Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Það iðar allt af lífi og fjöri á Akranesi þessa dagana þegar diskó er annars vegar því nemendur Brekkubæjarskóla eru að sýna söngleikinn „Diskóeyjan“ í Bíóhöllinni. Lífið 17. maí 2024 20:16
Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Inga Fjóla Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri Kóraskóla hefur verið ráðin skólastjóri Kóraskóla. Þetta kemur fram í fundargerð bæjarráðs Kópavogs frá því í gær en mikil ólga hefur verið meðal kennara í skólanum vegna ráðningu skólastjóra. Innlent 17. maí 2024 13:50
Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík MenntaStefnumót skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur fer fram í dag þar sem starfsfólki í grunnskólum, leikskólum og frístundastarfi hjá Reykjavíkurborg gefst tækifæri til að taka þátt og eiga samtal um menntun barna og þróun til framtíðar. Innlent 17. maí 2024 08:00
Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Nú þegar fyrstu úthlutun leikskólaplássa er lokið í Reykjavík lítur út fyrir að um 800 börn verði á biðlista þann 1. september. Af þeim eru 548 þeirra 12 til 17 mánaða og 255 18 mánaða og eldri. Inn í þessum tölum eru 40 börn sem bíða en eru með pláss á sjálfstætt starfandi leikskóla. Innlent 15. maí 2024 23:07
Viltu koma í ferðalag? Ferðamál, ferðamennska og ferðamálafræði hefur verið ástríða mín lengi, og ég trúi því að nám í ferðamálafræði sé lykillinn að því að skilja ferðaþjónustuna og ferðamennsku og hvernig hún getur haft jákvæð áhrif á samfélagið okkar. Ferðamálafræði býður upp á einstakt tækifæri til að kafa djúpt í þessa spennandi og þverfaglegu námsgrein. Skoðun 15. maí 2024 17:00
Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Fulltrúi meirihlutans í skóla- og frístundaráði borgarinnar segist vel skilja uppnám foreldra og skólasamfélags vegna stefnubreytingar í grunnskólamálum í Laugardal. Forsendur hafi þó breyst og bygging nýs unglingaskóla sé besti kosturinn í stöðunni. Innlent 15. maí 2024 13:00
Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs Foreldrar barna í Vatnsendaskóla í Kópavogi hafa verið beðnir um að senda flugnanet með börnunum sínum í skólann. Ástæðan er mikill flugnafaraldur sem nú geysar í Vatnsendahverfinu. Innlent 15. maí 2024 10:36
Reykjavíkurborg svíkur íbúa Laugardals Reykjavíkurborg hyggst ganga á bak eigin loforða um að framtíðaruppbygging skólastarfs í Laugardal verði á grundvelli farsælu skólanna okkar og óbreyttum hverfisbrag. Þegar borgaryfirvöld ákváðu á haustmánuðum 2022 að ganga í takt með íbúum hverfisins fögnuðu fulltrúar meirihlutans eftir „þverpólitískt samráð við hagaðila, stjórnendur, starfsmenn, foreldra og börn“. Skoðun 15. maí 2024 10:01
„Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal Björn Kristjánsson, foreldri og kennari í Laugarlækjarskóla, segir ákvörðun Skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar að stefna að byggingu nýs unglingaskóla í Laugardalnum kalda vatnsgusu framan í skólasamfélagið. Innlent 14. maí 2024 23:00
1.715 börn fengið leikskólapláss Fyrsta hluta úthlutunar leikskólaplássa lauk föstudaginn síðastliðinn og höfðu þá foreldrar 1715 barna fengið boð og þegið vistum í borgarrekna leikskóla. Þá má áætla að sjálfstætt starfandi leikskólar bjóði um 350 börnum vistun frá og með hausti. Mörg þeirra barna eru einnig á biðlista fyrir borgarrekna leikskóla. Innlent 14. maí 2024 21:32
„Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Birta Björnsdóttir, yfirmaður erlendra frétta hjá Ríkisútvarpinu, er búin að fá yfir sig nóg af glósum um brenglaða íslensku og vill bera hönd fyrir höfuð sér og kollega sinna. Innlent 14. maí 2024 15:01
Breyttar forsendur kalli á nýjan unglingaskóla í Laugardal Skóla- og frístundaráð Reykjavíkurborgar hefur ákveðið að óska eftir umsögnum um tillögu sem felur í sér að byggður verði nýr unglingaskóli í Laugardalnum. Áður hafði verið ákveðið að stefna að smíði viðbygginga við þá grunnskóla sem fyrir eru í Laugardalnum, til að bregðast við fjölgun nemenda. Forsendur eru hins vegar nú sagðar hafa breyst og sé nú stefnt á smíði sameinlegs skóla fyrir unglinga í Laugardal sem muni ganga í 8. til 10. bekk. Innlent 14. maí 2024 14:43
Neyslusaga móður: „Það var rítalínið sem rústaði mér alveg“ „Það var rítalínið sem rústaði mér alveg,“ segir Ásta Kristmannsdóttir þegar hún rifjar upp neyslusöguna sína. Áskorun 12. maí 2024 08:00
Vilja að plássum í sumarfrístund sé útdeilt með sanngjarnari hætti Foreldra grunnskólabarna í Vesturbænum kalla nú eftir því að Reykjavíkurborg leggi meira fjármagn í frístund á sumrin svo fleiri komist að. Sé það ekki gert kalla þau eftir því að plássum í frístund sé úthlutað með sanngjarnari hætti en nú. Innlent 11. maí 2024 07:01
Forsetakosningar á Eyrarbakka – munu sakna buffsins frá Guðna Jón Gnarr verður næsti forseti Íslands ef marka má forsetakosningar, sem fóru fram í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri í dag. Einn nemandi gaf Baldri Þórhallssyni sitt atkvæði því hann á kött, sem heitir Baldur. Lífið 10. maí 2024 20:05
Stutt við barnafjölskyldur Á Alþingi var vikunni mælt fyrir frumvarpi til fjáraukalaga fyrir árið 2024, en við vinnslu fjárlaga lá ekki fyrir með hvaða hætti stjórnvöld myndu koma að gerð kjarasamninga. Með frumvarpi til fjáraukalaga er nú verið að leita aukinna fjárheimilda til Alþingis vegna samninganna. Skoðun 10. maí 2024 08:00
Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Kona á sextugsaldri hefur verið ákærð fyrir fjárdrátt í störfum sínum sem skólastjóri Grunnskólans á Þórshöfn. Konan er sökuð um að hafa dregið að sér tæplega níu milljónir króna af fjármunum bæði grunnskóla og félagsmiðstöðvar í Langanesbyggð á tímabilinu 2016 til 2020. Innlent 9. maí 2024 13:00
„Fyrstur kemur fyrstur fær“: Börnum mismunað í aðgengi að sumarnámskeiðum á vegum Reykjavíkurborgar Á hverju vori hefst kapphlaup meðal foreldra barna í yngstu stigum grunnskóla borgarinnar, þar sem keppt er um takmörkuð pláss í sumarstarf frístundaheimilanna. Að missa af plássi á frístundaheimili getur verið dýrkeypt fyrir heimilið, enda er dagvistun forsenda þess að foreldrar og forráðamenn komist til vinnu. Sumarleyfi barna í grunnskólum borgarinnar eru mun lengri en sumarleyfi á vinnumarkaði. Skoðun 9. maí 2024 10:32
„Sögulegir skór“ Mari Järsk á uppboði Hlaupaskórnir sem Mari Järsk var klædd í þegar hún hljóp 57 hringi í Bakgarðshlaupinu og sló Íslandsmet eru nú á uppboði. Uppboðið er á vegum góðgerðardags Hagaskóla, sem fór reyndar fram í fyrradag. Lífið 9. maí 2024 09:31
Guðríður Hrund skipuð skólameistari MK Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Guðríði Hrund Helgadóttur í embætti skólameistara Menntaskólans í Kópavogi til fimm ára frá 1. ágúst 2024. Guðríður sótti ein um embættið. Innlent 9. maí 2024 08:40
Að rækta garðinn sinn Samfélag er garður. Ef þar er ekki rými fyrir fjölbreyttan gróður er garðurinn ekki bara einsleitur heldur verður jarðvegurinn með tímanum næringarsnauður og ófrjór. Skoðun 8. maí 2024 08:31
Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Nýtt tilraunaverkefni er að hefjast í leikskólum Árborgar þar sem ákveðið hefur verið að leikskólar verði lokaðir á mill jóla- og nýárs. Þá hefur menntuðum leikskólakennurum fækkað í leikskólum Árborgar, sem er mikið áhyggjuefni en sex leikskólar eru í sveitarfélaginu með um 660 börnum. Innlent 5. maí 2024 14:30
Fjórar dýrindis diskósúpur úr hráefnum sem annars hefði verið hent Nýjustu rannsóknir sýna hver Íslendingur hendir að meðaltali 160 kílóum af mat á ári. Nemendur í Hússtjórnarskólanum í Reykjavík héldu upp á alþjóðlega diskósúpudaginn á dögunum með súpuveislu úr hráefnum sem annars hefði átt að henda. Lífið 3. maí 2024 22:07
Barn á Akureyri greindist með kíghósta Kíghósti hefur greinst í barni í Brekkuskóla á Akureyri, að því er fram kemur í tilkynningu Landlæknis. Minnt er á mikilvægi bólusetninga gegn sjúkdómum sem kíghósta, en þátttaka barna í bólusetningum hefur dregist saman síðustu ár. Innlent 1. maí 2024 14:14
Mýtan um launin Ég rak upp stór augu um daginn, þegar ég las yfirskriftina „Segir lág laun leikskólakennara mýtu” á frétt á Vísi. Sem leikskólakennari varð ég auðvitað að skoða þetta nánar. Skoðun 1. maí 2024 09:31
Vanefndir Flugakademíu Íslands Á dögunum lýsti Flugakademía Íslands, einn af skólum Keilis, yfir gjaldþroti sem nam um hálfum miljarði króna. Margir fyrrum nemendur og kennarar segja farir sínar ekki sléttar eftir viðskipti sín við Flugakademíuna og hefur þetta fengið nokkra fjölmiðlaumjöllun á undanförnum vikum og mánuðum. Skoðun 1. maí 2024 06:01
Fjölbrautaskóli Suðurlands sigurvegarar Framhaldsskólaleikanna Á miðvikudaginn 17. apríl kl. 19:30 öttu Tækniskólinn og Fjölbrautaskóli Suðurlands kappi í úrslitaviðureign FRÍS árið 2024. Keppt var í Valorant, Counter-Strike 2 og Rocket League að lokum. Rafíþróttir 29. apríl 2024 18:44
Kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíuna Sigurður Reynir Gíslason, jarðefnafræðingur og rannsóknaprófessor við jarðvísindastofnun háskólans, hefur verið kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíunni (American Academy of Arts and Sciences) fyrir störf sín á sviði jarðvísinda. Innlent 29. apríl 2024 14:42
Takk fyrir vettlingana! Við, undirritaðir foreldrar, eigum það sameiginlegt að telja leikskóla- og daggæslumálum borgarinnar illa fyrir komið. Við erum foreldrar ungra barna sem höfum reynslu af úrræðaleysi í kjölfar fæðingarorlofs og þeim áhyggjum sem fylgja biðlistavanda leikskólanna. Skoðun 27. apríl 2024 12:01
„Það er enginn sem verndar son okkar“ Foreldrar níu ára drengs í Kópavogi segjast ráðalausir gagnvart stöðugu líkamlegu og andlegu einelti sem sonur þeirra hafi orðið fyrir í skólanum undanfarið eitt og hálft ár. Þau lýsa alvarlegum barsmíðum af hálfu samnemenda sonarins en segja að skólayfirvöld aðhafist ekkert þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir. Þau bíða svara frá Barnavernd Kópavogs. Innlent 27. apríl 2024 07:07