Erlendar
47 48 49 50 51 52 53 54 55 … 264 ›
Nadal sigraði á Indian Wells Spænski tenniskappinn Rafael Nadal vann í kvöld sigur á serbneska táningnum Novak Djokovic í úrslitaleik Indian Wells Masters mótsins sem fram fór í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Nadal sigraði 6-2 og 7-5 og var þetta fyrsti sigur kappans síðan á opna franska meistaramótinu í fyrra. Sport 18.3.2007 21:29
Mikið fjör á Sýn í dag og í kvöld Það verður nóg um að vera á sjónvarpsstöðinni Sýn í dag þar sem boðið verður upp á handbolta, körfubolta, knattspyrnu og golf. Nú klukka 14:25 hefst stórleikur Hamburg og Flensburg í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta og klukkan 16 hefst annar leikur Keflavíkur og Snæfells í úrslitakeppni Iceland Express deildarinnar. Sport 17.3.2007 14:22
McLaren sagður vilja breytingar Steve McLaren er nú sagður allt annað en sáttur út í vinnuveitendur sína hjá enska knattspyrnusambandinu, en allt útlit er fyrir að 14 leikmenn í landsliðshóp hans verði uppteknir við að spila endurtekin leik í ensku bikarkeppninni - aðeins fimm dögum áður en enska liðið spilar afar mikilvægan leik í undankeppni EM. Enski boltinn 12.3.2007 20:39
Foster fær ekki að spila gegn Man. Utd. Markvörðurinn Ben Foster mun ekki leika með Watford gegn Manchester United, fari svo að liðin mætist í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar. Ef Man. Utd. sigrar Middlesbrough í síðari viðureign liðanna í 8-liða úrslitum keppninnar mætir það Watford í undanúrslitum. Foster er í láni hjá Watford frá Man. Utd og má ekki spila gegn liðinu, sama í hvaða keppni um ræðir. Enski boltinn 12.3.2007 17:13
Cocu: Rimman við Liverpool verður stríð Philip Cocu, fyrirliði PSV í Hollandi, lýsir væntanlegri rimmu liðsins við Liverpool í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar sem “stríði”. Cocu býst við tveimur afar hörðum leikjum, enda séu bæði lið hungruð í árangur í keppninni. Fótbolti 12.3.2007 17:09
Zidane vildi ekki spila með Evrópuúrvalinu Zinedine Zidane afþakkaði að spila með Evrópuúrvali Marcelo Lippi í góðgerðarleik sem fram fer á Old Trafford annað kvöld. Áður hafði Marco Materazzi, varnarmaður Inter Milan og sá er Zidane skallaði eftirminnilega í úrslitaleik Frakka og Ítala á HM í sumar, staðfest komu sína í leikinn en þó er það ekki talin ástæða þess að Zidane afþakkaði boðið. Fótbolti 12.3.2007 16:57
Í bann út tímabilið eftir hrottabrot - Með myndbandi Chris Simon, leikmaður NY Islanders í NHL-deildinni í íshokkí í Bandaríkjunum, hefur verið dæmdur í leikbann sem gildir út leiktíðina fyrir viðurstyggilegt brot á Ryan Hollweg, leikmanni NY Rangers. Atvikið átti sér stað í leik liðanna á fimmtudag og sló Simon Hollweg með kylfunni, beint í andlitið. Sport 12.3.2007 14:59
Mourinho sleppur við refsingu Jose Mourinho, stjóri Chelsea, sleppur við ákæru frá enska knattspyrnusambandinu þrátt fyrir að hafa kallað Mike Riley, dómara leiks Chelsea og Tottenham í bikarnum í gær, það sem á góðri íslensku myndi þýðast sem "tíkar-sonur". Riley minntist ekki á atvikið í skýrslu sinni og Mourinho segist ekkert hafa meint með orðum sínum. Enski boltinn 12.3.2007 14:42
Man. Utd. og Chelsea mætast ekki í undanúrslitum Draumaúrslitaleikur Manchester United og Chelsea í ensku bikarkeppninni er ennþá mögulegur eftir að ljóst var að þessi tvö efstu lið úrvalsdeildarinnar drógust ekki gegn hvort öðru í undanúrslitum. Blackburn mætir sigurvegaranum úr viðureign Chelsea og Tottenham og Watford mætir annaðhvort Man. Utd. eða Middlesbrough. Enski boltinn 12.3.2007 14:37
Louis van Gaal orðaður við ástralska landsliðið Hollenski þjálfarinn Louis van Gaal, þjálfari Grétars Steinssonar og félaga hjá AZ Alkmaar, er nú sterklega orðaður við þjálfarastöðuna hjá ástralska landsliðinu í knattspyrnu. Van Gaal er hins vegar ekki svo áhugasamur þar sem hann telur að ástralska liðið geti ekki unnið HM í knattspyrnu. Fótbolti 12.3.2007 13:13
Mourinho: Yrði heiður að þjálfa Real Madrid Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, segir að það væri mikill heiður fyrir sig ef hann fengi einhverntímann að þjálfa stórlið Real Madrid á Spáni. Framtíð portúgalska þjálfarans hjá Chelsea hefur verið mikil til umræðu síðustu vikur og segja margir að leið hans liggi til Spánar fari svo að hann verði látinn fara frá Chelsea. Enski boltinn 12.3.2007 11:44
Loksins tapaði Federer Svisslendingurinn Roger Federer tapaði sínum fyrsta leik síðan í ágúst þegar hann beið í lægri hlut fyrir Guillermo Canas í annari umferð Indian Wells meistaramótsins í dag. Federer tapaði í tveimur lotum, 7-5 og 6-2, en áður hafði hann unnið 41 viðureign í röð. Sport 12.3.2007 13:05
Barcelona vill fá Robben Forráðamenn Barcelona eru sagðir vera að undirbúa tilboð í hollenska vængmanninn Arjen Robben frá Chelsea. Samkvæmt spænskum fjölmiðlum er Barcelona búið að gefa upp vonina á að fá Cristiano Ronaldo frá Man. Utd. og hefur félagið því snúið sér að Robben, sem hefur ekki átt fast sæti í liði Chelsea á tímabilinu. Fótbolti 12.3.2007 11:42
Mourinho spilar fótbolta með syni sínum og vinum hans Það skemmtilegasta sem Jose Mourinho gerir er ekki að vinna titla með Chelsea. Hann fær mesta ánægju af því að spila fótbolta með syni sínum og vinum hans, en það gera þeir vikulega á heimili portúgölsku fjölskyldunnar í London. Skemmst er frá því að segja að sonurinn vill ekki vera með pabba sínum í liði. Enski boltinn 11.3.2007 14:52
Watford í undanúrslit Watford varð í kvöld annað liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu þegar það bar sigurorð af 1. deildarliði Plymouth á útivelli. Fyrr í dag hafði Blackburn tryggt sig áfram en Man. Utd. og Middlesbrough þurfa að mætast að nýju, líkt og Chelsea og Tottenham. Enski boltinn 11.3.2007 20:34
Inter lagði AC Milan í uppgjöri erkifjendanna Topplið Inter á Ítalíu sigraði AC Milan, 2-1, í uppgjöri nágrannana og erkifjendanna í Mílanó-borg í dag. Inter lenti reyndar undir í fyrri hálfleik eftir að fyrrum leikmaður þess, Brasilíumaðurinn Ronaldo, hafði skorað. En tvö mörk í síðari hálfleik tryggðu Inter sigurinn og hefur liðið nú 19 stiga forystu á toppi deildarinnar. Fótbolti 11.3.2007 19:00
Ballack veit að hann getur betur Michael Ballack, hinn þýski miðvallarleikmaður Chelsea, viðurkennir að hann hafi ekki verið upp á sitt besta á sínu fyrsta tímabili í England. Miklar væntingar voru gerðar til Ballack eftir að hann gekk í raðir Chelsea frá Bayern Munchen síðasta sumar – væntingar sem hann hefur engan veginn náð að standa undir. Enski boltinn 11.3.2007 14:51
Bayern Munchen og Werder Bremen skildu jöfn Meisturum Bayern Munchen í Þýskalandi mistókst að blanda sér af alvöru í toppbaráttuna í úrvalsdeildinni í dag en þá gerði liðið 1-1 jafntefli við Werder Bremen á heimavelli sínum í Munchen. Bayern spilaði einn sinn besta leik á tímabilinu og aðeins einstök óheppni og klaufaskapur upp við mark Bremen kom í veg fyrir sigur liðsins. Fótbolti 11.3.2007 18:38
Óvænt tap Sevilla gegn Gimnastic á Spáni Sevilla mistókst að komast fram yfir Barcelona og á topp spænsku úrvalsdeildarinnar þegar liðið tapaði mjög óvænt fyrir einu af neðstu liðum deildarinnar, Gimntastic, með einu marki gegn engu. Þetta var fyrsta tap Sevilla í síðustu átta leikjum í spænsku deildinni. Fótbolti 11.3.2007 18:31
Blackburn í undanúrslit Blackburn tryggði sér í dag þáttökurétt í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu með því að leggja Manchester City af velli á heimavelli sínum, 2-0. Aaron Moekena og Matt Derbyshire skorurðu mörk heimamanna sem spiluðu vel og áttu sigurinn fyllilega skilinn. Enski boltinn 11.3.2007 17:44
Ron Artest: Ég hef brugðist Fimm dögum eftir að hafa verið handtekinn vegna gruns um að hafa beitt eiginkonu sína ofbeldi hefur leikmaður Sacramento í NBA-deildinni, beðist afsökunar á framferði sínu. Artest segist hafa brugðist hlutverki sínu, sem eiginmaður, faðir og leikmaður Sacramento, og biður um fyrirgefningu. Körfubolti 11.3.2007 14:49
Carragher segir að Benitez fari ekki fet Jamie Carragher, varnarmaður Liverpool, er sannfærður um að knattspyrnustjórinn Rafa Benitez sé kominn til að vera á Anfield, þrátt fyrir endalausar vangaveltur um að hann sé á förum til Real Madrid. Carragher segir í viðtali við opinbera heimasíðu Liverpool að Benitez sé einn besti þjálfari heims. Enski boltinn 11.3.2007 14:47
Jol og Mourinho kvíða fyrir síðari leiknum Martin Jol og Jose Mourinho, knattspyrnustjórar Tottenham og Chelsea, hlakkar ekki mikið til síðari leiks liðanna í ensku bikarkeppninni á mánudag í næstu viku en þá þurfa liðin að mætast öðru sinni eftir 3-3 jafnteflið á Stamford Bridge í dag. Þjálfararnir segja álagið á leikmönnum sínum vera með ólíkindum þessa dagana. Enski boltinn 11.3.2007 16:29
Wenger fær 20 milljónir punda í sumar Arsene Wenger hefur verið lofað veglegri summu til að fá nýja leikmenn til Arsenal í sumar og mun sú upphæð ekki minnka neitt þrátt fyrir að félagið verði af umtalsverðum tekjum með því að vera þegar fallið úr leik í Meistaradeildinni. Talið er að upphæðin sem Wenger fái sé um 20 milljónir punda. Enski boltinn 11.3.2007 14:45
Lemgo lagði Flensburg í þýska handboltanum Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði fimm mörk og átti stórgóðan leik þegar Lemgo bar sigurorð af Flensburg í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, 34-30. Lemgo var þremur mörkum undir í hálfleik en náði með frábærum leik í síðari hálfleik að snúa leiknum sér í vil. Logi Geirsson lék ekki með Lemgo vegna meiðsla. Handbolti 11.3.2007 15:50
Joe Cole ætlar að spila gegn Valencia Enski miðjumaðurinn Joe Cole hefur lofað stjóra sínum Jose Mourinho að vera orðinn klár í slaginn þegar Chelsea mætir Valencia í Meistaradeild Evrópu í næsta mánuði. Cole hefur verið frá æfingum og keppni stærstan hluta tímabilsins vegna álagsmeiðsla í fæti og gekkst nýverið undir aðgerð til að fá bót meina sinna. Enski boltinn 11.3.2007 14:43
Chelsea náði að knýja fram annan leik Leikmenn Chelsea sýndu úr hverju þeir eru gerðir með því að skora tvö mörk í síðari hálfleik og tryggja sér þannig 3-3 jafntefli gegn Tottenham á Stamford Bridge í viðureign liðanna í 8-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar. Liðin þurfa því að eigast við að nýju á White Hart Line, og fer sá leikur fram þann 19. mars næstkomandi. Enski boltinn 11.3.2007 14:33
Grétar lék allan leikinn fyrir AZ Landsliðsmaðurinn Grétar Steinsson lék allan leikinn fyrir lið sitt AZ Alkmaar þegar það gerði markalaust jafntefli við Feyenoord í hollensku úrvalsdeildinni í dag. Grétar spilaði í stöðu hægri bakvarðar og stóð vel fyrir sínu. AZ er áfram í 2. sæti deildarinnar eftir jafnteflið, sjö stigum á eftir toppliði PSV. Fótbolti 11.3.2007 13:47
Leikmenn Chelsea steinrunnir í fyrri hálfleik Útlitið er ekki bjart fyrir Jose Mourinho og lærisveina hans hjá Chelsea þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign liðsins gegn Tottenham í ensku bikarkeppninni. Staðan er 3-1, gestunum frá Tottenham í vil, en varnarleikur heimamanna minnir helst á rygðað gatasigti. Enski boltinn 11.3.2007 13:31
Nistelrooy: Skil ekki hvernig við náðum ekki að vinna Hollenski framherjinn Ruud van Nistelrooy hjá Real Madrid segir með ólíkindum að Barcelona skuli hafa sloppið með jafntefli í leik liðanna í spænsku úrvalsdeildinni, svo miklir hafi yfirburðir Real verið. Hetja heimamanna, Lionel Messi, segir að gærdagurinn muni seint líða honum úr minni. Fótbolti 11.3.2007 12:58
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent