Kauphöllin

Fréttamynd

Engar samrunaviðræður

„Við erum að gæta varfærni, taka niður eignasafnið vegna markaðsaðstæðna og búa í haginn fyrir erfiðan vetur," segir Ragnar Z. Guðjónsson, sparisjóðsstjóri Byrs.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hálfur heimurinn er í eða á barmi kreppu

Efnahagsvandræði þau sem hófust með undirmálslánakreppunni í Bandaríkjunum fyrir tæpu ári hafa nú breiðst út um nær allan heim. Samkvæmt nýrri skýrslu Goldman Sachs sem birt var á fimmtudag í síðustu viku er helmingur heimshagkerfisins í kreppu eða á barmi hennar.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Sólarkísilverksmiðja farin út af kortinu

„Margir þættir réðu þessari ákvörðun. Þar á meðal orkuöflun og verð, aðgangur að hæfu vinnuafli, verksmiðjustæðið og fleira. Staðan í stjórnmálum á Íslandi hefur hins vegar ekki verið neinn lykilþáttur í okkar ákvörðunum,“ segir Erik Thorsen, forstjóri norska stórfyrirtækisins REC (Renewable Energy Corporation).

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Engin svör frá Samvinnutryggingum

„Við náðum ekki að klára þetta áður en menn fóru í sumarfrí,“ segir Kristinn Hallgrímsson, formaður skilanefndar Eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga. Hann gerir ráð fyrir því að skilanefndin komi saman í september.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Tekjuaukning á krepputímum

Það er í lagi að segja það. Íslenskur efnahagur er í lægð eftir langa uppsveiflu og mikinn vöxt og velgengni. Þessi niðursveifla er dýpri og lengri en við höfum séð á síðustu árum. En einnig má segja að upp sé kominn annar flötur á niðursveiflunni. Ekki aðeins verða fyrir­tækin fyrir samdrætti í rekstrarreikningi sínum heldur er ekki minni pressa frá hinni hliðinni, það er efnahagsreikningnum.

Skoðun
Fréttamynd

Hef gaman af að leysa þrautir

Staðan hefur gjörbreyst á skömmum tíma, viðurkennir Geir H. Haarde forsætisráðherra í viðtali við Björn Inga Hrafnsson viðskiptaritstjóra. Hann fer yfir ástand efnahagsmála, ræðir lausafjárvandann, Evrópumálin, virkjanir, stóriðju og margt fleira

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Stjórnendur misstu sjónar á rekstrinum

„Þegar maður kemur inn í Woolworths-verslun hér í London sést fljótt að eitthvað er að. Það vantar vörur í hillurnar. Þá er salan árstíðabundin, er mest um jólin. Allir sjá að þessu þarf að breyta,“ segir Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugs Group.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Urriðavöllur dýrastur

Urriðavöllur er dýrasti golfvöllur landsins árið 2008. Urriðavöllur er rekinn af Golfklúbbnum Oddi. Hringurinn á Urriðavelli kostar 7.400 krónur án afsláttar. Næstur í kjölfarið kemur Vífilsstaðavöllur Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar. Gjaldið þar er 7.000 krónur.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Undirmálslánakreppan aðeins toppurinn á ísjakanum

Samkvæmt skýrslu samtakanna Hope Now, sem aðstoða bandaríska húsnæðiseigendur sem eiga í vandræðum með afborganir, lenda Bandaríkjamenn með góð veð og „hefðbundin“ húsnæðislán í vaxandi mæli í vandræðum með afborganir. Á öðrum ársfjórðungi aðstoðuðu samtökin 34.000 fleiri með „hefðbundin“ húsnæðislán en „undirmálslán“, en alls aðstoðuðu samtökin nærri 1.800.000 manns á öðrum ársfjórðungi. Þá sýna tölur samtakanna að skjólstæðingar, sem höfðu hefðbundin húsnæðislán, mistókst hlutfallslega oftar en þeim sem höfðu undirmálslán að ná tökum á afborgunum, þrátt fyrir skuldbreytingu, og misstu þar með heimili sín.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Með stefnuleysi er vandanum viðhaldið

Gott er að fá yfir sumartímann ráðrúm til að meta aðstæður og velta fyrir sér hvert stefnir í efnahagsmálum, að mati Árna Páls Árnasonar þingmanns. Hann segir hins vegar ljóst að í haust hljóti að vera tími aðgerða og skýrrar stefnumörkunar á sviði stjórnmálanna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Netinnlán aukast

Netinnlánareikningar eru farnir að gegna veigamiklu hlutverki í fjármögnun íslensku bankanna. Þrír stærstu bankar landsins hafa opnað slíka reikninga erlendis og fjölgar innlánum og viðskiptavinum hratt. Landsbankinn starfrækir Icesave-netreikningana í Bretlandi og Hollandi. Glitnir starfrækir Save and Save í Noregi og á Íslandi og loks Kaupþing Edge sem er starfrækt í tíu löndum í Evrópu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Árvakur og 365 skoða samstarf

„Það liggur ekkert fyrir um að slíkt takist en það eru það erfiðar aðstæður á prentmarkaðnum að ef það ætti einhvern tímann að ganga þá væri það núna,“ segir Ari Edwald, forstjóri 365. Heimildir Markaðarins herma að samningaviðræður eigi sér stað milli 365 og Árvakurs til að ná fram stærðarhagkvæmni í rekstri. Á það einkum við rekstrarliði sem lúta að framleiðslu og dreifingu á dagblöðum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Kvótaþak hamlar vexti sjávarútvegs

„Í sjávarútvegi þar sem starfað er við útflutning mæla engin hagfræðileg rök með því að stærð fyrirtækja sé haldið niðri með hömlum á kvótaeign,“ segir Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningar Kaupþings.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Dögun vetnisaldar – veruleiki eða framtíðarsýn

Jarðeldsneyti er takmarkað og ljóst er að síhækkandi eldsneytisverð er að sliga atvinnuvegi landsins og að hagkvæmara er orðið að leita annarra leiða til að knýja ökutæki í framtíðinni. Í bók sinni, Dögun vetnisaldar – róteindin tamin fjallar Þorsteinn Ingi Sigfússon um vetni sem orkugjafa. Bókin er gefin út samtímis á íslensku og ensku.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Eldingum skotið í tölvur í prófunum

Tölvuframleiðandinn Lenovo leggur mikla áherslu á gæðaprófanir í framleiðslu á tölvubúnaði sínum. Björn Birgisson, yfirvörustjóri hjá Nýherja, heimsótti höfuðstöðvar Lenovo í Peking og komst að því að þar eru tölvurnar frystar, hristar, hitaðar, fallprófaðar og látnar verða fyrir eldingum í gæðaprófunum.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Bankahólfið: Minnisleysa

Íslensk erfðagreining ku ætla að rannsaka hvaða erfðaþættir það séu sem hafi áhrif á minni, athygli og hraða hugsunar. Illkvittnir sáu samstundis glitta í gagnsemi rannsóknarinnar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Biðstaða á gjaldeyrismarkaði?

Eftir rúmlega 20% gengisfall í mars hefur krónan flökt á bilinu 113-124 á móti evru og þannig má líta svo á að gjaldeyrismarkaðurinn hafi verið nokkuð stöðugur á öðrum ársfjórðungi. Þrátt fyrir þennan stöðugleika á ytri borði er samt ljóst að undir niðri kraumar töluverð óvissa. Svo virðist sem fæstir hafi trú á því að núverandi gildi sé einhvers konar jafnvægi heldur að gjaldeyrismarkaðurinn sé í biðstöðu. Hvert er þá krónan að stefna þegar kemur fram að þriðja fjórðungi?

Skoðun
Fréttamynd

Pissað í polla

Vondar fréttir af Eimskipafélaginu sendu markaðinn í þunglyndi í vikunni. Það var svo sem ekki á svartsýnina bætandi og fyrir vikið sat íslenski markaðurinn eftir þegar Evrópa rétti sig örlítið við. Þunglyndið var allsráðandi og ég mann satt að segja ekki eftir jafn svartsýnum tóni á markaðinum síðan 2001-2002 þegar gengið grillaði ansi marga á sama tíma og draumurinn um að þjóðin gæti upp til hópa lifað af arðinum á Decode lognaðist út af.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Af dónalegum spurningum

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, brást illa við spurningum Sindra Sindrasonar, fréttamanns Markaðarins, fyrir utan Stjórnarráðið í gærmorgun. Sakaði Geir Sindra um dónaskap þegar hann innti ráðherra eftir aðgerðum í efnahagsmálum. Svona voru samskiptin: Sindri: „Jæja, hvar eru peningarnir sem eiga að komast inn í landið?” Geir: „Á þetta að vera viðtal? Sindri: „Já, ég myndi vilja heyra aðeins um þetta...” Geir: „Þú verður að hafa samband fyrirfram.” Sindri: Geir, þjóðin náttúrulega bíður eftir einhverjum aðgerðum frá ríkisstjórninni. Geturðu ekki gefið okkur smá komment?” Geir: „Ég vildi gjarnan gera það, Sindri, ef þú hagaðir þér ekki svona dónalega.”

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Skjót viðbrögð Seðlabankans

Seðlabanki Íslands brást skjótt við umfjöllun Markaðarins í gær um kennsluefni Seðlabanka. Í gærmorgun barst fréttatilkynning frá bankanum þar sem bent er á efni sem bankinn gefur út, tengla á efni frá öðrum seðlabönkum og nánari upplýsingar um opnunartíma myntsafns Seðlabankans. Fjallað er um tölvuleik sem er staðsettur í myntsafni Seðlabanka Íslands þar sem hægt er að setjast í stól bankastjóra og spreyta sig á því að beita stýritækjum hans til að ná verðbólgumarkmiði bankans.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Bankahólfið: Netbóluísinn brotinn

Úrvalsvísitalan sleikti 4.500 stiga markið í gær. Eins og marg­oft hefur verið tuggið á fór vísitalan hæst í 9.016 stig 18. júlí í fyrra áður en hún fór að síga en fall vísitölunnar nú nemur 49,6 prósentum á tæpum ellefu mánuðum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Bankahólfið: Buffet-aðferðin

Alltaf er fengur að bókum á íslensku um viðskipti og athafnafólk. Warren Buffet-aðferðin ætti því að vera kærkomin lesning, ekki síst fyrir íslenska fjárfesta sem brennt hafa sig illa á hlutabréfaviðskiptum síðustu misserin.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Nýsir selur Konditori

„Við erum að endurskipuleggja fyrirtækið og ætlum að einblína á kjarnastarfsemi sem snýr að rekstri og umsjón fasteigna. Veitingahúsarekstur var ekki hluti af kjarnastarfsemi,“ segir Höskuldur Ásgeirsson, forstjóri fasteigna- og fjárfestingarfélagsins Nýsis.

Viðskipti innlent