Innlent

Fréttamynd

Spá hækkun stýrivaxta

Greiningardeild Glitnis telur líklegt að Seðlabankinn hækki stýrivexti sína um 25 punkta 2. nóvember næstkomandi og að vextirnir fari í 14,25 prósent. Þá telur deildin líkur á að bankinn byrji að lækka vexti eftir mars á næsta ári og verði þeir komnir niður í 10 prósent fyrir lok ársins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Guðmundur Hallvarðsson hættir á þingi

Guðmundur Hallvarðsson, þingmaður og formaður samgöngunefndar Alþingis, ætlar að láta af embætti í lok kjörtímabilsins. Guðmundur hefur setið á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í fjögur kjörtímabil.

Innlent
Fréttamynd

Sigrún til Evrópuskrifstofu SA

Sigrún Kristjánsdóttir hefur hafið störf á Evrópuskrifstofu Samtaka atvinnulífsins í Brussel. Hún tekur við af Evu Margréti Ævarsdóttur sem lætur innan skamms af störfum á Evrópuskrifstofunni.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Alþingi sett í dag

Alþingi verður í dag sett í hundrað þrítugasta og þriðja sinn. Þingsetningarathöfnin hefst klukkan hálf tvö með guðþjónustu í Dómkirkjunni.

Innlent
Fréttamynd

Húsnæðisverð hækkar

Þvert ofan í flestar spár hefur húsnæðisverð hækkað um tæp 2,5% síðustu fjórar vikurnar og hefur því hækkaðu um tæp 11% á tólf mánuðum.

Innlent
Fréttamynd

Leit að týndu fólki

Björgunarsveitir voru þrívegis kallaðar út í gær, þar af tvívegis til að leita að fólki, sem týnst hafði við að leita að kindum. Það var á Brekknaheiði á Austfjörðum og fannst fólkið heilt á húfi.

Innlent
Fréttamynd

SAS sýnir Icelandair áhuga

Flugrisinn SAS hefur samkvæmt heimildum Fréttablaðsins sýnt áhuga á að kanna kaup á Icelandair. Forsvarsmenn SAS hafa sett sig í samband við FL Group og lýst áhuga á að skoða kaup á félaginu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Herleysinu fagnað

Andstæðingar hersetu Bandaríkjamanna á Íslandi komu saman á Suðurnesjum og í Reykjavík í gær og fögnuðu brotthvarfi hersins. Sjötíu manns fóru í skoðunarferð um varnarsvæðið og á NASA hélt Jón Baldvin Hannibalsson ræðu.

Innlent
Fréttamynd

Féll af baki við smölun og lést

Karlmaður á níræðisaldri lést eftir að hann féll af hestbaki ofarlega í Laxárdal í Dalasýslu í fyrradag. Maðurinn var bóndi og var við smalamennsku þegar slysið varð. Að sögn lögreglu virðist sem að hesturinn hafi hnotið um þúfu með þeim afleiðingum að maðurinn féll af baki.

Innlent
Fréttamynd

Má taka gloss og handáburð

Bandarísk stjórnvöld hafa nú endurskoðað hertar reglur frá því í byrjun ágúst og leyfa að einhverju leyti vökva í handfarangri í flugi, ef marka má nýlega frétt norska dagblaðsins Aftenposten.

Innlent
Fréttamynd

Margir keyra á og stinga svo af

Lögreglunni í Reykjavík var á laugardag tilkynnt um sex tilvik þar sem ekið hafði verið á mannlausar bifreiðar og síðan stungið af. Alls hafa 65 slík tilvik verið skráð í september.

Innlent
Fréttamynd

Hávaði og slagsmál í Keflavík

Lögreglan í Keflavík hafði í nógu að snúast í fyrrinótt, en ölvun, slagsmál og hávaðaútköll settu svip sinn á nóttina. Tvær minniháttar líkamsárásir voru tilkynntar, önnur á skemmtistaðnum H-punktinum og hin á Njarðarbraut.

Innlent
Fréttamynd

Þrír vígðir til embætta

Prests- og djáknavígsla fór fram í Dómkirkjunni í gær. Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, vígði Jóhönnu Guðrúnu Ólafsdóttur til djákna og Hans Guðberg Alfreðson og Guðmund Örn Jónsson til presta.

Innlent
Fréttamynd

Sækist eftir fjórða sæti

Dögg Pálsdóttir hæstaréttarlögmaður gefur kost á sér í fjórða sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Dögg er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og hefur um tíu ára skeið rekið eigin lögmannsstofu og fasteignasölu. Einnig er hún aðjúnkt við lagadeild Háskólans í Reykjavík.

Innlent
Fréttamynd

Porter verður heiðursdoktor

Michael E. Porter, prófessor við Harvard-háskóla, sem talinn er einn fremsti hugsuður heims á sviði stefnumótunar og stjórnunar, verður sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands í dag.

Innlent
Fréttamynd

Skólplögnin er í vafasömu ástandi

Skólplögnin á varnarsvæðinu er í vafasömu ástandi, vatnslagnir þarf að endurnýja og breyta þarf rafmagninu til að mæta evrópskum stöðlum. Faglega úttekt þarf að gera á fasteignunum. Kostnaður við breytingar verður gríðarlegur.

Innlent
Fréttamynd

Vill myndavélar á gangana

Skólameistari Menntaskólans á Egilsstöðum, Helgi Ómar Bragason, segir að hann sé að skoða hvort grundvöllur sé fyrir að kæra úrskurð Persónuverndar vegna öryggismyndavéla á heimavist skólans. Stofnunin hafði áður úrskurðað að skólanum væri ekki heimilt að hafa öryggismyndavélar á göngum heimavistarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Síðasta skip sumarsins farið

Faxaflóahafnir áætla að um 55.000 erlendir ferðamenn hafi komið með skemmtiferðaskipum til Reykjavíkur í sumar. Það er sami fjöldi og í fyrra, þegar einn af hverjum sjö erlendum ferðamönnum kom til landsins með skemmtiferðaskipi sem lagðist að Reykjavíkurhöfn.

Innlent
Fréttamynd

Fólksflæði mest til Íslands

Af Norðurlöndunum hafa Íslendingar hlutfallslega tekið á móti langflestum frá nýju aðildarríkjum ESB síðustu tvö ár. Um tvö prósent Íslendinga koma frá þessum löndum. Fólkið kemur aðallega frá Póllandi.

Innlent
Fréttamynd

Skilning skortir í samfélaginu

Talið er að um 500 manns hljóti heilaskaða hér á landi árlega. Algengustu orsakir heilaskaða eru umferðarslys og ofbeldisverk. Nú er í bígerð að stofna félag um málefni fólks með heilaskaða.

Innlent
Fréttamynd

Vændiskaup eru ofbeldi ekki viðskipti

Kaup á vændi eru ofbeldi en ekki viðskipti, segir séra Þorvaldur Víðisson miðborgarprestur vegna fréttar Fréttablaðsins um að tvær liðlega tvítugar stúlkur frá Póllandi hafi verið hér á einhvers vegum til að stunda vændi. Þorvaldur segir sjaldan rætt um þá sem eru að sækja svokallaða súlustaði eða kaupa sér vændi.

Innlent
Fréttamynd

Rykkornin eru risavaxin

Örtæknikjarni hefur verið opnaður í Háskóla Íslands. Örtækni nýtist flestum raunvísindagreinum og eru væntingarnar sem bundnar eru við nýja tækjakostinn risavaxnar.

Innlent
Fréttamynd

Ósátt við mengun

Svala Heiðberg, íbúi á Völlunum í Hafnarfirði, er afar ósátt við mengunina frá malbikunarstöðinni Hlaðbæ-Colas við Hringhellu og skilur ekki hvers vegna deiliskipulag er ekki afgreitt þannig að fyrirtækið geti hafið byggingaframkvæmdir á nýjum stað.

Innlent
Fréttamynd

Nam 12 milljónum

Taprekstur menntaskólans á Ísafirði nam rúmum 12 milljónum króna á síðasta ári samkvæmt rekstrareikningi skólans. Þessi halli er 5,7 prósent umfram fjárheimildir að sögn Ingibjargar S. Guðmundsdóttur skólameistara í viðali við Bæjarins besta.

Innlent
Fréttamynd

Mengun næstmest í Reykjavík

Losun koltvísýrings (CO2) vegna samgangna á hvern íbúa er næstmest í Reykjavík samkvæmt mælingum í sjö stórborgum á Norðurlöndunum. Losun koltvísýrings er aðeins meiri í Málmey í Svíþjóð.

Innlent
Fréttamynd

Gefur kost á sér í 2. til 3. sæti

Bryndís Friðgeirsdóttir, svæðisfulltrúi Rauða krossins á Vestfjörðum, sækist eftir 2.-3. sæti á framboðslista Samfylkingar í Norðvesturkjördæmi. Bryndís hefur verið bæjarfulltrúi síðastliðin fimmtán ár, fyrst fyrir Ísafjarðarkaupstað og síðar Ísafjarðarbæ eftir sameiningu sveitarfélaga á svæðinu. Hún hefur tvisvar tekið sæti sem varamaður á Alþingi.

Innlent
Fréttamynd

Sækist eftir fjórða sæti

Borgar Þór Einarsson, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna, gefur kost á sér í 4. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi. Borgar Þór er lögfræðingur að mennt og starfar sem sérfræðingur á lögfræðisviði Landsbanka Íslands.

Innlent
Fréttamynd

Vilja lækka tekjuskattinn

Danskir íhaldsmenn vilja lækka tekjuskattinn þannig að enginn greiði meira en helming launa sinna til ríkissjóðs. Þetta kom fram í viðtali við formann flokksins, Bendt Bendtsen, í dagblaðinu Politiken í gær. Bendtsen segir að Danir muni hljóta heimsmeistaratitilinn í skattheimtu ef fyrirhugaðar breytingar á skattakerfinu í Svíþjóð ganga eftir.

Innlent