
Perú

Stefnir þýskum orkurisa fyrir bráðnun jökla í Andesfjöllum
Niðurstaða þýsks dómstóls í máli perúsks bónda gegn þýsku orkufyrirtæki er talin geta verið fordæmisgefandi um ábyrgð á áhrifum loftslagsbreytinga. Bóndinn krefst þess að orkufyrirtækið taki þátt í flóðvörnum á þeim forsendum að losun þess á gróðurhúsalofttegundum valdi bráðnun jökla í Andesfjöllum.

Lýsa yfir neyðarástandi vegna ofbeldisöldu í höfuðborg Perú
Forseti Perú lýsti yfir neyðarástandi í höfuðborginni Perú vegna vaxandi ofbeldisöldu í gær. Herinn hefur verið ræstur út til þess að ná tökum á ástandinu og samkomu- og ferðafrelsi borgarbúa verður skert næsta mánuðinn.

Varð fyrir eldingu í fótboltaleik en myndbandið er ekki fyrir viðkvæma
Perúskur fótboltamaður lést á sunnudaginn eftir að hafa orðið fyrir eldingu í leik.

Fyrrverandi forseti í tuttugu ára fangelsi fyrir mútuþægni
Dómstóll í Perú dæmdi Alejandro Toledo, fyrrverandi forseta landsins, í tuttugu og hálfs árs fangelsi fyrir mútuþægni í gær. Múturnar sem Toledo þáði tengdust stærsta spillingarmáli sem skekið hefur heimshlutann.

Fujimori er látinn
Alberto Fujimori, fyrrverandi forseti Perú, er látinn, 86 ára að aldri.

Fékk rautt spjald fyrir að pissa
Þau gerast varla sérstakari rauðu spjöldin en það sem fór á loft í leik perúsku bikarkeppninni um helgina.

Forseti Perú kærður fyrir mútuþægni
Ríkissaksóknari í Perú lagði fram kæru til þingsins á hendur Dinu Boluarte, forseta landsins, fyrir mútuþægni í gær. Ásakanirnar tengjast lúxusúrum og skartgripum sem Boluarte ber.

Fjöldadauði sela rakinn til H5N1
Staðfest hefur verið að fjöldadauða sela og sæfíla í suður-Atlantshafi á eyjunni Suður-Gergíu má rekja til þess að þeir smituðust af H5N1.

Fujimori laus úr fangelsi
Alberto Fujimori, fyrrverandi forseta Perú, hefur verið sleppt eftir að hafa afplánað rúmlega fimmtán ár í fangelsi.

Stjórnvöld í Venesúela: Þeir rændu fótboltalandsliðinu okkar
Perú og Venesúela gerðu 1-1 jafntefli í undankeppni HM í vikunni í leik sem fór fram í Lima í Perú. Venesúelamenn hafa nú sakað Perú um að ræna fótboltalandsliði þjóðarinnar.

Slökktu öll ljós á vellinum eftir að erkifjendurnir tryggðu sér titilinn
Það er draumur margra félaga að tryggja sér meistaratitil á heimavelli erkifjendanna. Dæmi í Perú sýnir þó að ef slíkt gerist þá er von á öllu.

Átján ára gamalt sakamál loks að skýrast: Tvö morð með fimm ára millibili upp á dag
Nærri tveimur áratugum eftir að hin átján ára Natalee Holloway hvarf sporlaust á eyjunni Aruba í Suður-Ameríku hefur karlmaður sem lengi lá undir grun um aðild að hvarfi hennar játað að hafa orðið henni að bana.

Heimila þungunarrof 11 ára stúlku sem var nauðgað
Ellefu ára stúlku í Perú hefur verið heimilað að undirgangast þungunarrof, en stjúpfaðir hennar hafði um langt skeið beitt hana kynferðislegu ofbeldi. Kaþólska kirkjan beitti sér gegn því að stúlkan fengi þungunarrof.

Risavaxinn perúskur hvalur líklega þyngsta dýr allra tíma
Bein sem fundust af Perucetus colossus, 39 milljón ára gömlum risahval, benda til þess að hann sé líklega þyngsta dýr allra tíma. Þyngri en steypireyðin sem er núverandi titilhafi.

Besti veitingastaður heims er í Perú
Besti veitingastaður í heimi er í Perú. Þetta var tilkynnt við hátíðlega athöfn í Valencia á Spáni í vikunni. Þetta er í 21. sinn sem besti veitingastaður heims er tilnefndur og í fyrsta sinn sem veitingastaður í Suður-Ameríku hlýtur nafnbótina.

Stálu tvö hundruð skóm en geta ólíklega notað þá
Óprúttnir þjófar hlupu á sig er þeir stálu rúmlega tvö hundruð skóm í borginni Huancayo í Perú á dögunum. Tjónið er sagt vera mikið en það er þó ólíklegt að þjófarnir græði mikið á skónum sem þeir stálu.

Tugir látnir eftir eld í gullnámu í Perú
Að minnsta kosti 27 eru látnir eftir að mikill eldur kom upp í gullnámu í Perú í gær. Um er að ræða mannskæðasta námuslysið í landinu í um tvo áratugi.

Gekk matarlaus og svefnlaus að Machu Picchu vegna mótmæla
Machu Picchu, einum vinsælasta ferðamannastað Perú, var lokað um helgina vegna yfirstandandi mótmæla gegn nýjum forseta landsins. Íslendingur í Perú segir mótmælin hafa víðtæk áhrif og ljóst að mikill ójöfnuður ríki í landinu.

Yfirvöld loka Machu Picchu vegna mótmælanna
Stjórnvöld í Perú hafa lokað einum vinsælasta ferðamannastað landins, Machu Picchu, vegna yfirstandandi mótmæla gegn nýjum forseta landsins. Þau segja ákvörðunina tekna til að vernda ferðamenn og almenna borgara.

Reka mexíkóska sendiherrann úr landi fyrir afskipti
Stjórnvöld í Perú hafa gert mexíkóska sendiherranum að yfirgefa landið innan þriggja sólarhringa eftir að Mexíkó veitti fjölskyldu Pedro Castillo, fyrrverandi forseta, hæli. Castillo er sakaður um að hafa reynt að hefja uppreisn.

Lýsa yfir neyðarlögum vegna mótmælanna í Perú
Ný ríkisstjórn Perú lýsti í dag yfir neyðarlögum vegna ofbeldisfullra mótmæla sem brutust út eftir að Pedro Castillo forseti var vikið úr embætti í síðustu viku. Lögregla fær auknar valdheimildir með lögunum og samkomufrelsi er afnumið.

Dina Boluarte nýr forseti Perú, fyrst kvenna
Nýr forseti er tekinn við í Suður-Ameríkuríkinu Perú eftir að forsetinn fyrrverandi, Pedro Castillo var ákærður fyrir brot í starfi.

Forseti Perú ákærður fyrir spillingu
Saksóknari í Perú hefur ákært forseta landsins, Pedro Castillo, fyrir spillingu. Samkvæmt ákærunni á forsetinn að tilheyra glæpasamtökum, en forsetinn sjálfur neitar sök í málinu.

Fundu fjölda ganga undir ævafornu hofi í Andesfjöllum
Hópur fornleifafræðinga fann net ganga undir Chavín de Huantar-hofinu í Andesfjöllunum í Perú. Hofið sjálft er talið meira en þrjú þúsund ára gamalt en gangarnir enn eldri.

Samþykkja að Fujimori skuli sleppt úr fangelsi
Stjórnlagadómstóll Perú hefur úrskurðað að forsetanum fyrrverandi, Alberto Fujimori, skuli sleppt úr fangelsi. Hann hefur setið í fangelsi frá árinu 2007 eftir að hafa verið dæmdur í 25 ára fangelsi eftir að hafa verið sakfelldur fyrir glæpi gegn mannkyni.

Tólf þúsund olíutunnur láku úr olíuhreinsunarstöð í Perú
Olíuleki í Perú er sagður mun umfangsmeiri en upprunalega var gert ráð fyrir. Lekinn er sagður náttúruharmleikur en milljónir sjávardýra og fugla hafa dáið frá því að lekinn varð.

Faldi milljónir á klósettinu í forsetahöllinni
Jafnvirði rúmlega 2,6 milljóna íslenskra króna fannst falið á baðherbergi skrifstofustjóra forseta Perú í forsetahöllinni í Lima þegar saksóknarar gerðu húsleit þar fyrir helgi. Skrifstofustjórinn er til rannsóknar fyrir spillingu og sagði af sér á föstudag.

Castillo lýsir yfir sigri í Perú
Pedro Castillo hefur lýst yfir sigri í forsetakosningum í Perú. Andstæðingur Castillo, Keiko Fujimori, hefur sakað hann um kosningasvindl.

Castillo lýsir yfir sigri en Fujimori vill ógilda fjölda atkvæða
Talning atkvæða stendur en yfir eftir forsetakosningarnar í Perú. Mjög mjótt er á munum en vinstrimaðurinn Pedro Castillo hefur þegar lýst yfir sigri á meðan andstæðingur hans, hægrimaðurinn Keiko Fujimori, hefur farið fram á að hundruð þúsunda atkvæða verði úrskurðuð ógild.

Mjótt á munum í Perú
Talning atkvæða stendur nú yfir í Perú en forsetakosningar fóru fram í landinu í gær. Keiko Fujimori hefur naumt forskot á andstæðing sinn, Pedro Castillo, þegar 90 prósent atkvæða hafa verið talin.