Innlent Greiðslukortið í farsímanum Svo gæti farið að örbylgjuflögur (RFID) verði teknar upp í stað greiðslukorta þegar greitt er fyrir vörur og þjónustu. Örbylgjuflögunum væri hægt að koma fyrir í farsímum og yrðu þeir þannig alþjóðlegt greiðslutæki sem gætu komið í stað greiðslukortsins. Stærstu verslunarfyrirtæki heims hafa gert tilraunir og þróað þessa tækni í samstarfi við þekkt tæknifyrirtæki eins og Nokia. Innlent 23.8.2006 22:02 Ekki gjald á byggingavörur Innlent 23.8.2006 22:02 Fagna ályktun Framsóknar Stúdentaráð Háskóla Íslands hefur sent frá sér ályktun þar sem það fagnar því hversu mikil áhersla er lögð á menntamál í nýrri stjórnmálaályktun Framsóknarflokksins, þá sérstaklega hvað varðar jafnrétti til náms. Innlent 23.8.2006 22:02 Eðlilegt að leysa félagið upp Engin starfsemi er nú í Eignarhaldsfélagi Vestmanneyja og rætt hefur verið um að leysa félagið upp. Byggðastofnun lagði stæstan hlut í eignarhaldsfélagið, 78,5 milljónir eða um 40 prósent alls hlutafjár. Innlent 23.8.2006 22:03 Tekið til hendi í Grundarhverfi Ráðist verður í annan áfanga fegrunarátaksins Tökum upp hanskann fyrir Reykjavík á laugardaginn næstkomandi. Að þessu sinni verður tekið til hendinni í Grundarhverfi á Kjalarnesi. Innlent 23.8.2006 22:02 Búast við auknu samráði Stjórn Barnavistunar, félags dagforeldra, sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem stofnun nýs leikskólaráðs hjá Reykjavíkurborg er fagnað. Innlent 23.8.2006 22:03 Drapst hugsanlega við burð Innlent 23.8.2006 22:02 Tveir teknir með fíkniefni Ferðalangar sem reyndu að smygla inn umtalsverðu magni af örvandi efnum á mánudag sitja nú í gæsluvarðhaldi, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Þeir voru stöðvaðir á Keflavíkurflugvelli við komuna til landsins þar sem efnin fundust í fórum þeirra. Innlent 23.8.2006 22:02 Banna umferð um íshellana
276 277 278 279 280 281 282 283 284 … 334 ›
Greiðslukortið í farsímanum Svo gæti farið að örbylgjuflögur (RFID) verði teknar upp í stað greiðslukorta þegar greitt er fyrir vörur og þjónustu. Örbylgjuflögunum væri hægt að koma fyrir í farsímum og yrðu þeir þannig alþjóðlegt greiðslutæki sem gætu komið í stað greiðslukortsins. Stærstu verslunarfyrirtæki heims hafa gert tilraunir og þróað þessa tækni í samstarfi við þekkt tæknifyrirtæki eins og Nokia. Innlent 23.8.2006 22:02
Fagna ályktun Framsóknar Stúdentaráð Háskóla Íslands hefur sent frá sér ályktun þar sem það fagnar því hversu mikil áhersla er lögð á menntamál í nýrri stjórnmálaályktun Framsóknarflokksins, þá sérstaklega hvað varðar jafnrétti til náms. Innlent 23.8.2006 22:02
Eðlilegt að leysa félagið upp Engin starfsemi er nú í Eignarhaldsfélagi Vestmanneyja og rætt hefur verið um að leysa félagið upp. Byggðastofnun lagði stæstan hlut í eignarhaldsfélagið, 78,5 milljónir eða um 40 prósent alls hlutafjár. Innlent 23.8.2006 22:03
Tekið til hendi í Grundarhverfi Ráðist verður í annan áfanga fegrunarátaksins Tökum upp hanskann fyrir Reykjavík á laugardaginn næstkomandi. Að þessu sinni verður tekið til hendinni í Grundarhverfi á Kjalarnesi. Innlent 23.8.2006 22:02
Búast við auknu samráði Stjórn Barnavistunar, félags dagforeldra, sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem stofnun nýs leikskólaráðs hjá Reykjavíkurborg er fagnað. Innlent 23.8.2006 22:03
Tveir teknir með fíkniefni Ferðalangar sem reyndu að smygla inn umtalsverðu magni af örvandi efnum á mánudag sitja nú í gæsluvarðhaldi, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Þeir voru stöðvaðir á Keflavíkurflugvelli við komuna til landsins þar sem efnin fundust í fórum þeirra. Innlent 23.8.2006 22:02
Á 73 þar sem hámarkið er 30 Lögreglumál Lögreglan í Reykjavík stöðvaði í gær ökumann á 73 kílómetra hraða skammt frá grunnskóla í Reykjavík en hámarkshraði á götunni er 30 kílómetra hraði á klukkustund. Innlent 23.8.2006 22:02
Afhenti heimsverðlaunin fyrir endurnýjanlega orku Þetta var í fyrsta sinn sem verðlaunin eru veitt og fór afhendingin fram á heimsþingi sem haldið er í Flórens á Ítalíu. Á þinginu eru um 800 fulltrúar frá 107 löndum. Til verðlaunanna var stofnað að íslensku frumkvæði og var Þorsteinn Ingi Sigfússon prófessor þar í fararbroddi en Grímur Marínó Steindórsson, fyrrum bæjarlistamaður í Kópavogi, er höfundur verðlaunagripsins. Innlent 23.8.2006 18:31
Telur meira en ókyrrð þurfa til að granda flugvél Formaður Rannsóknarnefndar flugslysa telur ókyrrð eina og sér ekki geta grandað farþegaflugvélum heldur þurfi fleiri þættir að koma til. Eins segir hann sjaldgæft að eldingar verði til þess að flugvélar hrapi. Innlent 23.8.2006 18:04
Gæti hafað skaðað sig sjálfur Lögreglan hefur ekki útilokað að maðurinn, sem ráðist virðist hafa verið á á Kárahnjúkum aðfaranótt sunnudags, hafi veitt sér áverkana sjálfur. Innlent 23.8.2006 18:01
Erindi ekki sent áfram fyrir mistök Utanríkisráðuneytið segir að mistök hafi valdið því að erindi rússneska sendiherrans, varðandi þyrlur fyrir Landhelgisgæsluna, hafi ekki verið formlega afgreitt. Innlent 23.8.2006 18:23
Berjast gegn kvikasilfursmengun Það var ákveðið á fundi umhverfisráðherra Norðurlandanna sem fram fór á Svalbarða þann 21. ágúst að stuðla að efldri baráttu gegn mengun af völdum kvikasilfurs og þrávirkra lífrænna efna. Norðurlöndin munu beita sér fyrir gerð alþjóðasáttmála gegn kvikasilfursmengun, sem fer vaxandi víða, þar á meðal á Norðurlöndum. Innlent 23.8.2006 17:16
Enn díselolía á bílnum Áheitahringferð til styktar samtökum krabbameinssjúkra barna lauk um klukkan eitt í dag. Tæpir fjórtánhundruð kílómetrar eru að baki og enn var nokkuð eftir að díselolíu þegar bíllinn lauk hringferðinni um landið. Innlent 23.8.2006 17:32
Vill styrkja stöðu háskólanna Menntamálaráðherra er ánægður með niðurstöður nýrrar skýrslu OECD um stöðu háskóla á Íslandi. Hún vill styrkja stöðu háskólanna og auka gæði þess náms sem þar er í boði. Innlent 23.8.2006 17:37
Nýr upplýsingavefur um háskólanám Framhald. is, nýr upplýsingavefur um framhalds- og háskólanám var opnaður dag. Fjórir nemar við Verslunarskóla Íslands eiga veg og vanda að heimasíðunni. Innlent 23.8.2006 15:19
Metafkoma hjá SPRON Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis (SPRON) skilaði rúmum 2,6 milljarða króna hagnaði á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er 67,1 prósents aukning á milli ára.Afkoma SPRON á sex mánaða tímabili hefur aldrei verið betri. Viðskipti innlent 23.8.2006 14:49
Afkoman tæplega tvöföld Lánasjóður íslenskra sveitafélaga skilaði rúmum 717 milljóna króna tekjuafgangi á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er tæplega 341 milljóna króna aukning frá sama tíma í fyrra. Í tilkynningu frá lánasjóðnum segir að hækkun verðlags hafi haft jákvæð áhrif á afkomu sjóðsins þar sem útlán sem fjármögnuð eru með eigin fé hans eru verðtryggð. Viðskipti innlent 23.8.2006 14:32
Íslenskur ríkisborgari sagður með falsað vegabréf í Tel Aviv Íslenskur ríkisborgari af palestínskum ættum er í haldi lögreglu á flugvellinum í Tel Aviv í Ísrael sakaður um að hafa ferðast á fölsuðu vegabréfi. Ættingjar mannsins hér heima og í Ísrael reyna hvað þeir geta til að koma í veg fyrir að honum verði vísað frá Ísrael. Innlent 23.8.2006 11:57
Sekt fyrir að keyra of hægt Lögreglan í Reykjavík stöðvaði í gær ökumann á Vesturlandsvegi en sá var með hjólhýsi í eftirdragi. Viðkomandi ók töluvert undir 50 km hraða og á eftir honum myndaðist löng röð bíla. Við þetta skapaðist hættuástand að mati lögreglunnar. Aksturslag sem þetta getur kostað viðkomandi ökumann tíu þúsund krónur í sekt og tvo punkta í ökuferilsskrá. Innlent 23.8.2006 11:59
Áheitahringferð gengur vel Áheitahringferð til styrktar Samtökum krabbameinssjúkra barna gengur eins og í sögu. Tæplega einn fjórði er eftir af tanknum en takmarkið er að fara hringinn í kringum landið á einum tanki. Búist er við að ferðalangarnir ljúki ferðinni klukkan tvö í dag ef allt gengur að óskum. Innlent 23.8.2006 11:54
Prófar hljóðbombur til að vara við Kötlugosi Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hyggst í dag prófa hljóðbombur á svæðinu frá Þórsmörk að Hrafntinnuskeri en í athugun er að nota hljóðbombur til að vara við Kötlugosi ef til þess kemur. Hljóðbomburnar eru svipaðar að gerð og neyðarflugeldar en bjarmi kemur ekki af þeim aðeins hávær hvellur. Samskonar hljóðbombur hafa verið notaðar til að kalla út björgunarlið í bæjum og þorpum á Bretlandi með góðum árangri. Innlent 23.8.2006 11:12
Tekin ákvörðun um byggingu sundlaugar í haust Í haust verður tekin ákvörðun um byggingu nýrrar sundlaugar og íþróttamiðstöðvar á Ísafirði. Fréttavefur Bæjarins besta greinir frá því að Halldór Halldórsson bæjarstjóri og fulltrúi einkaaðilans, sem kemur að byggingunni, muni hittast á næstu dögum til að fara yfir stöðu mála. Ýmsar útfærslur eru á rekstarsamningi milli opinberra aðila og einkafyrirtækja en enn á eftir að taka ákvörðun um hvernig rekstri verður háttað. Sundlaugin á Ísafirði er komin til ára sinna en hún var tekin í notkun árið 1945 og er hún innanhús. Innlent 23.8.2006 09:42
Aflaverðmæti dróst saman um milljarð Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 33 milljörðum króna á fyrstu fimm mánuðum ársins. Þetta er 1 milljarði krónu meira en á sama tíma í fyrra. Að sögn Hagstofunnar hefur aflaverðmæti dregist saman um rúman milljarð króna eða 4 prósent á milli ára. Viðskipti innlent 23.8.2006 09:11
Réttað yfir morðingja barnungrar fegurðardrottningar Réttarhöldin yfir John Mark Karr, sem grunaður er um morðið á hinni sex ára JonBenet Ramsey fyrir tíu árum hófust í Colorado í Bandaríkjunum í gær. Erlent 23.8.2006 08:09
Um 600 tilkynningar á ári um brot gegn börnum Um 600 tilkynningar um brot gegn börnum berast á ári hverju til neyðarlínunnar 112. Í langflestum málanna er um vanrækslu barna að ræða, áhættuhegðun eða ofbeldisverk gagnvart þeim. Starfsmenn hennar kalla til lögreglu í einu til tveimur tilvikum af tíu. Innlent 22.8.2006 21:52
Sælgætisneysla hefur aukist Ávaxtaneysla Íslendinga hefur aukist verulega síðustu tvö ár eða um 13,2 kg á hvern íbúa. Þetta kemur fram í tölum um fæðuframboð á Íslandi árin 2004 og 2005. Innlent 22.8.2006 21:51
Brottvísun erlendra kvenna gagnrýnd Samtök kvenna af erlendum uppruna gagnrýna harkalega stjórnsýslu og segja að brottvísanir fráskildra kvenna af erlendum uppruna auðveldi íslenskum eiginmönnum að kúga erlendar konur sínar til hlýðni. Innlent 22.8.2006 21:52