
Frakkland

Lík 15 mánaða gamals drengs fannst við strendur Noregs
Líkamsleifar fimmtán mánaða gamals drengs, sem hvarf á Ermarsundi í fyrra, hafa fundist við strendur Noregs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá norsku lögreglunni.

Komu sér saman um að skattleggja alþjóðafyrirtæki
Fulltrúar sjö mestu iðnríkja heims skrifuðu undir samkomulag sem á að tryggja að stór alþjóðleg fyrirtæki geti ekki komið sér undan skattgreiðslum í dag. Samkomulagið kveður á um að þau þurfi að greiða að minnsta kosti 15% skatt í hverju ríki þar sem þau hafa starfsemi.

Fyrrverandi ráðherra myndar nýbakaðan franskan riddara
Það hljóp á snærið hjá veitingamanninum Jóni Mýrdal sem átti leið um Skólavörðustíginn í morgun.

Aflýsa fleiri ferðum til Rússlands vegna deilu um áætlanir
Franska flugfélagið Air France neyddist til þess að aflýsa tveimur flugferðum til Moskvu til viðbótar í dag eftir að rússnesk flugmálayfirvöld neituðu að fallast á flugáætlun sem sneiddi hjá Hvíta-Rússlandi.

Höfðu hendur í hári hermannsins
Lögregla í suðvesturhluta Frakklands hefur náð manni sem stórfelld leit hafði verið gerð að síðan á laugardag, eftir að hann skaut í átt að lögreglumönnum sem höfðu afskipti af honum vegna heimilisofbeldis.

Leita vopnaðs hermanns sem skaut að lögreglu
Skipulögð leit stendur nú yfir í suðvestur Frakklandi að fyrrverandi hermanni sem er þungvopnaður og á flótta. Maðurinn skaut að lögreglu á færi áður en að hann flúði. Íbúar eru hvattir til að halda sig innandyra.

Hótar refsiaðgerðum náist pólitískur stöðugleiki ekki
Emmanuel Macron, forseti Frakklands, hótaði stjórnvöldum í Malí að hann myndi kalla hersveitir Frakka í landinu heim. Skilyrði þess að franskar hersveitir haldi áfram til í landinu sé að pólitískur stöðugleiki náist og að unnið sé gegn því að öfgaíslamistar nái meiri tökum.

Fengu ekki að fljúga inn í lofthelgi Frakklands
Flugvél Belavia, flugfélags frá Hvíta-Rússlandi, sem átti að lenda í Barcelona í dag var snúið aftur til Minsk. Það var gert eftir að flugumferðarstjórar í Póllandi tilkynntu flugstjóra flugvélarinnar að hann fengi ekki leyfi til að fljúga inn í lofthelgi Frakklands.

Lille franskur meistari
Lille er franskur deildarmeistari í fjórða sinn eftir að þeir unnu 2-1 sigur á Angers í lokaumferðinni í Frakklandi í kvöld.

Konur eigi rétt á bótum vegna PIP-brjóstapúðanna
Franskur áfrýjunardómstóll komst að þeirri niðurstöðu að á þriðja þúsund kvenna sem fengu svonefnda PIP-brjóstapúða ættu að fá skaðabætur. Lögmaður íslenskra kvenna sem taka þátt í hópmálsókn vegna púðanna segir niðurstöðuna áfangasigur.

Benzema í franska hópnum sem fer á EM
Franski landsliðshópurinn fyrir EM 2020 - sem fer þó fram í sumar - var tilkynntur í kvöld. Karim Benzema er í hópnum en hann hefur ekki leikið með franska landsliðinu síðan árið 2015.

Kynhlutlaust mál bannað með lögum
Menntamálaráðherra Frakka hefur lögfest við því blátt bann að í skólum landsins sé stuðst við kynhlutlaust mál í námsefni fyrir börn. Hann segir reglurnar of flóknar fyrir þau.

Skiptar skoðanir á afnámi einkaleyfa á bóluefnum
Leiðtogar Evrópuríkja eru ósammála um ágæti þess að afnema einkaleyfi á framleiðslu bóluefna gegn kórónuveirunni. Málið er nú til umræðu innan Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar.

200 ár frá dauða Napóleons
Í dag eru tvö hundruð ár liðin síðan Napóleon Bónaparte Frakklandskeisari dó. Emmanúel Macron, Frakklandsforseti, minntist keisarans umdeilda við athöfn í dag þegar hann lagði blómkrans að grafhýsi hans í Les Invalides í París.

Marine Le Pen sýknuð af ákæru um hatursorðræðu
Dómstóll í Frakklandi hefur sýknað Marine Le Pen, formann hægriöfgaflokksins Þjóðfylkingarinnar og fyrrverandi forsetaframbjóðanda af ákæru um hatursorðræðu.

Belgískur bóndi færði landamærin að Frakklandi
Landamæri Belgíu og Frakklands sem voru mörkuð á fyrri hluta 19. aldar voru færð um rúmlega tvo metra nýlega. Belgískur bóndi sem var þreyttur á að steinn sem varðaði landamærin flæktist fyrir dráttarvélinni hans færði hann og stækkaði þannig heimaland sitt örlítið á kostnað Frakklands.

Þúsundir mótmæltu ákvörðun um að rétta ekki yfir morðingja konu af gyðingaættum
Þúsundir hafa mótmælt í París og víðar í Frakklandi þeirri ákvörðun dómstóls að rétta ekki yfir manni sem myrti 65 ára gamla konu. Dómstólar höfðu áður komist að þeirri niðurstöðu að um hatursglæp hefði verið að ræða en fórnarlambið var gyðingur.

Lögreglukona látin eftir stunguárás nærri París
Frönsk lögreglukona er látin eftir að árásarmaður vopnaður eggvopni réðst inn á lögreglustöð í bænum Rambouillet, suðvestur af París í dag. Árásarmaðurinn var skotinn og lést á sjúkrahúsi.

Fundu stúlkuna með móður sinni í Sviss
Átta ára stúlka sem frönsk lögregluyfirvöld höfðu lýst eftir fannst ásamt móður sinni í Sviss. Stúlkunni var rænt af heimili ömmu sinnar á þriðjudag, en amma hennar hafði haft forræði yfir henni undanfarna mánuði.

Evrópumeistarar Lyon úr leik í Meistaradeildinni
Lyon, lið Söru Bjarkar Gunnarsdóttur, er úr leik í Meistaradeild Evrópu eftir 2-1 tap gegn Paris Saint-Germain í dag. Lyon vann fyrri leikinn 1-0, en PSG fer áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli.

Handteknir grunaðir um aðild að mannráni á átta ára stúlku
Fjórir menn eru nú í haldi frönsku lögreglunnar vegna gruns um aðild að þaulskipulögðu mannráni á átta ára stúlku. Stúlkan heitir Mia og er talin vera með móður sinni, sem lögreglu grunar að hafi fyrirskipað mannránið.

Skaut mann ítrekað fyrir utan sjúkrahús í París
Lögreglan í París letar manns sem hóf skothríð fyrir utan sjúkrahús í borginni í dag. Hann skaut einn til bana og særði konu alvarlega, áður en hann flúði af vettvangi á mótorhjóli.

Fóru út að borða og fá 2,3 milljóna króna sekt
Meira en 100 gestir á veitingastað í París hafa verið sektaðir fyrir að hafa brotið sóttvarnareglur. Þá hefur veitingastjórinn á staðnum verið handtekinn vegna málsins.

Rússar óttast að borgarstríð brjótist út í Úkraínu
Yfirvöld í Rússlandi segjast óttast það að átök muni brjótast út af fullum krafti að nýju í austurhluta Úkraínu. Rússar segjast þegar hafa hafið undirbúning á því að vernda rússneskan almenning á svæðinu.

Frakkar herða aftur á aðgerðum gegn veirunni
Skólar í Frakklandi verða lokaðir næstu þrjár vikurnar í það minnsta samkvæmt nýjum og hertum sóttvarnaaðgerðum sem Emmanuel Macron forseti kynnti í dag. Varaði hann við því að yfirvöld gætu misst tökin á kórónuveirufaraldrinum yrði ekki gripið til aðgerða strax.

Ikea sakað um að njósna um starfsfólk og viðskiptavini
Réttarhöld yfir dótturfyrirtæki Ikea í Frakklandi og fyrrverandi stjórnendum þess hefjast í dag. Fyrirtækið og stjórnendurnir eru sakaðir um að hafa notað gagnagrunn lögreglu til þess að njósna um starfsfólk sitt og viðskiptavini um marga ára skeið.

Óttast þriðju bylgjuna og skella í lás
Útgöngubann verður sett á í frönsku höfuðborginni París í ljósi þess að kórónuveirusmitum fer fjölgandi. Síðasta sólarhringinn greindust 35 þúsund í Frakklandi og verður gripið til sambærilegra aðgerða á fimmtán svæðum til viðbótar.

Banna föngun fugla í límgildrur
Evrópudómstóllinn hefur ákveðið að banna alfarið föngun fugla með því að bera lím á trjágreinar, jafnvel þótt um sé að ræða gamla veiðihefð. Stjórnvöld í Frakklandi bönnuðu aðferðina í fyrra en ákvörðuninni var harðlega mótmælt af veiðimönnum.

Skoða hvort erfiðara sé að greina nýtt afbrigði sem fannst í Frakklandi
Nýtt afbrigði kórónuveirunnar hefur verið uppgötvað í Frakklandi. Afbrigðið er ekki talið meira smitandi eða valda alvarlegri veikindum en önnur, en kann að greinast illa í PCR-prófum.

Bætist í hóp þeirra sem hætta tímabundið notkun bóluefnis AstraZeneca
Þýskaland, Frakkland, Ítalía og Holland bættust í dag við hóp þeirra landa sem hafa ákveðið að hætta tímabundið notkun á bóluefni AstraZeneca vegna á fjórða tug tilkynninga sem hafa borist um blóðtappa eftir notkun efnisins í Evrópu í síðustu viku.