Innlent

Fréttamynd

Starfsmaður Impregilo enn á gjörgæsludeild

Kínverskum starfsmanni Impregilo á Kárahnjúkum, sem slasaðist alvarlega við Kárahnjúkastíflu á laugardagskvöld, er enn haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild og er líðan hans óbreytt að sögn læknis. Maðurinn dróst um 40-50 metra niður stífluvegginn með kaðli sem hann notaði til að stýra bómu á krana og hafnaði hann á steypustyrktarjárni.

Innlent
Fréttamynd

Velta félagshagkerfisins yfir 500 milljarðar á Íslandi

Velta félagshagkerfisins á Íslandi, sem nær til þess hluta hagkerfisins sem ekki er rekinn í hagnaðarskyni og til frjálsra félagasamtaka, nemur rúmum 500 milljörðum króna, eða tæplega helmingi af landsframleiðslu. Þetta kemur fram í ritinu Félagshagkerfið á Íslandi eftir dr. Ívar Jónsson, prófessor við Háskólann á Bifröst.

Innlent
Fréttamynd

Kæra vegna meints vanhæfis tekin fyrir klukkan 15

Kæra fimm manna tengdum Baugi á hendur yfirmönnum efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra vegna meints vanhæfis þeirra í rannsókn á skattamálum Baugsmanna verður tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan þrjú í dag.

Innlent
Fréttamynd

Rjúpnaveiðimenn ósáttir við veiðina

Næst síðasti veiðidagur rjúpaveiðitímabilsins var í gær en síðasti veiðidagurinn er á fimmtudaginn. Fréttavefur Skessuhorns hefur rætt við veiðimenn frá Akranesi og norður á Akureyri, sem allir eru sammála um að tíðarfarið hafi verið erfitt og menn því ekki náð nema nokkrum fuglum. Hugsanlega hafa aldrei færri rjúpur verið skotnar og líklega ekki fleiri en 40 þúsund fuglar í haust.

Innlent
Fréttamynd

Flugfarþegar fundur reykjarlykt

Engin eldur eða bilun fundust í þotu Iceland Express á Akureyrarflugvelli síðdegis í gær, en farþegar töldu sig hafa fundið reykjarlykt í henni eftir lendingu.

Innlent
Fréttamynd

Rafael Correa næsti forseti Ekvador

Rafael Correa hefur lýst yfir sigri í forsetakosningunum í Ekvador. Correa er vinstrisinnaður og keppti við auðmanninn Alvaro Noboa um forsetasætið. Correa hefur lofað félagslegum umbótum og riftun á viðskiptalegum- og hernaðarlegum tengslum við Bandaríkin.

Erlent
Fréttamynd

Latibær hlaut BAFTA verðlaun

Latibær hlaut í gærkvöldi fyrstu verðlaun bresku kvikmynda-og sjónvarpsakademíunnar, BAFTA, í flokki alþjóðlegs barnaefnis. Magnús Scheving , höfundur þáttanna, sagði í viðtali við Fréttastofuna í morgun að það hafi komið mörgum á óvart að Íslendingar skyldu hafa komið eins og þruma úr heiðskýru lofti og hirt verðlaunin.

Innlent
Fréttamynd

Fundu lík af kajakræðara

Áhöfn á varðskipi Landhelgisgæslunnar fann lík af kajakræðara, sem saknað var í gærkvöldi. Þegar maðurinn, sem var á fimmtugsaldri, kom ekki heim á tilsettum tíma voru björgunarsveitir kallaðar út og fannst bíll hans við norðanverðan Hvalfjörð.

Innlent
Fréttamynd

RÚV frumvarpi breytt

Innan menntamálanefndar þingsins er unnið að enn einum breytingunum á RÚV-frumvarpinu til þess að koma á móts við andstöðu gegn því. Rætt er um að setja hömlur á sókn RÚV á auglýsingamarkað.

Innlent
Fréttamynd

Þyngri dóma í kynferðisbrotamálum krafist

Þöglar mótmælastöður voru við héraðsdóma víða um landið í dag en mótmælendur kröfðust þyngri dóma í kynferðisbrotamálum. Fólkið kom saman klukkan fjögur í dag á Akureyri, Ísafirði, Selfossi, Egilsstöðum og í Reykjavík.

Innlent
Fréttamynd

Kæra yfirmenn efnahagsbrotadeildar

Baugsmenn hafa lagt fram kæru á hendur yfirmönnum efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra og segja þá vanhæfa í rannsókn á skattamálum þeirra. Þeir neita að svara spurningum lögreglu þar til skorið hefur verið úr um hæfi rannsakenda.

Innlent
Fréttamynd

Umferð hleypt á Sæbrautina

Umferð hefur verið hleypt á aftur á alla Sæbrautina. Enn er verið að vinna við frágang meðfram akbrautum og í miðeyju, einkum við gatnamótin Dalbraut-Sundagarðar. Vegagerðin býst ekki við að þeirri vinnu ljúki fyrr en í byrjun desember.

Innlent
Fréttamynd

Átök milli þjófs og starfsmanns

Kom til átaka milli þjófs og starfsmanns, í versluninni Intersport á Bíldshöfða í Reykjavík, á þriðja tímanum. Starfsmaðurinn var fluttur á slysadeild Landspítala-Háskólasjúkrahús með áverka á enni en hann var kýldur í ennið.

Innlent
Fréttamynd

Safnað fyrir hreinu vatni fyrir íbúa í Afríku

Jólasöfnun Hjálparstarfs kirkjunnar hefst í dag en í ár er verið að safna fjármunum í vatnsverkefni í Afríku. Á ári hverju deyja 1,8 milljón manna af vatnsskorti og sjúkdómum þeim tengdum. Um 1,1 milljarður manna hefur ekki aðgang að hreinu vatni og veikist oft af menguðu vatni.

Innlent
Fréttamynd

Sjálfstæðiskonur óttast áhrif framboðs Árna Johnsen

Stjórn Landssambands sjálfstæðiskvenna hefur farið fram á það við flokksforystuna að hún skoði sérstaklega mál Árna Johnsen og óttast stjórnin að framboð hans í Suðurkjördæmi kunni að draga úr fylgi flokksins á landsvísu.

Innlent
Fréttamynd

Baugsmenn kæra yfirmenn efnahagsbrotadeildar

Baugsmenn hafa lagt fram kæru vegna vanhæfni yfirmanna efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra í rannsókn á skattamálum þeirra. Þeir ætla ekki að svara spurningum lögreglu um skattrannsóknina fyrr en skorið hefur verið úr um hæfi rannsakenda.

Innlent
Fréttamynd

Á fjórða hundrað hafa tekið þátt í prófkjöri

Á hádegi höfðu þrjú hundruð og fimmtíu manns greitt atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi. Kosið er á 22 stöðum en alls gefa níu einstaklingar kost í prófkjörinu, sex karlar og þrjár konur. Þrír sækjast eftir því að leiða listann.

Innlent
Fréttamynd

Verður var við andstöðu Framsóknarmanna við RÚV frumvarp

Björn Ingi Hrafnsson formaður borgarráðs og fyrrverandi aðstoðarmaður forsætisráðherra segist verða var við mikla andstöðu innan Framsóknarflokksins við hlutafélagavæðingu Ríkisútvarpsins. Hann sagði í þættinum Pólitíkinni á Stöð tvö í dag að hann gæti ekki talað um það sem fram færi á þingflokksfundum en að hann hefði fáa Framsóknarmenn hitt sem vildu að RÚV yrði breytt í hlutafélag.

Innlent
Fréttamynd

Í hraðakstri með íþróttastúlkur

Lögreglan á Blönduósi hafði í gær afskipti af um 30 ökumönnum fyrir hraðakstur í gegnum umdæmi sitt. Enginn þeirra ók á ofsahraða en einn mældist á 121 kílómetra hraða, sem teldist vart í frásögur færandi, nema af því að með honum í bílnum voru sjö stúlkur á táningsaldri frá íþróttafélagi á Akureyri á leið til keppni suður fyrir heiðar.

Innlent
Fréttamynd

Bílvelta undir Hafnarfjalli

Fólksbíll keyrði útaf undir Hafnarfjalli rétt um sjö leytið í kvöld. Velti ökumaður bílnum og er bíllinn mikið skemmdur en ökumaðurinn var einn á ferð. Hlaut hann áverka á höfði og brjóstkassa og var því fluttur á sjúkrahúsið í Borgarnesi og verður fylgst með honum þar yfir nótt. Lögreglan í Borgarnesi gat ekkert sagt um ástæður útafaksturins að svo stöddu.

Innlent
Fréttamynd

Ísland og Noregur í varnarsamstarf

Geir H. Haarde forsætisráðherra og Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, ákváðu í dag að hefja þegar í næsta mánuði formlegar viðræður milli Íslands og Noregs um eftirlit í Norðurhöfum og framtíðarsamstarf landanna á sviði öryggis- og varnarmála.

Innlent
Fréttamynd

Mið tekið af auknum flutningum

Dómsmálaráðherra segir þörf á alþjóðlegu átaki ef alvarlegt umhverfisslys verði í olíuflutningum við Ísland. Sérfræðingar spá því að innan fárra ára fari 500 olíuskip um íslenskt hafsvæði á hverju ári. Ráðherrann segir tekið mið af þessu við endurbætur á núverandi varðskipum og smíði nýrra.

Innlent