
Nígería

Þrjátíu og fimm börn tróðust undir á jólahátíð
Að minnsta kosti 35 börn eru látin eftir að hafa troðist undir á jólahátíð í Ibadan í Nígeríu í gær. Forsvarsmenn hátíðarinnar höfðu lofað peningaverðlaunum og mat fyrir gesti en íbúar segja rúmlega fimm þúsund börn hafa mætt, auk foreldra og annarra.

Nígería ætlar að sniðganga leikinn gegn Líbíu
William Troost-Ekong, fyrirliði nígeríska fótboltalandsliðsins, segir að það ætli að sniðganga leikinn gegn Líbíu vegna illrar meðferðar. Leikmenn Nígeríu hafa verið fastir á flugvelli í Líbíu í tæpan sólarhring.

Landsliði Nígeríu haldið í gíslingu á flugvelli án matar og drykkjar
Leikmenn nígeríska landsliðsins segja að þeim hafi verið haldið í gíslingu á flugvelli í Líbíu í aðdraganda leiks liðanna í undankeppni Afríkukeppninnar í fótbolta.

Um 200 bíða þess að vera flutt af landi í þvinguðum brottflutningi
Á lista stoðdeildar ríkislögreglustjóra eru 227 verkbeiðnir um þvingaðan brottflutning einstaklinga. Þar af er verið að afla ferðaskilríkja fyrir 58 einstaklinga. Síðustu tólf mánuði hafa alls 188 einstaklingar verið fluttir á brott í þvinguðum flutningi til margra ólíkra landa.

Safna til að koma konunum í varanlegt skjól í Nígeríu
Hópur fólks stendur nú fyrir söfnun til að aðstoða þrjár nígerískar konur sem var vísað úr landi fyrr í þessum mánuði. Konurnar fengu allar endanlega synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd fyrir um ári síðan og voru fluttar á brott í þvinguðum brottflutningi.

Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu
Íslandsdeild Amnesty International fordæmir brottvísanir íslenskra stjórnvalda á umsækjendum um alþjóðlega vernd sem eru mansalsþolendur og hvetur stjórnvöld til að endurskoða stefnu sína er varðar umsækjendur um alþjóðlega vernd sem eru þolendur mansals. Vinna er hafin í dómsmálaráðuneytinu við nýja aðgerðaráætlun um mansal.

Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“
Jódís Skúladóttir, þingkona Vinstri grænna, hefur óskað eftir því að fulltrúar Útlendingastofnunar, kærunefndar útlendingamála og ríkislögreglustjóra komi á fund allsherjar- og menntamálanefndar til að ræða um brottvísun þriggja nígerískra kvenna í fyrradag. Konurnar hafa allar lýst því að vera þolendur mansals.

Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu
Seint í gær var fjórum nígerískum ríkisborgurum vísað úr landi. Einn þeirra var hinn tvítugi Precious Felix Tanimola. Hann hefur verið á Íslandi í um tvö ár, var með atvinnuleyfi og er giftur íslenskri konu. Eiginkona hans segir brottvísun hans mikið áfall.

Fulltrúar Stígamóta reyna að tryggja öryggi kvennanna í Nígeríu
Talskona Stígamóta segir íslenska ríkið brjóta alþjóðasáttmála með því að vísa þolendum mansals úr landi og tryggja ekki öryggi þeirra á viðkomustað. Fjórum nígerískum ríkisborgurum, þar af þremur konum, var flogið til Frankfurt seint í gær. Fulltrúar Stígamóta vinna að því að tryggja öryggi þeirra.

Fjórum nígerískum ríkisborgurum flogið til Frankfurt
Fjórum nígerískum ríkisborgurum, þar af þremur konum, var flogið af landi brott seint í gær. Auk þeirra var einn karlmaður með í för. Öll höfðu þau fengið endanlega synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd á Íslandi.

„Erum hér í kvöld svo þetta gerist ekki í þögn“
Hópur fólks mótmælir nú við Keflavíkurflugvöll vegna yfirvofandi brottvísunar þriggja nígerískra kvenna. Útlendingastofnun hafnaði seinni partinn í dag beiðni lögmanns um frestun brottvísunar einnar þeirra, Blessing Uzoma Newton, af heilsufarsástæðum.

Veikindi Blessing ekki nógu mikil til að fresta brottvísun
Helgi Þorsteinsson Silva lögmaður segir það mikil vonbrigði að Útlendingastofnun ætli ekki að verða við beiðni hans um að fresta brottvísun Blessing Uzoma Newton af heilsufarsástæðum. Hann á von á því að Blessing og konurnar hinar tvær sem eru í haldi verði fluttar úr landi í kvöld.

Um 280 börnum rænt í bænum Kuriga í Nígeríu
Byssumenn á mótorhjólum hafa rænt yfir 280 skólabörnum í bænum Kuriga í Kaduna í Nígeríu. Nemendurnr höfðu safnasta saman á samkomustað í gær þegar mennirnir mættu vopnaðir á svæðið og tóku börnin með sér og einn kennara.

Yfir 700 hjúkrunarfræðingar grunaðir um svindl
Rannsókn stendur yfir á Bretlandseyjum þar sem grunur leikur á að yfir 700 hjúkrunarfræðingar hafi greitt milligönguaðila fyrir að taka próf í Nígeríu, til að tryggja sér leyfi til að starfa á Bretlandi.

Stórstjarnan með magakveisu daginn fyrir undanúrslitaleik
Nígeríumenn hafa miklar áhyggjur af aðalstjörnu liðsins þegar liðið er aðeins einum leik frá því að komast í úrslitaleik Afríkukeppninnar í knattspyrnu.

Heimsþekktur og dáður predikari reyndist úlfur í sauðagæru
Rannsókn BBC hefur leitt í ljós fjölda ásakana um pyntingar og nauðganir TB Joshua, leiðtoga einnar stærstu kristnu kirkju heims. Tugir meðlimir safnaðar Synagogue Church of all Nations (Scoan), hafa stigið fram og lýst hroðaverkum trúarleiðtogans.

Hundrað látnir í átökum hirðingja og bænda
Meira en hundrað manns hafa látið lífið í átökum hirðingja og bænda í Plateauhéraði Nígeríu um helgina. Átök milli stéttanna eru algeng á svæðinu.

Gætu tekið forseta Níger af lífi
Herforingjastjórnin sem rændi völdum í Níger í síðasta mánuði segist ætla að rétta yfir forsetanum Mohamed Bazoum fyrir landráð. Verði Bazoum fundinn sekur gæti hann verið tekinn af lífi að sögn breska fréttamiðilsins The Guardian.

Þolendur mansals sviptar öllum réttindum og vísað á götuna
Tvær konur á flótta óttast að lenda á götunni á morgun. Báðar eru þolendur mansals og hafa verið á Íslandi um árabil. Þær hafa verið sviptar öllum réttindum eftir að þær fengu endanlega synjun um alþjóðlega vernd.

Vörðu tveimur vikum á stýri flutningaskips
Lögregluþjónar í Brasilíu björguðu nýverið fjórum mönnum frá Nígeríu sem vörðu tveimur vikum á stýri flutningaskips. Þeir kláruðu matarbirgðir sínar og vatn á tíunda degi en héldu lífi með því að drekka sjó.

Vestur-Afríkuríki hóta hernaðaraðgerðum
Þúsundir stuðningsmanna herforingjastjórnarinnar sem framdi valdarán í vestur-Afríkuríkinu Níger í síðustu viku þustu út á götur höfuðborgarinnar Niamey og fögnuðu hinni nýju stjórn. Önnur vestur-Afríkuríki undirbúa inngrip með hernaðaraðgerðum.

Hundrað manns talin af eftir að bát hvolfdi í Nígeríu
Hundrað manns hið minnsta eru talin hafa látist eftir að bát hvolfdi á Nígerfljóti í Kwara-fylki í Nígeríu snemma í gærmorgun. Fimmtán hafa þegar verið staðfestir látnir.

Tinubu verður forseti Nígeríu
Bola Tinubu, frambjóðandi stjórnarflokksins APC í Nígeríu, verður næsti forseti Nígeríu. Niðurstöður kosninganna voru staðfestar í nótt en alls voru átján manns í framboði.

Tinubu leiðir en deilt um talningu í nígerísku forsetakosningunum
Nígeríumenn bíða enn eftir að fá skýra mynd af því hvernig atkvæði féllu í forsetakosningunum sem fram fóru um helgina. Búið er að birta niðurstöður í fjórtán af 36 ríkjum og er Bola Tinubu, frambjóðandi stjórnarflokksins APC og fyrrverandi ríkisstjóri Lagos, með um 44 prósent atkvæða þar sem niðurstöður liggja fyrir. Þar er þó um að ræða lágt hlutfall af heildarfjölda atkvæða.

Rúmlega sex hundruð látnir eftir flóð í Nígeríu
Rúmlega sex hundruð hafa látið lífið vegna flóða í Nígeríu síðustu daga. Flóðunum hefur verið lýst sem þeim verstu í landinu í áratug.

Konur og börn flest þeirra sem fórust í ferjuslysi í Nígeríu
Að minnsta kosti 76 fórust þegar ferju hvolfdi í Anambra-ríki í suðausturhluta Nígeríu á föstudag. Flest þeirra látnu voru konur og börn sem voru að reyna að komast undan flóðum sem hafa gert á svæðinu.

Tuttugu létust í rútuslysi í Nígeríu
Að minnsta kosti tuttugu létust í rútuslysi í suðvestur Nígeríu í gær. Yfirvöld segja að slysið megi rekja til hraðaksturs.

Nígerískar landsliðskonur í verkfall vegna launadeilna
Nígería mun spila um þriðja sætið á Afríkumóti kvenna í fótbolta en leikmenn liðsins hafa ákveðið að sleppa því að mæta á æfingu vegna launadeilna við knattspyrnusambands landsins. Það er ekki í fyrsta skipti sem það gerist.

Framkvæmdastjóri OPEC látinn
Mohammad Barkindo, framkvæmdastjóri Samtaka olíuframleiðsluríkja, OPEC, er látinn, 63 ára að aldri. Nígeríumaðurinn Barkindo hafði gegnt stöðunni frá árinu 2016, en hann hugðist láta af störfum síðar í þessum mánuði.

Lengdu bannið hennar í ellefu ár
Nígeríska spretthlaupakonan Blessing Okagbare verður í banni í rúmlegan áratug eftir að bann hennar var lengt í gær.