Viðskipti

Fréttamynd

Óbreyttir stýrivextir í Bretlandi

Stjórn Englandsbanka ákvað í dag að halda stýrivöxtum í Bretlandi óbreyttum í 4,75 prósentum. Ákvörðunin kemur ekki á óvart enda bjuggust flestir greiningaraðilar við þessari niðurstöðu.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Og Vodafone heitir Vodafone á Íslandi

Og fjarskipti ehf. (Og Vodafone), dótturfélag Dagsbrúnar, hefur gert samning við alþjóðlega farsímafélagið Vodafone Group um nánara samstarf og samnýtingu vörumerkis. Og Vodafone mun því hér eftir heita Vodafone á Íslandi og verða vörur og þjónusta fyrirtækisins markaðsett undir vörumerki Vodafone.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Glitnir spáir Kaupþingi yfir 39 milljarða hagnaði

Greiningardeild Glitnis spáir því að Kaupþing banki hafi hagnist um 39,3 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi. Þetta kemur fram í afkomuspá Glitnis sem kom út í dag. Gangi spáin eftir er um mesta hagnað í sögu nokkurs íslensks félags á einum ársfjórðungi.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Dow Jones í nýjum hæðum

Bandaríska hlutabréfavísitalan Dow Jones setti enn á ný met við lokun markaða vestanhafs í gær. Þetta er annar dagurinn sem lokagengi vísitölunnar nær sögulegum hæðum.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Ryanair vill Aer Lingus

Írska lággjaldaflugfélagið Ryanair hefur gert tilboð í allt hlutafé írska flugfélagsins Aer Lingus. Tilboðið hljóðar upp á 1,48 milljarða evrur eða tæplega 130 milljarða íslenskra króna. Ryanair hefur þegar keypt 16 prósent í flugfélaginu. Forstjóri Ryanair segir þetta einstakt tækifæri til að byggja upp eitt sterkt flugfélag á Írlandi.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Starfsfólk Icelandair áhugasamt fyrir skráningu.

Skráning Icelandair Group í Kauphöll Íslands og hlutafjársala til fjárfesta og starfsmanna leggst vel í Jón Karl Ólafsson, forstjóra félagsins. Jón Karl finnur fyrir miklum áhuga starfsmanna og telur að stór hluti þeirra muni taka þátt í verkefninu. „Það verður einnig jákvætt að fá inn breiðan hóp hluthafa sem stendur þá við bakið á fyrirtækinu og tekur það áfram inn í framtíðina.“

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Færast nær yfirtöku á House of Fraser

Fjárfestahópurinn Highland Acquisitions náði mikilvægum áfanga á leið sinni til yfirtöku á House of Fraser á þriðjudaginn. Þá lagði stór hluti eigenda HoF blessun sína yfir tillögu stjórnar um að samþykkja yfirtökutilboð frá Highland.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Jarðboranir kaupa Sæþór

Jarðboranir hf., dótturfélag Atorku Group, hefur keypt allt hlutafé í verktakafyrirtækinu Sæþór ehf., ásamt tækjakosti og búnaði. Kaupverð nemur 130 milljónum króna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Viðræðum bílarisa slitið

Rick Wagoner, forstjóri bandaríska bílaframleiðandans General Motors (GM) og Carlos Ghosn, forstjóri bílaframleiðendanna Nissan og Renault, slitu viðræðum um mögulegt samstarf í dag. Bandaríska dagblaðið The Wall Street Journal segir forstjórana hafa greint á um of margt.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Nýr fjárfestingarbanki á Akureyri

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson hefur yfirgefið herbúðir Kaupþings, en hann gegndi stöðu framkvæmdastjóra eigin viðskipta bankans. Með honum hverfur á braut hópur starfsmanna úr stöðutöku bankans. Þorvaldur segir hópinn taka þátt í stofnun fyrirtækis í fjármálaþjónustu með höfuðstöðvar á Akureyri.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hluthafar BAE styðja sölu til EADS

Meirihluti hluthafa í breska hergagnaframleiðandanum BAE voru fylgjandi því á hluthafafundi í fyrirtækinu í morgun að selja 20 prósent hlutafjár félagsins í Airbus til EADS, móðurfélags flugvélaframleiðandans.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Líkur á óbreyttum vöxtum

Líkur eru sagðar á því að peningamálanefnd Englandsbanka ákveði að halda stýrivöxtum óbreyttum en bankinn tilkynnir á morgun hvort breytingar verði gerðar á stýrivaxtastigi í Bretlandi. Búist er við að bankinn hækki stýrivexti í 5 prósent í næsta mánuði.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Enn fleiri rafhlöður innkallaðar

Japanski tölvuframleiðandinn Fujitsu hefur bæst í hóp þeirra fyrirtækja sem hafa ákveðið að innkalla rafhlöður frá Sony, sem seldar voru með fartölvum fyrirtækisins. Um 287.000 rafhlöður er að ræða að þessu sinni, sem verða innkallaðar í varúðarskyni.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Tafir á afhendingu risaþota frá Airbus

Mörg af stærstu flugfélögum í heimi munu vera að endurskoða pantanir sínar á A380 risaþotum eftir að stjórn EADS, móðurfélags evrópska flugvélaframleiðandans Airbus, greindi frá því að afhending á risaþotunum myndi dragast fram á haustið 2007.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Stöð 2 verði efld

Efling ljósvakamiðla 365 er meðal þess sem stjórnendur Dagsbrúnar horfa til nú þegar unnið er að uppskiptingu félagsins í tvo hluta, 365 hf. og Teymis hf. Er þar aðallega horft til Stöðvar 2 þar sem stjórnendur félagsins sjá aukna vaxtarmöguleika en alls mun einn þriðji hluti eigna Dagsbrúnar falla í fjölmiðlahlutann.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Samdráttur hjá 3i Group

Breski fjárfestingasjóðurinn 3i, sem sérhæfir sig í yfirtökum á skráðum félögum, greindi frá því að fjárfestingatekjur hans hefðu fallið um þriðjung frá því í apríl til loka ágúst miðað við sama tímabil í fyrra.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

SPRON lýkur við fjármögnun

SPRON hefur lokið við fjármögnun upp á 90 milljónir evra, sem samsvara átta milljörðum króna, en sökum mikllar eftirspurnar fjárfesta var ákveðið að sækja meira fé út á markaðinn.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hallinn dregst hratt saman

Viðskiptahallinn mun fara í 18,7 prósent í ár og dragast svo hratt saman á næsta ári. Þá mun hann mælast 11 prósent af landsframleiðslu en fjögur prósent árið 2008. Lækkun á gengi krónunnar á þessu ári mun hjálpa til við þessa þróun. Þetta er meðal þess sem kom fram í nýrri þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Halda aftur af verðbólgu

Hlutfall útlendinga af heildarvinnuafli er nú 5,5 prósent og hefur það nær þrefaldast frá árinu 1998. Á morgunverðarfundi KB banka í gær, þar sem sýn bankans á þróun efnahagsmála á næstu misserum var kynnt, kom fram að innflutningur fólks hafi orðið til þess að breyta gríðar­legri aukningu í heildareftirspurn í hagkerfinu í hagvöxt sem líklega hefði ella sprungið út mun fyrr með verðbólgu. Þeir stuðli þar að auki að því að verðbólga muni ganga hratt niður á árinu 2007.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Lendingin verður mismjúk

Íbúar á höfuðborgarsvæðinu munu finna mest fyrir áhrifum samdráttar í hagkerfinu. Í nýrri efnahagsspá KB banka er gert ráð fyrir 0,2 prósenta samdrætti í hagvexti á næsta ári.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Síldarvinnslan í breytingum

Síldarvinnslan hf. og Garðar Guðmundsson hf., sem gerir út ms Gudmund Ólaf ÓF, verða sameinuð á næstunni í kjölfar þess að Síldarvinnslan keypti um 20 prósenta hlut í félaginu. Fyrir átti Síldarvinnslan um 80 prósenta hlut í félaginu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Laxaverðið lækkar

Verð á eldislaxi hefur lækkað talsvert á Evrópumarkaði frá því í sumar. Síðustu vikurnar hefur verðið lækkað um 26-27 prósent. Fiskifréttir hafa eftir norsku vefsíðunni Kynt.no að verð á eldislaxi hafi í síðustu viku verið að jafnaði 27,43 norskar krónur á kíló eða um 293,50 íslenskar krónur. Það er 25,5 króna lækkun á milli vikna. Verð á eldislaxinum fór hæst í 44,50 krónur á kíló að meðaltali um hvítasunnuna síðustu en síðan þá hefur verðið lækkað um 38 prósent.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hagkerfið í Færeyjum vex

Danski Seðla­bankinn býst áfram við áfram­haldandi framþróun í færeyska hagkerfinu. Eftir nokkur samdráttarár sýnir færeyska hagkerfið framfarir. Þetta sést sérstaklega á hækkandi launum og umbótum á vinnumarkaði. Hagvöxtur er drifinn áfram af háu fiskverði og vaxandi fjárfestingu í fasteignum.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Krónan sögð til trafala

Á morgunfundi Viðskiptaráðs var þeirri spurningu velt upp hvort krónan væri á útleið bakdyramegin og evra að koma í staðinn. Rædd var virkni peningamálastefnu Seðlabankans.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fjárfestar erlendis eiga helming íslenskra ríkisskuldabréfa

Fjárfestar sem búsettir eru erlendis áttu íslensk ríkisskuldabréf fyrir 51 milljarð íslenskra króna að markaðsvirði í lok júlí. Þetta nemur helmingi íslenskra ríkisskuldabréfa á móti eign innlendra aðila. Þetta er talsverð aukning á milli ára en á svipuðum tíma í fyrra áttu fjárfestar með búsetu erlendis 27 prósent ríkisskuldabréfa að verðmæti 24 milljarða íslenskra króna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Tæp tvöföldun á veltu

Heildarvelta Kauphallar Íslands það sem af er ári nam 3.082 milljörðum króna. Lítið vantar upp á að þetta sé tvöfalt meiri velta en á sama tíma í fyrra því heildarvelta á fyrstu níu mánuðum síðasta árs nam 1.630 milljörðum króna og nemur munurinn 89 prósentum. Þá jók skráning Exista í Kauphöllina í september heildarvirði skráðra félaga um tíu prósent.

Viðskipti innlent