

Sveitarstjórnarkosningar 2022
Fréttir og greinar tengdar sveitastjórnarkosningum sem fóru fram 14. maí 2022.

Björgvin Páll hættir við framboð sitt
Björgvin Páll Gústavsson landsliðsmarkvörður í handbolta er hættur við að gefa kost á sér fyrir hönd Framsóknarflokksins í Reykjavík. Hann segir að þegar lagt sé í slíka vegferð þá þurfi maður að hafa allt liðið á bak við sig.

Sara Dögg leiðir lista Viðreisnar í Garðabæ
Listi Viðreisnar í Garðabæ var samþykktur í gærkvöldi á fundi félagsins en þetta er í fyrsta sinn sem Viðreisn í Garðabæ býður fram til sveitastjórnarkosninga. Uppstillinganefnd valdi Söru Dögg Svanhildardóttur, bæjarfulltrúa, til að leiða listann.

Er Degi alveg sama?
Síðastliðið haust hlustaði ég á viðtal við Dag B. Eggertsson þar sem hann sagði frá því þegar hann sem unglingur þrýsti á Davíð Oddsson, þáverandi borgarstjóra Reykjavíkur, að byggja íþróttahús í Árbænum.

Oddvitaefni Sjálfstæðisflokksins mættust í Pallborðinu
Það styttist í leiðtogaskipti hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavíkurborg þar sem prófkjör fer fram eftir rúmar tvær vikur. Oddvitaefnin mætast í Pallborðinu í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi klukkan 14.

Opið bréf til borgarstjóra
Stjórnir foreldrafélaga Langholtsskóla, Laugalækjarskóla og Laugarnesskóla mælast sameiginlega til þess að borgaryfirvöld bregðist hratt við húsnæðisvanda skólanna með því að byggja við hvern þeirra fyrir sig og vernda þannig skólagerð þeirra, skólahverfin og hverfamenningu.

26 vilja sex efstu sætin á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Yfirkjörstjórn Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík hefur birt lista yfir frambjóðendur fyrir prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir komandi sveitastjórnarkosningar en alls vilja 26 einstaklingar sæti á lista flokksins, þrettán konur og þrettán karlar.

Hafnfirðingar – veljum öfluga forystu!
Það eru mikil lífsgæði að búa í fallegum bæ eins og Hafnarfirði sem frá náttúrunnar hendi hefur svo margt að bjóða. Hér eru fjölmörg tækifæri til útiveru og heilsueflingar innan bæjarmarkanna og langflestir hafnfirðingar eru ánægðir með bæinn sinn sem stað til að búa á.

Má mig dreyma um raðhús?
Þrátt fyrir tvær innkomur er ekkert grín fyrir par á meðallaunum að stækka við sig á núverandi fasteignamarkaði.

Bjarni vill 3.-4. sætið hjá Sjálfstæðismönnum í Hafnarfirði
Bjarni Lúðvíksson, framkvæmdastjóri Reykjavík Asian, hefur boðið sig fram í 3.-4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði vegna komandi sveitarstjórnarkosninga.

Viðar býður sig fram í 4.-5. sæti hjá Sjálfstæðismönnum í Reykjavík
Viðar Guðjohnsen, sérfræðingur hjá Lyfjastofnun, hefur tilkynnt að hann bjóði sig fram í 4.-5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík vegna komandi borgarstjórnarkosninga.

Byggjum á því sem virkar – raunverulegar aðgerðir i húsnæðismálum!
Staðan á húsnæðismarkaði hefur varla farið fram hjá neinum síðustu misseri. Fasteignaverð heldur áfram að hækka og er það orðið nánast ómöglegt fyrir fyrstu kaupendur að festa kaup á íbúð.

Af hverju er þessi hraði vöxtur mögulegur í Svf. Árborg?
Vöxturinn á Suðurlandi undanfarin ár hefur verið ævintýralegur. Sú mikla uppbygging er mjög áberandi þeim sem leið eiga um landshlutann. Vöxturinn endurspeglast meðal annars í þeim miklu framkvæmdum sem eiga sér nú stað í landshlutanum og þá sérstaklega á Stór-Árborgar svæðinu.

Margrét Sanders leiðir Sjálfstæðisflokkinn áfram í Reykjanesbæ
Margrét Sanders, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ, var efst í prófkjöri flokksins í Reykjanesbæ sem lauk í gær með 81,3% gildra atkvæða.

Þór Sigurgeirsson leiðir lista Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi
Þór Sigurgeirsson bar sigur úr býtum í nýafstöðnu prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi. Í öðru sæti var Ragnhildur Jónsdóttir og Magnús Örn Guðmundsson í því þriðja, að því er fram kemur í tilkynningu frá flokknum.

Sigurbjörg og Dóra leiða Pírata í Kópavogi og Reykjavík
Nú liggur fyrir uppröðun á efstu sætum lista Pírata í Reykjavík og Kópavogi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Dóra Björt Guðjónsdóttir leiðir listann í Reykjavík en Sigurbjörg Erla Egilsdóttir leiðir í Kópavogi.

Viltu vinna milljón?
Við, fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Garðabæjar, höfum undanfarin fjögur ár unnið staðfastlega að því að efna 100 framsækin fyrirheit sem við gáfum Garðbæingum fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 2018.

Ásgeir leiðir lista Sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ
Ásgeir Sveinsson, formaður bæjarráðs Mosfellsbæjar, leiðir lista Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Endanlegur listi var samþykktur af fulltrúaráði flokksins í dag.

Sveit í borg – Álftanes
Garðabær er einstakt samfélag og hvert hverfi innan bæjarfélagsins hefur sína sérstöðu.

Vinnum að velferð barna
Öll börnin okkar Guðrúnar hafa notið framúrskarandi þjónustu á sinni lífsins leið í gegnum skólakerfið hér í Garðabæ. Áður fyrr naut ég þess sjálfur. Bærinn okkar hefur nefnilega á löngum tíma markað sér orðspor fyrir að vera barnvænt samfélag. Við getum öll verið stolt af því og þurfum að viðhalda þeirri stöðu.

Elísabet vill 3. sætið hjá Sjálfstæðismönnum í Kópavogi
Elísabet Sveinsdóttir markaðsstjóri hefur ákveðið að gefa kost á sér í 3. sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi vegna sveitarstjórnarkosninganna sem fram fara 14. maí næstkomandi.

Hilda Jana leiðir lista Samfylkingarinnar á Akureyri
Framboðslisti Samfylkingarinnar á Akureyri fyrir sveitarstjórnarkosningarnar var samhljóða samþykktur á á félagafundi Samfylkingarinnar á Akureyri í gærkvöld.

Samskipta- og upplýsingatækni og grænn ferðamáti – eru allir á sömu línu?
Nú á 21. öldinni er samfélagið okkar að taka hröðum breytingum á mörgum sviðum. Alþjóðavæðing, stefanan um skóla án aðgreiningar, stefnan um sjálfstætt líf, grænni hugsun og svo mætti áfram telja. Allar þessar breytingar eru af hinu góða og liður í átt að betra samfélagi. En er ekki nauðsynlegt að skoða málin oft betur, til að sem flestir geti notið þeirra?

Vökvum nærandi rætur grænnar og réttlátrar Pírataborgar
Reykjavík hefur á kjörtímabilinu tekið stór og mikilvæg skref fyrir tilstilli Pírata. Skref í átt að meira gagnsæi, eflingu lýðræðis og dreifingu valds, bættu eftirliti, að loftslagsmál móti alla ákvarðanatöku, í átt að aukinni mannréttinda- og dýravernd, skaðaminnkun og bættum lífsgæðum jaðarsettra hópa.

Fjármálaafglöp í glerhúsi
Borgarstjóri fór mikinn í fjölmiðlum á miðvikudag þar sem hann sagði söluna á eignarhlutum Reykjavíkurborgar og Akureyrarbæjar í Landsvirkjun til ríkisins árið 2006 vera mestu fjármálaafglöp sögunnar á sveitarstjórnarstigi.

Samkeppnishæfur fjölskyldubær
Í Reykjanesbæ líkt og í öðrum sveitafélögum ber okkur skylda að sinna lögbundinni lágmarksþjónustu við íbúa. Forgangsröðun verkefna í þágu grunnþjónustunnar er því eitt mikilvægasta verkefni sveitafélaga og uppbygging nýrra leikskóla á að vera ofarlega á þeim lista.

Stríð eru óskynsamleg
Vegna frétta síðustu daga er stríð okkur mörgum ofarlega í huga. Þau eru hrikaleg og heimskuleg, og aldrei réttlætanleg nema mögulega í sjálfsvörn eða vörn fyrir aðra.

Prófkjörsslagur Innherja: Þórdís Jóna og Þórdís Lóa bítast um fyrsta sætið
Nöfnurnar og flokkssysturnar Þórdís Jóna Sigurðardóttir og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, sitjandi oddviti Viðreisnar í borginni, heyja nú baráttu um oddvitasætið í fyrsta prófkjöri Viðreisnar sem fram fer dagana 4.-5. mars. Þórdís Lóa er gjarnan kölluð Lóa og verður kölluð það í greininni, til að aðgreina frambjóðendur.

Stytting vinnuvikunnar í borginni
Mig langar að segja ykkur frá því sem hefur breytt einna mest fyrir mig í vinnunni en það er stytting vinnuvikunnar. Frá 1. janúar 2021 hef ég hef ég getað styttað vinnudaginn 4 klukkustundir miðað við 100% vinnu.

Einfaldara líf á Nesinu
Hugsum okkur eitt augnablik að sveitarfélagið Seltjarnarnes væri við það að hefja rekstur með tæplega 5.000 íbúa. Þá þyrfti að sjálfsögðu að hafa til reiðu alla helstu innviði; skóla og leikskóla í hentugu húsnæði, góða aðstöðu til íþrótta- og tómstundastarfs, öfluga félagsþjónustu og þjónustu við eldri borgara.

Orri leiðir lista Framsóknar í Kópavogi
Orri Vignir Hlöðversson, forstjóri Frumherja og fyrrverandi bæjarstjóri Hveragerðis, mun leiða lista Framsóknar í Kópavogi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar sem fram fara 14. maí næstkomandi.