Skoðanir

Fréttamynd

Berlín

Að Berlín væri gjöreyðilögð í stríðinu var okkur ungmennum þeirra ára harla lítið undrunarefni. Í þessu síðasta vígi Hitlers voru ótrúlega illvígir bardagar fanatískra þýskra hersveita við rússneska herinn og eftir stóðu rústir einar. Berlín sýndist manni af fréttamyndum ekki annað en steinhrúga. Um tuttugu árum síðar gafst höfundi þessara lína tækifæri að heimsækja borgina, þá hersetna af sigurvegurunum en múrinn skildi að Vestur og Austur Berlín.

Skoðun
Fréttamynd

Á hærra plani

Munið þið eftir því þegar brandarakallinn í Seðlabankanum líkti starfslokum sínum við aftöku Jesú Krists? Það féll í frekar grýttan jarðveg.

Bakþankar
Fréttamynd

Eru mannréttindi ekki fyrir Íslendinga?

Nú er réttlætiskennd minni algerlega misboðið. Að heyra í íslenskum ráðamanni, Össuri Skarphéðinssyni í ræðustól hneykslast á mannréttindabrotum vegna ferðar hóps til Gazasvæðisins var dropinn sem fyllti mælinn hjá mér – og hann er ekki eini ráðamaðurinn sem virðist loka augunum fyrir því sem er að gerast hér á landi. Hvað eru forráðamenn þessarar þjóðar að hugsa? Hvernig væri að byrja á því að berjast gegn mannréttindabrotum þeim sem framin hafa verið og eru framin enn á Íslandi, áður en menn fara að belgja sig út á erlendum vettvangi? Eða skiptir það ekki neinu máli, af því að um Íslendinga er að ræða? Hvers konar sýndarmennska er þetta?

Skoðun
Fréttamynd

Bændasamtökin og aðrétturnar

Hvenær tekur maður við „aðréttum" og hvenær tekur maður ekki við „aðréttum", það er vandinn, að minnsta kosti ef maður er í forsvari fyrir íslenska bændastétt.

Skoðun
Fréttamynd

Fjármögnun Búðarhálsvirkjunar

Landsvirkjun virðist ganga treglega að semja við erlenda banka um að fjármagna byggingu Búðarhálsvirkjunar. Það bendir til að erlendu bankarnir reyni að knýja fram óeðlilega háa vexti vegna meintrar slæmrar fjárhagsstöðu Landsvirkjunar og þá líklega vegna vanda eigandans. Hins vegar er til miklu betri leið fyrir Íslendinga.

Skoðun
Fréttamynd

Lausnir fyrir Iðnskólann

Við höfum gagnrýnt aðgerðaleysi skólanefndar og störf skólameistara Iðnskólans í Hafnarfirði og höfum margsagt að það var hægt að leiða launadeiluna farsællega til lykta árið 2003 þegar kennarar við IH fóru að skoða hvers vegna þeir væru lægri í launum en í sambærilegum skólum.

Skoðun
Fréttamynd

Rök Bjarna Benediktssonar

Í Fréttablaðinu 25. septem-ber eru þau ummæli höfð úr grein Bjarna Benediktssonar í Morgunblaðinu frá deginum áður að verði ráðherrar fyrri stjórnar sóttir til sakar fyrir landsdómi á grunni mats, mætti allt eins sækja núverandi ráðherra til sakar á sams konar grunni. Vafalítið hefur Bjarni þarna rétt að mæla þótt það séu ef til vill ekki lög sem hann mælir.

Skoðun
Fréttamynd

Hallærislegur útlendingur

Eftir að hafa búið um nokkra hríð á Spáni hættir mér til að gleyma því hversu hallærislegur ég er í augum margra heimamanna. Geng ég þó aldrei í sokkum og sandölum en slíkur útgangur er eitt aðalsmerki hallærislegra útlendinga.

Bakþankar
Fréttamynd

Þrískipting valdsins

Sú meginkrafa þingsins að forseti framselji vald sitt til að skipa ríkisstjórn, eins og margir vilja lesa út úr 13. grein stjórnarskrárinnar, verður að teljast fremur hæpin túlkun þegar betur er að gáð. Sú grein kom með stjórnarskránni 1874 og fól í sér framsal á valdi konungs til umboðsmanns hans hér á landi. Það umboð kom til af því að á 19. öld voru ferðir til landsins stopular og ótryggar. Þar sem konungur sat í Kaupmannahöfn varð hann að láta ráðgjafa sinn á Íslandi framkvæma vald sitt.

Skoðun
Fréttamynd

Landráð fyrir draumastarfið

"Vilt þú starfa við að hlusta á annarra manna símtöl?" Þegar ég heyrði draumastarfið mitt auglýst í fréttatíma BBC ætlaði ég ekki að trúa eigin eyrum. Frá því heilinn í mér hóf að greina orðaskil hefur helsta áhugamál mitt verið að hlera samtöl sem ekki eru ætluð mér.

Bakþankar
Fréttamynd

Ósinn og uppsprettan

Í eina tíð var ég formaður í hreyfingu stjórnmálaflokks í þorpi vestur á landi. Það stóð ekki lengi, en var afar áhugaverð lífsreynsla. Í litlu þorpi eru allir stórir. Einhverju sinni var aðalfundur rétt fyrir sveitarstjórnarkosningar. Á fundinum var farið yfir tillögur um frambjóðendur, en þetta var áður en prófkjörin tóku völdin.

Fastir pennar
Fréttamynd

10% mannréttindi, 90% forréttindi

Deilan um úthlutun fiskveiðiauðlindarinnar hefur lengi verið afar snúin. Ekki vegna þess að málið sé flókið í eðli sínu, heldur vegna þess að það er viljandi flækt af hagsmunaaðilum og skósveinum þeirra.

Skoðun
Fréttamynd

Kjósendur opnir fyrir nýjungum

Ýmsar ályktanir er hægt að draga af niðurstöðum skoðanakönnunar Fréttablaðsins á fylgi flokkanna, sem sagt var frá í gær. Í fyrsta lagi vekur það athygli að þrátt fyrir að stjórnarflokkarnir séu ósammála um mörg stærstu málin í íslenzkri pólitík, hver uppákoman reki aðra í stjórnarsamstarfinu og ýmis mikilvæg mál sitji föst vegna þess að ríkisstjórnin hefur í raun ekki þingmeirihluta fyrir þeim, styður áfram um helmingur þeirra sem afstöðu taka stjórnarflokkana.

Fastir pennar
Fréttamynd

Notkun á jarðgufu eingöngu til raforkuframleiðslu er rányrkja

Það er merkilegt hvað lítið eða ekkert er rætt um þessa staðreynd. Ég dró fram úr tölvunni gamlan Lagnafréttapistil frá árinu 1992 þar sem ég kom inn á þetta mál og kveikjan að þeim pistli voru ummæli Jóhannesar Zoëga, fyrrum hitaveitustjóra, en undir hans forystu var Nesjavallavirkjun reist, einhver hagkvæmasta virkjun sem reist hefur verið hérlendis.

Skoðun
Fréttamynd

Púslmynd af brjóstakrabbameini

Á fimmtudaginn birtist rannsóknargrein í hinu virta læknatímariti New England Journal of Medicine um árangur hópleitar að brjóstakrabbameinum í Noregi. Samkvæmt niðurstöðum á hópleitin minni þátt í lækkun dánartíðni en áður hefur verið talið.

Skoðun
Fréttamynd

Sannleikurinn mun gera yður frjálsa

Á Alþingi er nú rætt hvort kæra skuli fjóra, þrjá eða engan fyrrverandi ráðherra fyrir landsdómi. Þótt leiðtogar í atvinnulífi og stjórnmálum hafi komið okkur á vonarvöl má hefnd ekki vera okkur efst í huga.

Skoðun
Fréttamynd

Guð vors lands

Er þjóðsöngur Íslendinga úreltur? Ýmsir félagsfræðingar, t.d. Robert Bellah, hafa sýnt að þjóðsöngvar gegna ekki aðeins almennu stemnings- og samstöðuhlutverki, heldur líka trúarlegu hlutverki. Gildir einu hvort sem texti þeirra vísar til Guðs, trúarstefs eða ekki. Þetta hlutverk varðar helgun og fullgildingu þjóðar.

Bakþankar
Fréttamynd

Vindsperringur viðskiptalífsins

Hverjum getum við kennt um ófarir okkar? Hverja eigum við að krossfesta til að geta svo haldið áfram með okkar litla sæta samfélag? Og fengið á tilfinninguna að réttlætinu hafi verið fullnægt og allt sé hér gott og heilbrigt? Davíð? Geir? Sollu? Jón Ásgeirsklíkuna? Samband íslenskra sjálftökumanna? Björgólfsfeðga?

Fastir pennar
Fréttamynd

Holan dýpkar

Með hverju álitinu sem kemur fram um lögmæti kaupa Magma Energy á meirihlutanum í HS orku virðist ríkisstjórnin hverfa dýpra ofan í holuna sem hún hefur grafið í Magma-málinu.

Fastir pennar
Fréttamynd

Skýrari línur

Dómur Hæstaréttar um vexti á myntkörfuláni og viðbrögð ríkisstjórnarinnar við honum stuðla að því að draga úr óvissu um stöðu skuldara. Fyrri dómur Hæstaréttar, sem dæmdi gengisviðmiðun lána sem veitt eru í íslenzkum krónum ólöglega, svaraði ekki spurningunni um hvernig reikna ætti vexti af lánunum.

Fastir pennar
Fréttamynd

„Ósættið“ við Iðnskólann í Hafnarfirði

Í Fréttablaðinu hinn 10. september sl. birtist fréttaskýring þar sem tveir kennarar við Iðnskólann í Hafnarfirði (IH), Margrét Ingólfsdóttir og Sigríður Júlía Bjarnadóttir, ryðja úr sér svo dæmalausum rangfærslum og óhróðri um sannkallaðan heiðursmann, Jóhannes Einarsson, skólameistara skólans, að mann setur hljóðan. Sér undirritaður sig því knúinn til að koma á framfæri eftirfarandi sjónarmiðum.

Skoðun
Fréttamynd

Umhyggja í stað ofbeldis

Fréttin af aðförinni að kúbversku feðgunum vekur óhug. Það að þeir, og að því er fullyrt er, fleiri innflytjendur, hafi neyðst til að flýja land vegna ofsókna og áreitis er skelfileg og óþolandi smán fyrir samfélag okkar.

Skoðun
Fréttamynd

Andleg samkynhneigð karla

Skýrslu þingmannanefndar um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis fylgir áhugaverður viðauki, greining á skýrslu rannsóknarnefndar út frá kynjafræðilegu sjónarhorni.

Fastir pennar
Fréttamynd

Umhverfisvernd í stjórnarskrá

Stjórnlagaþing mun koma saman í febrúar næstkomandi. Í lögum segir að það skuli sérstaklega fjalla um átta þætti, þar á meðal umhverfismál og eignarhald náttúruauðlinda. Umræða um eignarhald náttúruauðlinda verður vafalaust fyrirferðarmikil en hitt er ekki síður mikilvægt að þingið fjalli vandlega um sérstakt umhverfisverndarákvæði.

Skoðun
Fréttamynd

Færeyjar, Ísland og evran

Það gildir um gjaldeyrismál líkt og um lífið sjálft, að yfirleitt eru fleiri en ein leið fær að settu marki. Stundum á vel við að halda úti eigin gjaldmiðli og leyfa gengi hans að fljóta. Stundum er betra að festa gengið við gjaldmiðla annarra þjóða. Og stundum á vel við að blýfesta gengið, þannig að helzt verði ekki aftur snúið, og er það jafnan gert með því að leggja þjóðmyntina til hliðar og taka upp annan gjaldmiðil.

Fastir pennar
Fréttamynd

Einkabankar búa til lögeyri landsins

Thomas Jefferson, höfundur sjálfstæðisyfirlýsingar Bandaríkjanna og þriðji forseti þeirra, varaði við því að afhenda einkabönkum valdið til að gefa út gjaldmiðil þjóðarinnar. Varúðarorð hans eiga vel við í dag, en hann sagði: „Ef bandaríska þjóðin leyfir einkabönkum nokkurn tíma að stjórna útgáfu þjóðargjaldmiðilsins, fyrst með verðbólgu, síðan með verðhjöðnun, þá munu bankarnir og einkafyrirtækin sem vaxa upp í kringum þá svipta fólkinu öllum þeirra eigum þar til börnin þeirra vakna heimilislaus í landinu sem forfeður þeirra byggðu.“

Skoðun