Sport

Fullkomin byrjun fyrir Cassano

Antonio Cassano fagnaði fyrsta marki sínu fyrir Real Madrid innilega í gær
Antonio Cassano fagnaði fyrsta marki sínu fyrir Real Madrid innilega í gær NordicPhotos/GettyImages

Ítalski framherjinn Antonio Cassano átti sannkallaða draumabyrjun með liði sínu Real Madrid í gærkvöldi þegar hann skoraði sigurmark liðsins á útivelli í 1-0 sigri á Real Betis í spænska bikarnum.

"Ég hefði ekki geta beðið um betri byrjun," sagði þessi fyrrum leikmaður Roma, sem hefur átt við erfið meiðsli að stríða í vetur. "Áhorfendurnir voru að senda mér tóninn og kölluðu mig fitubollu, en ég lét það ekki á mig fá, enda er mikilvægast að við næðum að vinna leikinn. Ég er auðvitað ekki í mínu besta formi því ég hef ekki spilað í einn mánuð, en ég verð ekki lengi að koma mér í toppform á ný," sagði Cassano.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×