaufi á síðustu holunum á lokahringnum. Sport 20. nóvember 2005 18:15
Ólöf María á sjö yfir á fyrsta hring Ólöf María Jónsdóttir úr golfklúbbnum Keili lék fyrsta hringinn á úrtökumótinu fyrir evrópsku mótaröðina á sjö höggum yfir pari í dag, eða 80 höggum. Mótið fer fram á La Cala vellinum á Spáni. Ólöf er því nokkuð frá efstu mönnum á mótinu, en leiknir verða fjórir hringir. Sport 19. nóvember 2005 15:30
Woods tók forystuna í Japan Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods tók forystu eftir þriðja hringinn á Dunlop Phoenix mótinu í Japan í nótt. Woods lék þriðja hringinn á 68 höggum, eða tveimur undir pari og hefur nú eins höggs forystu á Jim Furyk sem er í öðru sætinu. Þar á eftir koma svo þeir David Duval og heimamaðurinn Kaname Yokoo á sjö undir pari. Sport 19. nóvember 2005 13:45
Furyk tók forystu í Japan í nótt Jim Furyk var heldur betur í stuði á Dunlop Phoenix mótinu í golfi sem fram fer í Japan um þessar mundir og er kominn í efsta sætið á mótinu. Furyk er sem stendur á níu höggum undir pari eftir að hafa fengið sjö fugla á öðrum hringnum í nótt og kláraði á sex undir pari. Hann er því einu höggi á undan þeim Tiger Woods og David Duval, sem eru samhliða í öðru sætinu. Sport 18. nóvember 2005 15:15
David Duval í forystu í Japan Kylfingurinn David Duval er mjög óvænt í forystu á Dunlop Phoenix mótinu í golfi sem fram fer í Japan um þessar mundir. Duval lék fyrsta hringinn í gær á 64 höggum, eða sex höggum undir pari. Hann hefur eins höggs forystu á Tiger Woods, sem hefur titil að verja á mótinu. Sport 17. nóvember 2005 13:45
Birgir Leifur 3 höggum frá því að komast áfram Birgir Leifur Hafþórsson hafnaði í 98.-106. sæti og er úr leik á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina í golfi sem lauk á San Roque vellinum á Spáni nú undir kvöldið. Birgir lauk keppni um hádegisbil á samtals 12 yfir pari en aðeins munaði þó þremur höggum frá því að hann kæmist áfram. Sport 13. nóvember 2005 17:14
Lék á þremur yfir pari í dag Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson lék annan hringinn á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina í golfi á þremur höggum yfir pari í dag og er því samtals á fimm höggum yfir pari eftir fyrstu tvo hringina. Birgir er í 84.-97. sæti á mótinu sem fer fram á Spáni, en aðeins þrjátíu fyrstu kylfingarnir komast á Evrópumótaröðina á næsta ári. Sport 11. nóvember 2005 16:28
Lék á tveimur yfir pari í dag Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG lauk fyrsta keppnisdegi sínum á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina í dag á tveimur höggum yfir pari, eða 74 höggum. Skor er almennt frekar hátt á mótinu og innan við þriðjungur kylfinganna á mótinu á San Rouque vellinum eru á pari eða þar undir. Sport 10. nóvember 2005 15:30
Komst með baráttu í gegnum úrtökumót á spáni Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson frá Akranesi er búinn að tryggja sér þáttökurétt á lokaúrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina en tæpt stóð það. Birgir lenti nefnilega í kröppum dansi á úrtökumóti í Katalóníu um helgina og hann var tveim höggum frá því að komast áfram fyrir síðasta daginn. Það var því lítið annað í spilunum hjá Birgi en að spila ákveðið golf síðasta daginn og það gerði hann. Sport 7. nóvember 2005 06:00
Birgir Leifur á úrtökumótið Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG tryggði sér í dag keppnisrétt á síðasta úrtökumótinu fyrir evrópsku mótaröðina í golfi, en það fer fram á Spáni í næstu viku. Birgir lauk keppni á úrtökumótinu í Katalóníu í dag á pari og keppir ásamt átta öðrum kylfingum um fjögur síðustu sætin á lokamótinu. Sport 5. nóvember 2005 21:15
McGinley fagnaði sigri Skoski kylfingurinn Colin Montgomerie varð efstur á peningalistanum í evrópsku mótaröðinni í golfi sem lauk með Volvo Masters mótinu á Spáni í dag. Írinn Paul McGinley fagnaði besta árangri sínum á 14 ára ferli á evrópsku mótaröðinni og fór með sigur á mótinu en hann lauk keppni á 10 undir pari. Sport 30. október 2005 16:38
Montgomerie og Garcia efstir Skotinn Colin Montgomerie og Spánverjinn Sergio Garcia eru efstir og jafnir að loknum 54 holum á lokamóti Evrópsku mótaraðarinnar í golfi. Colin Montgomerie lék á 70 höggum í gær og er samtals á tíu höggum undir pari. Sport 30. október 2005 13:56
Woods í vandræðum á heimavelli Tiger Woods náði sér ekki á strik á Funai mótinu í Orlando í dag og komst ekki í gegn um niðurskurðinn frekar en Vijay Singh og því þurftu þeir félagar að sætta sig við það að falla úr keppni á mótinu. Þetta var aðeins í fjórða sinn á ferlinum sem Woods kemst ekki í gegn um niðurskurð. Sport 22. október 2005 00:01
Faldo hannar golfvöll á Íslandi Golfleikarinn frægi Nick Faldo er staddur hér á landi um þessar mundir í þeim tilgangi að hanna golfvöll í grennd við Þorlákshöfn. Sérstakt hlutafélag hefur verið stofnað um uppbyggingu vallarins, sem talið er að muni kosta um 800 milljónir króna. Stefnt er að því að völlurinn verði keppnishæfur fyrir alþjóðleg mót. Sport 21. október 2005 00:01
Golfið á Sýn í kvöld Nú stendur keppni á World Golf Championship í San Francisco sem hæst og áskrifendur Sýnar geta barið marga af bestu kylfingum heims augum þegar útsending frá mótinu hefst klukkan 18:20 í dag. John Daly tók forystu á mótinu í gær þegar hann lék þriðja hring sinn í röð á 67 höggum og var á níu höggum undir pari. Sport 9. október 2005 00:01
Kemst ekki inn á lokamótið Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr GKG, tekur ekki þátt í lokamótinu á Áskorendamótaröðinni í golfi sem hefst á Tenerife á Kanaríeyjum á morgun. Sport 6. október 2005 00:01
Birgir Leifur með milljón á árinu Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG hefur unnið sér inn rétt um eina milljón íslenskra króna á Áskorendamótaröðinni á þessu ári og er í 83. sæti fyrir lokamótið sem fram fer um helgina á Tenerife. Sport 5. október 2005 00:01
OgVodafone styrkir Ólöfu Maríu Atvinnukylfingurinn Ólöf María Jónsdóttir hefur gert tveggja ára styrktarsamning við Og Vodafone, sem felst í því að fyrirtækið mun styðja við bakið á henni í keppnum á evrópsku mótaröðinn í golfi, en Ólöf varð í ár fyrsta íslenska konan til að tryggja sér þáttöku á mótaröðinni. Sport 3. október 2005 00:01
Fyrsti sigurinn í þrjú ár Suður-Kóreumaðurinn K.J. Choi vann fyrsta sigur sinn í þrjú ár í bandarísku mótaröðinni í golfi í gærkvöldi þegar hann hrósaði sigri á Greensboro-mótinu í Norður-Karólínu. Choi lék samtals á 266 höggum, 22 undir pari. Sport 3. október 2005 00:01
Montgomerie sigraði á Dunhill Skoski kylfingurinn Colin Montgomerie sigraði á Dunhill-mótinu í golfi í gær. Þetta var fyrsti sigur Montgomeries í 19 mánuði. Barátta hans við Kenneth Ferrie um sigurinn var ótrúlega spennandi. Sport 3. október 2005 00:01
Birgir Leifur á pari Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG lék annan keppnisdaginn á Áskorendamótinu í Toulouse í Frakklandi á pari og er því samtals á tveimur höggum undir pari eftir fyrstu tvo hringina. Birgir er í 44.-53. sæti á mótinu. Sport 30. september 2005 00:01
Birgir Leifur á tveimur undir pari Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson er núna að hefja leik á öðrum degi á opna Toulouse-mótinu í golfi. Birgir Leifur lék á tveimur undir parinu í gær og var í 17.-34. sæti. Englendingurinn Denny Lucas hafði forystu eftir keppni gærdagsins, lék á 7 höggum undir pari. Sport 30. september 2005 00:01
Jafnaði vallarmetið á Forest Oaks Bandaríski kylfingurinn Charles Warren jafnaði vallarmetið á Forest Oaks vellinum í Greensboro í Norður-Karólínu þegar hann lék á 62 höggum eða 10 undir pari á fyrsta degi á Chrysler-mótinu. Hinn þrítugi Warren hefur ekki komist í gegnum niðurskurðinn á 13 af síðustu 15 mótum sínum. Sport 30. september 2005 00:01
Birgir fer vel af stað í Toulouse Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson fer vel af stað á Opna Toulouse mótinu í Golfi sem fram fer í Frakklandi. Birgir var á fjórum höggum undir pari þegar hann hafði lokið við fimm holur og var í öðru sæti, en mótið er liður í áskorendamótaröð Evrópu. Keppni á mótinu heldur áfram í dag. Sport 29. september 2005 00:01
Ballesteros snýr aftur Spænski kylfingurinn Seve Ballesteros hefur tilkynnt að hann ætli sér að snúa aftur í atvinnumennsku fljótlega, en hann hefur ekki spilað sem atvinnumaður í næstum tvö ár. Sport 28. september 2005 00:01
Thomas Björn ekki með á Dunhill Danski kylfingurinn Thomas Björn keppir ekki á Dunhill-mótinu í golfi um helgina. Björn var lagður inn á sjúkrahús um helgina með veirusýkingu í hálsi og eyra. Thomas Björn er í sjöunda sæti á peningalistanum í Evrópsku mótaröðinni og með sigri á Dunhill-mótinu hefði hann náð þriðja sæti á þessum lista. Tveir efstu menn, þeir Michael Campbell og Retief Goosen, taka ekki þátt í mótinu sem fram fer á St. Andrews vellinum í Skotlandi.. Sport 27. september 2005 00:01
Jafnt í Forsetabikarnum Staðan er nú hnífjöfn í keppninni um Forsetabikarinn í golfi fyrir lokadaginn sem spilaður er í kvöld. Í gærkvöldi var keppt í fjórmenningi og enduðu leikar með jafntefli, bæði lið hlutu 2,5 vinninga og því er staðan í keppninni 11-11. Keppnin fer fram á Tobert Trent Jones vellinum í Virginíu í Bandaríkjunum. Keppnin heldur áfram í kvöld og sýnt verður frá henni á sjónvarpsstöðinni Sýn. Sport 25. september 2005 00:01
Keppni frestað í Forsetabikarnum Fresta þurfti keppni um tíma í Forsetabikarnum í golfi í gærkvöld vegna þrumuveðurs á Robert Trent Jones vellinum í Virginíu en kylfingarnir náðu að ljúka við alla sex leikina í gær. Heimsúrvalið, eða kylfingar utan Evrópu, hafa hlotið sex og hálfan vinning á móti fimm og hálfum vinningi Bandaríkjamanna. Sport 24. september 2005 00:01
Heimsúrvalið með forystu Heimsúrvalið í golfi hefur forystu að loknum fyrsta keppnisdegi í Forsetabikarnum sem hófst í gær á Robert Trent Jones vellinum í Virginíu. Heimsúrvalið hefur þrjá og hálfan vinning á móti tveimur og hálfum vinningi Bandaríkjamanna. Sport 23. september 2005 00:01
Keppni aflýst í Forsetabikarnum Keppni í forsetabikarnum í golfi í Bandaríkjunum hefur verið frestað um óákveðinn tíma vegna þrumuveðurs. Þegar keppnin var flautuð af var sex leikjum ólokið, en alheimsúrvalið var þá yfir í þremur leikjum, en Bandaríkjamenn í fjórum. Sýnt verður frá mótinu á sjónvarpsstöðinni Sýn um helgina. Sport 23. september 2005 00:01