Stýrihópur um leikskólamál skilar minnisblaði fyrir fimmtudag Stýrihópur sem heldur utan um uppbyggingu leikskóla í Reykjavík mun skila minnisblaði um stöðu mála fyrir fund borgarráðs á fimmtudag. Innlent 16. ágúst 2022 09:19
Borgin hafi dregið foreldra á asnaeyrunum Borgin hefur dregið okkur á asnaeyrunum , segir faðir tæplega tveggja ára barns sem hefur enn ekki komist inn á leikskóla. Hann vill að foreldrar í sömu stöðu fái bætur, enda hafi margir nýtt sumarfrí næsta árs og tekið launalaust leyfi til að sjá um börnin. Innlent 15. ágúst 2022 21:00
„Fátækt hefur áhrif á börn. Þau skammast sín og finna oft fyrir mikilli höfnun“ Einstæð móðir og sjálfboðaliði í samtökum um fátækt segir fólk kvíða hækkandi útgjöldum sem fylgja skólabyrjun. Hún leggur til að börnum verði útvegaðar skólatöskur. Vaxandi verðbólga bitni helst á þeim sem glíma við fátækt. Innlent 15. ágúst 2022 19:00
Vilja biðlistabætur í borginni Sjálfstæðismenn vilja koma á svokölluðum biðlistabótum í Reykjavík fyrir foreldra þeirra barna sem eru eldri en 12 mánaða en hafa ekki fengið pláss á leikskóla. Bæturnar myndu hljóða upp á 200 þúsund krónur á mánuði á hvert barn. Meirihlutinn tekur ekki illa í hugmyndirnar en segir megináhersluna þá að fjölga leikskólaplássum. Innlent 15. ágúst 2022 13:30
Leikskólamál í lamasessi Ástandið í leikskólamálum borgarinnar er óásættanlegt. Enginn mótmælir því, ekki einu sinni meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur. Skoðun 15. ágúst 2022 13:02
Fleiri barir en börn í skólanum á Borgarfirði eystri Það eru fleiri barir hérna en börn í skólanum“, segir sveitarstjórnarmaður Vinstri grænna í Múlaþingi en þá á hann við þorpið á Borgarfirði eystri. Mikil uppbygging er á staðnum, ekki síst í ferðaþjónustu og nú hafa fyrstu nýju íbúðarhúsin í fjörutíu ár verið byggð í þorpinu. Innlent 14. ágúst 2022 08:03
„Hústökuleikskóli“ í Ráðhúsinu Móðir sautján mánaða gamals barns sem ekki fær leikskólapláss í borginni ætlar að setja upp hústökuleikskóla í Ráðhúsi Reykjavíkur í næstu viku. Hún segir algjört neyðarástand ríkja meðal foreldra barna á leikskólaaldri. Svör borgarinnar til foreldra séu kæruleysisleg. Innlent 13. ágúst 2022 21:00
„Miðað við vísindin þá erum við á villigötum“ Heitar umræður hafa spunnist um lestrarkennslu í skólakerfinu að undanförnu. Því er haldið fram að kennsla foreldra sé lykilþáttur í læsi barna og við lestrarkennslu sé notast við aðferðir sem henti íslenskunni illa. Samt sem áður er lítið af kennsluefni til fyrir foreldra og Pisa niðurstöður benda til hnignandi lesskilnings. Lestrarfræðingur telur að menntakerfið sé á villigötum að þessu leyti. Innlent 13. ágúst 2022 14:41
Enginn biðlisti í leikskólann á Skagaströnd Íbúum á Skagaströnd er að fjölga en það gerist hægt. Kona, sem flutti á staðinn fyrir þremur árum segir að staðurinn sé friðsæll og náttúran allt í kringum þorpið sé yndisleg. Börn eru tekin níu mánaða inn í leikskólann og þar er engin biðlisti. Innlent 13. ágúst 2022 08:31
UMFÍ tekur við rekstri Skólabúðanna að Reykjum Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) mun taka við rekstri Skólabúðanna að Reykjum frá næsta skólaári. Um 3.200 nemendur í 7. bekk í grunnskóla heimsækja búðirnar ár hvert. Innlent 12. ágúst 2022 22:37
Reiknað með leikskóla og neðansjávarveitingastað við Gufunesbryggju Borgarráð hefur samþykkt að hefja viðræður við Þorpið-Vistfélag á grundvelli verðlaunatillögu um uppbyggingu við Gufunesbryggju, sem felur meðal annars í sér byggingu leikskóla og veitingastað sem verði að hluta til neðansjávar. Kanna á hvort raunhæft sé að staðsetja leikskóla á umræddu svæði. Innlent 12. ágúst 2022 12:16
Fjarskafögur fyrirheit Enn einu sinni eru leikskólamálin í brennidepli. Fyrirheit borgarstjórnar um að öll 12 mánaða börn og eldri fái leikskólapláss í haust virðast ekki ætla að ganga eftir og foreldrar eru uggandi. Skoðun 12. ágúst 2022 08:00
Dagforeldrastéttin sem brúar bilið Í áratugi hafa dagforeldrar brúað bilið. Við fáum þó aldrei hrós fyrir það. Við höfum sparað borginni miljarða, en hvergi erum við nefnd. Það er eins og við séum ekki til, en við erum þarna og ávallt reiðubúin og höfum verið. Skoðun 12. ágúst 2022 07:31
„Nei mér finnst það ekki boðlegt“ Foreldrar barna í Reykjavík sem ekki hafa fengið leikskólapláss söfnuðust saman í ráðhúsinu í morgun til þess að mótmæla stöðunni. Oddviti Framsóknar í Reykjavík segir stöðuna ekki boðlega. Innlent 11. ágúst 2022 23:00
„Þetta er algjör skrípaleikur“ Foreldrar barna í Reykjavík sem hafa ekki fengið leikskólapláss söfnuðust saman í ráðhúsinu í morgun til þess að mótmæla stöðunni. Innlent 11. ágúst 2022 20:20
Lestur barna er á ábyrgð foreldra Mikið hefur verið í umræðunni undanfarinn tíma að lestur barna (sérstaklega drengja) sé ekki nógu góður og skólakerfið sett inn í þá umræðu. Kennarar þurfi að leggja auknar áherslur á lestur barna svo börnin geti lesið sér til gagns við lok grunnskólagöngu. Lítið hefur farið fyrir umræðu foreldra í þessar umfjöllun. Lestur er á ábyrgð foreldra. Skoðun 11. ágúst 2022 15:00
Hefði ekki farið í sumarfrí og látið leikskólavandann liggja Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins vandar meirihlutanum ekki kveðjurnar þegar kemur að leikskólamálum í Reykjavík. Hann segir fulltrúa meirihlutans hafa farið í sumarfrí þegar ljóst væri að ekki yrði unnt að standa við gefin loforð í málaflokknum án stórtækra aðgerða. Innlent 11. ágúst 2022 14:59
Meirihlutinn lost in space Hvað hét hann aftur upplýsingaráðherra Saddam Hussein sem hélt blaðafundi um að íraski herinn væri að sigra stríðið þótt hægt væri að sjá Bagdad falla í bakgrunni? Skoðun 11. ágúst 2022 13:18
Hvernig skólatösku á ég að velja fyrir barnið mitt? – skilaboð frá iðjuþjálfum Að mörgu er að hyggja þegar velja á skólatösku og miðað við auglýsingar verslana er úrvalið töluvert. Iðjuþjálfar hvetja foreldra til að vanda valið enda hefur góð skólataska mikið forvarnargildi þegar kemur að heilsu og líðan barna. Skoðun 11. ágúst 2022 13:01
Stórt hlutfall íslenskra lækna útskrifast erlendis Tæplega helmingur lækna frá Íslandi útskrifast nú úr grunnámi við erlenda háskóla. Innlent 11. ágúst 2022 06:56
Nóg komið af eftiráskýringum borgarinnar og vill tafarlausar aðgerðir Móðir sautján mánaða gamals barns sem fær ekki leikskólapláss í Reykjavík í haust segir nóg komið af eftiráskýringum borgaryfirvalda um orsakir leikskólavandans og vill að borgin kynni lausnir og grípi til aðgerða. Innlent 10. ágúst 2022 13:01
Fimm flottar fartölvur fyrir skólann Nú fer að styttast í það að skólinn hefjist aftur og því mikilvægt að vera með réttu græjurnar þegar skólaátökin hefjast og verkefnavinnan komin á fullt. Þetta er gríðarlega spennandi en að sama skapi krefjandi tími og því er nauðsynlegt að vera með réttu fartölvuna þér við hlið til þess að aðstoða þig í gegnum námið. Samstarf 10. ágúst 2022 11:14
Leikskólinn byrjaður og sautján mánaða gömul börn sitja heima Ekki er útlit fyrir að öll tólf mánaða gömul börn í Reykjavík fái leikskólapláss í haust, eins og stefnt var að. Móðir sautján mánaða barns sem fær ekki leikskólapláss í haust líkir leikskólamálum borgarinnar við frumskóg. Innlent 9. ágúst 2022 13:01
Boðar bráðaaðgerðir í iðnnámi Menntamálaráðherra heitir því að stjórnvöld muni gera það sem hægt er til að tryggja að sem flestir fái aðgang að verknámi sem það vilja. Komið hefur fram að mun færri komast að en vilja í slíkt nám, en ráðherra segir hugsanlegt að ekki verði hægt að bregðast við öllum sem vilja komast að. Innlent 9. ágúst 2022 11:55
Munu ekki geta staðið við fyrirheit um pláss fyrir öll 12 mánaða börn Ekki er útlit fyrir að öll tólf mánaða gömul börn í Reykjavík fái leikskólapláss í haust, eins og stefnt var að. Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs borgarinnar, segir nokkur pláss laus eins og er en ekki endilega í þeim hverfum þar sem eftirspurnin er mest. Innlent 9. ágúst 2022 07:16
Þrefalt fleiri nemendur á örfáum árum Sprenging hefur orðið í umsóknum um verknám við Fjölbrautaskólann í Breiðholti, einkum í húsasmíðum og rafvirkjun. Skólameistarinn segir þróunina hafa verið hraðari en fólk átti von á - þannig að færri komast að en vilja. Þetta er líka staðan um allt land, þar sem 20% umsækjenda um verknám fá höfnun. Innlent 8. ágúst 2022 22:06
Margfalt fleirum hafnað um nám í starfsnámi Gögn frá Menntamálastofnun sýna að margfalt fleirum er hlutfallslega hafnað um skólavist í starfsnámi í framhaldsskóla en í bóknámi á Íslandi. Um þriðjungur umsækjenda í Tækniskólanum var hafnað í haust. Verzlunarskólinn er vinsælasti bóknámsskólinn, en hann er alveg sprunginn á plássi. Innlent 8. ágúst 2022 12:46
Eldur logaði við Lækjarskóla Eldur logaði í rusli á bak við Lækjarskóla í Hafnarfirði í gærkvöldi. Fram kemur í dagbók lögreglu að tilkynnt hafi verið um eld í gámi í hverfinu klukkan 21:57. Innlent 8. ágúst 2022 07:37
Allir eiga rétt á jöfnum tækifærum til náms – verkfærin eru til staðar Undanfarið hafa átt stað miklar umræður um skólamál innan ákveðinna hópa skólafólks á samfélagsmiðlum og íslenskt skólakerfi hefur ekki farið varhluta af gagnrýni vegna niðurstaðna á PISA sem er umfangsmikil alþjóðleg könnun á hæfni og getu 15 ára nemenda á lesskilningi, læsi á náttúruvísindi og læsi á stærðfræði. Samkvæmt mælanlegum niðurstöðum þá stendur skólakerfið frammi fyrir alvarlegum vanda þar sem ólæsi hefur aukist ásamt brottfalli nemenda úr framhaldsskólum. Skoðun 5. ágúst 2022 15:00
Bæjarstjóri segir ákvörðun kærunefndar ekki endanlega Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, segir ákvörðun kærunefndar útboðsmála um að stöðva samningagerð milli Garðabæjar og Fortis ehf um byggingu nýs leikskóla í Urriðaholti ekki endanlega. Ákvörðunin var tekin fyrir á fundi bæjarráðs 26. júlí síðastliðinn og málinu vísað til bæjarstjóra. Innlent 4. ágúst 2022 07:10