Kauphöllin

Fréttamynd

Þjóðarsjóður

Björgólfur Guðmundsson, fyrrverandi formaður bankaráðs gamla Landsbankans, velti þeirri hugmynd upp á aðalfundi bankans í lok apríl í fyrra að Íslendingar kæmu sér upp þjóðarsjóði í líkingu við þann sem Norðmenn búa yfir.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hagnast á skortsölu

Bandaríski vogunarsjóðurinn Paulson & Co, hefur hagnast um 295 milljónir punda, jafnvirði 50 milljarða króna, með skortsölu á hlutabréfum í Royal Bank of Scotland frá í september í fyrra.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Heitar kartöflur

Markaðurinn sagði frá því í síðustu viku að Landsbankinn í Lúxemborg hafi boðið vildarviðskiptavinum sínum að kaupa fyrir þá lúxusbíla gegn mótframlagi. Bílarnir voru geymdir í bílageymslu á vegum bankans í Lúxemborg ásamt öðrum bílum sem viðskiptavinir höfðu keypt fyrir eigin reikning.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Bankana vantaði erlenda hluthafa

„Ég er þess fullviss að hefðu stórir erlendir bankar verið á meðal ráðandi hluthafa í íslensku bönkunum þá hefði fall þeirra ekki haft eins víðtæk og sársaukafull áhrif og raunin varð. Þeim [bönkunum] hefði aldrei verið leyft að vaxa jafn hratt með þeim hætti sem þeir gerðu. Erlendir hluthafar hefðu passað upp á það," segir Carsten Valgreen, meðeigandi ráðgjafafyrirtækisins Benderly Economics.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Keypt hugmynd

Hugmynd Björgólfs um þjóðarsjóð fékk heilmikla athygli á sínum tíma en féll í misjafnan jarðveg. Hvað sem öðru líður er ljóst að þótt hugmyndin sé ágæt er hún ekki Björgólfs.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Viðræður halda áfram

Beðið er ársuppgjöra Sparisjóðsins í Keflavík, Byrs og SPRON áður en viðræður halda áfram um sameiningu þeirra. Viðræðurnar þar sem kannaður hefur verið grundvöllur fyrir sameiningu hafa staðið frá í desember. „Tímaáætlanir sem gerðar voru í upphafi viðræðnanna munu ekki nást meðal annars vegna aðstæðna í íslensku efnahagslífi," segir í tilkynningu. Gert var ráð fyrir niðurstöðu á fyrstu vikum þessa árs. „Engar nýjar tímasetningar liggja fyrir um framhaldið." - óká

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Raunsnerting

Guðjón Már Guðjónsson, löngum kenndur við hugbúnaðarfyrirtækið Oz, á hrós skilið fyrir að hvetja til frumkvöðlahugsunar eftir bankahrunið í fyrra.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Baneitruð ástarbréf

Hinn 21. október síðastliðinn skýrði Fréttablaðið frá því í forsíðufrétt, að svo gæti farið að stærstur hluti krafna Seðlabankans vegna veðlána í endurhverfum viðskiptum gæti tapast.

Skoðun
Fréttamynd

FME lét rannsaka

Fjármálaeftirlitið (FME) segist hafa fengið til liðs við sig sérstaka sérfræðinga í bókhaldsrannsóknum til að aðstoða sig. Slíkir sérfræðingar eru upp á ensku nefndir Forensic accountants og munu oft vera fengnir til að fara yfir stöðu fyrirtækja og sigta út allt úr bókum félaga sem vekur grunsemdir eða orkar tvímælis.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hætta að borga og bíða eftir málsókn

„Neyðarlögin heimila okkur ekki að sækja rétt okkar gagnvart skilanefnd Kaupþings. En hins vegar munum við verja þennan rétt ef nefndin fellst ekki á kröfur okkar um þennan skuldajöfnuð,“ segir Hjörleifur Jakobsson, forstjóri Kjalars.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Dregur úr verðbólgu

Verðbólga mældist 1,6 prósent á evrusvæðinu í desember, samkvæmt útreikningum Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. Þetta er talsvert umfram vonir.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Sigurjón kennir

Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, hefur tekið að sér stundakennslu við tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík. Sigurjón hefur kennt áður, meðal annars við Háskólann í Reykjavík, en hann hefur nú tekið að sér að kenna inngangsnámskeið í fjármálaverkfræði. Sigurjón er einmitt verkfræðingur sjálfur, nam vélaverkfræði á sínum tíma í Háskólanum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Mest verslað í Bandaríkjadölum

Hátt í 40 prósent allra útflutningsviðskipta héðan fara fram í Bandaríkjadölum, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Hins vegar er útflutningur til Bandaríkjanna ekki nema brot af því, ríflega fimm prósent útflutnings. Þetta segir í tölum Hagstofunnar fyrir árið 2007, en heildartölur fyrir síðasta ár eru ekki komnar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Simbabve norðursins

„Fjármálasvindl Bernie Madoffs blikna í samanburði við þá glæpi og spillingu sem blómstrað hafa í tíð sjálfstæðismanna,“ segir Íris Erlingsdóttir, fjölmiðlafræðingur og nálastungulæknir, á bandaríska vefmiðlinum Huffington Post í gær.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Kreppir að hjá auðkýfingi

Fjármálakreppan kom illa við skoska auðkýfinginn Sir Tom Hunter á nýliðnu ári. Hunter, sem gjarnan er kallaður ríkasti maður Skotlands og stefnir að því að gefa einn milljarð punda,

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Ný vísitala gæti orðið til eftir upprisu Kauphallar

„Hlutabréfavísitölur endurspegla þróun efnahagslífsins. Þær hreyfast fyrr í hagsveiflum, lækka á undan samdrætti í landsframleiðslu og auknu atvinnuleysi. Vísitölurnar hækka sömuleiðis fyrr,“ segir Þórður Friðjónsson, forstjóri Nasdaq OMX Iceland, sem í daglegu tali nefnist Kauphöll Íslands. Hann reiknar með erfiðu ári á hlutabréfamarkaði. Í lok árs 2010 megi vænta að virkur markaður verði hér á ný.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Nokkrir til sem upp úr stóðu

Kaup Marel Food Systems á Stork Food Systems þykja standa upp úr sem viðskipti ársins 2008 og er ef til vill ekki úr vegi að tilnefna fjárfestingarfélagið Eyri Invest og flaggskip eignasafns fyrirtækisins, bæði Marel og Össur, sem fyrirtæki ársins vegna þess hve víða og ofarlega þessi fyrirtæki og aðstandendur þeirra voru á blaði í vali þeirra sem tilnefndu fólk og fyrirtæki í vali Markaðarins að þessu sinni.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Skjásins: Barátta og breytingar

Árið 2009 verður ár baráttu og breytinga á íslenskum fjölmiðlamarkaði. Það er fyrirséð að einkarekin fjölmiðlafyrirtæki munu, eins og fjölmörg önnur fyrirtæki, berjast fyrir tilvist sinni í erfiðu rekstrarumhverfi. Eitt fjölmiðlafyrirtæki, Ríkisútvarpið, mun þó styrkja stöðu sína, því rekstrinum hafa nú þegar verið tryggðar ríflega 500 miljónir króna úr vösum skattgreiðenda til viðbótar við þær þrjú þúsund milljónir sem það fær á ársgrundvelli til að keppa við einkarekin fyrirtæki innan sömu greinar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Agnar Hansson, forstjóri Sparisjóðabankans: Kaupmenn í kippum

Þegar gengið er um stræti Lundúna kemur mönnum stundum spánskt fyrir sjónir að sjá hvernig kaupmenn af sömu gerð virðast hópa sig saman á tiltölulega þröngu svæði. Hér má nefna skraddarana á Savile Row eða skyrtusalana á Jermyn Street. Og skorti fjármagn eru nánast óteljandi bankastofnanir á svæðinu frá Bank lestarstöðinni og upp til Liverpool Street.

Viðskipti innlent