Erlendar
214 215 216 217 218 219 220 221 222 … 264 ›
Enn tapar New York New York Knicks tapaði enn einum leiknum í nótt þegar liðið lá á heimavelli fyrir Houston Rockets 93-89. Jamal Crawford skoraði 24 stig fyrir New York, en Tracy McGrady skoraði 23 fyrir Houston. Sport 6.2.2006 11:13
Grönholm sigraði í Svíþjóð Finnski ökuþórinn Marcus Grönholm sigraði nokkuð örugglega í sænska rallinu um helgina og hefur því unnið sigur á fyrstu tveimur mótum ársins með Ford-liðinu. Heimsmeistarinn Sebastien Loeb veitti honum góða keppni um helgina, en þurfti að sætta sig við annað sætið að þessu sinni. Sport 6.2.2006 11:01
Gagnrýnir vinnubrögð Arsenal Hollenski sóknarmaðurinn Dennis Bergkamp segir skrítið að forráðamenn félagsins hafi ekki hugsað fyrir því að finna mann til að fylla skarð Patrick Vieira áður en þeir seldu hann til Juventus í sumar og segir Vieira hafa verið mikilvægari liðinu en nokkur gerir sér grein fyrir. Sport 6.2.2006 10:38
Steelers unnu Ofurskálina Pittsburgh Steelers lögðu Seattle Seahawks 21-10 í úrslitaleiknum í ameríska fótboltanum í nótt, en leikurinn fór fram í Detroit og var sýndur í beinni útsendingu á Sýn. Þetta var fyrsti titill Steelers síðan árið 1980 og fimmti titillinn í sögu liðsins. Sport 6.2.2006 10:28
Robben hlýtur að vera hálsbrotinn Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool segir að það sé alltaf erfitt að lenda undir gegn góðu liði eins og Chelsea sem vann 2-0 í viðureign liðanna á Stamford Bridge. Hann var hins vegar æfur út í Arjen Robben sem fiskaði markvörð Liverpool, Jose Reina út af með rautt spjald. "...Ég þarf að drífa mig á spítalann því Robben hlýtur að vera þar..." José Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea þvertekur fyrir að fara í orðaleik við Benitez. "Ég hef ekki áhuga á því sem Rafa segir..." Sport 5.2.2006 22:59
Loksins tapaði Barcelona Barcelona tapaði í kvöld á heimavelli sínum fyrir Atlético Madrid, 1-3 í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Þetta er fyrsta tap liðsins eftir að hafa unnið 18 leiki í röð í öllum keppnum. Fernando Torres skoraði tvisvar fyrir gestina en Henrik Larsson gerði eina mark heimamanna sem eru efstir með 52 stig, 9 stiga forskot á Valencia. Sport 5.2.2006 20:41
Abramovich tengist hugsanlegri morðrannsókn Glæsiskúta í eigu hins moldríka rússneska eiganda Chelsea, Roman Abramovich, er nú vettvangur hugsanlegrar morðrannsóknar á Nýja Sjálandi. Skútan sem er 150 milljóna dollara virði lá við höfn í Auckland en þaðan hvarf áhafnarmeðlimur hennar þann 16. janúar og fannst látinn í höfninni 5 dögum síðar. Sport 5.2.2006 19:38
Arnar lék allan leikinn í sigri Twente Arnar Viðarsson lék allan leikinn með Twente sem vann 3-0 sigur á Utrecht í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Með sigrinum náði Twente að forða sér fjær fallsvæðinu í deildinni en liðið er nú í 13. sæti af 18 liðum með 25 stig, sjö stigum frá fallsæti. Sport 5.2.2006 18:57
Chelsea lagði Liverpool Chelsea hefur nú gjörsamlega stungið af í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu en Englandsmeistararnir unnu Liverpool, 2-0 á Stamford Bridge nú síðdegis. William Gallas (35. mín) og Hernan Crespo (68. mín) skoruðu mörk Chelsea sem er nú með 15 stiga forystu á toppi deildarinnar. Sport 5.2.2006 18:09
Óli Stefáns valinn í úrvalslið EM Ólafur Stefánsson var valinn i úrvalslið Evrópumótsins handbolta í Sviss í dag. Króatinn Ivano Balic var valinn besti maður mótsins. Auk þeirra í úrvalsliðinu eru Thierry Omeyer markvörður Frakka, Eduard Kokcharov frá Rússlandi, Rolando Urios frá Spáni, Sören Stryger frá Danmörku og Iker Romero frá Spáni. Sport 5.2.2006 18:01
23 ára nýliði með forystu 23 ára Bandaríkjamaður, John Holmes, hefur forystu á PGA mótinu í golfi í Scottsdale í Arizona. 168 þúsund áhorfendur mættu á TPC-völlinn til þess að fylgjast með keppninni í gær og hafa aldrei verið fleiri á þessu móti. Sport 5.2.2006 13:46
Frakkar Evrópumeistarar Frakkar urðu í dag Evrópumeistarar í handbolta þegar þeir lögðu Spánverja með 8 marka mun í úrslitaleik mótsins í Zürich í Sviss, 31-23. Nikola Karabatic varð markahæstur Frakka með 11 mörk í leiknum í dag. Staðan í hálfleik var 13-17 fyrir Frakka. Þetta er í fyrsta sinn sem Frakkar hampa þessum titli. Sport 5.2.2006 17:56
Eiður á bekknum - Fowler ekki í hópi Liverpool Robbie Fowler er ekki í leikmannahópi Liverpool sem heimsækir Chelsea í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu nú kl. 16. Þá er Eiður Smári Guðjohnsen á varamannabekk Chelsea en Michael Essien tekur hans stöðu á miðjunni. Vakin er athygli á því að hægt er að fylgjast beint með gangi mála í leiknum í úrslitaþjónustu Vísis hér hægra megin á íþróttasíðunni. Sport 5.2.2006 15:40
Tottenham lagði Charlton Tottenham lagði Charlton 3-1 í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta nú síðdegis og er nú komið í 44 stig í 4. sæti deildairnnar. Hermann Hreiðarsson lék að venju allan leikinn í vörn Charlton og fékk að líta gula spjaldið á 34. mínútu fyrir að brjóta á Robbie Keane sóknarmanni Tottenham. Sport 5.2.2006 15:23
Matt Holland hættur með landsliðinu Matt Holland, félagi Hermanns Hreiðarsson í enska úrvalsdeildarliðinu Charlton, tilkynnti í dag að hann er hættur að leika með írska landsliðinu í knattspyrnu. Holland sem verður 32 ára í apríl segist vilja hlúa að framtíð sinni hjá Charlton og það að leggja landsliðsskóna á hilluna sé hið eina rétta í stöðunni. Sport 5.2.2006 15:05
Danir unnu bronsið á EM Danir tryggðu sér bronsverðlaunin á Evrópumóti landsliða í handbolta í dag þegar þeir sigruðu Króata í úrslitaleik um 3. sætið, 32-27. Lars Möller var markahæstur Dana 9 mörk. Króatar áttu aldrei mögueika gegn Dönum sem náðu mest 7 marka forystu í leiknum. Sport 5.2.2006 14:06
24 vítaspyrnur útkljáðu leikinn 8-liða úrslitum Afríkukeppninnar í knattspyrnu lauk í gærkvöldi þegar lið Fílabeinsstrandarinnar sigraði Kamerún eftir maraþon vítaspyrnukeppni. Sport 5.2.2006 13:30
St. Etienne mistókst að tylla sér í 4. sætið Í franska fóboltanum gerðu Paris St. Germain og St. Etienne jafntefli í gærkvöldi. Paris St. Germain átti möguleika á því að ná 4. sætinu í deildinni með sigri. Sport 5.2.2006 13:20
Sjöundi sigur Roma í röð Roma vann í gærkvöldi 7. leik sinn í röð í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar liðið lagði Parma 3-0. Í dag klukkan 14 verður leikur Chievo og Inter sýndur beint á Sýn. Aðrir leikir á Ítalíu í dag verða; Sport 5.2.2006 13:17
Danir 7 mörkum yfir gegn Króötum Króatar og Danir eigast nú við og keppa um bronsverðlaunin á Evrópumóti landsliða í handbolta og eru Danir 7 mörkum yfir í hálfleik, 16-9. Sigurvegararnir í þessum leik tryggja sér sæti á HM 2007. Klukkan 4 í dag keppa Frakkar og Spánverjar til úrslita á Evrópumótinu. Frakkar búsettir hér á landi ætla að hittast á Café Solon og fylgjast með leiknum þar. Sport 5.2.2006 13:10
Zidane í fantaformi - skoraði tvennu Real Madríd vann í gærkvöldi sjöunda leikinn í röð í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar liðið burstaði Espanyol 4-0. Zinedine Zidane var besti maður vallarins og skoraði tvö marka sinna manna. Klukkan 18 í dag verður leikur Barcelona og Atletico Madríd sýndur beint á Sýn. Sport 5.2.2006 12:52
Ekki hafa fyrir því að afsaka Chris Coleman knattspyrnustjóri Fulham er æfur af reiði og lætur Martin Atkinson dómara fá það óþvegið í breskum fjölmiðlum eftir 4-2 tap sinna manna gegn Man Utd í ensku úrvalsdeildinni í gær. Heiðar Helguson skoraði annað marka Fulham þegar hann minnkaði muninn í 3-2 en það sem gerðist eftir það fór svo fyrir brjóstið á Coleman að hann var rekinn úr gryfjunni með rauða spjaldið upp í stúku. Sport 5.2.2006 12:42
Áttundi heimasigurinn í röð gegn Chicago Shawn Marion og Steve Nash áttu enn einn stórleikinn fyrir Phoenix Suns sem unnu 118-101 sigur á Chicago Bulls í NBA körfuboltanum í nótt. Hjá Chicago náði Ben Gordon að bæta persónulegt met sitt með því að skora 39 stig. Þetta var áttundi heimasigur Suns í röð gegn Chicago sem hefur ekki unnið leik í Phoenix síðan 20. nóvember 1996 eða þegar Michael Jordan lék með liðinu. Sport 5.2.2006 11:48
Ísland mætir Svíum Íslenska landsliðið í handbolta dróst gegn Svíum í umspili um laust sæti á HM sem fram fer í Þýskalandi á næsta ári en dregið var í morgun. Ljóst er að þessi dráttur er ákveðið áfall fyrir strákana okkar en leikmenn hafa títt um það talað síðan Ísland lauk keppni í 7. sæti á EM að þeir vildu síst af öllum þurfa að mæta Svíum í umspilinu. Sport 5.2.2006 11:05
Grétar skoraði eina mark Alkmaar Siglfirski Skagamaðurinn Grétar Rafn Steinsson lék allan leikinn og skoraði eina mark AZ Alkmaar í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Vitesse Arnhem í gærkvöldi. Mark Grétars kom liði hans yfir á 13. mínútu þegar hann skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu en gestirnir jöfnuðu á 40. mínútu. Sport 5.2.2006 11:21
Sol Campbell kominn í leitirnar Sol Campbell, varnarmaður Arsenal er væntanlegur aftur á æfingu með liðinu á mánudaginn en ekkert hefur spurst til hans síðan hann yfirgaf heimavöll sinn í hálfleik þegar Arsenal tapaði fyrir West Ham í deildinni sl. miðvikudag. Sport 4.2.2006 18:30
Heiðar skoraði í tapleik gegn Man Utd Heiðar Helguson skoraði annað marka Fulham sem tapaði fyrir Man Utd, 4-2 í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu nú í kvöld. Heiðar var í byrjunarliði Fulham og lék allan leikinn. Mark Heiðars kom með skalla á 37. mínútu eftir fyrirgjöf frá Wayne Bridge, lánsmanni frá Chelsea. Með markinu minnkaði Heiðar muninn í 3-2. Sport 4.2.2006 19:08
Ívar, Brynjar, Hannes og Jóhannes léku Reading hefur 10 stiga forystu í ensku 1. deildinni í fótbolta eftir 4-3 sigur á Crewe í dag. Ívar Ingimarsson lék allan leikinn í liði Reading en Brynjar Björn Gunnarsson sat á bekknum og lék síðustu 2 mínúturnar. Ívar Ingimarsson lék allan leikinn í liði Reading og Brynjar Björn Gunnarsson lokamínutuna. Sport 4.2.2006 19:04
Ballack skoraði eina markið Michael Ballack tryggði Bayern Munchen 1-0 sigur á Bayer Leverkusen í þýsku Bundesligunni í knattspyrnu í dag og nægði markið til að halda Þýskalandsmeisturunum í 8 stiga fjarlægð á toppi deildarinnar. Werder Bremen hélt í 2. sætið eftir 4-2 sigur á gestunum, Keflavíkurbönunum í Mainz sem komust 2-0 yfir. Hamburg SV vann 2-1 sigur á Arminia Bielefeld og er í 3. sæti með 41 stig. Sport 4.2.2006 17:56
Spánverjar í úrslitaleikinn - lögðu Dani Það verða Spánverjar sem leika til úrslita á EM í handbolta gegn Frökkum en heimsmeistararnir lögðu Dani í undanúrslitum nú síðdegis, 34-31. Staðan í hálfleik var 16-15 fyrir Dani sem leika því um 3. sætið á mótinu gegn Króötum. Sport 4.2.2006 17:33
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent