
Dýr

Kennari hljóp til þegar Sushi læstist inni eftir skólaslit
Hinn víðfrægi köttur Sushi læstist inni í Garðaskóla eftir skólaslit um helgina. Kötturinn þurfti þó ekki að dúsa lengi í skólanum en kennari í skólanum var fljótur að hlaupa til og hleypa kettinum út eftir að íbúi í bæjarfélaginu vakti athygli á kettinum á Facebook.

Mikilvægi dýranna: Þau hafa sitt vit
Steinsteypuvæðing heims er að drepa lífríkið og dýrin, og um leið jörðina.

Fyndnustu gæludýramyndir ársins sem unnu til verðlauna
Dómarar hinnar árlegu gæludýraljósmyndakeppni Comedy Pet Photo Awards hafa valið bestu myndir ársins. Myndirnar voru í hópi þrjátíu mynda sem kepptu til úrslita í ár.

Sá fyrsti til að greinast með H5N2 lést af völdum veirunnar
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur greint frá andláti af völdum fuglaflensuveirunnar H5N2 sem átti sér stað í apríl síðastliðnum. Um var að ræða fyrsta einstaklinginn sem hefur greinst með umrætt afbrigði fuglaflensu.

Fannst yfirgefin tveggja daga gömul en lifir góða lífinu í dag
Hálfs mánaðar gamall hreindýrskálfur er nýjasti íbúinn í Hreindýragarðinum á bænum Vínlandi á Héraði rétt við Egilsstaði. Nýliðinn hefur vakið mikla lukku þrátt fyrir að mikil vinna liggi að baki því að sjá um móðurlausan kálf.

Vonda veðrið kemur á versta tíma fyrir hryssur
Matvælastofnun segir að hrossabændur verði að fylgjast vel með hestunum sínum í vetrarverðinu sem skollið er á í sumarmánuðinum júní. Veðrið komi á versta tíma þar sem hryssur séu að fara að fæða.

Ekki ólíklegt að hríðarbylurinn hafi slæm áhrif á varpárangur
Ekki er ólíklegt að langvarandi snemmsumarhret hafi áhrif á varpárangur þetta sumarið að mati líffræðings en það mun koma í ljós þegar óveðrið er yfirstaðið

Kakkalakkar á göngum Landspítalans Fossvogi
Þýskættaðir kakkalakkar dreifðu sér um nýrnadeild Landspítalans fyrir nokkrum vikum, þegar erlendur ferðamaður lagðist þar inn með farangur sinn meðferðis. Spítalinn telur að búið sé að útrýma óværunni og öll starfsemi á deildinni er að komast í eðlilegt horf.

Verndun hvala á alþjóðlegum degi hafsins
Á þessu ári hefur okkur miðað heilmikið áfram í skilningi og virðingu okkar á hvölum. Höfðingi Maóra lýsti því yfir að hvalir hafi sömu réttindi og mannfólk. Maórar vinna ásamt Sameinuðu þjóðunum við að reyna að veita hvölum mannréttindi alls staðar í heiminum.

Milljarða sekt fyrir illa meðferð á hundum
Fyrirtækið Envigo RMS LLC hefur verið sektað um 35 milljónir dala, jafnvirði 4,8 milljarða króna, eftir að 4.000 Beagle-hundum var bjargað á ræktunarstöð í Virginíu árið 2022.

Sjáðu svartþrestina yfirgefa hreiðrið
Síðasti svartþrastarunginn í hreiðri við heimili Elmars Snorrasonar húsasmiðs í Hvalfjarðarsveit er horfinn á braut. Elmar hefur undanfarnar tvær vikur boðið upp á beina útsendingu frá hreiðrinu og hefur tekið saman stærstu augnablikin í myndböndum sem horfa má á hér fyrir neðan.

Til varnar líffjölbreytileika
Ágengar framandi tegundir eru meðal helstu ógna við líffjölbreytileika, ekki síst í vistkerfum sem eru landfræðilega einangruð. Hættan sem fylgir ágengum tegundum er talin geta aukist með síauknum flutningi varnings og ferðafólks, til viðbótar við loftslagsbreytingar.

Tvíburafolöld mætt í heiminn í Suðurnesjabæ
Tvíburafolöld komu í heiminn á bænum Melabergi á Stafnesi í Suðurnesjabæ í gærkvöldi. Það kom jörp hryssa og brúnn hestur og hafa þau fengið nafnið Hula og Háski. Systkinin komu vel undan nóttinni og voru farin að hlaupa saman í morgun.

Lögreglan náði lausum grís
Lögreglunni á Norðurlandi eystra barst tilkynning um að grís eða lítið svín sem virðist hafa sloppið og hafnað í bakgarði í Kjarnagötu á Akureyri. Ekki liggur fyrir hver eigandi gríssins er eða þá hvernig grísnum tókst að sleppa.

Bæjarstjórn Garðabæjar ætlar að reisa styttu af kettinum Sushi
Bæjarstjórn Garðabæjar ætlar að láta reisa styttu af frægasta ketti bæjarins, Sushi, sem mun því sem fréttastofa kemst næst brjóta blað í sögunni og verða fyrsti íslenski kötturinn sem fær reistan skúlptúr sér til heiðurs. Kötturinn er fastagestur í Hagkaup og sækir kennslustundir í Garðaskóla.

Nefnir nautin eftir þekktum íslenskum röppurum og Bent er alltaf með eitthvað vesen
Það var ævintýraþráin og hvatvísin varð til þess þau Ása Sif og Ævar Austfjörð ákváðu nokkuð óvænt að gerast bændur, þá bæði komin yfir fertugt.

Skipsbrak varpar ljósi á harmleik undan Vestfjörðum fyrir 72 árum
Brak sem kom í troll íslensks togara í fyrra hefur núna leitt til þess að búið er að varpa ljósi á 72 ára gamlan harmleik, um örlög fimm norskra selveiðiskipa, sem hurfu sporlaust með 78 manns milli Íslands og Grænlands um páskana árið 1952.

Mættu ríðandi í skólann
Skólastarfið í Flóaskóla í Flóahreppi var brotið upp á skemmtilegan hátt í dag því nemendur og starfsmenn komu ríðandi í skólann á hestum sínum.

Með átján husky hunda á heimilinu og mæla með
Í sjötta þætti af þáttunum Hundarnir okkar sem sýndir eru á Vísi alla þriðjudaga er farið í sleðaferð með huskyhundum með eigendum sleðafyrirtækis sem hafa átján husky hunda inni á heimili sínu.

Hundahvíslarinn sem bræddi hjörtu Kansasbúa
Derrick Nnadi er ekki það nafn sem ber fyrst á góma þegar farið er yfir leikmenn meistaraliðs Kansas City Chiefs í NFL-deildinni. Þessi sterkbyggði varnarmaður leynir á sér og hefur gert góða hluti utan vallar undanfarin ár.

Bein útsending frá svartþrastahreiðri í Hvalfjarðarsveit
Elmar Snorrason, húsasmiður og veðuráhugamaður, setti nýlega upp myndavél sem horfir yfir hreiður svartþrastapars. Hreiðrið er við heimili hans í Hvalfjarðarsveit. Fjórir ungar komu úr eggjunum í fyrradag, 14. maí.

Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn
„Jú, eins og ég sagði fyrir atvinnuveganefnd þingsins í gær og maður þarf að segja þetta: Þetta er svívirðilegustu náttúruspjöll sem farið hefur verið með í gegnum sali Alþingis,“ segir Jóhannes Sturlaugsson líffræðingur.

Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum
Ronja Auðunsdóttir ævintýrakona og söngkona lenti heldur betur í hasar þegar hún var úti að viðra son sinn og hund sem heitir Úlfur Tiro. Grimm álft réðist að hundinum sem slapp en við illan leik. Náttúran í öllu sínu veldi.

Hundar mæta í vinnuna með eigendum sínum
Það færist sífellt í vöxt að dýr séu notuð í meðferðum með börnum til að bæta lífsgæði þeirra, ekki síst hundar. Gott dæmi um þetta er sálfræðingur í Reykjavík, sem ætlar sér að nýta sinn hund í tímum með skjólstæðingum sínum og í Fossvogsskóla mætir hundur tvisvar í viku með eiganda sínum í vinnuna.

Fyndnustu gæludýramyndir ársins
Dómarar hinnar árlegu Comedy Pet Photo Awards gæludýraljósmyndakeppninnar hafa valið þær þrjátíu myndir sem keppa til úrslita í ár. Þar má sjá kostulegar myndir af gæludýrum sem sendar voru inn í keppnina víðsvegar að úr heiminum.

Sauð upp úr milli bónda og dýraverndunarsinna
Lögreglan var kölluð til þegar upp úr sauð milli dýraverndunarsinna og ábúenda á sveitabæ í Borgarfirði í gær. Dýraverndarsinnar fóru með hey til til kindanna og ábúandi kom og ógnaði þeim með spjóti. Mikið hefur verið fjallað um slæman aðbúnað sauðfjár á bænum síðustu daga.

Páfiðrildi við Krónuna í Skeifunni
Í gær náðust myndir af fallegu rauðbrúnu fiðrildi við Krónuna í Skeifunni. Samkvæmt upplýsingum frá Náttúrufræðistofnun Íslands er um að ræða páfriðlidi eða Aglais io.

Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum
Dýraverndunarsamband Íslands sakar MAST um að tryggja ekki velferð dýra á bæ í Borgarfirði. Forsvarsmenn samtakana segja sauðfé í vanhöldum og nýborin lömb finnist dauð úti á túni.

Riðulaust Ísland!
Nú liggur fyrir landsáætlun um riðuveikilaust Ísland sem ég hef birt í samráðgátt. Markar sú mikla vinna sem hefur átt sér stað innan matvælaráðuneytisins vatnaskil í baráttunni við riðuveiki á Íslandi og bind ég miklar vonir við breytta nálgun sem boðuð er í henni.

Stóra Svört bar fimm svörtum lömbum
Ærin Stóra Svört á bænum Bjarnanesi í Hornafirði gerði sér lítið fyrir og bar fimm hraustlegum lömbum í gær, sem öll eru svört eins og foreldrar sínir. Ærin er sex vetra en hún var geld þegar hún var gemlingur en hefur fjórum sinnum verið fjórlemd og svo fimmlemd núna.