Fréttir

Fréttamynd

Sprengdu búðir sjóræningjanna

Þyrlusveitir undir merkjum Evrópusambandsins gerðu árás á bækistöðvar sjóræningja í Sómalíu í gær og eyðilögðu meðal annars birgðageymslu.

Erlent
Fréttamynd

Hélt strax á fund við Merkel

Aðeins fáeinum klukkustundum eftir að François Hollande tók við forsetaembættinu í Frakklandi hélt hann til Þýskalands á fund við Angelu Merkel kanslara.

Erlent
Fréttamynd

Fjórtán teknir fyrir slagsmál

Fjórtán félagar í dönskum vélhjólaklíkunum voru í gær dæmdir í fangelsi fyrir hópslagsmál í Esbjerg í fyrra. Mennirnir eru annars vegar meðlimir Bandidos og stuðningshópsins Guardias Diablos og hins vegar í AK81, sem er stuðningshópur Vítisengla. Meðal hinna dæmdu er foringi Bandidos í Esbjerg og dómarnir eru frá fjórum upp í fjórtán mánuði.

Erlent
Fréttamynd

Brooks vísar ákærum á bug

Rebekah Brooks, fyrrverandi framkvæmdastjóri vikublaðsins News of the World, hefur verið ákærð fyrir að hafa reynt að halda leyndum upplýsingum um símhleranir, sem stundaðar voru af blaðamönnum blaðsins.

Erlent
Fréttamynd

Útiveitingastaður á flotbryggju

Arkitekt Ráðhúss Reykjavíkur hefur spurst fyrir um það hjá byggingarfulltrúa borgarinnar hvort koma megi fyrir flotbryggju í Tjörninni framan við Ráðhússkaffi.

Innlent
Fréttamynd

Kauphöllina grunar markaðsmisnotkun

Íslenska kauphöllin vísaði einu máli til frekari rannsóknar hjá Fjármálaeftirlitinu (FME) í aprílmánuði vegna gruns um markaðsmisnotkun. Alls hefur Kauphöllin vísað tveimur slíkum málum til eftirlitsins það sem af er árinu 2012. Hvorki FME né Kauphöllin vilja gefa upp hverjum málin tengjast né hvert umfang þeirra er.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hugmyndum um nýjan skatt á lífeyrissjóði vex fylgi

Landssamtök lífeyrissjóða höfnuðu í gær hugmyndum um að færa niður fasteignalán, sem tryggð eru með lánsveðum hjá ábyrgðarmönnum, að 110 prósentum af fasteignamati. Efnahagsráðherra, fjármálaráðherra, innanríkisráðherra og velferðarráðherra lögðu drög að samkomulagi þar um fyrir fulltrúa sjóðanna á fundi í gær. Fulltrúar Íbúðalánasjóðs sátu fundinn einnig.

Innlent
Fréttamynd

Forseti gæti tekið völdin af ríkisstjórn

„Vandi núgildandi stjórnarskrár er að í upplausnarástandi gæti forseti hreinlega tekið völdin af ríkisstjórn.“ Þetta segir Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur í grein í nýjasta hefti Skírnis. Greinin fjallar um breytta stöðu forseta Íslands og frumvarp Stjórnlagaráðs.

Innlent
Fréttamynd

Gagnrýndi fyrirhugaðar aðgerðir ESB

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra gagnrýndi harkalega hugmyndir sem eru til umræðu innan ESB um refsiaðgerðir gegn Íslandi vegna makríldeilunnar, á fundi EES-ráðsins í gær. Þar voru fulltrúar EFTA-ríkjanna og Danir fyrir hönd ESB.

Innlent
Fréttamynd

Almenningur fái dorgaðstöðu

Stjórn Faxaflóahafna hefur samþykkt tillögu formannsins Hjálmars Sveinssonar um að láta kanna möguleika þess að koma fyrir dorgaðstöðu fyrir almenning í tengslum við uppsátur fyrir smábáta við Eyjarslóð.

Innlent
Fréttamynd

Styðja búsetu óháð formi

Nýtt kerfi húsnæðisbóta verður kynnt í dag. Það kemur í stað húsaleigu- og vaxtabóta. Um samtímagreiðslur verður að ræða og verða greiðslurnar óháðar því hvort fólk leigir eða á eigið húsnæði.

Innlent
Fréttamynd

Tómlegt eftir fall risatrés

Stóreflis birkitré rifnaði upp með rótum á lóð við Reynimel í hvassviðrinu sem gekk yfir höfuðborgarsvæðið á aðfaranótt mánudags.

Innlent
Fréttamynd

Foreldrar komi að ráðningum

Tekið verður upp samráð við foreldra þegar skólastjórar eru ráðnir, nái tillaga sjálfstæðismanna í borgarstjórn fram að ganga. Hún var lögð fram á síðasta fundi skóla- og frístundaráðs en afgreiðslu frestað.

Innlent
Fréttamynd

Almenn niðurfærsla forsenda stuðnings

Samþykki ríkisstjórnin að fara í almennar skuldaniðurfellingar og beita sér í öðrum málum sem þingmenn Hreyfingarinnar vilja að nái fram að ganga mun þingflokkur Hreyfingarinnar verja stjórnina vantrausti.

Innlent
Fréttamynd

Morðinginn í Malmö neitar

Réttarhöld hófust í gær yfir Peter Mangs, manninum sem er talinn hafa borið ábyrgð á fjölda skotárása í Malmö í Svíþjóð.

Erlent
Fréttamynd

Fangar hætta hungurverkfalli

Samkomulag tókst í gær milli Ísraela og palestínskra fanga, sem hafa verið í hungurverkfalli síðan um miðjan apríl til að mótmæla aðstæðum í ísraelskum fangelsum.

Erlent
Fréttamynd

Sparibankinn leitar erlends fjármagns

Aðstandendur Sparibankans eiga í viðræðum við erlenda aðila um að koma að fjármögnun bankans. Erfiðlega hefur gengið að ljúka fjármögnun og þurfti bankinn í október að segja upp leigusamningi á Iðuhúsinu við Lækjargötu sem hann hafði tekið á leigu. Enginn tímarammi er til staðar um opnun bankans.

Innlent
Fréttamynd

Selja hverja nótu á 100 þúsund

Áhugahópur sem safnar nú fyrir flygli til að koma fyrir í menningarsalnum Hjálmakletti í Menntaskóla Borgarfjarðar hyggst grípa til óhefðbundinnar aðferðar til að fá styrktaraðila til liðs við verkefnið.

Innlent
Fréttamynd

Segir Y-listann hafa viljað salta vaxtamál

"Oddviti Y-lista var mótfallinn frekari könnun að svo stöddu og lagði á það áherslu að málið yrði látið liggja þar til niðurstöður stjórnsýsluúttektar lægju fyrir,“ segir Guðríður Arnardóttir spurð um það hvers vegna ekki hafi verið brugðist meira við upplýsingunum um sérkjör sem þáverandi bæjarstjóri hafði notið í fjármálastjórnartíð sinni.

Innlent
Fréttamynd

Segir SÞ sýna mikinn veikleika

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra gagnrýndi öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fyrir aðgerðaleysi í málefnum Palestínu í opinni umræðu utanríkisráðherra Norðurlandanna um arabíska vorið í Stafangri í Noregi í gærmorgun.

Innlent
Fréttamynd

Nýjar stofnanir svar við fjármálakreppu

Nýjar evrópskar eftirlitsstofnanir eiga að fylgjast með fjármálamörkuðum ESB-ríkjanna og tryggja að eftirlitsstofnanir í aðildarríkjunum standi sig. Íslandi ber að samþykkja vald stofnananna yfir íslenskum fjármálamarkaði vegna EES-samningsins, en íslenska stjórnarskráin heimilar það ekki samkvæmt álitsgerð sem unnin var fyrir stjórnvöld.

Innlent
Fréttamynd

Lögregla vill bát til eftirlits á Breiðafirði

Lögreglan á Snæfellsnesi vinnur þeirri hugmynd fylgi þessa dagana að tekið verði upp sérstakt eftirlit á Breiðafirði. Um tilraunaverkefni yrði að ræða með aðkomu stjórnvalda og stofnana. Rökin fyrir því að gera út eftirlitsbát eru fjölmörg; eftirlit með strandveiði- og skemmtibátum, náttúruvernd og fleira sem markast af sérstöðu fjarðarins.

Innlent
Fréttamynd

Karlar fá 6,6 prósentum hærri laun

Föst laun karla á Íslandi eru 6,6% hærri en föst laun kvenna þegar búið er að taka tillit til helstu áhrifaþátta. Þetta er niðurstaða greiningar PwC á launamun kynjanna.

Innlent
Fréttamynd

Frumvarp um kvóta ekki matshæft

Sérfræðingar á vegum þingnefndar segja frumvarp Steingríms J. Sigfússonar um veiðigjald ekki matshæft. Ófært sé að meta áhrif á rekstur sjávarútvegsfyrirtækja út frá því. Frumvarpið feli í sér tvísköttun.

Innlent
Fréttamynd

Færri nota hjálm við hjólreiðar

Hjólreiðamönnum í Reykjavík sem nota hjálm hefur fækkað á milli ára. Samkvæmt talningu VÍS á fjórum stöðum á höfuðborgarsvæðinu á fimmtudag notuðu 74 prósent hjólreiðamanna hjálm, samanborið við 83 prósent í fyrra. Gerir þetta 11 prósenta fækkun milli ára.

Innlent
Fréttamynd

Bakkavararbræður líklegastir til að kaupa

Bræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir hafa tryggt sér 25 prósenta hlut í Bakkavör Group gegn því að gefa eftir meirihluta í stjórn félagsins. Afgangurinn, um 75 prósenta hlutur, verður í eigu íslenskra kröfuhafa sem breyta kröfum sínum í nýtt hlutafé. Svissneski risabankinn Credit Suisse telur að sá hluti verði seldur fljótlega og að líklegustu kaupendur hans séu bræðurnir. Gangi það eftir munu þeir eignast félagið sem þeir í raun misstu, samkvæmt skilmálum nauðasamninga félagsins, að nýju. Heimildir Fréttablaðsins herma þó að vel komi til greina að selja hlutinn til annarra aðila.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Neita sök og ætla að verjast

Í herstöð Bandaríkjamanna á Kúbu hefjast í dag réttarhöld yfir fimm föngum sem sakaðir eru um að hafa skipulagt árásirnar á Bandaríkin þann 11. september 2001.

Erlent
Fréttamynd

Grikkir kjósa sér nýtt þing

Fastlega er reiknað með því að grískir kjósendur muni refsa bæði sósíalistaflokknum PASOK og hægriflokknum Nýju lýðræði í þingkosningum á morgun.

Erlent
Fréttamynd

Segja engin ný rök komin fram

Átta manna hópur sérfræðinga frá Háskóla Íslands, Landbúnaðarháskóla Íslands og Íslenskri erfðagreiningu hafa sent flutningsmönnum þingsályktunartillögu um bann við útiræktun erfðabreyttra lífvera opið bréf, þar sem spurt er hvaða upplýsingar eða rök liggja að baki því að tillagan um bannið sé endurupptekin á þinginu.

Innlent