„Mun enginn kaupa annað en rafbíl árið 2028“ „Það mun enginn kaupa annað en rafbíl árið 2028.“ Þetta segir Egill Jóhannsson forstjóri Brimborgar um nýskráningarbann bensín- og dísilbíla. Hann telur nýskráningarbann samt sem áður óþarft. Svo mikil sé gróskan í rafbílabransanum. 16.7.2024 09:28
Leyniskjalamáli Trump vísað frá dómi Dómari í Flórídaríki í Bandaríkjunum hefur vísað dómsmáli á hendur Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseta frá dómi. Umrætt dómsmál snýst um leyniskjöl sem Trump var sagður hafa tekið með sér úr Hvíta húsinu eftir að forsetatíð hans lauk. 15.7.2024 16:04
Íslendingur fannst látinn á Spáni 48 ára Íslendingur fannst látinn á föstudag á Spáni. Þetta fæst staðfest af utanríkisráðuneyti en frekari upplýsingar af málinu, og hvers eðlis það er, fást ekki að svo stöddu. 15.7.2024 13:39
„Þung skref“ að höfða mál gegn máttarstólpa Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar segir það hafa verið þung skref, að höfða mál gegn Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum, vegna mikils tjóns sem skip stöðvarinnar olli á neysluvatnslögninni milli lands og Eyja síðasta haust. 15.7.2024 11:47
Lárus skuli fyrst taka til í „eigin veðmálastarfsemi“ Sigurður G. Guðjónsson lögmaður veðmálafyrirtækisins Betsson skýtur föstum skotum á Íþrótta og Ólympíusamband Íslands og Lárus Blöndal formann sambandsins, í aðsendri grein á Vísi í dag. Hann segir Lárus þurfa að taka til í eigin veðmálastarfsemi áður en hann fari að tala fyrir því að banna erendar veðmálasíður. 15.7.2024 10:39
Siggi stormur biðst afsökunar á sumarspánni sem ekki rættist „Þegar ég sá í hvað stefndi, þá yfirgaf ég landið,“ segir Sigurður Þ. Ragnarsson, betur þekktur sem Siggi stormur, í samtali við fréttastofu. Hann var brattur í vor og spáði blíðvirði um allt land í sumar. Sú spá hefur ekki ræst. 13.7.2024 06:31
Ferjubilun sé hvítþvottur hjá Hrísey Seafood Forstöðumaður almenningssamgangna hjá Vegagerðinni hafnar því algjörlega að samgöngur séu í lamasessi til og frá Hrísey. Verkefnastjóri Hríseyjar Seafood taldi lokun Matvælastofnunnar eiga rót sína að rekja til lélegra ferjusamgangna. 12.7.2024 14:39
„Mjög mikil úrkoma“ veldur skriðuhættu Gert er ráð fyrir mjög mikilli úrkomu á sunnanverðum Vestfjörðum og á Snæfellsnesi um helgina. Veðurstofan varar við vatnavöxtum og aukinni skriðuhættu á þessum svæðum. 12.7.2024 13:23
Ræðir við BBC um „ofurslaka“ Íslendinga Eliza Reid forsetafrú fær gott pláss á forsíðu breska ríkisútvarpsins BBC í dag. Þar gefur hún lesendum meðmæli fyrir þá sem hafa í hyggju að heimsækja klakann. 12.7.2024 13:01
Lokun Hríseyjar seafood: Fiskur gleymdist þegar ferjan bilaði Verkefnastjóri hjá Hrísey Seafood segir lokun Matvælastofnunar á fiskvinnslunni í síðustu viku eiga rót sína að rekja til samgangna til eyjunnar sem séu í lamasessi. Fiskvinnslan opnar aftur í dag eftir „gott samstarf“ við Mast. 12.7.2024 11:12