Inter í vænlegri stöðu Inter Milan er komið með annan fótinn í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu, eftir að Dejan Stankovic kom liðinu í 1-0 gegn Ajax á 57. mínútu. Leikurinn fer fram á San Siro í Mílanó, en Brasilíumaðurinn Adriano brenndi af vítaspyrnu í fyrri hálfleiknum. Hollendingarnir þurfa nú að skora tvö mörk til að eiga möguleika á að komast áfram í keppninni. Sport 14. mars 2006 21:01
Inter - Ajax í beinni í kvöld Síðari leikur Inter Milan og Ajax í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu verður sýndur beint á Sýn í kvöld klukkan 19:30. Inter stendur vel að vígi því liðið náði 2-2 jafntefli í fyrri leiknum í Hollandi og nægir því markalaust jafntefli á heimavelli sínum í kvöld til að komast áfram. Sigurvegarinn í kvöld mætir spænska liðinu Villareal í 8-liða úrslitum keppninnar. Sport 14. mars 2006 16:03
Þýðir ekkert að spila upp á jafntefli Roberto Mancini hefur varað sína menn í Inter Milan við að reyna að spila upp á jafntefli í leiknum við PSV Eindhoven frá Hollandi í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar annað kvöld, en ítalska liðið náði 2-2 jafntefli á útivelli í fyrri leiknum. Sport 13. mars 2006 15:30
Það voru örlög mín að mæta Arsenal Patrick Vieira segist hlakka mikið til að mæta með nýja liði sínu Juventus á Highbury í Meistaradeildinni, þar sem hann spilaði með Arsenal í níu ár. Kaldhæðni örlaganna er nú sú að Vieira fór sumpart frá Arsenal til að reyna að vinna Evrópumeistaratitilinn annarsstaðar, en nú þarf hann einmitt að slá sína gömlu félaga sínu úr keppni til að ná því takmarki. Sport 10. mars 2006 18:15
Rangers á yfir höfði sér refsingu Skoska liðið Glasgow Rangers á yfir höfði sér refsingu frá evrópska knattspyrnusambandinu vegna hegðunar stuðningsmanna liðsins í leikjunum við Villareal í Meistaradeildinni á dögunum. Stuðningsmennirnir veittust að rútu spænska liðið og grýttu hana, auk þess sem þeir hrópuðu fúkyrðum að mótherjunum á meðan á báðum leikjunum stóð. Sport 10. mars 2006 14:15
Viss um að Vieira fær góðar móttökur David Dein, aðstoðarstjórnarformaður Arsenal var hæstánægður með dráttinn í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar í hádeginu, þar sem hans menn lentu á móti Juventus. Það er því ljóst að miðjumaðurinn Patrick Vieira mun spila einn leik enn á Highbury eftir allt saman. Sport 10. mars 2006 12:53
Arsenal mætir Juventus Nú er ljóst hvaða lið mætast í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu, en dregið var í París í Frakklandi nú rétt í þessu. Arsenal mætir ítölsku meisturunum Juventus, Englendingabanarnir Benfica mæta Barcelona, Lyon mætir AC Milan og Inter eða Ajax mætir spænska liðinu Villareal. Sport 10. mars 2006 12:10
Liðið er að smella saman Arsene Wenger, stjóri Arsenal, var hæst ánægður með sína menn eftir að þeir slógu Real Madrid út úr Meistaradeildinni í gær eftir markalaust jafntefli á Highbury. Wenger segist sjá mikil batamerki á liðinu á síðustu tveimur mánuðum. Sport 9. mars 2006 08:45
Misnotuð færi kostuðu okkur dýrt Rafa Benitez var skiljanlega svekktur með að detta út úr meistaradeildinni í gær eftir að hans menn töpuðu 2-0 á heimavelli fyrir portúgalska liðinu Benfica. Leikmenn Liverpool fengu fjölda tækifæra til að skora í leiknum en inn vildi boltinn ekki og Evrópumeistararnir því úr leik. Sport 9. mars 2006 08:45
Evrópumeistararnir úr leik Evrópumeistarar Liverpool eru úr leik í Meistaradeild Evrópu eftir 2-0 tap á heimavelli sínum fyrir Benfica og samanlagt 3-0. Arsenal er komið áfram í keppninni eftir jafntefli við Real Madrid, AC Milan og Lyon eru sömuleiðis komin áfram í 8-liða úrslitin eftir stórsigra í sínum leikjum. Sport 8. mars 2006 21:42
Liverpool er undir í hálfleik Nú er kominn hálfleikur í leikjunum fjórum í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu. Evrópumeistarar Liverpool eiga á brattann að sækja á heimavelli sínum Anfield, þar sem liðið er undir 1-0 í hálfleik og þarf því að skora þrjú mörk í þeim síðari til að komast áfram í keppninni. Sport 8. mars 2006 20:36
Hyypia á bekknum hjá Liverpool Finnski varnarjaxlinn Sami Hyypia er á varamannabekk Liverpool þegar liðið tekur á móti Benfica í síðari viðureign liðanna í Meistaradeildinni. Leikurinn fer fram á Anfield og þarf Liverpool að skora minnst tvö mörk til að komast áfram. Peter Crouch og Fernando Morientes eru í fremstu víglínu hjá Liverpool. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. Sport 8. mars 2006 19:31
Robinho aðvarar Arsenal Brasilíski snillingurinn Robinho hjá Real Madrid hefur gefið út aðvörun á hendur leikmönnum Arsenal og skorar á þá að vanmeta ekki styrk spænska liðsins, sem sýndi sig glögglega um daginn þegar liðið var næstum búið að vinna upp fimm marka forskot Real Zaragoza í spænska bikarnum eftir að allir höfðu afskrifað liðið. Sport 8. mars 2006 18:00
Við þurfum ekki Ronaldinho John Terry og Frank Lampard hjá Chelsea segja að Chelsea þurfi ekki leikmenn eins og Ronaldinho til að vinna Meistaradeildina og benda á að Chelsea hafi í sínum röðum leikmenn sem geta breytt gangi leiksins upp á eigin spýtur með einstaklingsframtaki. Sport 8. mars 2006 17:51
Ronaldinho er ekki til sölu Roman Abramovich eigandi Chelsea virðist vekja ótta hvar sem hann kemur, því á blaðamannafundi eftir leik Barcelona og Chelsea þótti Frank Rijkaard ástæða til að taka það fram að peningar gætu ekki keypt snillinginn Ronaldinho frá Barcelona. Sport 8. mars 2006 17:30
Missir af 8-liða úrslitunum Unglingurinn Lionel Messi hjá Barcelona getur ekki leikið með liði sínu í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar eftir að hann reif vöðva í fæti í leiknum gegn Chelsea í gær og talið er að hann verði frá í að minnsta kosti mánuð. Þá verður Carles Puyol í leikbanni í fyrri leiknum í næstu umferð eftir að hann fékk gult spjald fyrir óþarft brot á Eið Smára Guðjohnsen í leiknum í gær. Sport 8. mars 2006 15:49
Við vanmetum ekki Real Madrid Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur varað við of mikilli bjartsýni fyrir leikinn gegn Real Madrid á Highbury í Meistaradeildinni í kvöld og segir að þó sínir menn séu vissulega í góðri stöðu, sé Real Madrid hættulegt lið sem ekki megi vanmeta. Sport 8. mars 2006 15:41
Getum skorað tvö mörk Rafa Benitez hefur ekki áhyggjur af að hans menn nái ekki að skora þau tvö mörk sem liðið þarf á að halda í leiknum gegn Benfica á Anfield í kvöld, þegar liðin spila síðari leik sinn í Meistaradeildinni. Benfica vann fyrri leikinn 1-0. Sport 8. mars 2006 15:31
Nýr verðlaunagripur afhentur í vor Á föstudaginn verður kynntur nýr verðlaunagripur sem afhentur verður sigurvegaranum í Meistaradeild Evrópu eftir úrslitaleik keppninnar í vor. Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool mun þá afhenda borgarstjóranum í París gripinn, sem hann mun hafa undir höndum fram að úrslitaleik keppninnar. Sport 8. mars 2006 13:30
Aldrei verið eins stoltur af mínum mönnum Alex McLeish var stoltur af sínum mönnum í gær þrátt fyrir að þeir hefðu fallið úr leik gegn sterku liði Villareal í Meistaradeildinni á mörkum skoruðum á útivelli. Leikurinn í gær endaði með jafntefli 1-1 á Spáni, en um tíma leit út fyrir að skoska liðið ætlaði að fara með sigur af hólmi. Sport 8. mars 2006 11:00
Þakkaði Cannavaro fyrir markið Brasilíski miðjumaðurinn Emerson hjá Juventus eignaði félaga sínum Fabio Cannavaro allan heiðurinn að sigurmarkinu sem hann skoraði í leiknum gegn Werder Bremen í Meistaradeildinni í gærkvöld, því eins og sást í endursýningum frá aðdraganda marksins, sneri Emerson baki í markvörðin Tim Wiese þegar hann missti boltann frá sér á klaufalegan hátt. Sport 8. mars 2006 08:30
Spyr mig af hverju ég gerðist markvörður Tim Wiese, markvörður Werder Bremen hefur eflaust ekki sofið vel í nótt, því skelfileg mistök hans undir lok leiksins gegn Juventus í gærkvöldi urðu þess valdandi að Bremen missti af sæti í 8-liða úrslitunum í Meistaradeildinni. Wiese átti vart til orð til að lýsa líðan sinni eftir leikinn í gær. Sport 8. mars 2006 08:15
Barcelona á skilið að vera komið áfram Jose Mourinho gat lítið sagt eftir að hans menn féllu úr keppni í Meistaradeildinni á Nou Camp í gærkvöldi og viðurkenndi að úr því að Barcelona væri komið í næstu umferð keppninnar, ættu liðið það líklega skilið. Frank Rijkaard sagðist ekki hafa verið í hefndarhug, eftir tapið fyrir Chelsea í fyrra. Sport 8. mars 2006 07:45
Stuðningsmenn Rangers með ólæti Stuðningsmenn Glasgow Rangers sem ekki fengu miða á leikinn gegn Villareal í kvöld brugðust ókvæða við og réðust að rútu sem flutti leikmenn spænska liðsins á völlinn. Talið er að um 50 manns hafi verið á bak við verknaðinn, en þeir köstuðu bjórflöskum og öðru lauslegu í rútuna. Atvikið er í rannsókn hjá lögreglu, en þetta átti sér stað fyrir leik liðanna í kvöld. Sport 7. mars 2006 21:58
Chelsea úr leik Barcelona er komið áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir að liðið gerði 1-1 jafntefli við Chelsea á heimavelli sínum. Snillingurinn Ronaldinho skoraði mark Barcelona, en Frank Lampard jafnaði metin fyrir Chelsea úr vafasamri vítaspyrnu í uppbótartíma. Barcelona fer því áfram samanlagt 3-2. Sport 7. mars 2006 21:34
Markalaust hjá Barcelona og Chelsea í hálfleik Staðan í leik Barcelona og Chelsea í meistaradeildinni er jöfn 0-0 í hálfleik. Heimamenn hafa verið heldur sprækari í hálfleiknum, en urðu fyrir því óláni að missa undrabarnið Lionel Messi meiddan af velli. Inná í hans stað kom hinn sænski Henrik Larsson. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. Sport 7. mars 2006 20:36
Eiður Smári byrjar á bekknum Eiður Smári Guðjohnsen er á varamannabekk Chelsea í leiknum gegn Barcelona í kvöld sem hefst nú innan skamms á Nou Camp í Barcelona og er í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn. Sport 7. mars 2006 19:24
Barcelona er besta lið í heimi Brasilíumaðurinn Rivaldo sem var lykilmaður í liði Barcelona þegar það varð Spánarmeistari árið 1999, segir að Barcelona sé besta félagslið heimsins í dag og spáir að Barca slái Chelsea út úr Meistaradeildinni í kvöld. Sport 7. mars 2006 18:47
Við erum meira en hálfnaðir Arsene Wenger segir sína menn í Arsenal vera rúmlega hálfnaða með verkefni sitt gegn Real Madrid í Meistaradeildinni eftir að Arsenal vann fyrri leik liðanna í Madrid á dögunum og lítur því á það sem formsatriði að ná hagstæðum úrslitum á Highbury annað kvöld. Sport 7. mars 2006 17:10
Vill gera hið ómögulega Alex McLeish og lærisveinar hans í skoska liðinu Glasgow Rangers eiga erfitt verkefni fyrir höndum í kvöld þegar liðið mætir spænska liðinu Villareal á útivelli í síðari leiknum í Meistaradeildinni. Fyrri leiknum í Skotlandi lauk með 2-2 jafntefli og McLeish leitast við að koma enn einu sinni á óvart og stela sigrinum. Sport 7. mars 2006 16:03