Viðskipti

Fréttamynd

Með breiðþotu til Frisco

Flugleiðir ætla að hefja áætlunarflug til San Francisco næsta vor. Flugleiðir munu samhliða því taka í notkun breiðþotu af gerðinni Boeing-767 sem tekur 270 farþega. Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða segir þessa útvíkkun leiðakerfisins marka ákveðin tímamót.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Óskar hættur hjá Og Vodafone

Samkomulag hefur orðið á milli Óskars Magnússonar, forstjóra Og Vodafone (Og fjarskipta hf.), og stjórnar félagsins um að Óskar láti af störfum forstjóra. Viðar Þorkelsson, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Og Vodafone, mun gegna starfi forstjóra tímabundið.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Íslandsbanki með 90%

Íslandsbanki hefur fengið samþykki yfir nítíu prósenta hluthafa í norska bankanum Kredittbanken. Þetta þýðir að innlausnarskylda hefur myndast og aðrir hluthafar þurfa að ganga að yfirtökutilboði Íslandsbanka.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

6,1 milljarðs halli á ríkissjóði

6,1 milljarðs króna halli varð á rekstri ríkissjóðs á síðasta ári samanborið við 8,1 milljarðs króna halla árið á undan. Þetta kemur fram í niðurstöðutölum ríkisreiknings fyrir árið 2003 sem birtar voru í dag. Tekjur ársins urðu 275 milljarðar króna en gjöldin námu 281 milljarði króna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Samkeppni við Google harðnar

Bóksalinn Amazon opnaði fyrir skömmu nýja leitarvél á slóðinni a9.com. Leitin þar byggist á svipaðri tækni og Google. Viðmótið er einfalt en til viðbótar upplýsingum í textaformi sýnir leitarvél Amazon einnig þær myndir sem vélin finnur á vefnum og geta tengst leitinni.

Erlent
Fréttamynd

Þarf samþykki Fjármálaeftirlitsins

Samþykki Fjármálaeftirlitsins þarf til þess að kaup Straums á ríflega fjórtán prósenta hlut í Íslandsbanka standist. Deilt er um hvað liggur að baki viðskiptunum, ýmist er talað um að Landsbankamenn ætli sér bakdyrameginn inn í Íslandsbanka eða að þeir séu að breiða yfir vandræðagang vegna misheppnaðra tilrauna til að ná þar yfirráðum. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Algengt gigtarlyf tekið af markaði

Í ljós hefur komið að gigtarlyfið Vioxx getur valdið aukinni hættu á hjarta- og æðabilun. Framleiðandi lyfsins tilkynnti í gær að hætt yrði að selja lyfið. Á bilinu eitt þúsund og fimm hundruð og tvö þúsund Íslendingar taka lyfið Vioxx reglulega.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Halli vöruskipta 6,7 milljarðar

Halli á vöruskiptum við útlönd heldur áfram að vaxa hröðum skrefum og nam 6,7 milljörðum króna í síðasta mánuði en var aðeins átta hundruð milljónir í sama mánuði í fyrra. Hann er því um það bil sjö sinnum meiri núna. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

KB hefur eignast FIH

KB banki hefur eignast danska bankann FIH og þar með meira en tvöfaldað stærð efnahagsreiknings síns. Í tilkynningu til Kauphallarinnar segir að kaupverðið, 7292 milljónir danskra króna, hafi verið greiddar Swedbank, seljanda bankans.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hagnaðurinn yfir tíu milljarðar

Íslandsbanki birti óvænt í dag tölur yfir hagnað sinn fyrstu átta mánuði ársins. Hagnaður bankans var 10,6 milljarðar króna samkvæmt óendurskoðuðu uppgjöri. Bankaráð Íslandsbanka ákvað á fundi sínum í gær að auka hlutafé bankans um 200 milljónir króna að nafnvirði, ríflega tvo milljarða að markaðsvirði.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Sjónvarpsstjóra í hvern sófa

Íslenska fjarskiptafyrirtækið Industria stendur fyrir ráðstefnu um fjarskiptamál í næstu viku. Í sjónmáli eru miklar breytingar á því hvernig fólk getur notfært sér sjónvarp, síma og Internet. Spádómar tæknifrömuða í lok síðustu aldar eru handan við hornið. </font /></b />

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Reglum Kauphallarinnar breytt?

Forstjóri Kauphallar Íslands segir að samkvæmt verklagsreglum hafi verið opnað á ný fyrir viðskipti með hlutabréf Kaldbaks á fimmtudag, þrátt fyrir að endanleg niðurstaða lægi ekki fyrir um sameiningu fyrirtækisins og Burðaráss.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Líflegt á hlutabréfamarkaði

Líflegt var á hlutabréfamarkaði í dag en veltan nam 13,8 milljörðum króna. Þar af voru stór viðskipti með bréf Kaldbaks og Samherja sem tengjast sameiningu Burðaráss og Kaldbaks að því er segir í tilkynningu greiningardeildar Landsbankans.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Samson hagnaðist um 600 milljónir

Samson Holding, eignarhaldsfélag í eigu Björgólfsfeðga, hagnaðist um tæpar sex hundruð milljónir króna í viðskiptum með bréf í Kaldbaki í gær. Kaupfélag Eyfirðinga varð um leið af hagnaði sem nam sömu fjárhæð.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Útvörður Norðlendinga farinn

Norðlendingar stýra ekki lengur neinu stóru fjárfestingarfélagi eftir að Kaldbakur rann inn í Burðarás í gær, en Kaldbakur hafði verið einskonar útvörður Norðlendinga á þessu sviði.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Stjórnin einhuga um Símann

Jón Sveinsson, formaður einkavæðingarnefndar, segir stjórnarflokkana einhuga um hvernig standa skuli að sölu Símans. Hann lítur svo á að sú ákvörðun, að heppilegast sé að selja fyrirtækið í einu lagi, standi óhögguð. Auglýst verður eftir ráðgjafa vegna sölunnar um eða eftir helgi.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Handbók um sérleyfisfyrirtæki

Út er komin handbók um stofnun og rektur sérleyfisfyrirtækja. Emil B. Karlsson, verkefnastjóri hjá Samtökum verslunar og þjónustu, ritaði bókina og afhenti Valgerði Sverrisdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, fyrsta eintakið á þriðjudag.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Stimpilgjald hvergi eins og hér

Samtök atvinnulífsins hafa látið kanna stimpilgjöld í nágrannalöndum okkar. Íslendingar eru í sérflokki þegar litið er til þessa skatts og bitnar gjaldið á einstaklingum og smærri fyrirtækjum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Íslendingar vinna lengi

Hærra hlutfall karlmanna á aldrinum 55 til 64 ára er á vinnumarkaði á Íslandi en nokkurs staðar annars staðar í OECD-ríkjunum. Um 95 prósent manna í þessum hópi eru þátttakendur í atvinnulífinu hér en næstmest er atvinnuþátttakan í Japan, tæplega 85 prósent.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Kvartað til Samkeppnisstofnunar

Fréttavefurinn vísir.is sendi í gær formlega kvörtun til Samkeppnisstofnunar vegna auglýsinga mbl.is, þar sem fullyrt er að mbl.is "sé stærsti smáauglýsingavefurinn". Visir.is telur að með fullyrðingunni sé brotið í bága við 21. gr. samkeppnislaga, enda sé villt um fyrir neytendum með fullyrðingu sem ekki eigi við rök að styðjast.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hækkar vexti óverðtryggðra lána

KB banki hefur ákveðið að hækka vexti óverðtryggðra inn- og útlána frá og með deginum í dag. Vaxtabreytingin er gerð í kjölfar tilkynninga Seðlabankans um hækkun stýrivaxta að því er segir í tilkynningu frá KB banka.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Kærir mbl.is fyrir samkeppnisbrot

Frétt ehf. sem á og rekur vefsetrið visir.is hefur sent Samkeppnisstofnun formlegt erindi vegna meintra brota Morgunblaðsins á samkeppnislögum. Frétt ehf. telur að fullyrðingar í auglýsingum sem birst hafa í Morgunblaðinu vegna vefseturs blaðsins, brjóti í bága við 21. grein samkeppnislaga.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Bréf Big Food Group féllu

Hlutabréf í bresku verslanakeðjunni Big Food Group, sem Baugur íhugar að kaupa, féllu um 4,25 pens á markaði í gær eða niður í 98,5 pens. Bréfin höfðu hækkað í verði vegna fyrirhugaðra kaupa Baugs á 110 pens fyrir hvern hlut.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fjárfestar trúa á OZ

Fyrirtækið Oz gekk í gær frá samningi um kaup Vantagepoint Venture Partners á hlutabréfum í OZ fyrir um tvo milljarða króna. Oz er afsprengi Oz.com sem miklar vonir voru bundnar við, en fyrirtækið varð gjaldþrota eftir að netbólan sprakk.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

15 ný störf KB banka á Akureyri

Störfum á Akureyri fjölgar um allt að fimmtán þegar KB banki færir bakvinnslu sína norður. KB banki á Akureyri tekur við allri bakvinnslu, þeirri starfsemi sem fer fram á bak við, og ekki fyrir augum viðskiptavina bankans.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Lækka verðtryggða vexti

Landsbankinn hefur ákveðið að lækka verðtryggða útláns- og innlánsvexti sína frá og með morgundeginum. Verðtryggðir útlánsvextir bankans lækka um 0,25 prósentustig.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Lítil áhrif á lánin

Vaxatahækkanir Seðlabankans munu ekki hafa mikil áhrif á lánakjör einstaklinga. Einna helst er líklegt að vextir á skammtímalánum, svo sem eins og yfirdráttar- og kortalán, muni hækka í takt við ákvarðanir Seðlabankans. Ný íbúðalán bankanna breytast líklega ekki þótt Seðlabankinn hækki stýrivexti sína.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Strandhögg víkinganna

"Hvaða víkingur gerði strandhögg á Íslandi árið 2004? Svar: Baugur." Þannig leggur einn af pistlahöfundum viðskiptadagblaðsins Financial Times út af áhuga Baugs á Big Food Group, sem á meðal annars smásölufyrirtækið Iceland.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Yfirtaka hjá Baugi?

Vangaveltur eru um það í bresku viðskiptalífi að Baugur stefni að yfirtöku í bresku verslunarkeðjunni Big Food Group, en fregnir ytra herma að breska fyrirtækið eigi þegar í viðræðum um hugsanlegt tilboð.

Viðskipti innlent