„Ég fór í markþjálfun til þess að átta mig á því hvernig ég vildi halda áfram“ „Ég fór í markþjálfun til þess að átta mig á því hvernig ég vildi halda áfram og hvernig ég vildi helst beita mér í því að bæta þjónustuna og kerfið,“ segir Jón Magnús Kristjánsson læknir en hann er einn þeirra sem mun halda erindi á Markþjálfunardeginum 2023 sem haldinn verður næstkomandi fimmtudag. 1.2.2023 07:00
„Það voru margir undrandi og spurðu: Hvað er í gangi hjá ykkur?“ „Það voru margir undrandi og spurðu: Hvað er í gangi hjá ykkur? Hvers vegna Grindavík“ segir Hilmar Steinar Sigurðsson þegar hann rifjar upp þá ákvörðun hans og þriggja félaga um að kaupa þúsund fermetra netagerðarhús við höfnina í Grindavík árið 2018. Í húsinu hafði líka verið rekið lítið kaffihús við góðan orðstír, Bryggjan. 30.1.2023 07:00
„Ég kann ekki á neitt nema blokkflautu og finnst það alveg ferlegt!“ Brynhildur Guðjónsdóttir leikhússtjóri Borgarleikhússins segist einbeitt og ákveðin og því hafi hún alltaf náð markmiðunum sínum. Fyrir utan þau reyndar að verða skautadrottning eða fljúga eins og Súperman. Brynhildur er með einfalda reglu um skipulagið: Að vaða í verkefnin og klára þau. 28.1.2023 10:01
Ný rannsókn: Ekki launahækkun sem skiptir starfsfólk mestu máli heldur ánægjan Um allan heim fer sú vitundavakning vaxandi að það sem skipti fólk mestu máli í starfi sé ánægjan og því hvernig fólki líður. Já, að fólk upplifi hamingjuna í vinnunni. 27.1.2023 07:01
Vantar ekki fleiri styrki eða meiri peninga heldur einfalda hvata „Það sem er svo mikilvægt er að fólk fari að átta sig á er að hringrásarhagkerfið er nýsköpun í raunheimum þar sem tíminn er naumur og við þurfum að fá sem flesta til að hlaupa hratt. Það vantar ekki fleiri styrki eða meiri peninga. Það er nóg til af þeim og nóg til af hugmyndum. En það þarf leiðandi aðila til að eiga verkefnin og því þarf að búa til einfalda og almenna hvata svo að sem flestir geti hlaupið af stað,“ segir Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir. 25.1.2023 07:01
Gott fólk: Hugsar um það daglega hversu heppinn hann er Gott fólk með Guðrúnu Högna eru nýir hlaðvarpsþættir í umsjón Guðrúnar Högnadóttur framkvæmdastjóra Franklin Covey. 24.1.2023 13:01
Forvarnir: Íslenska módelið fyrirmynd í sextán löndum og fimm heimsálfum Við höfum öll heyrt af þeim árangri á Íslandi að hér hafi tekist betur upp en á flestum öðrum stöðum í heiminum að draga úr áfengis- og vímuefnaneyslu ungmenna. Forvarnarstarfið sem hófst á áttunda áratugnum, varð mjög sýnilegt á þeim níunda og tíunda og reglulegar fréttir um hvernig mældur árangur á Íslandi sýnir að þetta íslenska módel í áfengis- og vímuefnaforvörnum hreinlega svínvirkaði. 24.1.2023 07:50
Sögurnar í fyrra: Starfsframinn og alls konar tækifæri Við höldum áfram að rifja upp sögur og viðtöl úr Atvinnulífinu í fyrra og í þetta sinn horfum við á starfsframann og tækifærin. Sem svo sannarlega geta verið alls konar. 22.1.2023 12:00
„Ég fæ mér ekki lengur morgunmat á virkum dögum til að spara tíma“ Það tekur Eggert Benedikt Guðmundsson, leiðtoga sjálfbærrar þróunar í forsætisráðuneytinu, þó nokkurn tíma að komast í vinnuna. Enda býr hann í Mosfellsbæ en starfar í miðbæ Reykjavíkur. Sem hann segir ekkert endilega svo gáfulegt. Að búa við rætur Helgafells bætir það þó upp. 21.1.2023 10:00
Breytingar að skila sér: „Það þarf alltaf að byrja á því að taka til í eigin garði“ Mikilvægt að sporna við heilbrigðiskerfissóun segir Markús I. Eiríksson forstjóri HSS. 19.1.2023 07:00