Innlendar

Fréttamynd

Benedikt sterkasti maður Íslands hjá IFSA

Kraftajötuninn Benedikt Magnússon vann í dag sigur í keppninni um sterkasta mann Íslands hjá IFSA-sambandinu annað árið í röð, en keppt var í Smáralindinni. Benedikt hlaut 41 stig í efsta sæti, annar varð Georg Ögmundsson með 38 stig og nýliðinn Pétur Bruno Thorsteinsson varð þriðji með 31 stig.

Sport
Fréttamynd

Þriðji sigur Róberts í röð

Róbert Fannar Halldórsson og Rósa Jónsdóttir urðu í dag Íslandsmeistarar í skvassi. Íslandsmótið fór fram um helgina í húsakynnum Veggsports við Stórhöfða. Rósa Jónsdóttir sigraði í kvennaflokki.

Sport
Fréttamynd

Björgvin og Dagný sigursæl

Skíðamóti Íslands lauk í Hlíðarfjalli á Akureyri í dag en mótið hefur staðið yfir síðan á fimmtudag. Fátt var um óvænt úrslit í alpagreinunum. Dalvíkingurinn Björgvin Björgvinsson varð Íslandsmeistari í stórsvigi karla og hann hampaði einnig Íslandsmeistaratitli í svigkeppninni.

Sport
Fréttamynd

Þórshamar stigameistari í Kata

Íslandsmeistaramótið í kata fór fram í íþróttahúsi Hagaskóla í gær. Nýr Íslandsmeistari var krýndur í kvennaflokki. Rúmlega 40 keppendur frá 16 ára aldri voru skráðir á mótið. Kata er röð fyrirfram ákveðinna hreyfinga sem iðkandinn þarf að framkvæma í réttri röð, á réttum hraða og með réttum áherslum.

Sport
Fréttamynd

Magnús Ver fór á kostum í bjórauglýsingu (myndband)

Magnús Ver Magnússon, fyrrum fjórfaldur sterkasti maður heims, sýndi lipra takta þegar hann lék í auglýsingu fyrir ameríska bjórinn Coors. Myndband af auglýsingunni er nú að finna á netinu og hægt er að horfa á það með því að smella á hlekk hér í fréttinni.

Sport
Fréttamynd

Feitur fimmtudagur á Sýn

Íþróttaáhugamenn fá svo sannarlega nóg fyrir sinn snúð á rásum Sýnar næstu daga. Í kvöld og annað kvöld verður það Meistaradeild Evrópu sem ber hæst, en á fimmtudaginn verður líka mikið fjör á stöðinni. Þar verður boðið upp á leik í Evrópukeppni félagsliða, úrslitakeppnina í Iceland Express deildinni og svo Masters mótið í golfi.

Sport
Fréttamynd

Evrópublak lesbía á Íslandi í fyrsta sinn

Um páskahelgina verður Evrópublakmót lesbía haldið á Íslandi í fyrsta sinn. Mótið fer fram í íþróttahöll Fylkis dagana 7.-8. apríl og þar munu etja kappi um 100 konur frá löndum eins og Bretlandi, Hollandi, Þýskalandi og Íslandi. Það er blaklið KMK sem stendur fyrir mótinu sem er nú haldið í 19. sinn.

Sport
Fréttamynd

Ragnheiður í 34. sæti

Sundkonan Ragnheiður Ragnarsdóttir úr KR varð í nótt í 34. sæti í 50 metra skriðsundi á HM í Melbourne í nótt. Ragnheiður kom í mark á tímanum 26,67 sekúndum og var hársbreidd frá Íslandsmeti sínu en náði ekki í undanúrslitin.

Sport
Fréttamynd

Örn í 49. sæti

Sundkappinn Örn Arnarson hafnaði í 49. sæti af 169 keppendum í undanrásum í 100 metra skriðsundi á heimsmeistaramótinu í sundi í Melbourne í Ástralíu í nótt. Örn synti á 50.60 sek. og var aðeins 13/100 úr sek. frá eigin Íslandsmeti. Þrjú heimsmet féllu á mótinu í morgun.

Sport
Fréttamynd

Ríkisstjórnin stofnar ferðasjóð

Ríkisstjórn Íslands hefur komið á fót ferðasjóði íþróttafélaga í landinu. Ferðakostnaður er eitt helsta áhyggjumál íþróttafélaga og hefur komið harðlega niður á rekstri þeirra í gegnum árin.

Sport
Fréttamynd

Örn setti Íslandsmet en komst ekki í úrslit

Sundmaðurinn Örn Arnarson náði ekki að komast í úrslit í 50 flugsundi í HM í Ástralíu, en hann lenti í 7. sæti í sínum milliriðli. Örn setti Íslandsmet í undanrásunum í morgun þegar hann synti á 24,02 sekúndum en í milliriðlinum synti hann á 24,34 sekúndum.

Sport
Fréttamynd

Boris og félagar óvinsælir í Íran

Kraftakeppni var aflýst í Íran eftir að norskur keppandi gekk fram af siðgæðislögreglu landsins. Hann lyfti tveimur konum upp, eins og kraftajötna er von og vísa, og hlaut bágt fyrir. Kristinn Óskar Haraldsson "Boris" segir að mótið hafi verið blásið af og allir jötnarnir hvattir til að fara úr landi hið fyrsta.

Sport
Fréttamynd

Áhorfendabekkirnir á hafsbotni

Íslandsmótið í áhaldafimleikum stendur nú sem hæst í Fimleikahúsi Ármanns í Laugardalnum. Mótið hefur gengið prýðilega en þó var aðstaða fyrir áhorfendur ekki jafn góð og til stóð, því áhorfendabekkir sem pantaðir voru sérstaklega fyrir mótið lentu í skipsháska.

Sport
Fréttamynd

Rúnar Kristinsson í KR?

Rúnar Kristinsson, fyrrum landsliðsmaður í knattspyrnu og núverandi atvinnumaður hjá Lokeren í Belgíu, er við það að ganga í raðir KR og mun leika með liðinu í Landsbankadeildinni í sumar. Steingrímur Sævarr Ólafsson, ritstjóri Íslands í dag, heldur þessu fram á bloggsíðu sinni og segir ekki langt að bíða þar til tilkynnt verður opinberlega um komu Rúnars í Vesturbæinn.

Fótbolti
Fréttamynd

Stjarnan bikarmeistari í karlaflokki

Stjarnan varði bikarmeistaratitil sinn í handbolta karla í dag með því að sigra Íslandsmeistara Fram með afar sannfærandi hætti í Laugardalshöllinni, 27-17. Frábær varnarleikur og mögnuð frammistaða Roland Vals Eradze í markinu lagði grunninn að stórsigri Stjörnunnar, en landsliðsmarkvörðurinn varði 27 skot.

Handbolti
Fréttamynd

Eradze fer á kostum í Höllinni

Stjarnan er með örugga forystu, 16-9, í hálfleik gegn Fram í bikarúrslitaleik liðanna í Laugardalshöllinni. Ljóst er að það bíður Frömurum verðugt verkefni í síðari hálfleik að vinna upp muninn en Roland Valur Eradze í marki Stjörnunnar hefur reynst leikmönnum liðsins erfiður ljár í þúfu í fyrri hálfleik. Eradze hefur varið alls 14 skot.

Handbolti
Fréttamynd

Haukastúlkur bikarmeistarar í fjórða sinn

Haukastúlkur tryggðu sér sigur í SS-bikarkeppni kvenna í dag með því að bera sigurorð af Gróttu í úrslitaleik í Laugardalshöllinni, 25-22. Sigur Hauka var sanngjarn en liðið hafði yfirhöndina allan leikinn, ef fyrstu 10 mínúturnar eru undanskildar. Þetta er í fjórða sinn í sögunni sem Haukastúlkur verða bikarmeistarar.

Handbolti
Fréttamynd

Þorey Edda kominn í gang á ný

Stangarstökkvarinn Þórey Edda Elíasdóttir stökk 4,25 metra á sínu fyrsta móti í 18 mánuði í Þýskalandi í gærkvöldi. Þórey Edda segist á bloggsíðu vera mjög sátt með árangur sinn á mótinu og að axlarmeiðslin hafi ekki háð henni að viti. Það gerðu hins vegar eymslu í hásinum, sem urðu á endanum til þess að Þórey Edda hætti keppni.

Sport
Fréttamynd

Haukar í góðri stöðu í hálfleik

Haukastúlkur hafa forystu gegn Gróttu, 12-10, þegar flautað hefur verið til hálfleiks í úrslitaleik liðanna í SS-bikarkeppni kvenna í handbolta. Grótta byrjaði mun betur í leiknum og náði meðal annars 3-0 foyrustu, en eftir því sem liðið hefur á hálfleikinn hafa Haukar smám saman náð yfirhöndinni.

Handbolti
Fréttamynd

Fluttur á sjúkrahús með höfuðáverka

Um helgina fór fram bikarmót í áhaldafimleikum í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal. Sveitir Gerplu fóru með sigur af hólmi í frjálsum æfingum í karla- og kvennaflokki. Einn keppandinn úr karlaflokki Gerplu, Róbert Kristmannsson, fór heldur illa í afstökki af svifrá.

Sport
Fréttamynd

Selfoss heldur Landsmótið árið 2012

Björn B. Jónsson, formaður UMFÍ, tilkynnti á 85. héraðsþingi HSK um helgina að Selfoss muni halda 27. landsmót UMFÍ sem fer fram árið 2012. 25. landsmótið fer fram í Kópavogi nú í sumar og 26. mótið er á Akureyri árið 2009.

Sport
Fréttamynd

Njarðvík hafði betur í toppslagnum gegn KR

Njarðvíkingar þurfa einn sigur til viðbótar til að tryggja sér deildarmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla í körfubolta eftir sigur á helstu keppinautunum í KR í kvöld, 83-73. Njarðvík er nú komið með 34 stig eftir 19 leiki en næstu lið, KR og Skallagrímur, eru með 30. Alls eru leiknar 22 umferðir.

Körfubolti
Fréttamynd

Sigurður valdi 20 stúlkur

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu, hefur valið 20 stúlkur til að taka þátt í Algarve-mótinu í knattspyrnu sem hefst í Portgúal þann 5. mars nk. Átta leikmenn Vals eru í hópi Sigurðar.

Fótbolti
Fréttamynd

Skallagrímur vann í Grindavík

Skallagrímur lætur ekki sitt eftir liggja í toppbaráttunni í Iceland Express-deild karla í körfubolta. Í kvöld vann liðið nauman útisigur á Grindavík, 84-83, og náði þar með KR-ingum að stigum í öðru sæti deildarinnar. Snæfell er einnig í hópi efstu liða en í kvöld vann liðið góðan útisigur á Tindastóli, 73-104. Tveir aðrir leikir fóru fram í kvöld.

Körfubolti
Fréttamynd

HK upp að hlið Valsmanna í DHL-deildinni

HK komst upp að hlið Valsmanna á toppi DHL-deildar karla þegar liðið bar sigurorð af Akureyri í Digranesi í dag, 31-23. Framarar unnu öruggan sigur á ÍR, 43-34, og Stjarnan sigraði Fylki í Garðabænum, 27-24, í öðrum leikjum dagsins.

Handbolti
Fréttamynd

Jafntefli hjá Val og Haukum í Laugardalshöllinni

Valur og Haukar skildu jöfn, 27-27, í leik liðanna í DHL-deild karla í handbolta í Laugardalshöllinni í dag. Valsmenn mega vera ánægðir með að hafa hlotið annað stigið í leiknum en Haukar höfðu lengst af 3-4 marka forystu í síðari hálfleik. Valur er með 21 stig á toppi deildarinnar en HK, sem er í öðru sæti með 19 stig, á leik til góða gegn Akureyri á morgun.

Handbolti
Fréttamynd

Níu leikmenn á skýrslu hjá kvennaliði ÍBV

Toppliðin í DHL-deild kvenna í handbolta, Stjarnan og Valur, gerðu engin mistök í leikjum sínum í dag. Stjarnan vann yfirburða sigur á ÍBV, 40-19, og Valur vann tíu marka sigur á FH, 34-24. Aðeins níu leikmenn voru á leikskýrslu hjá ÍBV.

Handbolti