Vaktin: Skjálfti að stærð 4,2 sá stærsti í dag Það dró heldur úr skjálftavirkni og skjálftastærð á Reykjanesskaga í nótt en alls mældust 750 skjálftar eftir miðnætti. Stærsti skjálfti dagsins var hins vegar 4,2 að stærð og reið yfir klukkan 11:03 í morgun. 6.7.2023 06:31
Bæjarstjórinn sneri úr fríi þegar skjálftahrinan hófst Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkur var nýfarinn í sumarfrí þegar skjálftahrinan hófst á Reykjanesskaga og dreif sig aftur heim. Hann segir tímasetninguna óheppilega þar sem margir viðbragðsaðilar séu í sumarfríi og býst við gosi. 5.7.2023 16:56
Bjór á tilboði á tvö þúsund krónur Íbúum Hlíðahverfis brá í brún við að sjá nýjan verðlista hverfisbarsins. Nú kostar bjórinn þar hvorki meira né minna en tvö þúsund og fimmhundruð krónur. Tvö þúsund á tilboði frá klukkan fimm til níu, þá er sælustund (e. happy hour). 5.7.2023 16:44
Býst við skjálftum hátt í 6,3 að stærð Sérfræðingur í jarðskorpuhreyfingum býst við jarðskjálftum hátt í sex að stærð á næstu sólarhringum á Reykjanesskaga. Virknin á svæðinu er mjög sambærileg þeirri sem var í aðdraganda eldgossins á síðasta ári í Meradölum. 5.7.2023 13:43
Ferðamenn á svæðinu mesta áhyggjuefnið „Við ýtum bara á takka sem heitir copy/paste,“ segir Bogi Adolfsson formaður björgunarsveitarinnar Þorbjarnar í samtali við Vísi um viðbrögð sveitarinnar við jarðhræringum á Reykjanesskaga. Fjöldi ferðamanna hefur verið á svæðinu frá síðasta eldgosi, sem Bogi segir mesta áhyggjuefnið. 5.7.2023 10:36
Vaktin: Beðið eftir eldgosi Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Almannavarna, segir menn nú frekar gera ráð fyrir að gos hefjist en ekki. Fundað var um stöðuna í morgun og óvissustigi hefur verið lýst yfir. 5.7.2023 09:27
Óhugnanleg áhrif á taugaþroska og heilastarfsemi Fólk áttar sig almennt ekki á gríðarlegum styrkleika nikótíns í nikótínpúðum, að sögn doktors í lýðheilsuvísindum. Samkvæmt rannsóknum hafa púðarnir mikil áhrif á taugastarfsemi og draga úr gæðum sáðfrumna. 3.7.2023 07:00
Barði konu með eldhúsrúllustandi og bar fyrir sig neyðarvörn Karlmaður á fertugsaldri hefur verið dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás gegn konu sem gisti á heimili hans eftir sambandsslit hennar. Sló maðurinn konuna nokkrum sinnum í bakið með eldhúsrúllustandi en ekki var fallist á málsvörn hans um neyðarvörn. 30.6.2023 13:58
Landlæknir tryggði ekki öryggi upplýsinga í lyfjagátt Persónuvernd hefur komist að þeirri niðurstöðu að embætti landlæknis hefði ekki tryggt öryggi persónuupplýsinga í lyfjaávísanagátt með viðeigandi hætti. Byggðist það á skorti á rekjanleika uppflettinga í gáttinni. Þrátt fyrir ábyrgð lyfjabúða er sjálfstæð skylda talin hvíla á embættinu sem rekur gáttina. 30.6.2023 12:06
Dagur les Peterson pistilinn Kanadíski sálfræðingurinn og Íslandsvinurinn Jordan Petersson varar forsætisráðherra sinn Justin Trudeau um að „ganga of langt“ með „hinsegin tímabili“ hans. Tilefni þess var mynd sem Trudeau birti af sér á Twitter við regnbogastíginn á Skólavörðustíg í Reykjavík. Nú hefur Dagur B. Eggertsson blandað sér í umræðuna og les Peterson pistilinn á miðlinum. 29.6.2023 15:57