Íþróttir

Fréttamynd

Íslendingar töpuðu fyrir Frökkum

Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði fyrir Frökkum 31-27 í æfingaleik í Laugardalshöll í kvöld, eftir að staðan hafði verið 13-12 fyrir Frakka í hálfleik. Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur í íslenska liðinu með 9 mörk. Liðin eigast við að nýju á laugardaginn.

Sport
Fréttamynd

Villeneuve ánægður með nýja bílinn

Ökuþórinn Jacques Villeneuve er mjög ánægður með nýja BMW-Sauber bílinn sem hann reynsluók í fyrsta sinn í dag og segist viss um að bíllinn eigi eftir að gera góða hluti á komandi keppnistímabili.

Sport
Fréttamynd

Frakkar yfir í hálfleik

Frakkar hafa eins marks forystu gegn Íslendingum í æfingaleik sem stendur yfir í Laugardalshöllinni og er staðan 13-12 fyrir Frakka í hálfleik. Birkir Ívar Guðmundsson hefur verið besti leikmaður íslenska liðsins í hálfleiknum og hefur varið 12 skot, en Guðjón Valur Sigurðsson hefur skorað 4 mörk og Sigfús Sigurðsson og Einar Hólmgeirsson hafa skorað 2 mörk hvor.

Sport
Fréttamynd

Lofum engum sæti í liðinu

Martin Jol, stjóri Tottenham, hefur viðurkennt að honum þyki súrt að missa af þeim Wayne Bridge og Theo Walcott til Fulham og Arsenal eins og útlit er fyrir, en Tottenham hafði mikinn áhuga á að fá báða þessa leikmenn í sínar raðir.

Sport
Fréttamynd

Annríki hjá Keflvíkingum

Landsbankadeildarlið Keflavíkur í karla- og kvennaflokki gengu í dag frá samningum við hvorki meira né minna en fimmtán leikmenn í dag. Hjá karlaliðinu bar hæst að þeir Þórarinn Kristjánsson og Hörður Sveinsson sömdu við félagið, en talið var líklegt að Hörður kæmist að hjá liði erlendis.

Sport
Fréttamynd

Guðjón Valur framlengir við Gummersbach

Landsliðsmaðurinn Guðjón Valur Sigurðsson hefur framlengt samning sinn við þýska úrvalsdeildarliðið Gummersbach til ársins 2009. Guðjón hefur farið á kostum með liðinu í vetur og hefur verið markahæsti leikmaður úrvalsdeildarinnar undanfarnar vikur. Kóreumaðurinn Shin Yoon hefur hinsvegar neitað að framlengja samning sinn við félagið og leikur því ekki með Gummersbach á næstu leiktíð.

Sport
Fréttamynd

Breskir fjölmiðlar ættu að skammast sín

Fyrrum knattspyrnuhetjan og núverandi knattspyrnustjóri Wolves, Glenn Hoddle, segir að breskir fjölmiðlar ættu að skammast sín fyrir meðferð sína á Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfara Englendinga. Eriksson hefur verið harðlega gagnrýndur af bresku pressunni undanfarið, en því er ekki að neita að hart hefur verið vegið að honum.

Sport
Fréttamynd

Wayne Bridge farinn til Fulham

Chelsea hefur samþykkt að lána varnarmanninn Wayne Bridge til Fulham út leiktíðina, en Bridge hefur lítið sem ekkert fengið að spreyta sig með Chelsea í vetur þó hann sé inni í myndinni hjá enska landsliðinu. Bridge sagðist fagna þessu tækifæri og vonast nú til að geta tryggt sér sæti í landsliðinu í sumar með því að fá meira að spila hjá Fulham.

Sport
Fréttamynd

Ísland mætir Frökkum í kvöld

Íslenska handboltalandsliðið leggur nú lokahönd á undirbúning sinn fyrir EM í Sviss og í kvöld mæta íslensku strákarnir fyrnasterku liði Frakka í Laugardalshöllinni klukkan 20. Þetta er fyrri leikur liðanna, en sá síðari verður á laugardaginn.

Sport
Fréttamynd

Stórleikur í Njarðvík

Þrettánda umferð Iceland Express-deildar karla í körfubolta klárast í kvöld með fimm leikjum. Stórleikur kvöldsins er viðureign toppliðs Njarðvíkur og KR í Njarðvík, en auk þess verður viðureign Skallagríms og Keflavíkur í Borgarnesi væntanlega hörkuspennandi. Grindavík tekur á móti Þór, Snæfell mætir ÍR og loks fá Fjölnismenn Hauka í heimsókn í Grafarvoginn.

Sport
Fréttamynd

Hewitt úr leik

Þriðji stigahæsti tennisleikarii heims, Lleyton Hewitt, féll úr leik í dag á opna ástralska meistaramótinu í tennis, þegar hann tapaði fyrir Argentínumanninum Juan Ignacio Chela í annari umferð mótsins í æsilegum leik 6-4, 6-4, 6-7 (8-10) og 6-2. Hewitt hefur átt við ökklameiðsli að stríða að undanförnu, en andstæðingur hans þurfit einnig að glíma við smávægileg meiðsli í leik þeirra í dag.

Sport
Fréttamynd

Spáir Ullrich sigri á Tour de France

Hjólreiðakappinn Lance Armstrong frá Bandaríkjunum spáir að Þjóðverjinn Jan Ullrich komi til með að vinna Frakklandshjólreiðarnar í sumar. Ullrich hefur verið einn helsti keppinautur Armstrong undanfarin ár, en á að baki einn sigur í keppninni fyrir níu árum síðan.

Sport
Fréttamynd

Fullkomin byrjun fyrir Cassano

Ítalski framherjinn Antonio Cassano átti sannkallaða draumabyrjun með liði sínu Real Madrid í gærkvöldi þegar hann skoraði sigurmark liðsins á útivelli í 1-0 sigri á Real Betis í spænska bikarnum.

Sport
Fréttamynd

Loeb bjartsýnn fyrir Monte Carlo

Heimsmeistarinn í rallakstri, Frakkinn Sebastien Loeb, er bjartsýnn á að geta unnið þriðja titil sinn í röð á næsta keppnistímabili, þrátt fyrir að þurfa að keppa fyrir einkaaðila á árinu eftir að lið Citroen ákvað að hætta að reka lið í heimsmeistarakeppninni.

Sport
Fréttamynd

Hljóp upp í áhorfendastæði til varnar eiginkonu sinni

Furðulegt atvik átti sér stað í leik Chicago Bulls og New York Knicks í NBA deildinni í nótt, þegar Antonio Davis hjá New York spratt skyndilega upp í áhorfendastæðin í átt til konu sinnar af ótta við að maður væri að ógna henni.

Sport
Fréttamynd

Fiorentina býður í Kroldrup

Ítalska liðið Fiorentina hefur gert Everton tilboð í danska varnarmanninn Per Kroldrup, en sá danski hefur fá tækifæri fengið með enska liðinu síðan hann kom til félagsins frá Udinese fyrir 5 milljónir punda síðasta sumar, enda hefur hann átt við erfið meiðsli að stríða.

Sport
Fréttamynd

Neitaði tilboði Fulham í Taylor

Úrvalsdeildarlið Portsmouth neitaði í dag 1,2 milljón punda tilboði Fulham í vængmanninn Matthew Taylor, því félagið vildi fá hærri upphæð fyrir leikmanninn. Portsmouth hafði gefið það út að til greina kæmi að selja Taylor til að safna peningum, en nú er ljóst að ekkert verður af því í bili.

Sport
Fréttamynd

Íhugaði að yfirgefa Arsenal

Thierry Henry hefur viðurkennt í samtali við franska blaðið L´equipe að hann hafi íhugað að fara frá Arsenal, en hann ákvað fyrir skömmu að vera áfram hjá liðinu og mun undirrita nýjan samning við félagið á næstunni.

Sport
Fréttamynd

Kaupir David Thompson

Nýliðar Wigan í ensku úrvalsdeildinni fengu í dag til sín miðjumanninn David Thompson frá Blackburn, en Thompson hefur fá tækifæri fengið með liði sínu í vetur eftir að hafa barist við þrálát meiðsli. Wigan tekur við samningi hans út árið. Þá er talið víst að Wigan muni ganga frá samningi við hinn lítt notaða Neil Mellor hjá Liverpool fljótlega.

Sport
Fréttamynd

Detroit valtaði yfir Atlanta

Efsta lið NBA deildarinnar, Detroit Pistons var ekki í vandræðum með Atlanta Hawks á útivelli í nótt og sigraði 117-89. Chauncey Billups skoraði 23 stig í jöfnu liði Detroit, en Al Harrington skoraði 21 stig fyrir Atlanta. Detroit hefur unnið 31 leik og tapað aðeins 5 í vetur.

Sport
Fréttamynd

Walcott á leið til Arsenal

BBC greindi frá því nú fyrir skömmu að unglingurinn Theo Walcott væri í þann mund að ganga til liðs við Arsenal frá Southampton fyrir um 12,5 milljónir punda og ef hann stenst læknisskoðun gætu kaupin klárast á morgun.

Sport
Fréttamynd

Gattuso fer ekki til Man. Utd.

Forráðamenn AC Milan segja ekkert til í þeim sögusögnum sem eru að bendla miðjumanninn Gennaro Gattuso við sölu til Manchester United nú í janúar.

Sport
Fréttamynd

Verðum að stöðva Rooney

Xabi Alonso, spænski miðjumaðurinn hjá Liverpool, segir að leikmenn liðsins verði að hafa hemil á Wayne Rooney og Ruud van Nistelrooy ætli þeir sér að bera sigur út býtum í viðureign liðanna um helgina.

Sport
Fréttamynd

Federer lítur vel út

Svisslendingurinn Roger Federer stefnir hraðbyri á enn einn sigurinn á árinu en í nótt sigraði hann Þjóðverjann Florian Mayer örugglega á ástralska meistaramótinu í tennis, 6-1, 6-4 og 6-0.

Sport
Fréttamynd

Pierce féll úr keppni í nótt

Mary Pierce frá Frakklandi féll úr keppni á Opna ástralska meistaramótinu í tennis í nótt þegar hún beið í lægri hlut fyrir ungum Tékka.

Sport
Fréttamynd

Gabri líklega til Middlesbrough

Allt útlit er fyrir að Middlesbrough sé að vinna kapphlaupið um spænska miðjumanninn Gabri, sem hefur hug á því að komast burt frá Barcelona.

Sport
Fréttamynd

Houston - Dallas í beinni

Í kvöld verður á dagskrá Texasslagur á NBA TV á Digital Ísland, þegar Houston Rockets tekur á móti Dallas Mavericks. Það eina sem þessi lið eiga sameiginlegt í dag er að vera frá Texas, því gengi þeirra hefur verið gjörólíkt í vetur. Leikurinn hefst klukkan 1:30 eftir miðnætti.

Sport
Fréttamynd

Auðvelt hjá toppliðunum

Topplið Hauka og Grindavíkur unnu þægilega sigra í Iceland Express-deild kvenna í körfubolta í kvöld. Grindavík lagði ÍS 84-66 í Grindavík, þar sem Jerica Watson skoraði 28 stig og hirti 15 fráköst og Hildur Sigurðardóttir var með 24 stig, 19 fráköst og 6 stoðsendingar.

Sport
Fréttamynd

Grótta og Valur í undanúrslit

Grótta og Valur eru komin í undanúrslit í SS-bikarkeppni kvenna í handbolta. Grótta vann nokkuð óvæntan sigur á Stjörnunni 20-19 eftir framlengdan leik, en þessi lið mættust einmitt í úrslitaleik keppninnar í fyrra þar sem Stjarnan stóð uppi sem sigurvegari. Valsstúlkur lögðu Fram 31-25.

Sport
Fréttamynd

Auðveldur sigur Manchester United

Manchester United burstaði Burton Albion 5-0 í enska bikarnum á Old Trafford í kvöld. Rossi skoraði tvö mörk fyrir United og þeir Richardson, Giggs og Saha skoruðu eitt mark hver. Þá tryggði Tim Cahill Everton sigur á Milwall í hinum leik kvöldsins í bikarnum.

Sport