Jólavefur Vísis

Jólavefur Vísis

Allt um undirbúninginn, aðventuna, uppskriftir, jólalög og margt fleira.

Fréttamynd

Spennufíkill korter fyrir jól

„Ég veit ekki hvort það er tilviljun eða dulin spennufíkn, en ég fer oft af stað í breytingar heima hjá mér korter fyrir jól, það er sennilega að þá hefur maður jólin til að reka á eftir manni sem einhverskonar „skiladag", segir útvarpsmaðurinn Gunnlaugur Helgason, betur þekktur sem Gulli Helga, spurður út í undirbúning fyrir hátíðarnar. „Ég skal alveg viðurkenna að það er voða gaman að fara í breytingar heima hjá sér en það þarf oft einhvern eða eitthvað til að ýta manni af stað og í þessu tilfelli var það dóttir mín sem vildi ekki hafa bleika litinn í herberginu sínu lengur," segir Gulli. Hvað kemur þér í hátíðarskap? „Frost, snjór, piparkökur, Ó helga nótt með Agli Ólafs, jólaljós og smá áhyggjur af jólagjöfunum. Annars er sú venja hér á heimilinu að pakka jóladiskum og jólamyndunum (DVD) með skrautinu þannig að þegar að kassarnir eru opnaðir þá er oft sest niður og horft á skemmtilegar myndir sem tengjast jónunum, ég mæli með: Love Actually, Chrismas Vacation, White Christmas, It´s a Wonderful Life svo einhverjar séu nefndar," segir hann. Eftirminnileg jól „Ætli að séu ekki jólin sem yngsti sonur okkar fæddist, Ágústa konan mín var sett 19. des en á aðfangadag var hann ekki enn kominn í heiminn. Hún mátti ekki hósta þá hélt ég að hún væri að fara fæða, en svo fór hún af stað um nóttina og hann fæddist á jóladag. Pabbi hans er líka smiður en móðir hans heiti Ágústa ekki María," segir Gulli hlæjandi. Stúfur birtist alltaf á aðfangadagskvöld „Við höfum fengið „óvænta" heimsókn undanfarin 20 ár á aðfangadag, þá hefur Stúfur komið með pakka heim til okkar, veit ekki af hverju, sennilega eru börnin mín svo stillt. Undanfarin jól hefur verið hamborgarahryggur á aðfangadag, en núna verður þríréttað því ég fékk gefins tvær rjúpur og ég mun borða þær báðar aleinn. Yngsti sonur minn vill nautalund og restin hamborgarahrygg þannig að það verður fjör í eldhúsinu þann daginn," segir Gulli að lokum. - elly@365.is

Jólin
Fréttamynd

Skotheld fegrunarráð fyrir jólin

„Á vinnuborðinu hjá mér þegar kemur að augnförðun fyrir þessi jól eru gylltir og kóngabláir litir," segir Karl Berndsen hár- og förðunarfræðingur.

Jólin
Fréttamynd

Hófsamar jólagjafir fyrirtækja

Jólagjafirnar á góðærisárunum voru oft glæsilegar og íburðarmiklar og margir supu hreinlega hveljur við fréttum af því hvað leyndist í jólapökkum starfsmanna sumra fyrirtækja. Nú er öldin önnur.

Lífið
Fréttamynd

Heimalagað rauðkál og rauðvínssósa

Eplin og rauðkálið er skorið niður, þetta er sett í pott ásamt smjöri og blandað vel saman. Þá er restinni blandað saman við og soðið við vægan hita í c.a 1 ½ - 2 tíma. Hræra þarf reglulega í pottinum.

Matur
Fréttamynd

Hamborgarhryggur og eplasalat

Hryggurinn er settur inní ofn við 160° í 90 mínútur, gott er að setja smá vatn í botninn svo hann þorni ekki. Hryggurinn er tekinn út og losaður af beininu.

Matur
Fréttamynd

Ostakrækir hnuplar úr Búrinu

Írskur gáda-osthleifur var numinn á brott af heimili sínu í fyrrinótt og skömmu síðar varpað á jörðina. Osturinn, sem staðið hafði á afgreiðsluborði ostaverslunarinnar Búrsins við Nóatún, komst aftur óskaddaðar í réttar hendur.

Innlent
Fréttamynd

Jólalestin lögð af stað

Ljósum prýddir Coca-Cola trukkar Vífilfells keyra sinn árlega hring um höfuðborgarsvæðið í dag. Jólalestin hélt af stað fyrir um klukkutíma frá höfuðstöðvum Vífilfells að Stuðlahálsi. Hún mun ferðast um helstu hverfi höfuðborgarsvæðisins með stuttri viðkomu í Smáralind kl. 18:00. Þaðan verður ferðinni áfram haldið til kl. 20:00, en þá lýkur rúmlega 100 km löngu ferðalagi Jólalestarinnar á Stuðlahálsi, á sama stað og ferðin hófst.

Lífið
Fréttamynd

Ómótstæðileg jólakort

Jólakort úr hvítu súkkulaði með jólakveðju og mynd eru til þess fallin að gleðja ættingja og vini með óvæntum hætti. Sumir veigra sér þó við því að borða sína nánustu en erfitt er að standast freistinguna.

Heilsuvísir
Fréttamynd

Ásdís Rán og Garðar með jólaboð á Oliver

Hjónakornin Ásdís Rán Gunnarsdóttir og Garðar Gunnlaugssonar hafa ekki mikinn tíma hér á landi yfir hátíðirnar oghafa af þeirri ástæðu ákveðið að halda ,,lítið jólaboð" á Café Oliver næstkomandi laugardag fyrir fjölskyldu og vini.

Lífið
Fréttamynd

Kveikt á jólatrénu á Austurvelli í dag

Ljósin á Oslóartrénu á Austurvelli verða tendruð klukkan fjögur í dag. Tæp sextíu ár eru síðan Norðmenn færðu Íslendingum í fyrsta sinn grenitré að gjöf til að skreyta Reykjavík. Tréð sem prýðir Austurvöll þessi jól er tólf metra hátt og var höggvið í Maridalen sem er eitt af vinsælli útivistarsvæðum Oslóarbúa. Jólsveinarnir Giljagaur, Bjúgnakrækir og Stúfur ætla að mæta á svæðið og syngja nokkur jólalög.

Innlent
Fréttamynd

Requiem Mozarts á miðnætti

Laust eftir miðnætti aðfaranótt 5. desember næstkomandi flytur Óperukórinn í Reykjavík ásamt sinfoníuhljómsveit og einsöngvurum Requiem Mozarts í Langholtskirkju.

Lífið
Fréttamynd

Jólaþorpið á Thorsplani opnað

Búið er að opna jólaþorpið á Thorsplani í Hafnarfirði. Ýmislegt í boði í þorpinu, handverk og hönnun, heimabakaðar kökur, sultur og annað góðgæti, handmáluð kerti og jólakúlur, dúkkuföt, myndlist, leirlist svo fátt eitt sé nefnt.

Lífið
Fréttamynd

Jólaljósin tendruð á Miðbakka

Ljósin á jólatrénu frá Hamborg sem er á Miðbakka Reykjavíkurhafnar verða tendruð í dag klukkan fimm. Sendiherra Þýskalands á Íslandi, Karl-Ulrich Müller, afhendir forsvarsmönnum Faxaflóahafna tréð og Júlíus Vífill Ingvarsson, stjórnarformaður Faxaflóahafna, ávarpar samkomuna og tekur á móti trénu fyrir hönd hafnarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Náttúrulega klassískir

Að pakka inn jólagjöfunum er skemmtilegur lokahnykkur á jólaundirbúningnum. Pakkarnir geta verið einfaldir eða skrautlegir, aðalmálið er að leggja alúð í verkið og útkoman verður flott.

Jólin
Fréttamynd

Þurfum ljós á aðventunni

Kertagerð er göfugt og heillandi viðfangsefni. Um það er auðvelt að sannfærast þegar komið er í fyrirtækið Jöklaljós þar sem nostrað er við hvert og eitt kerti.

Jólin
Fréttamynd

Reidd á hesti til nýrra heimkynna

Þegar Freyja Fanndal Sigurðardóttir er beðin um að rifja upp bernskujól þá kemur á hana hik. Svo hverfur hún í huganum aftur í tímann, fyrst til ársins 1941 því þá urðu mikil umskipti í lífi hennar, hún flutti að Hólum í Hjaltadal til fósturforeldra.

Jólin
Fréttamynd

Óvæntir dýrgripir undir jólatrénu

Það er fátt sem hreyfir eins mikið við hjarta mannfólksins á jólunum en heimagerðar gjafir barna, enda allt ósvikin listaverk sem unnin eru með hjartanu og af persónulegri natni og hlýhug til þess sem gjöfina á að fá.

Jólin
Fréttamynd

Grýla var örugglega glysgjörn

l Í rauðu húsi við Skólavörðustíginn leynist lítið gallerí þar sem Edda Herbertsdóttir útbýr fígúrur úr ull og fleiru. Má þar nefna jólasveina, engla í litríkum þjóðbúningum, karla og kerlingar. Hún notar mest íslenska kembu eða flókaull og þæfir með nálu

Jólin
Fréttamynd

Klassískir og einfaldir pakkar

Jólapakkar vekja upp tilhlökkun og bros og er það ekki eingöngu vegna spennu yfir hvað í þeim leynist heldur líka vegna þess hve fallegir þeir geta verið á að líta. Kristín Magnúsdóttir útbjó nokkra klassíska jólapakka fyrir okkur.

Jólin
Fréttamynd

Íslensk hönnun er jólagjöfin í ár

Jólagjöfin í ár er íslensk hönnun, að mati rannsóknarseturs verslunarinnar. Efnahagslægðin setur sitt mark á valið, en undanfarin ár hafa GPS-tæki, lófatölvur og safapressur orðið fyrir valinu.

Innlent
Fréttamynd

Oxford bannar jól

Bæjaryfirvöld í Oxford í Bretlandi hafa ákveðið að nota ekki orðið „jól" yfir hátíðarhöld á sínum vegum í desember. Í staðinn munu hátíðarhöldin sem sumir kalla jól ganga undir nafninu „Vetrarljósahátíð".

Erlent