Sport

Gabri líklega til Middlesbrough

Hefur verið í spænska landsliðinu en nánast aldrei átt fast sæti hjá Barcelona
Hefur verið í spænska landsliðinu en nánast aldrei átt fast sæti hjá Barcelona

Allt útlit er fyrir að Middlesbrough sé að vinna kapphlaupið um spænska miðjumanninn Gabri, sem hefur hug á því að komast burt frá Barcelona.

Samkvæmt fjölmiðlum í Bretlandi eru viðræður komnar vel á veg en þó er ekki komið á hreint hvort að Gabri komi til félagsins á næstu dögum fyrir lítin pening eða hvort hann komi í sumar og þá án greiðslu.

West Ham var einnig á höttunum á eftir Gabri en hann er talinn hrifnari að því að ganga til liðs við Boro þar sem það sé félag sem hefur komið sér vel fyrir í úrvalsdeildinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×