Innlent

Fréttamynd

Leita skjóls við lögreglustöðina

Rjúpnaveiðimönnum við Hólmavík hefur gengið treglega við veiðar þetta veiðitímabil. Lögregluvarðstjórinn á Hólmavík segir dapurt gengi þeirra ef til vill ekki að undra.

Innlent
Fréttamynd

Nýir fulltrúar í meirihluta

Tuttugu og tvö mál liggja fyrir kirkjuþingi sem hófst í Grensáskirkju í morgun. Á meðal mála má nefna tillögu um stefnumótun fyrir kærleiksþjónustu og hjálparstarf sem er liður í heildarstefnumótun kirkjunnar. Einnig verður lögð fram tillaga um fjölskyldustefnu og um stofnun málefna- og siðferðisráðs.

Innlent
Fréttamynd

Fangar hættir við að svelta sig

Fangar í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg ákváðu í gær að hætta við boðað hungurverkfall sitt. Þeir höfðu krafist þess að ýmsar úrbætur yrðu gerðar á aðstæðum innan fangelsisins.

Innlent
Fréttamynd

Uggur í fólki vegna tíðindanna

Reykjavíkurborgar til Alþjóðahússins verða skornir niður um þriðjung. Þetta kom fram á fundi borgarráðs í vikunni. Upphæðin sem Alþjóðahúsið hefur fengið síðustu ár nemur 30,8 milljónum króna.

Innlent
Fréttamynd

Sainz neitar staðfastlega sök

Mál ríkislögreglustjóra á hendur Jesusi Sainz, fyrrverandi starfsmanni Íslenskrar erfðagreiningar, vegna brota á höfundaréttarlögum var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Honum er gefið að sök að hafa á tveggja vikna tímabili í júní síðastliðnum afritað í heimildarleysi 29 skrár af netþjóni ÍE sem hver um sig hafði að geyma umtalsvert safn upplýsinga sem voru að sögn fyrirtækisins afrakstur verulegra fjárfestinga þess. Sainz neitaði sök fyrir dómi og verður málið tekið fyrir að nýju í nóvember.

Innlent
Fréttamynd

Fjöldi þjófa á ferðinni

Kona á þrítugsaldri var handtekin í söluturni í Reykjavík í fyrrinótt. Hún átti erfitt með að gera grein fyrir ferðum sínum og var margsaga. Konan gat ekki framvísað skilríkjum og gaf lögreglunni upp ranga kennitölu.

Innlent
Fréttamynd

Nóbelsverðlaunahafi heiðursdoktor frá HÍ

Nóbelsverðlaunahafi í hagfræði er meðal þeirra sem hljóta heiðurdoktorsnafnbót við útskrift Háskóla Íslands á morgun. Sá heitir Robert A. Mundell og er prófessor við Columbia-háskóla í Bandaríkjunum. Hann fékk Nóbelsverðlaun í hagfræði árið 1999. Mundell hlýtur nafnbótina við viðskipta- og hagfræðideild HÍ. Auk hans hljóta tveir aðrir heiðursdoktorsnafnbót. Það eru Assar Lindbeck, prófessor við alþjóðahagfræðideild Háskólans í Stokkhólmi, og Kristján Sæmundsson, vísindamaður á sviði jarðfræði Íslands, eldfjallafræði og jarðhita.

Innlent
Fréttamynd

Harður árekstur

Ökumaður lítils sendiferðabíls af Volkwagen-gerð var fluttur nokkuð slasaður til Reykjavíkur eftir harðan árekstur við vöruflutningabíl á Suðurlandsvegi, til móts við afleggjarann að Ásmundarstöðum á áttunda tímanum í kvöld. Beita þurfti klippum til að ná ökumanni sendiferðabílsins út en ökumann vöruflutningabílsins sakaði ekki. Samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á slysadeild virðist við fyrstu skoðun að maðurinn hafi ekki hlotið lífshættulega áverka.

Innlent
Fréttamynd

Rjúpnaskyttu leitað í Lambafjöllum

Leitað var að rjúpnaskyttu í Lambafjöllum í Reykjasveit í kvöld. Tveir menn höfðu farið saman á skytterí og þegar annar skilaði sér ekki á réttum tíma var beðið um aðstoð björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Maðurinn fannst heill á húfi á níunda tímanum í kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Kolmunnastofninn nýttur umfram afrakstursgetu

Síðustu ár hefur mjög góð nýliðun verið í kolmunnastofninn, sem stækkaði verulega í kjölfarið. Hrygningarstofninn stækkaði í rúmar 7 milljónir tonna árið 2003, en hefur farið minnkandi síðan.

Innlent
Fréttamynd

Útbreiðsla loðnustofnsins líklega breyst

Líklegt er að útbreiðsla loðnustofnsins hafi breyst með breyttum umhverfisskilyrðum undanfarin ár, en hin síðustu ár hefur ekki tekist að mæla fjölda eins og tveggja ára ungloðnu að hausti og því hefur ekki verið unnt að gera tillögur um leyfilegan hámarksafla árið eftir.

Innlent
Fréttamynd

Nýliðun norsk-íslensku vorgotssíldarinnar góð á undanförnum árum

Nýliðun norsk-íslensku vorgotssíldarinnar hefur verið góð á undanförnum árum og telur Alþjóðahafrannsóknarráðið að stofninn sé nýttur á sjálfbæran hátt. Þetta kemur fram í skýrslu ráðsins um ástand nytjastofna í Norðaustur-Atlantshafi sem birt var í dag. Þar koma fram tillögur ráðgjafarnefndar um nýtingu fiskistofna.

Innlent
Fréttamynd

Nýr þjónustusamningur um rekstur Heilsustofnunar NLFÍ

Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, og Gunnlaugur K. Jónsson, formaður stjórnar Náttúrulækningafélags Íslands (NLFÍ), undirrituðu síðdegis nýjan þjónustusamning um rekstur Heilsustofnunar NLFÍ. Samningurinn gildir frá 1. janúar 2007 og er til 5 ára. Ríkið greiðir um 480 milljónir króna á ári fyrir þjónustuna sem veitt er samkvæmt samningnum, eða um 2,5 milljarða króna á samningstímanum.

Innlent
Fréttamynd

Læknar samþykkja ekki að fólk velji kyn barna

Sjö danskar konur fóru til Kýpur og völdu kyn á ófædd börn sín. Jón G. Snædal, forseti Alþjóðasamtaka lækna, segir að íslenskir læknar myndu aldrei samþykkja það að velja annað kynið fram yfir hitt.

Innlent
Fréttamynd

Íslenska friðargæslan kostar 600 milljónir

Íslenska friðargæslan kostar sex hundruð milljónir króna á ári. Hér eftir mun hún snúa sér að borgaralegum verkefnum, en utanríkisráðherra vill þó ekki afvopna Íslensku friðargæsluna.

Innlent
Fréttamynd

Forsetalisti HR birtur

Bestu nemendur Háskólans í Reykjavík voru heiðraðir við hátíðlega athöfn í skólanum í dag. Að þessu sinni hlutu 65 nemendur viðurkenningu fyrir frábæran námsárangur á síðustu önn. Þessir nemendur komust á svokallaðan Forsetalista Háskólans í Reykjavík, en það þýðir að þessir nemendur fá felld niður skólagjöld við HR á yfirstandandi önn.

Innlent
Fréttamynd

Grundvöllur skylduaðildar brostinn ef til skerðingar kemur

Aðalfundur Öryrkjabandalags Íslands skorar á stjórnir þeirra fjórtán lífeyrissjóða sem boðað hafa skerðingar og niðurfellingar lífeyrisgreiðslna til öryrkja að hverfa frá þeim áformum sínum. Að öðrum kosti lítur Öryrkjabandalagið svo á að grundvöllur núverandi skylduaðildar að lífeyrissjóðunum í landinu sé brostinn.

Innlent
Fréttamynd

Fangar hafa aflýst hungurverkfalli

Fangar í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg hafa ákveðið að aflýsa hungurverkfalli sem þeir ætluðu að hefja klukkan fjögur í dag. Talsmaður fanganna segir þá hafa fengið skrifleg svör við beiðnum sínum í dag og að komið hafi verið til móts við hluta af kröfum þeirra um bætta aðstöðu, svo sem fæði og loftræstingu í klefum.

Innlent
Fréttamynd

Hlaut Fjöreggið í dag

Guðrún Adolfsdóttir matvælafræðingur hlaut í dag Fjöreggið, verðlaun Matvæla- og næringarfræðafélags Íslands, á ráðstefnu í tilefni matvæladags MNÍ.

Innlent
Fréttamynd

Dráttartaug komin í trilluna

Búið er að koma dráttartaug í vélavana trillu sem er skammt úti fyrir Siglunesi. Björgunarsveitin Sigurvin á Siglufirði fór að trillunni sem rak að landi. Einn maður er um borð.

Innlent
Fréttamynd

Dræm aðsókn í Ísafjarðarbíó

Aðsókn í Ísafjarðarbíó, elsta starfandi kvikmyndahús landsins, hefur verið ansi dræm í sumar. Fréttavefurinn Bæjarins besta eftir Steinþóri Friðrikssyni hjá Ísafjarðarbíói að hann telji að svokallaðar sjóræningjaútgáfur kvikmynda, sem hægt er að nálgast á netinu, spili þar stórt hlutverk.

Innlent
Fréttamynd

Actavis selur bréfin í Pliva

Actavis hefur selt allt hlutafé sitt í króatíska lyfjafyrirtækinu Pliva til bandaríska lyfjafyrirtækisins Barr. Actavis átti 20,8 prósent hlutafjár í Pliva með beinum og óbeinum hætti en söluverðmæti nemur 820 kúnum á hlut.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Björgunarsveit á leið að vélarvana bát við Siglufjörð

Björgunarsveit á björgunarbátnum Sigurvin á Siglufirði hefur verið kölluð út vegna vélarvana trillu skammt úti fyrir Siglunesi sem rekur að landi. Einn maður er um borð. Að sögn vaktstöðvar siglinga er björgunarskipið á leið á vettvang en jafnframt er verið að reyna að útvega hraðskreiðari bát til að fara til móts við trilluna.

Innlent