Innlent

Fréttamynd

Fleiri samningar í pípum FME

Stóraukin starfsemi íslenskra banka á erlendri grundu hefur orðið til þess að breyta störfum starfsfólks Fjármálaeftirlitsins töluvert. Starfssvið eftirlitsins víkkar út í samræmi við útrás þeirra. FME ber eftirlitsábyrgð á starfsemi útibúa íslensku bankanna að langstærstu leyti á erlendri grundu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Líkur á nýju tilboði í vikunni

Líklegt er að hluthöfum í Actavis muni berast nýtt yfirtökutilboð frá Novator fyrir vikulok. Formlegt tilboð Novators tók gildi 5. júní og stendur opið til 3. júlí. Í skilmálum þess kemur fram að ef breyta eigi tilboðinu innan tilboðsfrestsins verði að gera það á fyrstu tveimur vikum hans. Ella bætist tvær vikur við heildarfrestinn.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fimm sjóðir í eina sæng

Sjóðsfélagar í fimm lífeyris­sjóðum sem eru í vörslu Landsbankans samþykktu að sameina sjóðina í einn. Þessir sjóðir eru Lífeyrissjóður Eimskipafélags Íslands hf., Lífeyrissjóður Flugvirkjafélags Íslands, Lífeyrissjóður Mjólkursamsölunnar, Eftirlaunasjóður starfsmanna Olíuverzlunar Íslands hf. og Lífeyrissjóður starfsmanna Áburðarverksmiðju ríkisins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Lítið vitað um íslenska markaðinn

Þeir Árni Halldórsson og Gunnar Stefánsson segja lítið vitað um stöðu íslenskra fyrirtækja á sviði vörustjórnunar. Mun meira liggi fyrir um norræna markaðinn, sem hafi verið grannskoðaður. „Við vitum í rauninni ekki neitt um íslenska markaðinn,“ segir Árni. „Það eru samt til skoðanir einstakra stjórnenda, en þær segja lítið til um hvernig ástandið er þegar á heildina er litið.“

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Vara við fyrirtækinu Aquanetworld

Samtök verslunar og þjónustu vara við viðskiptum við fyrirtækið Aquanetworld sem skráð er á Íslandi. Eigandi fyrirtækisins var dæmdur í hæstarétti fyrir helgi til að endurgreiða konu tæpar þrjár milljónir sem hann fékk hana til að leggja fram með saknæmum og ólögmætum hætti. Fjölmiðlar í Englandi hafa einnig varað við fyrirtækinu.

Innlent
Fréttamynd

Biluð umferðaljós

Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu greinir frá því að umferðaljós við Kringlumýrabraut og Laugaveg eru biluð. Lögregla stjórnar umferðinni á meðan á viðgerð stendur.

Innlent
Fréttamynd

Umferðaslys við Hvalfjarðargöngin

Umferðaslys varð norðanvið Hvalfjarðargöngin um klukkan 15:00 í dag. Tveir voru fluttir á sjúkrahúsið á Akranesi en eru að sögn vakthafandi læknis með minniháttar meiðsl.

Innlent
Fréttamynd

Íslenskur strætó í Kína

Auglýsingar og ljósmyndir frá Íslandi munu síðar í mánuðinum þekja tveggja hæða almenningsvagn í Peking í Kína. Þetta kemur fram í vefriti utanríkisráðuneytisins, Stiklur. Sendiráðið Íslands í Kína komst nýverið að samkomulagi við fjölmiðlafyrirtækið Viavom Outdoor Ltd. um að fyrirtækið færði vagninn í íslenskan búning.

Innlent
Fréttamynd

Ókeypis bóluefni fyrir áhættuhópa

Sóttvarnarlæknir undirritaði nýverið fyrir hönd hins opinbera samning við GlaxoSmithKline (GSK) og Icepharma um kaup á bóluefni gegn árlegri inflúensu. Bóluefnið mun verða áhættuhópum að kostnaðarlausu en selt öðrum á kostnaðarverði. Þetta kemur fram í nýjasta tölublaði Farsóttarfrétta.

Innlent
Fréttamynd

Fangar opna vef

AFSTAÐA, félag fanga, hefur opnað nýjan vef á slóðinni timamot.is Á vefnum má finna ýmsar upplýsingar er varða fanga og aðstandendur þeirra.

Innlent
Fréttamynd

Landspítali fær loftdýnur að gjöf

Lionsklúbburinn Freyr hefur fært deild R-2 á Landspítala Grensási tvær loftdýnur til sértækra sáravarna að gjöf. Dýnurnar eru af gerðinni Auta Logic 200.

Innlent
Fréttamynd

Nýr framkvæmdastjóri OR

Jakob Sigurður Friðriksson verkfræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Framleiðslu og sölu hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Undir hann heyra einnig framkvæmdir Orkuveitunnar.

Innlent
Fréttamynd

Tveir menn dæmdir fyrir innbrot í Norðlenska hf.

Tveir karlmenn voru í Héraðsdómi Norðurlands eystra í gær dæmdir í skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnað. Annar fékk tveggja ára dóm en hinn hafði hlotið þriggja ára skilorðsbundinn dóm í maí slíðastliðinn og var sá dómur ekki þyngdur.

Innlent
Fréttamynd

Fyrirtæki Marel Food Systems fær dönsk útflutningsverðlaun

Scanvaegt International, dótturfyrirtæki Marel Food Systems, hlaut í gær heiðursverðlaun Friðriks níunda Danakonungs fyrir framúrskarandi árangur í útflutningsstarfi. Það var Hinrik prins, eiginmaður Margrétar Þórhildar Danadrottningar, sem afhenti forstjórum Scanvaegt, Lárusi Ásgeirssyni og Erik Steffensen, heiðursverðlaunin við konunglega athöfn í Fredensborgarhöll.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fimmtán ára tekinn fyrir hraðakstur

Fimmtán ára piltur var stöðvaður eftir að bíll sem hann ók mældist á 130 kílómetra hraða á Reykjanesbraut rétt fyrir miðnætti. Hann var að sjálfsögðu próflaus og hafði stolið bílnum. Ekki munaði heldur nema nokkrum mínútum að þeir brytu líka ákvæði um útivistarheimildir unglinga.

Innlent
Fréttamynd

Verðbólga mælist 4,0 prósent

Vísitala neysluverð hækkaði um 0,52 prósent frá maí og jafngildir því að verðbólga lækkar úr 4,7 prósentum í 4,0 prósent á ársgrundvelli, samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands. Hækkunin er í lægri kantinum en spár greiningadeilda viðskiptabankanna spáðu allt frá 0,4 til 0,8 prósenta hækkun á vísitölu neysluverðs á milli mánaða.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Middlesbrough vill Grétar Rafn

Enska liðið Middlesbrough ætlar sér að gera tilboð í Grétar Rafn Steinsson, leikmann AZ Alkmaar og íslenska landsliðsins. Þetta kemur fram á fréttavef Skysports í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Rúmlega 20% Reykvíkinga versla aldrei í miðborginni

Rúmlega 20 prósent Reykvíkinga fara aldrei í verslun í miðborginni og tæp 23 prósent versla þar sjaldnar en einu sinni í mánuði. Samanlagt fara því rösklega 43 prósent höfuðborgarbúa nær aldrei í verslun í miðborginni, samkvæmt könnun Gallups og Fréttablaðið greinir frá.

Innlent
Fréttamynd

Sæborg dró Dalaröst til hafnar

Dragnótabáturinn Sæborg ÞH kom með Dalaröst ÞH í drætti til Húsavíkur í gærkvöldi eftir að Dalaröst fékk veiðarfæri í skrúfuna þegar báturinn var að veiðum á Öxarfirði í gær.

Innlent
Fréttamynd

Fjórir teknir fyrir hraðakstur á Akureyri

Ungir ökumenn virðast vera farnir að hita upp fyrir svonefnda bíladaga á Akureyri næstu helgi, því lögreglan stöðvaði fjóra fyrir of hraðann akstur innanbæjar í gærkvöldi og í nótt. Engin var þó á ofsahraða.

Innlent
Fréttamynd

Flugfélag Íslands eini tilboðsgjafi í flug til Eyja

Flugfélag Íslands var eini tilboðsgjafi í áætlunarflug til Vestmannaeyja, en Vegagerðin óskaði eftir tilboðum. Útboðið var í tveimur hlutum og var tilboð Flugfélagsins í báðum tilvikum tugum milljóna hærra en kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar gerði ráð fyrir.

Innlent
Fréttamynd

Fagurey strandaði við Grindavík

Þrjátíu tonna eikarbátur, Fagurey HF 21, strandaði við innsiglinguna til Grindavíkur, þegar báturinn var að koma til hafnar laust fyrir miðnætti. Þrír menn voru um borð og kölluðu þeir eftir aðstoð björgunarsveitar.

Innlent
Fréttamynd

Kaupþing spáir 10 prósenta hagvexti

Greiningardeild Kaupþings spáir því að hagvöxtur verði við 10 prósent á fyrsta fjórðungi ársins miðað við sama tíma í fyrra. Má vöxtinn einkum rekja til um 25 prósenta vaxtar í útflutningi á vöru og þjónustu á fjórðungnum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Þingflokkur VG styður tillögur Hafrannsóknarstofnunar

Þingflokkur VG hefur sent frá sér ályktun um stöðu þorskstofnsins, vanda sjávarbyggða og heildarendurskoðunar sjávarútvegsstefnunnar. Þingflokkurinn telur skýrslu Hafrannsóknastofnunarinnar um ástand þorskstofnsins fela í sér mjög alvarlegar upplýsingar.

Innlent
Fréttamynd

Tildrög slyss í Lundareykjardal óljós

Ekki liggur fyrir hvað olli því að kona á níræðisaldri drukknaði í heimasundlaug að bænum Þverfelli í Lundareykjadal um klukkan 15:00 í gær, sunnudag. Ættingjar konunnar af næsta bæ komu að henni. Lögreglan í Borgarnesi rannsakar málið og mun krufning fara fram.

Innlent