Þúsund keyptu leik Um eitt þúsund manns gerðu sér ferð í Elko og BT í Skeifunni aðfaranótt þriðjudags til að festa kaup á tölvuleiknum Grand Theft Auto IV. Leikjavísir 1. maí 2008 00:01
Eldsnöggir að hækka verð á tölvuleikjum Tölvuleikir hafa hækkað í verði síðan krónan fór á skrið fyrir nokkrum dögum. Í verslunum BT eru þeir nú að meðaltali þrettán prósentum dýrari en 1. mars, samkvæmt verðkönnunum Fréttablaðsins og leikjasíðunnar GameOver.is. Í Elko hafa þeir hækkað um sex prósent að meðaltali. Leikjavísir 20. mars 2008 00:01
Afkoma Microsoft yfir væntingum Bandaríski hugbúnaðarrisinn Microsoft skilaði hagnaði upp á 4,7 milljarða dala, jafnvirði 311 milljarða íslenskra króna, á síðasta ársfjórðungi samanborið við 2,6 milljarða í hitteðfyrra. Windows Vista, nýja stýrikerfið sem fyrirtækið setti á markað seint á síðasta ári á stærstan þátt í bættri afkomu fyrirtækisins. Viðskipti erlent 25. janúar 2008 09:10
CCP margfaldar kúnnahóp sinn Tölvuleikurinn EVE online verður í næsta mánuði settur í sölu á vefsíðunni steamgames.com en síðan er einn helsti dreifingaraðili á PC-leikjum í heiminum og er meðal annars framleiðandi Counter Strike, eins vinsælasta net-tölvuleikjar heims. Leikjavísir 24. janúar 2008 00:01
Standa fyrir stefnumótum á Xbox Live „Við erum aðallega að vinna í því að fá Xbox Live! til landsins, en síðan erum við með ýmislegt fleira planað fyrir næsta ár,“ segir Örvar G. Friðriksson, umsjónarmaður xbox360.is, vefsíðu íslenska Xbox samfélagsins. Leikjavísir 28. desember 2007 00:01
„Fundum einu sinni 50 borvélar við húsleit“ Tilkynnt var um þrjú innbrot í bíla á höfuðborgarsvæðinu í nótt og eitt innbrot á heimili. Um sjöleytið barst lögreglu tilkynning um innbrot í bíl við Grettisgötu. Leikjavísir 15. nóvember 2007 12:28
Hagnaður Nintendo tvöfaldast Japanski leikjatölvurisinn Nintendo skilaði 132,4 milljörðum jena, jafnvirði 70,5 milljarða íslenskra króna, á öðrum og þriðja ársfjórðungi samanborið við 54,4 milljarða á sama tíma í fyrra. Þetta er rúmlega tvöfalt betri afkoma en í fyrra. Leikjavísir 25. október 2007 09:16
Nintendo áhugasamt „Þetta er allt á byrjunarreit en við höfum átt nokkra fundi með forsvarsmönnum Nintendo,“ segir Magnús Scheving, framkvæmdastjóri Latabæjar. Leikjavísir 20. október 2007 01:00
Fabregas mikið í tölvuleikjum Cesc Fabregas, miðjumaður Arsenal, sagði frá unun sinni af tölvuleikjaspili í viðtali við The People. Fabregas á XBOX tölvu og segist oft spila fótboltaleiki við fólk um allan heim í gegnum internetið. Enski boltinn 1. október 2007 20:30
Þrjú hundruð mættu á miðnætursölu Halo 3 Útgáfa skotleiksins Halo 3 fyrir Xbox 360 leikjatölvuna á miðvikudag fór ekki fram hjá neinum tölvuleikjaáhugamanni. Fjöldinn allur af fólki mætti á miðnæturopnun BT til að kaupa leikinn á þriðjudagskvöld, en tollurinn setti strik í reikninginn fyrir suma. Leikjavísir 28. september 2007 00:01
Efstir á óskalistanum Í hverri viku koma út nýir tölvuleikir fyrir leikjatölvurnar. Sumir vekja litla athygli, en öðrum hafa leikjaáhugamenn beðið eftir árum saman. Fréttablaðið skoðaði þá þrjá leiki sem eru efstir á óskalistanum fyrir Nintendo Wii, Playstation 3og Xbox. Leikjavísir 24. september 2007 15:00
Heavenly Sword - PS3: Fjórar stjörnur Leikurinn sómir sér vel sem stór Hollywood-mynd og ég hvet fólk til að upplifa ævintýrið sem er Heavenly Sword. Leikjavísir 24. september 2007 00:01
Íslenskur tofærujeppi í næsta Sega Rally Íslenskir unnendur tölvuleiksins vinsæla Sega Rally geta nú glaðst því í næstu útgáfu leiksins býðst keppendum að aka um á íslenskum tofærubíl. Leikjavísir 11. september 2007 11:09
Wii trónir á toppnum Wii-leikjatölvan frá Nintendo er komin í efsta sæti í leikjatölvustríðinu. Síðan hún kom út í lok síðasta árs hefur hún selst ævintýralega vel og hafa framleiðendur vart undan að anna eftirspurninni. Fleiri eintök hafa selst af Wii en Xbox360, sem hefur verið á markaðnum tvöfalt lengur eða síðan í nóvember árið 2005. Leikjavísir 7. september 2007 17:54
Syngjandi upptakarar Einar Baldvin Arason kvikmyndagerðarmaður finnur endalaus tækniundur á uppboðssíðunni eBay. „Laserpod er ein uppáhaldsgræjan mín. Þetta er svona leysilampi sem virkar eins og nútímalegur lavalampi og er líka handhægt leysisjóv. Þetta virkar best með reykvélina í gangi í dimmu herbergi en það gerist því miður ekki alveg nógu oft hjá mér. Síðan er hægt að framkalla enn betri stemningu með tónlist undir,“ segir Einar. Leikjavísir 5. september 2007 13:45
Quake Wars á leiðinni Tölvuleikurinn Quake Wars verður fáanlegur fyrir PC-tölvur frá og með 28. september í Evrópu. Um er að ræða fyrstu persónu fjölspilunar-skotleik þar sem hermenn berjast við geimverurnar Strogg um yfirráð yfir jörðinni. Leikjavísir 3. september 2007 08:00
Manhunt 2 kemur út í Bandaríkjunum Hinn umdeildi tölvuleikur Manhunt 2 sem bannaður var í Bretlandi og Bandaríkjunum hefur risið upp frá dauðum í breyttri útgáfu. Nýja útgáfan verður leyfð fyrir 17 ára og eldri notendur og kemur út fyrir hrekkjavöku í Bandaríkjunum. Leikjavísir 27. ágúst 2007 15:31
Xbox ofhitnar Vandræðunum með leikjatölvuna xbox 360 er ekki lokið. Nú er unnið að því að skipta út þráðlausu kappakstursstýrinu eftir að um fimmtíu tilvik hafa komið upp þar sem stýrin hafa ofhitnað og reyk lagt úr þeim. Leikjavísir 27. ágúst 2007 07:00
PS3 tekur upp úr sjónvarpi Sony kynnti í vikunni nýja viðbót við Playstation 3 leikjatölvuna, PlayTV, sem breytir tölvunni í upptökutæki. Tækið gerir notendum kleift að taka upp og spila stafrænar sjónvarpsútsendingar í gegnum leikjatölvuna. Leikjavísir 26. ágúst 2007 16:41
Tölvuleikur varpar ljósi á hræðsluástand Tölvuleikur sem gefur spilendum raflost varpar ljósi á hvernig maðurinn bregst við yfirvofandi hættu. Rannsóknin leiddi í ljós að mismunandi svæði heilans voru notuð eftir því hversu mikil hættan á raflosti var. Segulsneiðmyndir af heilanum sýndu að virkni fór úr framheilanum í miðheilan þegar kvíði varð að skelfingu. Leikjavísir 24. ágúst 2007 18:02