
Fjármálafyrirtæki

Bankaráðið sakar bankasýsluna um aðdróttanir
Ásakanir um að leiðin sem Landsbankinn fer til að fjármagna kaup á tryggingafélaginu TM hafi verið valin til að komast hjá því að leita samþykkis hluthafafundar eru aðdróttanir, að sögn bankaráðs Landsbankans. Bankinn sé langt yfir eiginfjárkröfum eftir kaupin.

Skorti heildarmynd í Landsbankamálinu
Fjárlaganefnd hefur enn ekki fengið svör frá Fjármálaráðuneytinu um hver samskipti þess og Bankasýslu ríkisins voru í aðdraganda kaupa Landsbankans á TM. Nefndarmaður er svartsýnn á að þau berist. Heildarmynd í málinu liggi enn ekki fyrir.

Hákon nýr öryggisstjóri Arion
Hákon L. Akerlund hefur tekið við starfi öryggisstjóra Arion banka.

Landsbankinn ekki seldur á þessu kjörtímabili
Forsætisráðherra sér ekki fram á að hlutir í Landsbankanum verði seldir á þessu kjörtímabili en það gæti þó orðið á því næsta. Þá hugnast honum ágætlega að Landsbankinn losi sig við tryggingarfélagið TM.

Bankasýslan hafi ekki gert athugasemdir við tilboð í TM
Bankaráð Landsbankans segir að Bankasýslan hafi verið upplýst um áhuga bankans á að kaupa tryggingafélagið TM í desember og ekki gert neinar athugasemdir fyrr en eftir að tilboð bankans var samþykkt. Bankasýslan ætlar að skipta út fimm bankaráðsmönnum á næstu dögum.

Munu skoða að losna strax við TM
Bankasýsla ríkisins mun funda með nýju bankaráði Landsbankans að loknum aðalfundi bankans og leggja áherslu á að ráðið meti kaup bankans á TM og leiti leiða til þess að losna við tryggingafélagið. Fyrrverandi fjármálaráðherra vildi að skoðað yrði hvernig væri hægt að losa um eignarhlutinn eins fljótt og auðið er.

Þriggja mínútna símtal uppfylli ekki skýran samning
Stjórnarformaður Bankasýslunnnar segir alveg skýrt að frumkvæðisskyldan sé á Landsbankanum varðandi upplýsingagjöf. Það sé samningsbundið að Landsbankinn upplýsi Bankasýsluna með formlegum hætti um fyrirhugaða sölu.

Öllu bankaráði Landsbankans skipt út
Bankasýsla ríkisins ákvað á fundi sínum í fyrradag, að fengnum tilnefningum valnefndar, að velja nýja einstaklinga sem verða tilnefndir í bankaráð Landsbankans á aðalfundi hans þann 19. apríl næstkomandi. Til stóð að fimm bankaráðsmenn yrðu tilnefndir til áframhaldandi setu en í ljósi kaupa Landsbankans á TM var hætt við það.

Spá því að verðbólga hjaðni
Ársverðbólga mun hjaðna á ný í apríl og á næstu fjórðungum eftir nokkuð óvænta hækkun síðasta mánaðar, þessu spáir Íslandsbanki í verðbólguspá sinni

Arion áminntur fyrir verklag í skoðun á mögulegum innherjasvikum
Viðurlaganefnd Kauphallarinnar áminnti Arion banka opinberlega í dag fyrir að brjóta þannig gegn reglum hennar að hún gat ekki sinnt eftirliti þegar grunur um möguleg innherjasvik kom upp. Ekki var til upptaka af símtali miðlara við fjárfesti sem Kauphöllin sóttist eftir.

Varhugavert að saka fólk um glæp sem hafi unnið í góðri trú
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segir óskynsamlegan kost fyrir fjármálaráðherra að rifta samningi Landsbankans um kaup á TM, þó hann sé pólitískt sammála því að það sé óréttlætanlegt að ríkið sé að auka umsvif sín áfjármálamarkaði með kaupunum. Slíkt þyrfti að gera eftir að lagaleg atriði riftunar samningsins yrðu skoðuð gaumgæfilega.

Verður samskiptastjóri Skaga
Erla Tryggvadóttir hefur verið ráðin samskiptastjóri Skaga, móðurfélags VÍS, Fossa fjárfestingarbanka og SIV eignastýringar. Hún hefur síðustu ár gegnt stöðu samskiptastjóra VÍS.

Núverandi staða bjóði upp á stýrivaxtalækkun
Varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika telur að hagkerfið sé komið á þann stað að Seðlabankinn geti byrjað að lækka stýrivexti. Ákvörðun sín um að hætta í bankanum tengist þó ekki því að hann var ósammála peningastefnunefnd. Honum hafi einfaldlega boðist spennandi starf.

Bankarnir gætu þurft að hækka útlánakjör til að vega upp tapaðar vaxtatekjur
Ákvörðun peningastefnunefndar um að hækka fasta vaxtalausa bindiskyldu í því skyni að láta lánastofnanir bera hluta af kostnaði sem fylgir gjaldeyrisforðanum mun að óbreyttu þýða tapaðar vaxtatekjur fyrir bankana, að sögn hagfræðings, sem bendir á að Seðlabankinn hafi sjálfur mikinn hag af stórum forða. Aðgerðin styður við peningalegt aðhald en áframhaldandi vöxtur í peningamagni er til marks um að umsvifin séu enn mikil í hagkerfinu.

Fjármálaráðherra segir „lágmarks kurteisi“ að taka fram þegar gullhúða á lög
Fjármála- og efnahagsráðherra sagði að það væri „lágmarks kurteisi“ að tekið væri fram í lagafrumvörpum þegar gengið væri lengra en EES-samningurinn kveði á um. Lagaprófessor sagði að það væri talsvert um að slíkt væri ekki haft upp á borðum. Það væri ólýðræðislegt gagnvart Alþingismönnum. Við þær aðstæður telji þeir að verið sé að innleiða reglur samkvæmt EES-samningum þegar svo sé ekki.

Landsmenn treysta fjármálaráðgjöf minnst allra Evrópuþjóða
Íslendingar bera minnst traust allra íbúa Evrópu til fjármálaráðgjafar fjármálastofnanna. Þá er helmingur allra landsmanna neikvæður gagnvart fjármálakerfinu. Bankastjóri Arion banka telur að fjármálahrunið hafi enn þá áhrif. Hægt sé að snúa þessu við með góðum starfsháttum.

Síðasta vígi norrænna seðla fallið
Landsbanki Íslands hefur hætt kaupum og sölu á norskum krónum og mun frá og með 3. maí 2024 hætta að kaupa og selja sænskar eða danskar krónur.

Hækka lánshæfismat bankanna
Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið S&P Global Ratings (S&P) hækkaði í dag lánshæfismat Íslandsbanka, Landsbankans og Arion banka úr BBB í BBB+. Efnahagslegt ójafnvægi er sagt hafa dvínað og eru horfur stöðugar.

Seðlabankinn dregur úr útlánagetu bankanna
Ákvörðun Seðlabankans um að auka bindiskyldu bankanna dregur úr peningamagni í umferð og getu bankanna til útlána. Seðlabankinn setur aukna bindiskyldu í beint samhengi við kostnaðinn við að eiga mikinn gjaldeyrisforða.

Vill að bankarnir beri einnig kostnað af ábata sem fylgir miklum gjaldeyrisforða
Á sérstökum aukafundi sínum hefur peningastefnunefnd Seðlabankans ákveðið að hækka fasta bindiskyldu á lánastofnanir með það að markmiði að „dreifa betur“ kostnaði við að reka peningastefnuna og treysta fjármögnun gjaldeyrisforðans. Þetta er í annað sinn á innan við ári sem bindiskyldan er hækkuð sem að öðru óbreyttu ætti að minnka svigrúm banka til útlána en hlutabréfaverð þeirra hefur lækkað nokkuð eftir tilkynningu Seðlabankans.

Lækkar óverðtryggða en hækkar verðtryggða
Arion banki hefur breytt inn- og útlánavöxtum bankans frá og með deginum í dag. Óverðtryggðir fastir 3 ára íbúðalánavextir lækka um 0,50 prósentustig og verða 8,95 prósent og verðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækka um 0,25 prósentustig og verða 4,04 prósent.

Hækkuðu bindiskyldu lánastofnana á aukafundi
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka fasta bindiskyldu lánastofnana úr tveimur prósentum í þrjú prósent af bindigrunni. Breytingin tekur gildi við byrjun næsta bindiskyldutímabils, 21. apríl næstkomandi.

Bíður enn svara frá Bankasýslunni og áformar að leggja hana niður
Fjármála-og efnahagsráðherra segir kaup Landsbankans á TM tryggingafélagi í höndum Bankasýslu ríkisins, aðspurð hvort hún ætli að reyna að koma í veg fyrir kaupin. Hún væntir skýringa frá Bankasýslunni á aðkomu stofnunarinnar að kaupunum í næstu viku. Þá standi enn til að leggja Bankasýsluna niður.

Bein útsending: „Að vaxa með þjóðinni – fjármálaþjónusta á Íslandi í 150 ár“
„Að vaxa með þjóðinni – fjármálaþjónusta á Íslandi í 150 ár“ er yfirskrift SFF-dagsins sem haldinn er af Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu og fram fer milli klukkan 15 og 17 í dag. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi í spilara að neðan.

Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka
Formaður Starfsgreinasambandsins segir að betur hefði farið að Íslandbanki lækkaði vexti eða þjónustugjöld viðskiptavina en að gefa starfsfólki sínu rándýra sumargjöf. Bankinn hefur um árabil gefið öllu starfsfólki sínu gjafabréf í sumargjöf.

Hundrað þúsund kall á haus
Íslandsbanki kemur til með að gefa öllum starfsmönnum sínum 100 þúsund króna sumargjöf. Um 700 manns starfa hjá bankanum, og því er um 70 milljóna króna útgjöld fyrir bankann að ræða.

Fundar með Bankasýslunni í dag
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármála- og efnahagsráðherra segir næsta skref hjá sér, vegna kaupa Landsbankans á TM tryggingum, vera að funda með Bankasýslu ríkisins. Boðað hefur verið til fundar um málið í dag.

Bankasýslan þögul sem gröfin
Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Bankasýslu ríkisins, hyggst ekki veita viðtal um fyrirhuguð kaup Landsbankans á TM. Óljóst er hvort Bankasýslan fallist á frásögn formanns bankaráðs af símtali, þar sem hann segist hafa upplýst stjórnarformann Bankasýslunnar um óskuldbindandi tilboð bankans í TM.

Deildar meiningar um hvað sagt var í símtali
Óljóst er hvort formaður bankaráðs Landsbankans hafi minnst á að óskuldbindandi kauptilboð hafi verið gert í TM tryggingar í símtali við stjórnarformann Bankasýslunnar í desember eða hvort tilefni símtalsins hafi verið að ræða tilboðið. Bankasýslan hefur ekki staðfest hvort tilboðið hafi verið rætt í símtalinu, sem formaður bankaráðs fullyrðir.

Ætlar ekki að tjá sig fyrir aðalfund Landsbankans
Tryggvi Pálsson, stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins, ætlar ekki að tjá sig um kaup Landsbankans á TM fyrr en í fyrsta lagi í vikunni fyrir aðalfund Landsbankans. Misræmi hefur verið í frásögn Bankasýslunnar og Landsbankans af því hvert innihald símtals milli Tryggva og formanns bankaráðs Landsbankans í desember var.