Innlent

Fréttamynd

Verður meðal stærstu verkalýðsfélaga landsins

Stofnfundur nýs sameinaðs verkalýðsfélags, Félags járniðnaðarmanna og Vélstjórafélags Íslands, verður um helgina. Um fjögur þúsund manns verða í félaginu sem verður meðal stærstu verkalýðsfélaga landins.

Innlent
Fréttamynd

Kristján Þór vill leiða í Norðausturkjördæmi

Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, sækist eftir að leiða lista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi kosningar í Norðausturkjördæmi. Hann er sá þriðji sem lýsir því yfir að hann vilji leiða listann. Kristján tilkynnti þetta á aðalfundi fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri í kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Google kaupir YouTube

Netleitarfyrirtækið Google hefur keypt YouTube sem er netsíða þar sem ýmsu afþreyingar myndbandsefni er dreift. Kaupverðið er um eitt hundrað milljarðar íslenskra króna.

Erlent
Fréttamynd

Sjálfstæðisflokkurinn sakaður um pólitískar njósnir

Sjálfstæðisflokkurinn var á Alþingi í dag sakaður um pólitískar njósnir. Formaður Vinstri-grænna segir að gróflega hafi verið brotin mannréttindi á friðarsinnum og vinstri mönnum af pólitískum andstæðingum þeirra og opinbert fé hafi verið misnotað í því skyni. Dómsmálaráðherra kynnti á föstudag fyrir ríkisstjórn og í dag fyrir formönnum þingflokka, tillögur um öryggislögreglu.

Innlent
Fréttamynd

Íslenska ríkisstjórnin fordæmir kjarnorkutilraunir

Kim Jong-Il, leiðtogi Norður-Kóreu, virðist orðinn algerlega einangraður eftir atburði næturinnar. George Bush Bandaríkjaforseti segir ljóst að Norður-Kóreu verði refsað fyrir að hafa gengið gegn vilja alls alþjóðasamfélagins. Íslenska ríkisstjórnin hefur sent stjórnvöldum í Norður-Kóreu yfirlýsingu þar sem tilraunin er fordæmd.

Innlent
Fréttamynd

Fjölga þarf plássum að Sogni

Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra segir að bæta þurfi við þrettán plássum við Réttargeðdeildina að Sogni. Unnið er að frumhönnun nýs húss sem byggja á á svæðinu.

Innlent
Fréttamynd

Breytingarnar munu skerða kjör bænda

Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtakanna, segir aðgerðir ríkisstjórnarinnar, til lækkunar matarverðs, ganga heldur lengra en bændur höfðu búist við. Hann segir tillögurnar skerða kjör bænda verulega.

Innlent
Fréttamynd

Sjúkdómsvæðing hegðunarvandamála

Hegðunarvandi íslenskra barna hefur margfaldast á síðustu tíu árum, segir deildarstjóri Miðgarðs í Grafarvogi. Nýlegar tillögur heilbrigðisráðherra munu ýta undir sjúkdómsvæðingu hegðunarvandamála barna.

Innlent
Fréttamynd

Vörugjöldin hverfa og vaskurinn lækkar í 7%

Matarreikningur heimilanna lækkar um tugi þúsunda á ári þegar tillögur ríkisstjórnarinnar um aðgerðir til að lækka matarverð taka gildi. Virðisaukaskattur á allan mat lækkar niður í sjö prósent og vörugjöld heyra sögunni til frá fyrsta mars á næsta ári.

Innlent
Fréttamynd

Umhverfisstofnun getur gert betur

Meginmarkmið stjórnvalda með stofnun Umhverfisstofnunar hafa aðeins að hluta náð fram að ganga. Þetta kemur fram í stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á Umhverfisstofnun.

Innlent
Fréttamynd

Möguleg leyniþjónustustarfsemi á vegum stjórnvalda

Möguleg leyniþjónustustarfsemi á vegum stjórnvalda verður rædd utan dagskrár á Alþingi í dag. Málshefjandi er Steingrímur J. Sigfússon en dómsmálaráðherra, Björn Bjarnason, verður til andsvara. Umræðan stendur í eina og hálfa klukkustund og verður hún send beint út hér á Vísi. Útsendingin hefst klukkan 15:30

Innlent
Fréttamynd

Verð á GSM símtölum í útlöndum lækkar

Vodafone Passport er ný þjónusta frá Vodafone sem gildir í 18 löndum og á Íslandi. Með þjónustunni lækkar verð símtala til Íslands frá þessum 18 löndum umtalsvert. Ef miðað er við 5 mínútna símtal er sparnaður viðskiptavina 48% í Danmörku, 59% í Frakklandi og 76% í Bretlandi þegar hringt er til Íslands.

Lífið
Fréttamynd

Engar formlegar viðræður milli Marel og Stork

Marel hefur sent frá sér tilkynningu vegna fjölmiðlaumfjöllunar Fréttablaðsins í dag um hugsanlega sameiningu Marel og Stork Food System í Hollandi. Marel vill koma því á framfæri að félögin hafa átt í óformlegum viðræðum um hugsanlega nánara samstarf þeirra. Engar formlegar viðræður séu í gangi um sameiningu Marels og Stork Food System.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Friðarsúla sem lýsir að eilífu

Myndlistarkonan og friðarsinninn Yoko Ono staðfestir í dag áform sín um friðarsúluna sem rísa á í Viðey. Áætlað er að kveikja á súlunni að ári liðnu, 9. október 2007 en dagurinn í dag er fæðingardagur Johns Lennons. Súlan mun lýsa í nafni friðar.

Innlent
Fréttamynd

RÚV í viðræðum um EM 2008

Ríkisútvarpið er komið í formlegar viðræður um kaup á sýningarrétti á Evrópukeppninni í knattspyrnu 2008 sem fram fer í Sviss og Austurríki. Sýn og Skjá­sport sóttust einnig eftir réttinum, en nú stefnir allt í að RÚV hreppi hnossið.

Innlent
Fréttamynd

Dómssátt ólíkleg niðurstaða

Málsaðilar í máli Jónínu Benediktsdóttur gegn 365 fjölmiðlum íhuga nú möguleika á dómsátt. Málið höfðaði Jónína vegna umfjöllunar DV um samband hennar við Styrmi Gunnarsson, ritstjóra Morgunblaðsins, með fyrirsögninni: Þau voru elskendur.

Innlent
Fréttamynd

Sjálfstæðismenn stilla upp

Ákveðið hefur verið að stilla upp á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar í vor. Þetta var samþykkt á þingi kjördæmaráðs flokksins um helgina.

Innlent
Fréttamynd

Aðeins lítill hluti af heildinni

Davíð Egilsson, forstjóri Umhverfisstofnunar, segir fimmtíu tonn af Hrafntinnu, sem tekin voru á friðlýstu svæði við Hrafntinnusker til þess að nota við klæðningu Þjóðleikhússins, vera aðeins lítið brot af því magni sem er að finna á Hrafntinnu við Hrafntinnusker.

Innlent
Fréttamynd

Hús brann til kaldra kola

Engin slys urðu á fólki er eldur braust út í íbúðarhúsi á bænum Búlandi skammt frá Hjalteyri í Eyjafirði í gær. Fjölskyldan í húsinu vaknaði upp við hljóð í reykskynjara og tókst að koma sér út úr húsinu og varð ekki meint af.

Innlent
Fréttamynd

Hrannar bar sigur úr býtum

Skákmót var haldið í Ráðhúsinu í gær í tilefni af Alþjóða geðheilbrigðisdeginum. Hrannar Baldursson bar sigur úr býtum en hann keppti fyrir hönd Hróksins. Þórður Harðarson sigraði í flokki sextíu ára og eldri, Elsa María Þorfinnsdóttir í flokki barna þrettán til átján ára og hinn ungi Dagur Ragnarsson í flokki tólf ára og yngri.

Innlent
Fréttamynd

Grbavica uppgötvun ársins

Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík lauk á laugardaginn með pomp og prakt og voru verðlaun veitt í hinum ýmsu flokkum. Aðalverðlaun hátíðarinnar sem nefnast „uppgötvun ársins“ gengu til bosnísku kvikmyndarinnar Grbavica eftir Jasmila Zbanic. Það var formaður dómnefndar, Niki Karimi, sem veitti verðlaunin en Grbavica heitir eftir samnefndu hverfi í Bosníu og er raunsætt drama um eftirstríðsárin í Bosníu.

Innlent
Fréttamynd

Vill leiða lista

Katrín Jakobsdóttir hefur ákveðið að gefa kost á sér í fyrsta sæti vinstri grænna í Reykjavíkurkjördæmum og Suðvesturkjördæmi. Forval flokksins mun fara fram 2. desember næstkomandi og mun þá koma í ljós hvort Katrín muni leiða annan hvorn þessara lista.

Innlent
Fréttamynd

Með minni háttar meiðsl

Rúmlega fertugur maður slapp lítið meiddur eftir að hafa ekið bifreið sinni út af á Reykjanesbraut í fyrrinótt. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað til þar sem klippa þurfti manninn út úr bifreiðinni en hún valt utan vegar.

Innlent