Olís-deild karla

Olís-deild karla

Leikirnir




    Fréttamynd

    Afturelding vann botnslaginn

    Það var sannkallaður botnslagur í N1 deild karla í handbolta í dag þegar tvö neðstu lið deildarinnar mættust. Afturelding tók á móti ÍBV og vann sigur 28-25 eftir að hafa verið yfir 18-14 í hálfleik.

    Handbolti
    Fréttamynd

    Klárlega einn af leikjum ársins í N1-deildinni

    Fram og Haukar mætast í toppbaráttuleik N1-deildar karla í handbolta í Framhúsinu í Safamýri kl. 16:00 í dag. Liðin skildu jöfn 29-29 í Framhúsinu í lok september og Haukarnir unnu 26-20 tæpum mánuði síðar að Ásvöllum í N1-deildinni fyrr í vetur.

    Handbolti
    Fréttamynd

    Vorum fjórum til fimm skrefum á eftir þeim

    Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Valsmanna var ekki ánægður eftir átta marka tap liðsins gegn HK í Digranesi í kvöld. "Þeir voru miklu betri í dag, þeir voru allir heitir og Petkevicius var að verja allan tímann."

    Handbolti
    Fréttamynd

    HK burstaði Val

    HK tók Val í kennslustund í Digranesinu í leik kvöldsins í N1 deild karla í handbolta. HK menn sigruðu 31-23 eftir að hafa verið yfir 19-12 í hálfleik. Tomas Eitutis skoraði 11 mörk fyrir HK og Ólafur Ragnarsson 6, en Arnór Malmquist skoraði 7 mörk fyrir Val.

    Handbolti
    Fréttamynd

    Jafnt í Mýrinni hjá Stjörnunni og Fram

    Síðari leik kvöldsins í N1 deild karla í handbolta lauk með jafntefli líkt og þeim fyrri þegar Framarar heimsóttu Stjörnumenn í Mýrina og náðu jafntefli 29-29. Fram er í öðru sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir Haukum, en Stjarnan erí fjórða sætinu, tveimu stigum á eftir Fram.

    Handbolti
    Fréttamynd

    Jafnt á Akureyri

    Akureyri og Haukar skildu jöfn í fyrri leik kvöldsins í N1 deild karla í handbolta í kvöld. Heimamenn voru skrefinu á undan lengst af en Haukarnir tryggðu sér jafntefli 27-27 með því að skora tvö síðustu mörk leiksins á lokamínútunum.

    Handbolti
    Fréttamynd

    Andri Berg ekki í bann

    Aganefnd HSÍ ákvað á fundi sínum í dag að dæma Andra Berg Haraldsson ekki í bann vegna útilokunar sem hann fékk í leik Fram og Akureyrar í síðustu viku.

    Handbolti
    Fréttamynd

    Akureyri fékk stig í Digranesi

    HK og Akureyri gerðu jafntefli í dag 26-26 í N1 deild karla í handbolta. HK var með tveggja stiga forystu í hálfleik en Akureyringar tryggðu sér stig með því að jafna skömmu fyrir leikslok.

    Handbolti
    Fréttamynd

    Naumur sigur Fram á Akureyri

    Fram vann eins marks sigur á Akureyri, 30-29, í N1-deild karla í dag og HK vann fjögurra marka sigur á Aftureldingu í Mosfellsbæ, 27-23.

    Handbolti
    Fréttamynd

    Góður sigur hjá Val í Mýrinni

    Spennan á toppnum í N1 deild karla í handbolta heldur áfram og í kvöld unnu Valsmenn góðan sigur á Stjörnunni í 28-27 í Mýrinni í Garðabæ. Haukar eru enn á toppnum með 23 stig en nú eru Fram, Stjarnan og Valur öll með 21 stig í 2.-4. sætinu.

    Handbolti
    Fréttamynd

    Stjarnan lagði HK

    Stjarnan vann nauman útisigur á HK 26-25 í síðari leik kvöldsins í N1 deildinni í handbolta í Digranesi í kvöld. Ólafur Ólafsson og Ragnar Hermansson skoruðu 6 mörk fyrir Stjörnuna og Björgvin Hólmgeirsson 5.

    Handbolti
    Fréttamynd

    Mikilvægur sigur hjá Akureyri

    Akureyri vann í dag dýrmætan sigur á Aftureldingu í N1 deild karla í handbolta 27-26 eftir að jafnt hafði verið í hálfleik 16-16. Norðanliðið er því komið með tíu stig í deildinni en Mosfellingar hafa sjö stig í næst neðsta sætinu.

    Handbolti
    Fréttamynd

    Fram burstaði ÍBV

    Einn leikur var á dagskrá í N1 deild karla í handbolta í dag. Fram vann öruggan sigur á ÍBV í Eyjum 30-21 og er í öðru sæti deildarinnar með 23, tveimur á eftir toppliði Hauka.

    Handbolti
    Fréttamynd

    Valur vann góðan sigur á Haukum

    Keppni í N1-deild karla hófst í kvöld á nýjan leik eftir vetrarhlé og hófst á því að Íslandsmeistarar Vals lögðu topplið Hauka með fimm marka mun.

    Handbolti
    Fréttamynd

    Einar Örn til Hauka í sumar

    Handknattleikskappinn Einar Örn Jónsson mun snúa heim í sumar og ganga til liðs við Hauka á ný. Hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við Hafnarfjarðarliðið sem tekur gildi í sumar.

    Handbolti
    Fréttamynd

    Andri Stefan valinn bestur

    Andri Stefan úr Haukum hefur verið valinn besti leikmaður 8.-14. umferða N1-deildar karla en úrvalslið umferðanna var kynnt í dag.

    Handbolti
    Fréttamynd

    Stjarnan hefndi ófaranna

    Fyrir rúmum tveimur vikum féllu bikarmeistarar Stjörnunnar úr leik í bikarkeppninni þegar liðið tapaði fyrir Fram í æsispennandi leik í fjórðungsúrslitum.

    Handbolti
    Fréttamynd

    Haukar styrkja stöðu sína á toppnum

    Karlalið Hauka vann í kvöld góðan 30-26 sigur á HK í Digranesi í toppslag í N1 deildinni í handbolta. Haukar höfðu yfir 14-13 í hálfleik og unnu mikilvægan sigur í toppbaráttunni.

    Handbolti
    Fréttamynd

    Frábær endurkoma hjá Aftureldingu

    Afturelding og Valur skildu jöfn 25-25 í leik kvöldsins í N1 deild karla í handbolta í kvöld þar sem heimamenn í Aftureldingu náðu að jafna leikinn eftir að hafa verið sex mörkum undir í síðari hálfleik.

    Handbolti
    Fréttamynd

    Fram hafði betur í toppslagnum

    Fram vann í kvöld nauman 29-28 sigur á HK í uppgjöri tveggja af toppliðunum í N1 deild karla í handbolta. Úrslitin þýða að liðin eru jöfn að stigum í 2.-3. sæti deildarinnar með 17 stig, fjórum stigum á eftir toppliði Hauka en eiga bæði leik til góða á toppliðið.

    Handbolti