Almannavarnir
8 9 10 11 12 13 14 15 16 … 38 ›
Markmiðið að hlúa að íbúum eftir áfall síðustu daga Viðbúið er að rýmingum verði aflétt í miklum mæli á Austfjörðum í dag en ekki er útlit fyrir að hægt verði að aflétta alls staðar strax. Mikil úrkoma er á svæðinu samhliða hlýindum og hafa flóð fallið nokkuð víða. Lögreglustjóri á Austurlandi segir markmiðið nú vera að hlúa að íbúum en ljóst sé að langtímaáhrif séu áföllum sem þessum. Innlent 31.3.2023 12:38
Víðtækar lokanir þjóðvega í strandbyggðum Austfjarða Appelsínugul viðvörun er enn í gildi á Austfjörðum og er áfram talin mikil hætta á snjóflóðum og krapaflóðum. Almannavarnir hafa í dag gripið til frekari rýminga í Neskaupstað og á Eskifirði. Þá hafa hús einnig verið rýmd í Mjóafirði, Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði, auk Seyðisfjarðar. Innlent 30.3.2023 21:42
Flóð fallið nokkuð víða og enn frekari rýmingar í Neskaupstað Ákveðið hefur verið að grípa til enn frekari rýminga í Neskaupstað vegna hættu á ofanflóðum en rýmingar eru þegar í gildi á nokkrum stöðum. Veður virðist vera að ná hámarki en appelsínugular viðvaranir eru í gildi vegna mikillar úrkomu. Flóð hafa verið að falla nokkuð víða í dag að sögn yfirlögregluþjóns á Austurlandi. Innlent 30.3.2023 18:24
Rýma fleiri hús á Eskifirði Búið er að lýsa yfir hættuástandi vegna ofanflóða á Eskifirði og verið að rýma hús þar. Rýmingin gildir frá klukkan fjögur í dag, þar til hún er felld niður. Innlent 30.3.2023 15:24
Ráðast í rýmingar á Stöðvarfirði og á Fáskrúðsfirði Veðurstofan hefur vegna hættuástands vegna ofanflóða ákveðið rýmingu á reitum 4 á Stöðvarfirði og reit 7 Fáskrúðsfirði. Innlent 30.3.2023 13:35
Munu líklega grípa til frekari rýminga vegna hættu á flóðum Líklega verður farið í frekari rýmingar á Austfjörðum eftir hádegi vegna slæmrar veðurspár. Helsta áhyggjuefnið núna eru möguleg krapaflóð og aurskriður en það bætist við snjóflóðahættu sem einnig er á svæðinu og hafa einhver flóð fallið í morgun. Yfirlögregluþjónn hjá almannavörnum segir mikilvægt að fólk sýni sérstaka aðgát. Innlent 30.3.2023 12:28
Hvetja íbúa fyrir austan að huga að niðurföllum Lögreglan á Austurlandi biðlar til íbúa að huga að niðurföllum en búist er við því að úrkoma þar nái hámarki síðar í dag. Í tilkynningu segir að allar varúðarráðstafanir vegna snjóflóðahættu og annars séu enn til staðar. Innlent 30.3.2023 10:00
Tvöhundruð manns viðbúin að hefja björgun ef kallið kemur Almannavarnir hafa enn aukið viðbúnað sinn á Austfjörðum vegna mjög slæmrar veðurspár næsta sólarhring og mikillar hættu á snjóflóðum. Hættuástand er áfram í gildi á Seyðisfirði, Eskifirði og í Neskaupstað. Innlent 29.3.2023 22:20
Frekari rýmingar á Seyðisfirði og áfram enginn skóli í Neskaupstað Veðurstofan hefur ákveðið að rýma skuli að nýju hús á reit 14 á Seyðisfirði í varúðarskyni frá klukkan 21 í kvöld. Von er á mikilli snjókomu. Innlent 29.3.2023 14:10
Viðvörunin orðin appelsínugul á Austfjörðum Veðurstofan hefur breytt veðurviðvöruninni á Austfjörðum úr gulri í appelsínugula. Viðvörunin tekur gildi klukkan 19 í kvöld en von er á mikilli snjókomu á svæðinu. Veður 29.3.2023 11:13
Gular viðvaranir og mjög mikil snjóflóðahætta á Austfjörðum næstu daga Gul viðvörun er í gildi á Suðurlandi og Suðausturlandi og verður til klukkan ellefu á fyrrnefnda svæðinu en til tíu á hinu. Í landshlutanum er austan stormur og snjókoma og mjög snarpar vindhviður eins og undir Eyjafjöllum og vestan Öræfa. Veður 29.3.2023 07:16
Ekki útlit fyrir að rýmingum verði aflétt næstu daga Ekki er útlit fyrir að rýmingum verði aflétt á næstunni en rýmingar í Neskaupstað, Seyðisfirði og á Eskifirði eru enn í gildi. Mikil snjóflóðahætta er enn á svæðinu og því útlit fyrir að rýmingar haldi næstu daga. Níu gistu í fjöldahjálparstöðinni í Neskaupstað í nótt. Innlent 28.3.2023 12:07
Aflétta rýmingu á svæði 18 í Neskaupstað Ákveðið hefur verið að aflétta rýmingu á svæði 18 í Neskaupstað sem gripið var til vegna snjóflóðahættu í bænum í gær. Rýming gærdagsins er að öðru leyti enn í fullu gildi, það er á svæði 4, 6, 16 og 17 í Neskaupstað og sömuleiðis á Seyðisfirði og Eskifirði. Innlent 28.3.2023 12:04
Ummerki um fleiri flóð Snjóathugunarmenn Veðurstofunnar eru byrjaðir að skoða aðstæður á Austfjörðum eftir snjóflóð gærdagsins. Ummerki eru um að fleiri snjóflóð hafi fallið fyrir ofan Neskaupstað en þau sem vart varð við í gær. Innlent 28.3.2023 09:52
„Fólkinu líður eðlilega illa, þetta er mikið áfall“ Að minnsta kosti þrjú snjóflóð féllu í morgun í Neskaupstað og síðan þá hafa önnur flóð fallið fyrir austan. Fjölmargir viðbragðsaðilar hafa streymt austur og eru til taks ef fleiri flóð verða. Að sögn lögreglustjórans á Austurlandi líður fólki á svæðinu illa. Innlent 27.3.2023 21:14
Fara af neyðarstigi á hættustig Þegar snjóflóð féllu á Neskaupstað í morgun var neyðarstigi Almannavarna lýst yfir. Nú hefur ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Austurlandi ákveðið að fara af neyðarstigi niður á hættustig. Innlent 27.3.2023 19:15
Mættir austur með tryllitæki Að minnsta kosti þrjú snjóflóð féllu í Neskaupstað í Norðfirði í morgun. Björgunarsveitarmenn hafa fjölmennt þangað og í önnur bæjarfélög á svæðinu til að hjálpa og vera til taks ef önnur snjóflóð falla. Innlent 27.3.2023 17:49
Brýnt að ljúka ofanflóðavörnum: „Þetta sýnir þörfina svo vel“ Bæjarstjóri Fjarðabyggðar segir snjóflóðin sem féllu í Neskaupstað í morgun skiljanlega hafa áhrif á íbúa en flestir þekki söguna af mannskæða flóðinu 1974. Mikilvægi þess að ljúka ofanflóðavörnum í bænum hafi bersýnilega komið í ljós í morgun og bæjarstjóri segir þau vinna að málinu með íbúum sem ein heild. Innlent 27.3.2023 12:31
Sjötíu viðbragðsaðilar á leið með flugi austur: „Það er mjög mikil snjóflóðahætta á svæðinu“ Rýming stendur yfir vegna minnst þriggja snjóflóða sem féllu í Neskaupstað í Norðfirði í morgun og taka þær til 160 húsa. Eitt flóðanna féll á fjölbýlishús í bænum og eru tíu slasaðir, enginn alvarlega. Leitarhundar eru á leið austur með þyrlu Landhelgisgæslunnar auk sjötíu viðbragðsaðila sem fara með flugi á svæðið í dag. Mikil snjóflóðahætta er á svæðinu og neyðarstigi almannavarna lýst yfir. Innlent 27.3.2023 12:21
Fólki mjög brugðið og ýfir upp gömul sár Íbúum í Neskaupstað er mjög brugðið eftir snjóflóðin í morgun, að sögn íbúa í bænum. Fjöldi fólks hefur komið sér fyrir í fjöldahjálparstöð í Egilsbúð. Flóðin ýfa upp gömul sár eftir mannskæð snjóflóð fyrir fjórum áratugum. Innlent 27.3.2023 11:22
Lýsir hvernig hurðin „sprakk“ og snjór ruddist inn Íbúi á annarri hæð húss við Starmýri í Neskaupstað segir snjóflóðið sem féll úr Nesgili í morgun hafa náð inn í íbúðina og fjölskyldumeðlimir orðið fastir inni í herbergi. Fjölskyldumeðlimir hafi meiðst lítillega. Innlent 27.3.2023 11:06
Það sem skal gera við rýmingu Lögreglan á Austurlandi hefur birt tilmæli á Facebook-síðu sinni um hvað skal gera við rýmingu. Unnið er að því að rýma hús bæði í Neskaupstað og á Seyðisfirði. Innlent 27.3.2023 09:37
Neyðarstigi Almannavarna lýst yfir vegna flóðanna Neyðarstigi Almannavarna hefur verið lýst yfir vegna snjóflóðanna sem féllu í Norðfirði í morgun. Hjördís Guðmundsdóttir upplýsingafulltrúi Almannavarna segir að verið sé að reyna að ná yfirsýn yfir ástandið. Innlent 27.3.2023 08:43
Snjóflóð féll á fjölbýlishús í Neskaupstað og verið að rýma fjölda húsa Að minnsta kosti tvö snjóflóð féllu í Neskaupstað í Norðfirði í morgun og vitað er að annað þeirra féll á fjölbýlishús við Starmýri í bænum. Gluggar hafa brotnað og bílar henst til. Verið er að rýma mikinn fjölda húsa í bænum vegna snjóflóðahættu og hefur neyðarstigi Almannavarna verið lýst yfir. Innlent 27.3.2023 08:13
Snjóflóð féll í Norðfirði og búið að rýma eitt hús Snjóflóð féll í Norðfirði í nótt vestan leiðigarða við Urðarteig í nótt. Flóðið fór yfir Strandgötu og í sjó fram. Verið er að rýma eitt hús. Innlent 27.3.2023 07:27
Óvissustigi vegna Covid aflýst Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við sóttvarnalækni ákveðið að aflýsa óvissustigi Almannavarna vegna heimsfaraldurs Covid-19. Frá 27. janúar 2020 hafa ýmis almannavarnastig verið í gildi en er þar um að ræða óvissu-, hættu og neyðarstig. Innlent 23.3.2023 13:23
Óvissustigi Almannavarna aflýst Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórana á Vestfjörðum, Vesturlandi, Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra hefur aflýst óvissustigi Almannavarna í fyrrgreindum umdæmum. Innlent 12.2.2023 11:18
Óvissustig Almannavarna vegna veðurs Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjóra lýst yfir óvissustigi Almannavarna á Vestfjörðum, Vesturlandi, Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra vegna veðurs sem fram undan er. Innlent 10.2.2023 18:21
„Seinasta sem við viljum er að vera úlfur, úlfur týpan“ Von er á vonskuveðri og almannavarnir hafa lýst yfir óvissustigi á landinu öllu í fyrramálið. Appelsínugular viðvaranir verða í gildi alls staðar nema á Vestfjörðum í fyrramálið. Fólk er hvatt til þess að fylgjast vel með og reyna eftir fremsta megni að fresta ferðum sínum á meðan veðrið gengur yfir. Veður 6.2.2023 23:10
Stífla veldur hækkandi vatnshæð í Norðurá Vatnshæð hefur farið hækkandi í Norðurá í Borgarfirði í nótt. Innlent 6.2.2023 08:11